Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 13 AKUREYRI 117 metra löng flotkví kom til heimahafnar á Akureyri á sunnudagskvöld Heildarkostn- aður nálægt 230 millj. kr FLOTKVÍIN, sem Akureyrarhöfn hefur keypt og kom til heimahafnar á sunnudagskvöld, verður tekin í notkun í ágúst. Hugsanlegt er, ef stærri verkefni bjóðast, að' byija að nota hana fyrr að sögn Jóhann- esar Óla Garðarssonar, framleiðslu- stjóra Slippstöðvarinnar-Odda, sem leigir kvína af Akureyrarhöfn. Fjöldi manns var á Tangabryggju að kveldi hvítasunnudags þegar flotkvíin lagði að en hún hafði ver- ið dregin frá hafnarborginni Kleipeda í Litháen þar sem hún var smíðuð. Þýska dráttarskipið Fa- irplay XIV dró kvína yfir hafið og tók siglingin rétt um 12 sólar- hringa. Lokið verður við gerð kvíarstæð- is flotkvíarinnar í dag, miðvikudag, en samtals hafa verið grafnir út 144 þúsund rúmmetrar við gerð stæðisins sem er norðan við slipp- Árleg MA-hátíð ÁRLEG hátíð MA-stúdenta verður haldin í íþróttahöllinni á Akureyri 16. júní næstkomandi. Fyrsta hátíðin með þessu sniði var haldin 1990 að frum- kvæði 25 ára júbílanta og hefur síðan verið hápunktur í dagskrá afmælisárganga. Að þessu sinni hafa 25 ára stúdentar með að- stoð. 10 ára stúdenta undirbúið hátíðina sem verður með svip- uðu sniði og síðustu ár. Hátíðin er öllum opin og verð- ur forsala aðgöngumiða fyrir veislugesti í anddyri íþróttahall- arinnar 15. júní frá kl. 14 til 17 og 16. júní á sama stað milli kl. 12 og 17. Réttindalaus a fjorhjoli UNGUR piltur meiddist lítillega er hann ók á fjórhjóli á ljósa- staur annan dag hvítasunnu. Pilturinn sem er 14 ára var réttindalaus á óskráðu fjórhjóli. Hann missti vald á hjólinu og hafnaði á ljósastaur. Lögreglan á Akureyri stöðv- aði um 20 ökumenn fyrir hrað- akstur í bænum um helgina, þar var einn sem tekinn var á 115 kílómetra hraða á Hörgárbraut þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Hann var sviptur ökuréttindum. stöðvarskemmuna. Síðasta hluta framkvæmda vegna flotkvíarinnar, sem eru festingar, verður lokið 1. ágúst næstkomandi. Kvíin verður á næstu dögum tilbúin til notkunar og næstu tvo mánuði verður hún staðsett við Tangabryggju eða þar til festingar hennar verða klárar. Upptaka skípa auðveld Hægt verður að taka öll stærstu fiskiskip íslendinga upp í flotkvína til viðhalds og viðgerða, þar með talið alla stærstu frystitogara landsins og einnig flest flutninga- skip. Hún tekur skip allt að 5.000 þungatonn, er 117 metra löng og 24 metra breið að innanmáli og getur tekið skip með 7,6 metra djúpristu. Margs konar búnaður fylgir kvínni, svo sem kranar og rafdrifnir vinnupallar á brautum. Upptaka skipa er auðveld, kvínni er sökkt, kjalblokkir og skorður Fjölmenni fagnaði 80 ára af- mæli Þórs ÞAÐ VAR mikið um dýrðir á Þórsvellinum á Akureyri í gær, en þá fagnaði íþróttafélagið Þór 80 ára afmæli sínu. Félagið stofnaði Friðrik Ein- arsson aðeins 15 ára gamall og fékk hann til liðs við sig nokkra drengi á svipuð reki. Félagið hefur frá þeim tíma eflst og dafnað og innan þess eru nú knattspyrnudeild, handknatt- leiksdeild, körfuknattleiksdeild og skíðadeild. í tilefni af afmælinu var öllum Þórsurum og velunnurum fé- lagsins boðið í afmæliskaffi í Hamri, félagsheimili Þórs. Grillað var fyrir yngstu kynslóð- ina, en hinum eldri boðið upp á kaffi og kökur. Farið var í ýmsa leiki, boðið upp á skemmtiat- riði, m.a. flaug flugvél yfir svæðið og fleygði karamellum yfir afmælisgestina. Fyrirhugað er, að sögn Rún- ars Antonssonar varaformanns Þórs, að minnast afmælisins með veglegum hætti í haust. Þá mun íþróttafélagið m.a. heiðra þá sem ötullega hafa starfað innan raða félagsins á liðnum árum. Verkmenntaskólinn á Akureyri Innritun Innritun til náms á haustönn 1995 lýkur föstudaginn 9. júní nk. Nemendur 10. bekkjar grunnskóla skulu afhenda skólaeinkunnir við innritun. Þeir, sem sækja síðar um geta ekki vænst skóla- vistar. Skólameistari. Morgunblaðið/Rúnar Þór FLOTKVIIN sem Akureyrarhöfn hefur fest kaup á kom í heimahöfn á sunnudagskvöld. stilltar eftir gerð skipsins og því síðan siglt inn í hana og lyft upp. Heildarkostnaður við kaup og undirbúning flotkvíarinnar eru um 230 milljónir króna. Ríkissjóður leggjur til fé til kvíarstæðisins, 70% af kostnaði sem er um 35 milljónir króna, auk þess sem kvíin sjálf er styrkhæf samkvæmt hafnarlögum. Að öðru leyti fjármagnar Hafnar- sjóður Akureyrar kaupin og fram- kvæmdir sem þeim fylgja. Aukið rekstraröryggi Slippstöðin-Oddi mun annast rekstur flotkvíarinnar og hefur ver- ið gerður leigusamningur við fyrir- tækið þar um, en þess er vænst að verkefni stöðvarinnar muni stór- aukast með tilkomu kvíarinnar. „Hún eykur rekstraröryggi fýrir- tækisins mjög, nú höfum við yfir að ráða tveimur upptökumannvirkj- um í stað eins og erum ekki eins háðir dráttarbrautinni," sagði Jó- hannes Óli Garðarsson. I tengslum við dagskrá sjó- mannadagsins um komandi helgi verður flotkvíin til sýnis frá kl. 10 til 16, laugardag og sunnudag. Sólgarður, Hjalteyri við Eyjafjörð Til sölu 5 herbergja einbýli með sólskála / t:£i X um 160 fm. FASTJEÍC\ASALA,\! Húsið er steypt árið 1947 og er á pöllum. BYOOl) Eldhúsinnrétting hvít, 4ra ára. BREKKliGOTl' l Ekkert áhvílandi. Sölumaður Ágústa Ólafsdóttir. Sími 462 1744 - 462 1820, fax 462 7746. Morgunblaðið/Rúnar Þór ÞÓRSARAR fjölmenntu í 80 ára afmæli félagsins í gær. Hermann Sigtryggssón, íþróttafulltrúi Akureyrar- bæjar, sést hér í góðum fé- lagsskap heiðursfélaga Þórs Þorsteins Svanlaugssonar og Jóns Kristinssonar, en Aðal- steinn Sigurgeirsson formað- ur félagsins sker ofan í þá afmæliskökuna. Fyrir aðeins 1450 krónur á mánuði getur þú gefið nauðstöddu götubami freði, klæði. mcnntun. læknishjálp og heimili. Ajuát HJÁLPARSTARF S i g l ú n i 3 • 10 5 R v k • S i m i 5 Þ I 6 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.