Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 37
Halldóra Valg. Steinsdóttir. JACOB*S MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7 JÚNÍ 1995 37*- MINNINGAR ÓLÖFÍSFELD + Þórunn Ólöf Kristjánsdóttir ísfeld fæddist í Húsavík eystri 6. apríi 1916. Hún lést á Droplaugarstöðum 29. maí síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 2. maí sl. Ó blessuð stund, er sérhver rún er ráðin og raunaspurning, sem mér duldist hér, og ég sé vel, að viskan tóm og náðin því veldur, að ei meira sagt er oss. (Matthías Jochumsson) Þegar ættingjar og samferðafólk kveðja þessa jarðvist reikar hugur- inn gjarnan til baka hjá okkur sem eftir stöndum og erum full þakklæt- is fyrir þau forréttindi að eiga þá að í Iífsgöngunni. Það má með sanni segja um hana Ólöfu ísfeld, eða Ollu eins og hún var jafnan kölluð, að hún var góður og sérlega glaður vinur. Kynni okk- ar hjóna af nágrönnum okkar í Safamýrinni, Ólöfu ísfeld og Krist- jáni Benediktssyni ásamt fleiri ný- byggjendum í götunni, urðu góð og náin. Börn Ollu og Stjána, þau Ein- ar, Rafn og Margrét, voru þá orðin stálpuð og myndarlegir afkomendur þeirra hjóna, en það breytti ekki því að öll litlu nágrannabörnin voru ávallt velkomin hvenær dags sem var. Þau voru ekki öll orðin há í loftinu þegar þau paufuðust upp til þessarar ágætu fjölskyldu. Það var nú þannig á þessum árum að ekki voru öll heimili komin með sjón- varp, en það var komið hjá Ollu og Stjána. Þar fyrir utan átti Olla ávallt eitthvað í sísvanga munna og árla á laugardagsmorgnum var mættur nokkur hópur nágranna- barna til að fá að horfa á barnaþátt í svokölluðu kanasjónvarpi, en þá var ekki um aðrar sjónvarpsstöðvar að ræða. Það var ekki laust við að undirrituð væri farin að afsaka slík- an átroðning, en þegar það var nefnt var Ollu skemmt, hvað börnin eru svo jjúf, þægileg og ánægð, var svarið frá henni, þetta var bara sjálfsagt. Þau muna líka vel um- hyggjuna og glaðværðina er ein- kenndu húsráðendur og börnin þeirra Ollu og Stjána. Nú þegar ég sit hér og læt þess- ar línur á blað er eins og hjá renni í sjóði minninganna myndband af ýmsum uppákomum og ánægju- stundum frá nábýlisárunum. Þegar við ljölskyldan flytjum okkur svo upp fyrir Elliðaár hélst samband við þau ágætu hjón áfram og ávallt er hist var eða símtal saman átt var Stjáni vanur að spyija: „Hvern- ig hafið þið það svo þarna í sveit- inni, telpa mín?“ Þetta var svo vina- legt eins og honum einum var lag- ið. Svo líða árin og stijálla verður um samverustundir en þráðurinn hélst, og oftast fyrir kosningadag var það fastur liður hjá Stjána að hafa samband við mig til að ræða málin, og helst að vinna með honum á kosningaskrifstofunni. Urðu að vera pottþétt rök fyrir að slíkt væri ekki hægt, en það varð nú oftar raunin að ég fór, því þau hjón áttu það og margt annað inni að jáyrði fengist. Hún Olla var ekki í einu né neinu hálfmolla við það sem hún tók sér fyrir hendur, svo sem að útbúa miklar og tímafrekar veislur fyrir ættingja, vini og vandamenn út um allan bæ. Bakkelsið hennar Ollu var listaverk í orðsins fyllstu merkingu, en það var ekki hennar stfll að tala um hjálpsemi eða smá viðvik fyrir náungann. Olla hafði ætíð lag á að sjá spaugilegu hliðarn- ar á flestum atvikum sem aðrir voru kannski að býsnast yfir, þótt lífið hafi ekki alltaf farið mjúkum hönd- um um hana. Þeim hjónum var það þung raun að sjá á eftir Einari syni sínum í blóma lífsins frá konu og börnum. Olla og Stjáni flytja úr Safamýrinni yfír á lláaleitisbraut og búa sér áfram ákaflega fallegt heimili, en það voru þung áföll er þau hjón veikjast og geta ekki verið sjálfum sér nóg. Olla fékk þó verið heima um nokkurt skeið þótt þróttur væri ekki sá sami og áður, en hún var •wrjiís svo lánsöm í veikindastríði þeirra og eftir að hennar ástfólgni eigin- maður lést að geta verið áfram á sínu heimili og notið aðstoðar góðs fólks, Rafns sonar síns og tengda- dóttur Hrafnhildar að ógleymdri umhyggju Margrétar dóttur sinnar þótt hún búi erlendis með sína fjöl- skyldu. Eftir að hún varð ein naut hún heimsókna til þeirra. Hún Olla var þakklát fyrir alla þá aðstoð og umhyggju sem henni var veitt og hún ljómaði þegar hún sagði að barnabörnin væru svo ynd- isleg og kæmu oft til sín daglega, og svo fannst henni gott að fara í Múlabæ dag og dag. En svo kom að því að hún hafði ekki lengur getu eða aðstöðu til að dvelja heima og fór á Droplaugarstaði. Það var dapurt að sjá þessa brosmildu og góðu konu svo sjúka sem hún var, en þrátt fyrir það var hún jákvæð eins og ævinlega og sagði alla sér svo góða á staðnum, og meira að segja eru þær að hjálpa mér að grenna mig, hvemig fínnst þér það, sagði hún, stóð upp og hló dátt. Svo bætti hún við að það væri allt í lagi fyrir okkur báðar að missa aðeins meira. Jú, ég var sammála henni, því margoft var verið að tala um aukakílóin okkar fyrr og síðar. Þeg- ar ég kvaddi hana síðast í vistlegum húsakynnum Droplaugarstaða varð mér á orði, við sjáum til, ég kíki á vigtina áður en ég kem næst, Olla mín. Hún hló og sagði brosandi, já gott, gerðu það. Við kveðjum Ollu með þakklæti fyrir hlýjuna og gleðina sem hún lét okkur í té. Blessuð sé minning mætrar konu. Ó blessuð stund, er hátt í himinsölum minn hjartans vin ég aftur fæ að sjá. Og við um okkar ævi saman tölum, sem eins og skuggi þá er liðin hjá. (M. Jochumsson) Innilegar samúðarkveðjur til barna, tengdabarna og barnabarna. KPMG Endurskoðun hf. Endurskoöun Reikningsskil Rekstrarráögjöf Skattaráögjöf Lögfræöiþjónusta Við viljum vekja athygli á nýjum og breyttum símanúmerum á skrifstofum okkar Símanúmer Myndsendir Reykjavík 533 5555 533 5550 Hafnarfjörður 565 1233 565 1212 Selfoss 482 1822 482 2582 Egilsstaðir 471 1112 471 2201 Sauðárkrókur 453 6070 453 6171 Borgarnes 437 1755 437 1595 Endurskoðun Akureyri hf.: Akureyri 462 6600 462 6601 Dalvík 466 1318 466 3183
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.