Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 9 ___________________FRÉTTIR___________________ Umhverfissjónarmið kljúfa sjálfstæðismenn á Nesinu Vegur sunnan Nesstofu hefði skaðað náttúruna A ðalfieiður Valdimarsdóttir er byrjuð hjá okkur. Af því tilefni bjóðum við 20% afsl. af permaneti, lagningu, og blæstri í júlí og ágúst. Opnunartími: Mánd 9-18 þri 9-18 mið 9-18 fim 9-20 fös 9-19 lau 10-14 BR U S K U R HÁRGREIÐSLU & RAKARASTOFA HöBabakka I S:587 7900 v/bli3ina á Snævnrsvidcó Benidorm 13. júlí frá kr. 39.900 Við seljum nú síðustu sætin 13. júlí til Benidorm á glæsilegu tilboðsverði. Nokkrar viðbótaríbúðir á Century Vistamar gististaðnum , og fallegt hótel, Caballo de Oro, staðsett beint fyrir neðan Vistamar, með afar fallegum garði, veitingastöðum, móttöku og allri þjónustu á staðnum. Morgunverður 2 vikur frá kr. 39.900* innifalinn. ni.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, 2 vikur. Verð með flugvallarsköttum og forfallagjaldi kr. 42.932 M.v. 2 í íbúð kr. 49.900 Verð með flugvallarsköttum og forfallagjaldi kr. 53.560 Innifalið í verði: Flug. gisting. ferðir til og frá flugvelfi. tslensk fararstjórn og flugvallarskultar. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600. DEILUM um vegalagningu í ná- grenni Nesstofu á Seltjarnarnesi lauk á miðvikudag þegar þrír fulltrú- ar í minnihluta bæjarstjórnar ásamt Jóni Hákoni Magnússyni, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, greiddu at- kvæði með lagningu vegarins fyrir norðan húsið á móti þremur atkvæð- um sjálfstæðismanna um að vegur- inn skyldi liggja sunnan hússins. Eru deilur þessar hluti af stærra deilumáli undanfarinna ára um verndun vestursvæðis Seltjarnar- ness. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- stjóri, segist vona að með þessu máli sé deilum um svæðið að mestu lokið. Siv Friðleifsdóttir, oddviti, minnihlutans, segir að enn sé eftir að beijast gegn því að byggt verði norðaustan við stofuna, en hún von- ar einnig að deilunum sé að öðru leyti lokið. Jón Hákon segir það ekki hafa verið neitt leyndarmál að hann hyggðist greiða atkvæði með lagn- ingu vegarins norðan Nesstofu. Hann hefði frá upphafi verið andvíg- ur hvars kyns framkvæmdum á svæðinu og teldi að bærinn ætti að varðveita þá útivistarperlu sem svæðið er. Hann hafi komið inn í bæjarstjórn sem fulltrúi þess fólks sem vildi vernda svæðið, því sé ekki um pólitíska deilu að ræða heldur umhverfis- og hagsmunadeilu. „Fólk vill ekki byggð vestan Nesstofu,“ segir Jón Hákon. Fornminjar á svæðinu Næst á dagskrá hjá Seltjarnar- nesbæ verður að hanna veg sem liggja á inn á safnasvæðið í kringum Nesstofu, sem hefur að geyma lyfja- safn og unnið er að því að setja upp læknasögusafn. Fyrir um tveimur árum var efnt til skoðanakönnunar á vegum bæjarin um skipulag Sel- tjarnarness, þar sem meðal annars var spurt um veginn að Nesstofu. Vildi meirihluti bæjarbúa að aðgang- ur yrði norðanmengi. A síðasta ári var síðan efnt til samkeppni um skipulag opinna svæða á Seltjarnar- nesi. í tillögunni um vegarstæðið sem samþykkt var er gert ráð fyrir því að hönnun vegarins verði í samvinnu við þjóðminjavörð, enda eru líkur taldar á að fornminjar finnist á svæðinu. Náttúrufræðistofnun mælti með því að vegurinn yrði lagð- ur norðanmengin og segir Sigurgeir að það álit hafi verið byggt á því að minni líkur væru á því að vatns- rennsli til tjarnarinna skertist ef vegurinn væri þar. Jón Hákon segir að lagning veg- arins sunnan Nesstofu hefði haft í för með sér meiri náttúruspillingu en vegurinn sem lagður verður nú og það hafi ráðið atkvæði hans. Nú verði svo farið í það vinna í heildar- skipulag vestursvæðanna, en ljóst Gróttuyitf 500 m Svæði tyrir ibúðabyggð Lyfjafræðisafn Nesstofa * Lækningaminjasafni Bakkatjörn Nesstofa úr suðaustri Sigurgeir Jón Hákon Sigurðssson Magnússon sé að ekki verði byggt vestan Nes- stofu. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri. vonast til að deilum verði lokið með þessari atkvæða- greiðslu. Hann segir að þeir þrír sem hafi viljað hafa veginn sunnan Nes- stofu hafi talið þann kost náttúru- vænni þrátt fyrir álit Náttúrufræði- stofnunar. Varhugavert sé að fara með veginn fyrir framan Nesstofu eins og áætlað er því líkur eru tald- ar á fornminjar finnist þar. Talið er að minna sé af fornleifum sunnan við safnið. Einnig muni vegur norðan mengi fara nær húsinu en vegur sunnan megin. Þetta er bara búið mál og við vonum að það ’sé að baki,“ segir hann. „Það var komist að lýð- ræðislegri niðurstöðu sem ég hlýt að sætta mig við eins og aðrir.“ Á móti byggð norðan Nesstofu Siv Friðleifsdóttir, segir að hún sé ánægð með niðurstöðuna. „Við teljum að það hefðu orðið mikið náttúruspjöll ef vegurinn hefði verið lagður sunnan mengin frá,“ segir hún. Siv Friðleifsdóttir Hún segir að búið sé að ákveða byggingareit norðaustan við Nes- stofu að Byggörðum og er miðað við að sú byggð skemmi ekki sjónl- ínu úr Nesstofu. Eigi að koma þar 24 hús en hönnun þeirra er ekki byijuð og því óljóst hvernig byggðin verði. „Við munum ekki styðja bygg- ingu á því svæði,“ segir Siv og von- ast hún til að Jón Hákon styðji minnihlutann í því máli. „Það eru svo fá græn svæði á Seltjarnarnesi og það er engin ástæða til að þrengja meira að Nesstofu með byggð.“ Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni ogfelur ekki í sér tilboð um sölu skuldabréfa. Keflavík - Njarðvík - Hafnir kt. 470794-2169 Tjarnargötu 12 Keflavík-Njarðvík-Höfnum. Tilkynning um skráningu skuldabréfa á Verðbréfaþingi íslands Flokltur Gjalddagar Upphæð 1994/2 20. maí og 20. nóvember 100.000.000 kr. Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravísitöln- Utgáfudagur var 22. nóvember 1994. Grunnvísitala 3378. Skráningarlýsing skuldabréfa Keflavíkur-Njarðvíkur-Hafna liggur fyrir hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka, Ármúla 13a. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910. Blaft allra landsmanna! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.