Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.02.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 39 BRÉF TIL BLAÐSINS „Ástæða til að vara við skrifum“ Frá Pátí Theódórssyni: í MORGUNBLAÐINU 30. janúar sl. birtist frétt með ofangreindri fyrirsögn. Fréttin er að megin- hluta tilvitnun í nokkra mergjaða kafla í langri grein eftir Karl Grönvold jarðfræðing, sem birtist skömmu fyrir áramót í Árbók Hins íslenska fornleifafélags. í þessari grein ræðst Karl svo harkalega að vísindalegum störf- um og skrifum Vilhjáims Arnar Vilhjálmssonar fornleifafræðings að erfitt mun vera að finna dæmi um líkt í íslenskum vísindum. Þegar ég las þessa grein Karls fylltist ég undrun. Hvernig getur vísindamaður í lok tuttugustu ald- ar skrifað grein í hatrammasta stíl pólitískra deilna á fyrrihluta aldarinnar? Og er það ekki alvar- legt mál fyrir Hið íslenska forn- leifafélag að grein í þessum stíl skuli birtast í Arbók þess? Hvort- tveggja ber að mínu mati vitni um alvarlegan dómgreindarskort. Og loks vekur það undrun að blaðamaður Morgunblaðsins skuli ekki hafa áttað sig á því að hér var um grein að ræða sem síst skyldi meðhöndla eins og hann gerði: að taka nokkra mergjaða kafla úr greininni og endursegja aðra. Greinin öll ber það með sér að hana verður að taka með mikl- um afföllum. Blaðamaðurinn hefði átt að sjá að hér var um að ræða einstæða árásargrein og huga nokkuð að stöðu þess manns, sem verður fyrir árásinni. Það er erfitt að verjast skrifum af þessu tagi, ekki síst þegar þau eru undir vísindalegu yfirskini þar sem aðeins fáir sérfræðingar eru vel dómbærir um efnið. Grein Karls er skrifuð í þeim anda að þeir sem hafa nóg þarflegt að starfa eyða vart tíma sínum í að svara henni. Trúlega má deila um sitthvað í störfum Vilhjálms Arnar sem annarra vísindamanna og stundum má finna að óvarfærn- islegu orðalagi í greinum hans. En maður, sem skrifar sem Karl gerir, ætti síst að gerast þar dómari. Eg finn mig knúinn til að leggja hér orð í belg því málið snýst að verulegu leyti um efni sem ég hef unnið allnokkuð með, þ.e. aldurs- greiningar með geislakoli. Eftir að hafa lesið grein Karls gæti ég gert margar athugasemdir um faglega umfjöllun hans um efnið. Eg tel grein hans ómerka. Fornleifafræð- in er vísindagrein sem verður að treysta meira á þverfaglega um- ræðu en flestar aðrar greinar. Það er því sárt að horfa upp á þegar harðar deilur rísa þar sem vísinda- menn, sem ættu að vinna saman, deila hart í gölmiðlum. Umhverfís landnám á Islandi er margt sem við eigum ólært. Eins og er er þar ýmislegt sem stangast á, meðal annars um aldur búsetunnar. Vís- indamenn sem um þessi mál fjalla verða að gera sér grein fyrir að sitthvað af því, sem þeir telja sig nú 'fullvissa um, kann að reynast rangt. Enginn verður minni fyrir það. Og lendingu náum við ekki fyrr en vitnisburði frá öllum grein- um ber nægilega vel saman. Það er erfitt að sjá hvemig við getum náð nauðsynlegu samstarfí og umræðu í því andrúmslofti sem grein Karls hlýtur að skapa. Orð eru dýr. Ég vil því ljúka þessum fáu orð- um með beinni tilvísun í tveggja dálka fyrirsögn í framangreindri frétt Morgunblaðsins, þar sem vitnað er óbeint í grein Karls: „Ástæða til að vara við skrifum hans.“ PÁLLTHEÓDÓRSSON, Raunvísindastofnun HÍ, Dunhaga 3, Reykjavík. Mótun siðgæðis- þroska er á unga aldri Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur: FORELDRAHLUTVERKIÐ í sam- félagi voru er stórt. Við bemm ábyrgð á uppeldi barna okkar uns þau halda sjálf af stað í átt að sama hlutverki. Sú reynsla er við foreldr- ar fáum notið með því að fylgja börnum okkar gegnum þroskaskeið frumbernsku er áfangi á eigin þroskabraut. Sú reynsla felst eink- um í því að gefa og þiggja tilfinn- ingalega, setja ramma utan um lífs- mynstrið og fylgja honum eftir, sem styrkir okkar eigin sjálfsmynd í leið- inni. Ég hygg að við stöndum nú á þröskuldi nýrra tíma, hvað varðar mótun stefnu til framtíðar í málum fjölskyldnnar. Við hljótum að taka mið af því að forvarnir til fullorðins- ára felast ekki hvað síst í því að foreldrar geti sinnt því tilfinninga- lega hlutverki sem þau gegna og geta best uppfyllt alla jafna, gagn- vart sínum börnum. Við eigum að stuðla að því að draga úr þörf á dagvist fyrir börn yngri en tveggja ára, til að byija með. Því miður hefur ofur áhersla ver- ið lögð á byggingu leikskóla í stað þess að veita aukið íjármagn til framlengingar fæðingarorlofs og heimgreiðslna, sem hæglega hefði mátt framkvæma með samvinnu ríkis og sveitarfélaga. Þeim foreldrum fer nú fækkandi sem telja það félagslega einangrun að ala upp börn sín, enda er hið efnislega lífsgæðakapphlaup og til- gangsleysi þess að renna upp fyrir kynslóðinni sem nú ríkir. Góðir sið- ir verða ekki keyptir fyrir peninga, þá þurfum við að iðka og hljóta æfingu í til þess að geta gefið börn- um okkar. Við þurfum að gefa okk- ur tíma til þess að líta í kring um okkur frá degi til dags og sjá og segja frá öllu því fallega er fyrir augu ber, einnig því sem betur mætti fara. Þannig erum við fyrir- mynd barnanna okkar í mótun vit- undar þeirra um siðgæði. GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, Látraströnd 5, Seltjarnarnesi. Á besta stað í Þingholtunum Vorum að fá í sölu miðhæðina í þessu virðulega stein- húsi við Laufásveg, ca 115 fm. Sérinngangur. 2-3 stof- ur og 2-3 svefnherb. Eign í mjög góðu ástandi. Eitt elsta stein-íbúðarhús í Reykjavík. Fallegur, gróinn garð- ur. Verð 9,8 millj. Áhv. 5,0 millj. Borgir, fasteignasala, sími 588 2030. Opið ídagkl. 12-14. OPIÐHUS (dag, sunnudag, milli kl. 14 og 17 VALLARGERÐI 16, KÓP. ásamt 74 fm bílskúr. Um 200 fm virðulegt hús á tveimur hæðum, 4 svefnherb., 3 stofur. Húsið er mikið endurnýjað og í góðu ástandi. Parket á gólfum. Fallegur garður. Áhv. 6,3 millj. Verð 15,9 millj. Opið hús milli kl. 14 og 17. GARÐHUS 10, 3JA HERB. M/BYGGSJLÁNI. 75 fm fal- leg íbúð á miðhæð í litlu fjölbýli. 2 svefnherb., stofa og eldhús. Rúmg. svalir. Áhv. 5,2 millj. byggsjlán. Verð aðeins 6,9 millj. Jón Trausti sýnir milli kl. 14 og 17 í dag, sími 587-1004. Húsið - fasteignasala, Suðurlandsbraut 50, sími 533 4300. Dalsel 6 - opið hús í dag 4ra herb. m. bílskýli - laus 4ra herb. tæplega 100 fm endaíbúð á 2. hæð. 3 svefn- herb., rúmgott hol og stofa m.m. Sérþvottaherb. innaf eldhúsi. Yfirbyggðar svalir. Gott útsýni. Öll sameign mjög góð Laus nú þegar. íb. er öll í mjög góðu ástandi. Til sýnis í dag kl. 13-16. Gjörið svo vel að líta inn. EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, s. 551-9540 og 551 -9191. /íF FASTEIGNA MARKAÐURINNeht ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 % Hrísmóar , Mjög góð 110 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. Tvennar svalir. Þvottaherb. í íbúð. Parket. Flísalagt baðherb. Húsvörður. Stutt í alla þjónustu. Verð 9,0 millj. Áhv. húsbr./byggsj. 3,5 millj. ... Jón Guömundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali. Ólafur Stefánsson, viösk.fr. og lögg. fasteignasali FASTEIGNAMARKAÐURiNNehf^=^=^^' Óöinsgötu 4. Símar 551-1540, 552-1700 Til sölu er að Suðurlandsbraut 54 mjög gott verslunarhúsnæði á jarð- hæð í 2ja hæða húsi. Húsnæðið er mjög bjart og gott með góðum verslunargluggum á öllum hliðum. Húsnæðið selst í einu lagi en hægt er að skipta því niður í 4 mjög góðar einingar. Mjög góð bílastæði. Mjög góð fjárfesting fyrir fjárfesta. Hæðin er í útleigu með hagstæðum leigusamningi. Mjög góð bílastæði. Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofu. Einkasala. ÁSBYRGI fasteignasala, Suðurlandsbraut 54, sími 568 2444.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.