Morgunblaðið - 16.05.1996, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„ V okalensemble“
í Bústaðakirkju
KÓR ERIKS Westberg,
Vokalensemble, heldur
tónleika í Bústaðakirkju á
vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík á uppstigning-
ardag kl. 20.30. Á efnis-
skránni verða verk frá 15.
og 16. öld eftir J.S. Bach,
Knut Systedt, Jan Sand-
ström, Sven-Erik Back og
Anders Nilsson.
„Sænski kórinn Vokal-
ensemble Eriks Westberg var stofn-
aður 1993 og samanstendur af 16
röddum. Meðlimir kórsins koma frá
Norrbotten og Vásterbotten í Norð-
ur-Svíþjóð. Nokkrir kórfélagar eru
virkir einsöngvarar í tónlistarheim-
inum. Kórinn fór í vel heppnaðar
tónleikaferðir til Frakklands 1994
og til Brasilíu 1995 með Hennar
hátign Silvíu drottningu sem vernd-
ara ferðarinnar. Árið 1996 heldur
kórinn í tónleikaferðir til Finnlands,
íslands og Japans.
Vokalensemble hefur frumflutt
verk sænskra nútímahöf-
unda eins og Sven-David
Sandström, Jan Ferm, Jan
Sandström, Gunnar Eriks-
son, Sven Ahlin, Monica
Dominique og Anders Nils-
son. Kórinn hefur komið
fram í sænska sjónvarpinu
og útvarpinu. Þá hefur
Mattias Wager, einn efni-
legasti í hópi ungra,
sænskra organleikara,
unnið með kórnum. Mun hann leika
með kórnum á tónleikunum í Bú-
staðakirkju og einnig slagverksleik-
aripn Anders Ástrand.
í júlímánuði á sl. ári flutti kórinn
„Sænsku messuna“ eftir J.H. Rom-
an og „Singet dem Herrn“ eftir J.S.
Bach ásamt hinum heimsþekkta
Drottningholm barokk hljóðfæra-
hópnum. Nú í maímánuði kemur
út fyrsti geisladiskurinn með söng
kórsins á verkum eftir Jan Sand-
ström og Gunnar Eriksson, segir í
kynningu.
Erik Westberg
VOKALENSEMBLE.
Fyrirmæli dagsins
EFTIR DAVID MEDALLA
FARÐU í skrúðgarð að vorlagi eða um sumar,
tíndu þar blóm, dýfðu því í málningu með hvaða lit sem
þér sýnist, dýfðu lófanum á þér í málningu af öðrum
lit, legðu blómið í lófann, búðu til afþrykk á pappír af
lófanum og blóminu, þektu afþrykkið með sólblóma-
olíu þegar liturinn á því er þornaður, settu síðan
blaðið í plastbakka með tæru vatni, settu plastbakk-
ann í frystikistu eða frystihólf í ísskáp, taktu það út
þegar ísinn hefur myndast, settu ísblokkina með
pappírsblaðinu í gluggakistu þar sem sólin skín.
Búðu til eins margar myndir og þú vilt með eins
mörgum blómum og þér sýnist og þektu síðan með
þeim heilan vegg.
• FYRIRMÆLJ dagsins í samvinnu við Kjarvalsstaði og Dagsljós.
ÖREBRO Kulturskolas Kammarorkester heldur tvenna tónleika hér á landi á laugardag og sunnudag.
Kammersveit menningar
skóla Örebro í heimsókn
TVENNIR tónleikar með Örebro
Kulturskolas Kammarorkester
frá Syíþjóð verða haldnirumhelg-
ina. Á laugardaginn 18. maí kl.
14 leikur hún í Seltjarnarnes-
kirkju ásamt strengjasveit Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinsson-
ar og sunnudaginn 19. maí leikur
hún kl. 17 í Háteigskirkju.
Hljómsveitin var stofnuð á sjö-
unda áratugnum og eru meðlimir
EINLEIKSTÓNLEIKAR verða
haldnir í Hallgrímskirkju á uppstign-
ingardag, fimmtudag 16. maí, kl.
17. Douglas Brotchie kemur fram
og þreytir einleikarapróf á vegum
Tónskóla þjóðkirkjunnar.
„Douglas var virkur í tónlistarlífi
í Skotlandi á námsárunum þar. Hann
var fyrst fastráðinn organisti og
kórstjóri við Balerno-sókn í Skot-
landi, þá 16 ára gamall, en hafði
áður spilað lausráðinn í ýmsum
kirkjum í Edinborg. Hann fllutti til
Islands 1981 og hefur tekið sívax-
andi þátt í tónlistarlífi landsins, aðal-
lega í Reykjavík en einnig á Rangár-
flestir á menntaskólaaldri. Hljóm-
sveitin hefur leikið víða um Evr-
ópu og lenti meðal annars í öðru
sæti í alþjóðlegri tónlistarsam-
keppni í Hollandi. Sten-Göran
Thorell hefur verið stjórnandi frá
árinul971.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir Joseph Haydn, Erland
von Koch, Mozart, Lennart Lund-
én, Bela Bartok og Edward Grieg.
völlum og við Árneskirkju á Strönd-
um. Hann var um skeið tónlistar-
gagnrýnandi DV og er nú annar
organisti við Dómkirkju Krists kon-
ungs (Kristskirkju við Landakot).
Á tónleikunum á fimmtudag mun
Douglas spila verk eftir Hieronymus
Praetorius, Johann Sebastian Bach,
Olivier Messiaen og Petr Eben. Tón-
list frá árdögum orgelbókmenntanna
í Þýskalandi, þá eftir hinn fremsta
allra tónskálda og loks nútímaverk
frá Frakklandi og Tékklandi", segir
í kynning^i.
Áðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Nýjar bækur
• ÚT er komið fjórða ráðstefnurit
Vísin dafélags Islendinga og
fjallar um íslendinga, hafið og
auðlindir þess. Ritstjóri bókarinnar
er Unnsteinn Stefánsson fyrrv.
prófessor.
Snemma árs 1992 ákvað stjórn
Vísindafélagsins að efna til al-
mennrar ráðstefnu um þetta efni
og var hún haldin 19. september
sama ár. Alls voru flutt 16 erindi
og eru 15 þeirra prentuð í hinu
nýútkomna_ riti; höfundar efnis eru
23 talsins. í erindunum er fjallað
um þýðingu sjávarins fyrir búsetu
á Islandi, hafís og veðurfarsbreyt-
ingar, hafstrauma og ástand sjáv-
ar, framleiðni, sjávarplöntur og
svifdýr, ástand og afrakstur helstu
nytjastofna uppsjávar- og botn-
fiska, botndýr og nytjastofna
þeirra, sjávarspendýr, fjörur og
grunnsævi, og síðasten ekki síst
mengun í hafinu við ísland og
aðferðir til að meta stærð fiski-
stofna og nýtingu auðlinda i fæðu-
vistfræðilegu samhengi.
Erindin veita góða innsýn í
stöðu íslenskra hafrannsókna, og
niðurstöður eru margar hveijar
mjög áhugaverðar og sýna að
rannsóknum á íslandsmiðum hef-
ur fleygt fram á síðustu árum.
Bókin sem gefin er út ísam-
vinnu við Háskólaútgáfuna, er 280
bls. að stærð með mörgum skýr-
ingarmyndum og kostar 2.850 kr.
• SÖNGLJÓÐ heitir nýútkomin
bók eftir Auðun Braga Sveins-
son með ljóðum við vinsæl og
þekkt lög. I undanfara að bókinni
segir höfundur að ljóðin í þessari
bók séu að mestu frumort við lög,
sem hann hefur hrifist af á löng-
um tíma. Fáein ljóð í bókinni eru
þýdd og nokkur ljóð eru ort á
dönsku.
Höfundurgefur bókina út og
Skemmuprent prentar hana.
DOUGLAS Brotchie.
Morgunblaðið/Þorkell
Einleikstónleikar
í Hallgrímskirkj u
Listviðburður í Washington D.C.
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Martin
Luther King-safninu í Washington
2. maí sl., en þá var opnuð sýningin
„Building bridges — The Reykjavik
Summit, Ten years Later“, sem út-
leggst „Brúarsmíði — Reykjavík-
urfundurinn, 10 árum síðar“. Áf því
tilefni efndu sendiráð íslands og
Rússlands til móttöku í safninu og
voru hátt í tvö hundruð manns við-
staddir. Eins og yfírskriftin ber með
sér var sýningin í tilefni þess að á
þessu ári eru 10 ár liðin frá því að
leiðtogafundur Reagans Bandaríkja-
forseta og Gorbatsjovs, Sovétleið-
toga var haldinn í Höfða.
Á sýningunni eru verk þriggja
listamanna, Sigrúnar Jónsdóttur,
kirkjulistamanns frá Islandi, Nancy
Hamilton, listmálara frá Bandaríkj-
unum og Pyotr Shapiro, mynd-
höggvara frá Rússlandi.
Auk verka sem Sigrún hafði sýnt
á sýningu sinni í Seattle, kom hún
með ný verk, unnin á þessu ári. Ber
sérstaklega að nefna altarisklæði,
unnið fyrir Grafarvogskirkju, „Sjá
himins opna hlið“, en það vakti mikla
athygli. Pyotr Shapiro sýndi m.a.
verk sitt, „Pendúll lífsins“, en það
verk er gert til minningar um leið-
togafundinn. Hefur listamaðurinn
sóst eftir því að frumverkið verði
sett upp fyrir utan Höfða.
„Vinátta"
Nancy Hamilton starfar í Was-
hington, en maður hennar, Lee
Hamilton, öldungadeildarþingmað-
ur, var formaður utanríkismáia-
nefndar bandaríska þingsins árum
saman, og er því mörgum íslending-
um kunnur fyrir störf sín að alþjóða-
málum.
Einnig eru á sýningunni verkið
„Vinátta", sem er tréútskurður eftir
Gunnar R. Gunnarsson, en dóttir
hans, Katrín G. Trotter býr á Was-
hington-svæðinu. Tvö eintök eru til
af þessu verki og er hitt í eigu Par-
ke_r Borg, sendiherra Bandaríkjanna
á íslandi og Önnu konu hans. Reag-
an-safnið í Kaliforníu og Reykjavfk-
urborg lánuðu myndir af leiðtoga-
fundinum á sýninguna.
í tilefni sýningarinnar færði ís-
lenska sendiráðið í Washington safn-
inu að gjöf bækur um Island. í ræðu
Einars Benediktssonar, sendiherra,
kom fram mikilvægi tengsla þessara
þriggja þjóða. Birna Hreiðarsdóttir,
sem er búsett í Washington, annað-
ist allan undirbúning sýningarinnar.
NANCY Hamilton, Sigrún Jónsdóttir og Pyotr Shapiro.