Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ 1 FRÉTTIR Lífsreynsla 22ja ferðamanna í hjólabátnum Farsæl Bilaði í þungu brimi við skerin f'^STUTT Slasaðist á vatna- sleða UNGLINGSPILTUR slasaðist á Svínavatni á sunnudags- kvöld. Hann féll af vatnasleða og varð fyrir öðrum sem sigldi yfír hann. Pilturinn hlaut áverka á höfði. Hann var fluttur með bifreið á móti sjúkrabíl sem kom frá Selfossi og flutti hann á heilsugæsluna þar. Hann fékk að fara heim að rann- sókn og aðhlynningu lokinni. Bílvelta við Kaldármela BÍLVELTA varð á laugar- dagsmorgun á Snæfellsnesi á móts við Kaldármela. Öku- maður og farþegi voru í bíln- um og sluppu þeir vel. Aðeins þurfti að sauma í höfuð öku- mannsins en farþeginn slapp með skrámur. Lögreglan í Stykkishólmi hafði afskipti af þrettán öku- mönnum um helgina vegna of hraðs aksturs. Ekki kom þó til þess að svipta þyrfti þá ökuleyfum. Þyrlan í tvö sjúkraflug ÞYRLA Landhelgisgæslunnar fór tvö sjúkraflug á mánudag- inn. Þýsk kona féll af hestbaki við bæinn Álftabakka á Mýr- um um tvöleytið og meiddist illa á höfði. Hún var flutt meðvitundarlítil á Borgarspít- alann. Tveimur tímum síðar var þyrlan kölluð út vegna norskrar konu sem fékk astm- akast í Landmannalaugum. Sú var einnig flutt á Borgar- spítalann. Líkamsleifar fundust á Snæfellsnesi LÍKAMSLEIFAR af konu fundust í sandinum fyrir neð- an bæinn Miðhús í Breiðu- víkurhreppi á sunnudag. Erlendir ferðamenn á fjöru- göngu fundu líkamsleifarnar og létu þeir fólkið á bænum vita. Það gerði síðan lögreglu viðvart um fundinn. Líkamsleifarnar voru flutt- ar til Reykjavíkur í gær þar sem þær verða rannsakaðar af svokallaðri ID-nefnd, sem skipuð er rannsóknarlög- reglumönnum, lækni og tann- lækni. ______________________ Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson VÉLINNI var ekið út í kant á Nesjavallavegi og umferð átti greiða leið um veginn meðan beðið var eftir bensíni. Nauðlenti á Nesjavallavegi TVEGGJA manna flugvél af gerðinni Cessna Tripacer var nauðlent á Nesjavallavegi í fyrrakvöld um klukkan hálfátta. Ástæðan fyrir nauðlendingunni var eldsneytisskort- ur en talið er að leki hafí komið að ventli. Maður og kona voru í vélinni og sluppu þau ómeidd. Vélin var á leiðinni til Reykjavíkur frá Múlakoti. Þar hafði verið bætt á hana bensíni, sem duga átti til flugs til Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá rann- sóknardeild Iögreglunnar á Selfossi flaug flugmaðurinn vélinni nærri Nesjavallaveginum af ótta við ókyrrð yfir Hellisheiði því vindur stóð af Henglinum. Bensínið þraut þegar komið var vestur með Hengli og brá flugmaðurinn á það í’áð að lenda á veginum. Umferð um veginn stöðvaðist ekki því vélinni var ekið út í kant meðan beðið var eftir bensíni. Vélin fór síð- an aftur í loftið rétt rúmlega hálftíu og flaug til Reykjavíkur. DRIFSKAFT úr gír yfir í skrúfu hjólabátsins Farsæls frá Vík í Mýrdal brotnaði þegar báturinn var skammt vestan við Reynis- dranga á sunnudag. Um borð voru 22 manns, þar af 17 franskir ferðamenn. Annar sams konar bátur, Fengsæll, dró Farsæl í land í Vík. Gísli D. Reynisson, skip- stjóri á Farsæl, segir að Fengsæl sé haldið úti einmitt til þess að hægt sé að bregðast við óhöppum af þessu tagi. Gísli sagði að sjálft drifskaftið hefði skyndilega hrokkið í sundur. Hann sagði að það væri eiginlega með ólíkindum að þetta gæti gerst en reyndar hefði drifskaftið verið farið að ryðga dálítið innan frá. Engu að síður hefði það ekki átt að hrökkva svona í sundur. Þungur straumur Báturinn var á leið út i Dyr- hólaey þegar óhappið varð. „Ég fer venjulega upp í fjöru vestan við Reynisfjall og keyri vestur fjöruna og sigli svo aftur út í Dyrhólaey. Ég ætlaði upp í fjöru vestan við fjallið og var búinn að setja hjólin á. Þá hrökk drifskaft- ið í sundur. Þetta var á fremur óheppilegum stað því ég var kom- inn alveg upp undir land og vel vestur fyrir Reynisdranga en þarna er svolítið af skeijum með- fram fjallinu. Það var þungur straumur vestur með og þá kast- Fjórar stórar skriður féllu yfir Vatnsdalsveg Blönduósi. Morgunblaðið. NOKKRAR aurskriður féllu yfir Vatnsdalsveg fyrir landi Másstaða í austanverðum Vatnsdal á sunnudags- morguninn. Gífurleg úrkoma var aðfaranótt sunnudags- ins og á sunnudagsmurguninn sem kom þessum skrið- um á stað. Að sögn Oddnýjar Ellertsdóttur á Bjarnastöðum eru þessar skriður með því mesta sem hún man eftir og féllu þær eftir klukkan sjö á sunnudagsmorguninn. Aðalskriðurnar eru fjórar að tölu og féll nyrsta skriðan rétt sunnan við veiðihúsið og sú sem syðst var féll á Másstaðatúnið. Mun fleiri spýjur fóru af stað og má nefna að ein skriða fór af stað beint fyrir ofan Bjamastaði en stöðv- aðist fljótt ofarlega í fjallinu. Að sögn ábúenda á Bjarna- stöðum er ekki óalgengt að aurskriður falli úr fjallinu en þessar hafi verið af stærri gerðinni. Stærsta skriða sem fallið hefur á þessum slóðum í manna minnum er hin svokallaða Bjamastaðaskriða sem féll í október árið 1720 og varð a.m.k. 5 manns að bana og mynd- aði hún m.a. Flóðið í Vatnsdal. Lögreglan heyrði um málið í útvarpinu Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var henni ekki tilkynnt um aurskriðurnar í Vatnsdal heldur heyrðu lögreglumenn fréttirnar fyrst í útvarpinu í hádeginu. Ferðamenn sem áttu leið fram Vatnsdal skömmu eftir hádegi áttuðu sig ekki á því að aurskriða hefði fallið á veginn og óku á fullri ferð inn í aurskriðuna og sátu þar fastir. Fólk frá Blönduósi sem var að skoða náttúru- hamfarirnar bjargaði ferðafólkinu úr skriðunni. að við værum lokuð inni. Það var mjög óþægileg tilfinning með fjögur smábörn í bílnum. Tölu- verðan spöl frá var sveitabær og ég ákvað að leita þangað eftir aðstoð en konan settist undir stýri því við áttum alltaf von á meiru. Þetta virtist ekki vera í rénun. Ég óð skriðuna upp í klof og komst loks á bæinn. Bóndinn virtist hafa séð til mín því hann var að klæða sig í yfirhafnir þegar mig bar að. Hann á fjórhjóladrifna dráttarvél og við fórum í það að taka vagn af henni og selja skóflu framan á hana. Það tók nokkra stund að moka það mesta af veginum og opna lænu fyrir mig. Eg komst svo í gegnum hana á eftir dráttar- vélinni og slapp fram hjá flóðinu sem reyndist vera síðasta hindrun- in,“ sagði Auðunn Helgi. Auðunn Helgi hefur verið sjó- maður í yfir 20 ár en segir að þetta sé það alversta sem hann hafi upplifað. Böm hans fjögur eru eins, þriggja, átta og tíu ára gömul. Fjölskyldan býr í Hafnar- firði. Flóðið var jafnhátt bílnum „VIÐ komum þama í blíðskapar- veðri á Iaugardegi, keyptum okk- ur veiðileyfi og ákváðum að tjalda. Við ókum með hlíðinni inn dalinn. Það var búið að ráðleggja okkur að tjalda við lækina og það hefði farið illa hefðum við farið að þeim ráðum því skriðurnar féllu allar í námunda við þá,“ segir Auðunn Helgi Stígsson, sem lenti í miklum hremmingum með fjölskyldu sína þegar aurskriðurnar féllu í Vatns- dalnum um helgina. „Við hjónin erum með fjögur börn, þar af eitt eins árs og annað þriggja ára, og því vildum við ekki tjalda við lækina. Við ákváð- um að finna hentugri stað vegna barnanna og tjölduðum loks í svo- köiluðum Sælureit. Við lögðum bílnum rétt utan vegar, tjölduðum og fórum að veiða um kvöldið. Veðrið var ágætt en þó byijaði aðeins að hvessa um kvöldið. Við hjónin vöknuðum kl. 6 um morg- uninn og þá var orðið dálítið blautt í tjaldinu hjá okkur. Við ákváðum að hlusta á veðurfregnirnar áður en við ákvæðum að halda heim á leið. Því var spáð að það myndi létta til og við leyfðum krökkun- um því að sofa til kl. 8,“ sagði Auðunn Helgi. Heyrðu drunur og jörð nötraði „Þegar við vöktum þau var allt orðið gegndrepa í tjaldinu og ég hef aldrei upplifað aðra eins úr- komu. Ég bar börnin út í bíl í svefnpokunum. Við fórum svo að ganga frá tjaldinu og heyrðum þá undarleg hljóð, drunur og jörð- in nötraði aðeins. Við héldum fyrst að flugvél eða þyrla væri í nánd. Svo hugsuðum við ekki meira út í þetta og fórum með tjaldbúnað- inn í bílinn. Ég var nýlagður af stað á bilnum þegar ég ók fram á gífurlegt flóð, svona 20-40 metra frá þeim stað sem tjaldið stóð. Flóðið var nánast jafnhátt bílnum og ég frétti að það hefði verið 40-50 metrar á breidd. Okkur brá geysilega mikið við þetta. Ég bakkaði bílnum í snarhasti og sneri honum við og ákvað að fara inn dalinn og freista þess að kom- ast hringinn. Ég hafði ekki ekið nema nokkra metra þegar ég kom að stað þar sem farið var að flæða yfir veginn. Ég komst þó þar yfir með því að aka greitt og annan svipaðan stað nokkru síðar. Þá loks kom ég að annarri stórri skriðu, 20 metra breiðri og um eins metra hárri,“ sagði Auðunn Helgi. „Þarna uppgötvuðum við það Morgunblaðið/Jón Sigurðsson ÖKUMAÐUR áttaði sig ekki á skriðunum í tæka tíð og festi bíl sinn. 4 : <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.