Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 11 FRÉTTIR Háskóli íslands Ráðstefna um rann- sóknir í félagsvís- indum RÁÐSTEFNA um rannsóknir í fé- lagsvísindum á vegum Viðskipta- og hagfræðideildar _ og Félagsvísinda- deildar Háskóla íslands verður haldin í Odda við Suðurgötu í dag föstudag og á morgun laugardag. Meginmark- mið ráðstefnunnar er að efla stöðu þessara fræðigreina á íslandi. Að sögn Friðriks H. Jónssonar dósents er þetta í annað sinn, sem starf innan deildanna er kynnt með þessum hætti. „Við erum að kynna það starfs, sem hér fer fram,“ sagði hann „og gefa almenningi um leið tækifæri til að koma og kynna sér þær rannsóknir, sem unnið er að um leið og tengsl Háskólans út í samfé- lagið eru efld við almenning og þá sem hafa útskrifast héðan og hafa ekki lengur tengsl hér inn. Hér fá þeir tækifærið til að koma og rifja upp gömul kynni.“ Fluttir verða 74 fyrirlestrar og sagðist Friðrik eiga erfítt með að gera upp á milli þeirra. Þeir væru allir mjög áhugaverðir. Á föstudag flytur Ingjaldur Hannibaisson dósent fyrirlestur um góð lífskjör í lágtækni- iandi, Auðunn Arnórsson stjórnmála- fræðingur talar um reynslu EFTA- ríkja af EES og dr. Stefanía Óskars- dóttir stjórnmálafræðingur talar um samskipti aðila á vinnumarkaðinum á árunum 1969 til 1997. Dr. Jörgen Pind prófessor talar um tungumálið, eyru þess og augu og Gunnar Bjamason sálfræðingur greinir frá könnun á ferli og um- fangi opinberra afskipta af kynferðis- afbrotum gagnvart börnum. í bókasafnsfræði verður fjallað um upplýsingalögin og mun Eiríkur Tóm- asson prófessor ræða um sjálf lögin en síðan verður leitað viðbragða bókasafnsfræðinga við þeim og hvetju þau breyta. í félagsfræði mun Helgi Gunn- laugsson lektor flytja fyrirlestur um þróun afbrota á Islandi og áhrif hertra refsinga. Fyrirlestur Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur dósents í mannfræði heitir „Ástin á tímum kólerannar" eða kynferði og vald á tímum hnattvæðingar. Námsráðgjöf og þjóðfræði Meðal síðari fyrirlestra í bóka- safnsfræði nefndi Friðrik fyrirlestur Þórhildar Sigurðardóttur bókasafns- fræðings um þjónustu bókasafns- fræðinga við fjarnema og fyrirlestur Ingibjargar St. Sverrisdóttur bóka- safnsfræðings sem er um upplýsinga- þörf vísindamanna og öflun heimilda. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir kennslu- stjóri talar um náms- og starfsáhuga unglinga og mat á náms- og starfs- fræðslu og í þjóðfræði talar Valdimar Tr. Hafstein þjófræðingur um „Re- spekt fyrir steinum. Er álfatrú um- hverfisvernd?" Uppeldis- og menntunarfræði Á laugardag fjalla dr. Sigrún Aðal- bjarnadóttir prófessor og Sigurlína Davíðsdóttir sérfræðingur um hvern- ig berjast má gegn vímuefnanotkun. Á vegum hagfræðistofnunar fjallar Axel Hall sérfræðingur um flutning Reykjavíkurflugvallar og Guðrún Inga Ingólfsdóttir sérfæðingur um kynslóðareikninga, nýja sýn á fjár- mál hins opinbera. Fyrirlestur dr. Jóns Torfa Jónssonar prófessors í kennslufræði heitir „Landspróf er banafleygur íslenskrar menningar" og Hafþór Guðjónsson efnafræðingur spyr, „Hvernig hugsar fólk um loft?“ í hagfræði íjallar dr. Helgi Tómasson dósent um þróun tekjudreifingar og í Kvennafræði verður fjallað um sjáv- arbyggðir og kynferði út frá ýmsum sjónarhornum. Hart deilt á Alþingi um sparnað í heilbrigðiskerfinu Höfuðborgarbúum mismunað á biðlistum? MÖRÐUR Árnason, varaþingmað- ur Þjóðvaka, hefur það eftir starfs- mönnum í heilbrigðisþjónustu að sjúklingar af höfuðborgarsvæðinu séu settir aftar í forgangsröð á biðlistum eftir aðgerðum en sjúkl- ingar af landsbyggðinni. Ásta R. Jóhannesdóttir, flokksystir hans, staðfesti að þessi orðrómur væri á kreiki í heilbrigðiskerfinu. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í gær um þingsályktunartillögu sex landsbyggðarþingmanna Sjálf- stæðisflokksins um könnun á bið- listum í heilbrigðisþjónustu. Þingmennirnir leggja meðal annars til að kannað verði hvort mögulegt sé að nýta heilbrigðis- þjónustu á landsbyggðinni til að gera sérhæfðar aðgerðir og stytta þannig biðlista. Umræður snerust upp í deilur um sparnaðaraðgerðir í heilbrigðiskerfinu og meinta mis- munun landsbyggðar og suðvest- urhornsins í þessu efni. Hörð orða- skipti urðu milli Sivjar Friðleifs- dóttur, Framsóknarflokki, sem er varaformaður heilbrigðisnefndar, og Hjálmars Jónssonar, eins flutn- ingsmanna tillögunnar. Að mati Marðar Árnasonar báru þær deilur vitni um að sjálfstæðismennirnir sex væru að hlaupa frá stjórnar- stefnunni í heilbrigðismálum. Þetta væri ekki síst undarlegt í ljósi þess að þrír af flutningsmönn- unum sætu í fjárlaganefnd og hefðu átt þátt í niðurskurðinum. Hjálmar, sem er einn fjárlaga- nefndarmanna, sagði að niður- skurður til sjúkrahúsa á lands- byggðinni væri ekki frá þeim kom- in heldur heilbrigðisráðuneytinu. Vantraust á heilbrigðis- ráðuneytið Siv Friðleifsdóttir sagði að blaðaskrif ýmissa þingmanna, þar á meðal Hjálmars, hafi orðið til að æsa upp óánægju með sparn- aðaraðgerðir í heilbrigðiskerfinu. „Þar er greinilega verið að etja saman sjúkrahúsum á landsbyggð- inni og suðvesturhorninu. Þetta er skiljanlegt í ljósi þess að Norður- land vestra á að spara samkvæmt þessum tillögum. Þá hlaupa þing- menn þess kjördæmis upp og gera málið tortryggilegt," sagði Siv. Hún taldi að heilbrigðisráðuneyt- inu væri sýnt vantraust með því að treysta því ekki fyrir því að semja um sparnað við heimamenn. Um tillögur sjálfstæðismann- anna sex sagði Siv að þær væru fallegar og hljómuðu vel, en litlar líkur væru til þess að þær gengju upp. „Það hefur sýnt sig í Noregi, þar sem reynt hefur verið að færa fólk milli sjúkrahúsa til að stytta biðlista, að það hefur ekki reynst vel. Fólk vill sækja þjónustuna í sitt nágrenni, það vill ekki fara út á land. Það bíður frekar heima hjá sér, nálægt sínum lækni og fjöl- skyldunni." Siv sagði því að tillög- ur sjálfstæðismannanna gætu því aðeins gengið upp að ákveðin þjón- usta væri að öllu leyti flutt út á land þannig að sjúklingar ættu ekki annan valkost. Hjálmar sagði landsbyggðar- sjúkrahús hafi ekki setið við sama borð og sjúkrahús á suðvestur- horninu varðandi sparnaðarað- gerðir. „Á suðvesturhorninu er fenginn rekstrarráðgjafi til að vinna með ráðuneytinu og heima- aðilum að hagræðingu. Hins vegar er sjúkrahúsunum tólf á iands- byggðinni mætt með sparnaðarkr- öfum í prósentum og milljónum. Þau mega aðeins velja hvernig þau eigi að spara.“ Hjálmar sagði allan mismunun í heilbrigðiskerfinu slæma, á hvorn veginn sem hún væri, gagnvart landsbyggðinni eða suðvesturhorninu. Hann lýsti fullu trausti á heilbrigðisráðherra, þó ekki teldi hann rétt að farið við sparnaðaraðgerðir. Reglur um hámarksbiðtíma duga ekki Siv sagði að í Noregi og Svíþjóð hefði verið gripið til þess ráðs að setja reglur um hámarksbiðtíma eftir aðgerðum fyrir ákveðna sjúkl- ingahópa. „Þessi aðferð hefur mis- tekist þar, því læknar túlka biðlist- ana á mismunandi hátt og setja allt of marga á þá. Þetta kerfi hefur ekki orðið til aukins jafnrétt- is í heilbrigðiþjónustunni, heldur þveröfugt. Nú eru Norðmenn að víkja frá þessari stefnu.“ Siv sagði að Danir hafi farið aðra leið, með átaksverkefnum í að stytta ákveðna biðlista og með því að hafa aðgengilegar upplýs- ingar um alla biðlista. Þingmaður- inn taldi réttast að íslendingar færu þessa sömu leið og kæmu sér upp sveigjanlegu kerfi. IVITARA Tveir góðir í snjóinn: Og líttu á verðið SUZUKIVITARA JLX, 5-dyra: aðeins 1.940.000 KR. BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins 1.580.000,-kr. i BALENO WAGON 4 WD Prufukeyrðu Suzuki í dag. SUZUKI BÍLAR HF Taktu nokkrar beygjur, finndu þœgilegan gír. skeifunni 11,108 Reykjavik. Mjúkur og léttur - eins og akstur á ad vera. Sími 568 51 oo. SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guovarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. 1 t AFLOG ÖRYGGl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.