Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Kjartan sýnir í Sverrissal SÝNING á nýjum verkum Kjartans Ólasonar verður opnuð í Sverrissal í Hafnarborg, laugardaginn 22. febrúar. Hér er um að ræða myndir unnar með bland- aðri tækni, en við- fangsefni lista- mannsins eru sjón- ræn minni sem ís- lendingar þekkja vel, bæði úr samtíð- inni og úr sögunni. I myndunum má sjá, líkt og í óljósri minningu, bregða fyrir kunnug- legum útlínum af styttum þekktra íslendinga, af stöðum og skjöl- um sem tengjast sögu okkar og af myndbrotum sem við höfum sum dag- lega fyrir augunum án þess að gefa þeim sérstaklega gaum. Kjartan hefur haldið margar sýn- ingar og má þar síð- ast nefna málverka- sýningu á Kjarvals- stöðum á síðasta ári. Sýningin stendur til 10. mars og er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. Kjartan Olason Jóhann G. Jóhannson Afmælis- sýning JÓHANN G. Jóhannsson opnar afmælissýningu í Galleríi Borg við Ingólfstorg laugardaginn 22. febrúar sem hann nefnir „Hug- hrif íslenskrar náttúru", en Jó- hann verður fimmtugur þann sama dag. „Jóhann er löngu orðinn lands- þekktur, bæði sem tónlistarmað- ur og myndlistarmaður. Á síð- ustu misserum hefur hann unnið jöfnum höndum að myndlistinni og tónsmíðum. Jóhann sýnir nú um 35 verk sem unnin eru með vatnslitum og blandaðri tækni, þar sem hann leitast við að túlka andstæður og mikilfengleika hinnar íslensku náttúru“, segir í kynningu. Síðan á haustmánuðum 1995 hefur Jóhann stundað nám í tölvuveri Tónlistarskóla Kópa- vogs. Við opnun sýningarinnar mun hann frumflytja tónverkið Píramídi I, sem er afrakstur frá tónlistamáminu. Sýningin er opin virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18. Henni lýkur sunnudag- inn 2. mars. Verk unnin á hör og pappír NÚ STENDUR yfir myndlistar- sýning Hrafnhildar Sigurðar- dóttur í Galleríi Regnbogans á Hverfísgötu 54. Verkin á sýningunni em að mestu unnin á hör og handgerð- an pappír. Þau em gerð með japanskri „shibori“ aðferð, en það er samheiti yfír aldagamlar japanskar litunaraðferðir. Hrafnhildur fæddist 1959 og hefur haldið fjölda sýninga bæði hér á landi og erlendis. Á sýning- unni eru alls 11 verk og em þau flest unnin með áðumefndum aldargömlum litunaraðferðum frá Japan. Verkin á sýningunni em frá þessu ári og því síðasta og hafa fæstar myndanna verið sýndar áður. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 16-24 og frá kl. 14 til miðnættis um helgar. Leikið á Nellý HELGA Þórsdóttir og María Pétursdóttir fremja gjöming ásamt leynigesti á diskótekinu Nellý sunnudaginn 23. febrúar kl. 17. Sama dag kl. 22 sýnir leikkon- an Sigrún Sól einleikinn og ein- þáttunginn „Ég var beðin að koma“ eftir Þorvald Þorsteinsson í leikgerð hennar sjálfrar og Guðjóns Pedersen. Aðgangur er ókeypis. Sönglög í Hafnarborg GUÐRÚN Jónsdóttir sópran og Ólafur Vignir Albertsson píanó- Ieikari halda tónleika sunnudag- inn 23. febrúar kl. 20.30 Í Hafn- arborg í Hafnarfirði. Á efnis- skránni verða sönglög eftir Karl 0. Runólfsson, Atla Heimi Sveinsson og Hjálmar Helga Ragnarsson og ópemaríur eftir Mozart, Verdi og Donizetti. Göran Tunström á Súfistanum Heimsbókmenntaklúbbur Máls og menningar efnir til upplestr- arkvölds á Súfístanum, bóka- kaffínu í bókabúð Máls og menn- ingar, mánudaginn 24. febrúar kl. 20.30. Tilefnið er að um þess- ar mundir er sænski skáldsagna- höfundurinn Göran Tunström staddur hér á landi í því skyni að kynna nýjustu skáldsögu sína, Ljóma, sem nú er komin út hjá Máli og menningu í þýðingu Þór- arins Eldjáms. Tunström er einn þekktasti skáldsagnahöfundur Svía, en tvær bóka hans hafa verið þýdd- ar á íslensku, Jólaóratórían og Þjófurinn. Tunström mun lesa kafla úr nýju skáldsögunni og Þórarinn Eldjám kafla úr þýðingu sinni á verkinu. Auk þess mun höfund- urinn árita bókina fyrir þá sem þess óska. Upplestrarkvöldið hefst kl. 20.30 og em allir velkomnir. Inniskór frá 490 kuldaskór frá 1990 smáskór V bláu húsi v/Fákafen Olivur við Neyst MYNDUST Listhúsiö Fold MÁLVERK Olivur við Neyst. Opið daglega frá 10-18, laugardaga frá 10-17 og sunnudaga frá 14-17. Til 2 marz. Aðgangur ókeypis. OKKUR sem skrifum rýni hér í blaðið, er fyrirlagt að búa til fyrir- sagnir í samræmi við efnið, en síður nota nöfn fómardýranna. En ef þetta nafn er ekki í tengslum við eftirfar- andi skrif rýnisins, auk þess að vera myndrænt og beri í sér sterkar skír- skotanir er hann illa svikinn. Allir munu sjá að hér er um Fær- eying að ræða og myndin sem fylgir skrifinu gefur ótvírætt til kynna að hann sé málari, mikilverðast þó fær- eyskur málari. Ég hef endurtekið vakið athygli á því áður, að það sé eitthvað í mynd- um Færeyinga sem gefur til kynna uppruna þeirra, og að við sjálfir eig- um enga jafn afmarkaða hliðstæðu í vinnubrögðum, legg ekki dóm á það hér af hverju sé meiri ávinningur, en það gefur til kynna að einstakling- seðlið sé ríkara í okkur og jafnframt að hér fyrirfinnst ekki sameiginlegur menntunarlegur grunnur. Færeyingar hafa nær alfarið sótt menntun sína til Listakademíunnar í Kaupmannahöfn, en þangað sækja þeir þó ekki einkenni sín, sterka liti og hijúfleika í vinnubrögðum, heldur til heimaslóða. Er þá nokkum veginn sama hvort þeir máli óhlutlægt, sem þeir gera þó fæstir, eða hálfabstrakt sem mun fleiri gera, með sterkum vísunum til formana landsins. Þeir eru eyjarskeggjar langt úti á Atlants- hafi eins og við og það höfum við helst sameiginlegt, að styðjast við hvassari skil ljósbrigða, nota yfirleitt sterkari liti og vera með hrjúfari lita- notkun en meginlandsbúar. Málarinn Olavur við Neyst, er hér gott dæmi þar sem hann byggir mikið til á heit- um, aðallega rauðum litatónum, dempar þá með bláu sem hann dýpk- ar svo með svörtu, iífgar með gulum og hvítum ljósleiftrum. Ferlið er kannski nokkuð einfalt og hættan á endurtekningum dijúg, en málaragleðin ber þetta þó yfirleitt uppi. Að minni hyggju hafa Færey- ingar fjarri því tæmt þetta ákveðna ferli úthverfs innsæis á þjóðlegum grunni, en mættu að ósekju hyggja að útvíkkun þess með fjölþættari formrænum stígandi. Gjarnan yfir- færa á önnur svið sjónrænan kraft- birting, því allt eins er hér grunnur- inn réttlegur fundinn, honum má síð- ur varpa fyrir róða fyrir innfluttar staðlaðar fræðikenningar og niður- soðna heimspeki. Það eru 33 málverk á sýningunn, sem virðast flest ný af nálinni og sérstök einkenni listamannsins kenndi ég í myndunum „Utsýni af klettum" (7), „Stemning við höfnina" (11) og „Verur í snjó“ (23). Einkum er úrskerandi tjákraftur í síðasttöldu myndinni. Bragi Ásgeirsson Kunnugleg afstrakt MYNPUST Listasafn ASÍ — Ásmundarsal MÁLVERK Gunnar Kr. Jónasson. Opið kl. 14-18 alla daga nema mánud. til 2. mars; aðgangur ókeypis. LISTASAGAN er sneisafull af dæmum þess að listagyðjan krækir í fólk á ýmsum aldri. Ýmsir eru fædd- ir henni, aðrir hneigjast til hennar á unglingsárum, en sá hópur er einnig stór sem hún Iaðar til sín síðar, jafn- vel eftir að viðkomandi hafa markað sér bás í lífinu og hafið starf á öðrum vettvangi. Fræg dæmi þessa utan úr heimi eru menn eins og Paul Gauguin (1848-1903), vel settur verðbréfa- sali sem fórnaði öllu fyrir listina og Vasily Kandinsky (1866-1944), sem var efnilegur lögfræðingur á uppleið þegar listin náði á honum föstu taki. Hér á landi má nefna Jóhannes Kjarval og Jón Stefánsson, sem báð- ir voru orðnir fullorðnir menn þegar þeir ákváðu að helga sig listinni. Þau dæmi um slík umskipti sem eru jafn dramatísk í eðli sínu eru vitanlega færri en þau sem fara hljóðar, en skila listinni samt lista- fólki, sem hefur ánægju af sínu verki ogjafnvel ýmislegt fram að færa. I endurreistum Ásmundarsal við Freyjugötu, sem nú er orðinn stolt Listasafns ASÍ, sýnir nú listamaður úr þessum flokki. Gunnar Kr. Jónas- son hafði stundað járnsmíðar og aug- lýsingastörf áður en hann söðlaði um og tók til við listnám 1986. Frá því hann lauk námi hefur hann haldið nokkrar sýningar, m.a. í Listasafni ASÍ fyrir þremur árum, og er nú kominn aftur á sama vettvang. Gunnar sýnir hér fjórtán olíumál- verk. Þar af eru fjórar stórar mynd- GUNNAR Kr. Jónasson: Kæti. ir, sem hinar minni hverfast um. Hér hefur tekist vel til við uppsetning- una, þannig að verkin njóta sín öll nokkuð vel í salnum, sem er orðinn gullfallegur. Það myndmál sem lista- maðurinn er að vinna með er komið frá afstraktmálverkinu, eins og það náði þroska hér á landi á sjötta og sjöunda áratugunum. Það er talsverður leikur sveiglína í þessum myndum, sem flestar eru byggðar upp af dökkum grunni. I stærri málverkunum er léttleikinn meiri og þar má sums staðar greina annað línuspil undir því, sem endan- lega ræður yfírborðinu; minni verkin eru einfaldari og fastari í forminu og þar er þéttleiki litanna einnig meiri. Mest er unnið út frá gulum og bláum litum og í hreinum litflötum og leitast við að halda hverri mynd í jafnvægi innan heildarinnar. Þetta tekst hvað best í verkum eins og „Kæti“ (nr. 6) og „Rýmd“ (nr. 14, en af minni málverkunum má helst benda á „Kjama“ (nr. 7) og „Hvín“ (nr. 9), þar sem oddboginn er sterkasta einkennið. Sé litið til heildarinnar er eðlilegt að álykta að hér sé á ferðinni lista- maður sem enn á eftir að velja sér myndmál. Þó hér sé liðlega unnið og vel farið með eru efnistök afar kunn- ugleg, m.a. frá listamönnum eins og Karli Kvaran og Jóhannesi Jóhannes- syni. Slík úrvinnsla nú getur því að- eins verið áfangi á lengra ferli, þar sem listamaður leitar að sinni per- sónulegu tjáningu í listinni. Eiríkur Þorláksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.