Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.03.1997, Blaðsíða 4
4 D FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÞÓRÐUR Kristjánsson er áttræður í ár og hann er einn GOLFVÖLLURINN er á kafla lagður upp að hrauninu og jafnvel inn í það. Hér, í norðvesturenda vallarins, úr hópnum, sem upphaflega keypti Urriðavatnsland. er styzta golfbraut landsins, aðeins um 70m löng, en þykir samt áhættusöm. og óhætt þessvegna að gefa vel í, enda veitir ekki af. Betra er að freistast ekki til að stytta leiðina með því að leika mjög nærri girð- ingunni vinstra megin og í öðru höggi er eina hættan þeim megin. Móinn hægra megin við brautina er hinsvegar ekki mjög grasgefinn og fremur hættulítill. Þriðja högg- ið inn á flöt er næstum upp að hraunkantinum og því eins gott að hafa hemil á kröftunum og hafna ekki í hraunbrúninni. Flötin er fallega lögð inn í kverkina. Ekki eru allir jafn hrifnir af 6. braut, sem er par-3 og sú styzta á íslenzkum golfvelli, aðeins um 70 m aftast af teignum. Há hraun- brún er aftan við teiginn og ekki auðvelt að færa hann aftar. Flötin er lítil eins og eðlilegt má telja; sprungið hraun með dröngum og gjótum á vinstri hönd, en hraun- hóll að baki. Gallinn við þessa sér- kennilégu holu er að það er hægt að missa höggið og boltinn skondr- ar ef til vill inn á flöt. Grunnar sandglompur hægra megin mættu vera eitthvað dýpri og ná þvert fyrir flötina. Enda þótt sú 6. sé sakleysisleg, lenda menn hvað eft- ir annað í stórslysum á henni. Það er undir hælinn lagt hvað gerist ef maður hittir gijótið. Braut nr 7, sem er stutt par-4, er “blind“ í þá veru, að hraunrani teygist alllangt fram og miðlung- slangt upphafshögg verður helzt að fara yfir hann. En það er líka hægt að taka þessa áhættu úr sambandi með því að stefna vel til hægri og ætla sér þá lengra högg inn á flöt. Sú flöt er einhver sú fegursta á landinu og þótt miklu víðar væri leitað; umlukin fallegu og allvel grónu hraun á þijá vegu. Hægt er að ná með löngu upphafs- höggi framfyrir, þar sem opnast inn á flötina, og þá er málið auð- leyst. En fyrir langt högg er að- koman mjög áhættusöm. 8. braut er par-4 í vinkil til vinstri og síðast aftur til hægri. Hún er fjölbreytt og falleg, en hef- ur verið spillt dálítið með klúðri, sem auðvelt er þó að laga. Teigur- inn á bak við 7. flöt gengur ekki; hann þarf að vera inni í hrauninu dálítið austar og þar verður að gera uppfyllingu. Annað klúður er merking sem úrskurðar bolta „útaf“ ef þeir lenda á hraunbrún- inni vinstra megin; enginn getur grætt á því að lenda þar. Rétt sleg- inn bolti lendir á rúmgóðri víðáttu neðan hraunsins og þaðan er sleg- ið inná flöt yfír skóg, sem er sjald- gæft á íslenzkum golfvöllum; þétt- an furuskóg sem hirðir mikið af boltum og hefur dijúg sálfræðileg áhrif þó ekki sé hann mjög hár. Þessum furuskógi plöntuðu Odd: fellowar út fyrir mörgum árum. í hvammi þaðan skammt frá höfðu URRIÐAVATNSLAND, áætluð landnotkun. Golfvölurinn er á miðjunni, innan við Flóttamannaveginn. ÚTSÝNI frá tóftum bæjarins að Urriðavatni, yfir vatnið og hraunið. Hafnarfjörður í baksýn. HANNES Þorsteinsson hefur teiknað og mótað golfvöllinn og nær hann víða upp að hrauninu. Göngu- stígar, hér merktir með gulu, ná frá golfskálanum og inn í Búrfellshraun. URRIÐAVATNSLAND Á/KTLUÐ LANON0IKUN S-Æft ODTAeufMA t&wm mmmm ó&mrtms* | a o^i 5VC5I m S&S-brPUi HXA opn SMö* sébsiama SÁFN8RÁUTW jrMr'img STCFN3ÞAUTÞ itoí. •dwja i tímutmtmn r skátar fengið að byggja skála, en ) hafa nú fært sig um set. | 9. braut er nærri sléttir 400m á lengd og þar með lengsta par-4 » braut á landinu. Hún er auk þess áhættusöm. Brautinni hallar tals- vert til hægri þar sem teighögg koma niður, en hitti maður braut- ina er vandinn aðeins hálfnaður. Raunar ná aðeins þeir sem hafa lága forgjöf að slá inná þessa flöt í öðru höggi og beint verður það . að vera. Hár grýttur hóll tekur við því sem krækist til vinstri, en r hægra megin við flötina eru glomp- j ur og ennþá verra er að lenda lengra til hægri út af brautinni. Félagar hafa fjármagnað allt. Mörgum hefur þótt hraði fram- kvæmdanna ævintýralegur í Urr- iðavatnsdölum og því hefur verið slegið fram, að Oddfellowar hafí k getað gengið í digra sjóði til þess í arna. En það er ekki svo. Félag- ! amir sjálfir hafa fjármagnað I þetta, nema hvað Styrktar- og líknarsjóðurinn fjármagnar gróð- ursetningu á tijáplöntum, hönnun, svo og grasfræ á brautirnar. Tek- in hafa verið lán vegna fram- kvæmda og ein stór er eftir: Golf- skálinn, en hann verður látinn bíða; völlurinn gengur fyrir. . Bráðabirgðaskálinn hefur lítið eitt * verið stækkaður, en draumurinn 1 er að lítlu austar rísi nýr skáli, sem j þjóni líka göngufólki. Stofnfundur golfklúbbs Odd- fellowa var haldinn 12. mai, 1990 og þá voru skráðir um 300 stofnfé- lagar. Nú eru klúbbfélagar yfír 500. Hraða framkvæmdanna má m.a. þakka hópi vaskra manna úr Oddfellowreglunni sem vann bæði við frágang hússins og þökulagn- I ingu á teiga, allt í sjálfboðavinnu. | Þar að auki lögðu félagarnir á sig £ framkvæmdagjald og hafa á þann P hátt fengizt 5-6 milljónir til fram- kvæmda. Óskar Sigurðsson, fyrsti formaður Golfklúbbs Oddfellowa, hefur unnið mikið og gott starf og einnig Gunnlaugur Gíslason, sem hefur verið formaður vallar- nefndar frá upphafi og stjórnað framkvæmdum. Byggð hefur verið vélageymsla, sem einnig hýsir aðstöðu fyrir starfsmenn og stjórn, en það k veigamesta sem nú er á fram- kvæmdastigi er helmingur golf- vallarins, sem kunnugir telja að sé ekki á síður á fögru og tilbreyt- ingarríku landi en sá hluti sem við þekkjum, og jafnvel að svæðið þeim megin sé ennþá fegurra. I ágúst verður Oddfellowreglan á íslandi 100 ára og stefnt er að |., því að opna þennan nýja hluta vallarins og leika á 18 brauta golf- L velli á landsmóti Oddfellowa í ™ sama mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.