Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 LAIMDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Hafinn undirbúningur að nýrri heimildarmynd um Vestfirði Þjóðin þarf að fræðast bet- ur um lífið á Vestfjörðum ísafirði - Avinnuþróunarfélag Vest fjarða hefur hafið undirbúning að nýrri heimildarmynd um náttúru, atvinnu- og mannlíf á Vestfjörðum, í samvinnu við Námsgagnastofnun, Mega Film og Ríkisútvarpið Sjón- varp. Heildarkostnaður við gerð myndarinnar er áætlaður um 3,5 milljónir króna og munu framan- greindir aðilar kosta verkið auk þess sem Fjórðungssamband Vest- fírðinga mun leggja til fjármagn. Þá hafa þingmenn Vestfjarða ritað sameiginlegt bréf til fyrirtækja á Vestfjörðum þar sem farið er fram á 1.000 kr. styrk á hvern starfs- mann til verkefnisins. í bréfi þingmannanna segir m.a.: „Við sem búum á Vestijörðum höfum undanfarin ár upplifað mikl- ar hörmungar af völdum náttúru- hamfara og áföll hafa sett mark sitt á íbúa svæðisins til framtíðar. Umræða um Vestfirði hefur lengi verið öll á neikvæðum nótum. Menn tala um óblítt veðurfar og hátt verðlag á Vestfjörðum auk þess sem umræða um atvinnulíf á Vestfjörðum hefur ekki verið sem skyldi og verður að teljast afar einlitt. Það er og staðreynd að íbú- um Vestfjarða hefur fækkað mikið undanfarin ár og þeirri þróun verð- ur að snúa við. Síendurtekin nei- kvæð umræða hefur áhrif á sjálfs- vitund þess sem býr á svæðinu og í huga hans verður tii skekkt ímynd. Fjölmiðlar einblína á það sem aflaga fer og telja það sjaldn- ast skyldu sína að tíunda það sem vel er gert. Það skiptir alla þá sem byggja Vestfirði miklu máli að ímynd svæð- isins út á við og inn á við sé já- kvæð. Sé ímynd svæðisins jákvæð er hún til þess fallin að hvetja menn til frekari dáða og þeir verða sátt- ari við sjálfa sig og umhverfi sitt. Það er einlæg trú okkar alþingis- manna á Vestfjörðum að heimildar- mynd um Vestfirði, sem varpi já- kvæðu ljósi á atvinnu- og mannlíf fjórðungsins, sé mikils virði og aldr- ei sem nú. Það er einnig von okkar að fyrirtæki og stofnanir á Vest- fjörðum sjái mikilvægi jákvæðrar kynningar á fjórðungnum og leggi þessu málefni lið.“ Mikil þörf á kynningu Ráðgert er að heimildarmyndin verði sýnd í 7.-10. bekkjum grunn- skóla, í sjónvarpi auk þess sem gerð verður sérstök útgáfa af myndinni sem ætluð er ferðamönn- um. Mun síðastnefnda atriðið vega mest í kynningunni, en ferðaþjón- usta á Vestfjörðum er atvinnugrein sem menn binda miklar vonir við í framtíðinni. „Helgi Sverrisson kvikmynda- gerðarmaður hjá Mega Film hafði samband við okkur þingmenn Vest- fjarða hvern í sínu lagi og kynnti fyrir okkur þær hugmyndir sem uppi eru um að gera heimildarmynd um Vestfírði. Við töldum að þetta væri mjög gott framtak og í fram- haldi af því óskaði Helgi eftir því að við rituðum lítið bréf þar sem fram kæmi vilji okkar til þess að það yrði reynt að gera slíka mynd. Við vorum sammála um þörfina fyrir slíka mynd og því rituðum við bréfið," sagði Einar Guðfinnsson, fyrsti þingmaður Vestfjarða, í sam- tali við blaðið. Einar Kristinn sagði að sú mynd sem dregin hefði verið upp af lífinu á Vestfjörðum væri mjög óréttmæt og gæfi alls ekki til kynna það sem raunverulega færi þar fram. „Við þingmenn Vestfjarða teljum mikla þörf á kynningu sem þessari enda þarf íslenska þjóðin að fræð- ast betur um það líf sem lifað er á Vestfjörðum. Ég held að myndin snúi ekki við þeirri þróun sem verið hefur varðandi fólksfækkun á Vest- fjörðun en með öðru getur hún dregið upp réttari lýsingu á því sem er að gerast á Vestfjörðum og ég er sjálfur ekki í nokkrum vafa um að hin neikvæða ímynd sem Vest- firðir hafa fengið í allsendis ómak- legri umfjöllun oft á tíðum muni lagast með mynd sem þessari,“ sagði Einar Kristinn. Morgunblaðið/Arnaldur KNUTUR Bruun við nýju laug-ina þar sem gestir Frosts og funa geta fengið sér sundsprett. Nýtt gistiheimili í Hveragerði Frost og funi á bökkumVarmár NÝTT gistiheimili hefur starfsemi sína í Hverahvammi á bökkum Varmár ofan við Hveragerði á næstu dög- um. Það hefur fengið nafnið Frost og funi og eru hús- ráðendur þar Knútur Bruun og sambýliskona hans, Anna Sigríður Jóhannsdóttir. íslensk nútímamyndlist prýðir veggi gistiheimilisins en þar eru sex tveggja manna herbergi, öil með sérbaði, sjónvarpi ogmöguleik- um á tölvutengingu, auk þess sem ein lítil íbúð er á jarðhæð. Fjögur herbergjanna eru með svölum sem snúa út að Varmá og hafa gestir aðgang að tólf metra einka- sundlaug, heitum potti á árbakkanum og gufubaði á jarðhæð með útisturtu. Þá er einnig gróðurskáli á sund- laugarbakkanum. Á veggjum má sjá verk eftir mynd- listarmennina Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Karl Kvaran, Óskar Magnússon, Arnar Herbertsson og Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, auk þess sem starf- andi listamönnum verður gefinn kostur á að hengja upp verk sín á gangi gistiheimilisins. Fyrstur ríður á vaðið Magnús Kjartansson með litla sýningu. Vistvænn morgunverður á sérhönnuðu stelli Gisting fyrir tvo kostar 6.500 kr. og morgunverður 750 kr. og er hann framreiddur á sérstöku stelli sem Margrét Jónsdóttir leirlistakona á Akureyri hefur hann- að sérstaklega fyrir gistiheimilið. Að sögn Knúts er HERBERGIN eru tveggja manna, stór og björt og veggina prýðir íslensk myndlist. ætlunin að bjóða upp á lífrænar og vistvænar afurðir úr næsta nágrenni eftir því sem við verður komið. Aðspurður um markhóp kveðst Knútur aðallega höfða til erlendra ferðamanna á aðalferðamannatíman- um en yfir vetrartímann líti hann ekki síður til íslend- inga sem vilja skjótast frá amstri hversdagsins og njóta hvíldar í fögru umhverfi. „Ég er eiginlega að afhenda fólki þennan lúxus sem ég ætlaði upphaflega að byggja yfir sjálfan mig en mér þykir svo notalegur að mér finnst að fleiri verði að fá að njóta þess,“ segir Knútur. VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Karl KOLBEINN Þór Bragason, nýráðinn framkvæmdastjóri Norðvesturbandalagsins. Norðvesturbandalagið Nýr framkvæmda- stjóri ráðinn Morgunblaðið. Hvammstanga. NORÐVESTURBANDALAGIÐ hf„ félag um rekstur sláturhúsa og skylda starfsemi, sem var stofnað 1. júlí sl„ hefur ráðið Kolbein Þór Bragason framkvæmdastjóra fé- lagsins. Lögheimili félagsins er á Hvammstanga. Stofnendur Norðvesturbandalags- ins eru kaupfélögin á Hvamms- tanga, Hólmavík og Borðeyri, ásamt Afurðastöðinni í Búðardal. Aðrir hluthafar eru búnaðarsamböndin í Vestur-Húnavatnssýslu, Stranda- sýslu, Dalasýslu og Vestfjörðum, Byggðastofnun, Dalur hf„ Kjötum- boðið hf„ Olíufélagið hf„ Samvinnu- lífeyrissjóðurinn, Samvinnusjóður íslands, Skinnaiðnaður hf. og Vá- tryggingafélag íslands. Hlutafé fé- lagsins er 270,5 milljónir króna. Stefnt er að fjölgun hluthafa, m.a. að fá bændur og aðra viðskiptaaðila félagsins til þátttöku. Stærsti hlut- hafinn er Kaupfélag Vestur-Hún- vetninga sem á 49% hlutafjár. Gert er ráð fyrir því að félagið sæki um skráningu á Verðbréfaþingi íslands. Kolbeinn Þór hefur um skeið starfað sem framkvæmdastjóri Hag- félagsins á Hvammstanga. Hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla ísland árið 1996 og hefur m.a. unnið á skrifstofu Ríkis- spítalanna og hjá Landsbanka ís- lands. Stjómarformaður Norðvestur- bandalagsins, Gunnar V. Sigurðsson, kaupfélagsstjóri á Hvammstanga, segir að stefnt sé að slátrun í þremur húsum félagsins á komandi sláturtíð, þ.e. á Hólmavík, í Búðardal og á Hvammstanga, en sláturhúsið þar er með útflutningsleyfi á ESB-markaði. Slátrun verður hins vegar lögð af á Borðeyri. Áætluð ársvelta félagsins er 600 milljónir króna. Sheaffer pennafyrir- tækið selt Frökkum París. Reuter. BIC-fyrirtækið í Frakklandi, sem er þekktast fyrir kúlupenna, hefur keypt bandaríska pennaframleiðand- ann Sheaffer. Sheaffer selur penna fyrir rúm- lega 50 milljónir dollara á ári og er síðasta fyrirtækið af nokkrum, sem BIC hefur keypt til að styrkja stöðu sína. í fyrrahaust keypti BIC þýzka fyrirtækið A. Hauser, sem framleið- ir tússpenna. BIC framleiðir einnig kveikjara og einnota rakvélablöð og keypti þýzkt eignarhaldsfélag framleiðanda Tipp-Ex-strokleðurs í janúar. BIC á einnig Wite-out vörumerkið í Norð- ur-Ameríku. Dótturfyrirtækið BIC Corp. í Bandaríkjunum mun kaupa Sheaffer um miðjan september fyrir ótiltekna upphæð að fengnu samþykki banda- rískra eftirlitsyfírvalda. Starfrækt frá 1913 Sheaffer í Fort Madison, Iowa, hefur starfað síðan 1913 þegar Walter Sheaffer stofnaði það, fimm árum eftir að hann fann upp fyrsta margnota lindarpennann. Starfs- menn Sheaffers eru 550, þar af 450 í Norður-Ameríku. BIC selur einnig Conte- og Ballo- graf-penna og sala fyrirtækisins 1996 nam 6,4 milljörðum franka. Volvo selur UBS 11,3% hlutsinn íRenault Stokkhólmi. Reuter. VOLVO hefur selt UBS Securities 11,3% hlut sinn í frönsku Renault bifreiðaverksmiðjunum fyrir 5,9 milljónir sænskra króna. „Salan er í samræmi við þá stefnu, sem stjórn fyrirtækisins mótaði 1994,“ sagði Leif Johansson aðal- framkvæmdastjóri. „Tíminn er val- inn vegna þess að við viljum hagn- ast á þv! að hlutabréf í Renault hafa hækkað í verði í ár.“ Hlutur Volvo I Renault var með því síðasta sem eimdi eftir af sam- starfí bílaverksmiðjanna, sem lauk 1995 þegar hluthafar Volvo höfnuðu fyrirhuguðum samruna. Ákvörðun Volvo um að selja bréf- in kom Renault ekki á óvart og hyggst Renault selja 3% hlut sinn í Volvo þegar henta þykir. USB mun koma 22,7 milljónum Renault hlutabréfa í sölu á 171 franka á bréf. Hlutabréf I Renault, sem hafa hækkað um 40% á síðustu tveimur mánuðum, seldust við lokun í París á 172,40, sem var 0,30% lækkun. Hlutabréf í Volvo hækkuðu um 1,30 í 213,30 I Stokkhólmi. Pharmacia & Upjohn næst SALA Renault-bréfanna er liður í þeirri stefnu Volvo að losa sig við eignir óviðkomandi kjarna starfsem- innar. „Lengi hefur verið búizt við þess- um viðskiptum og næsta skref er að Volvo selur Pharmacia & Upjohn hlutabréf sín,“ sagði sérfræðingur Swedbank Markets. Volvo á 19,8 milljónir hlutabréfa, eða 4% hlut, í Pharmacia & Upjohn Inc„ sænsk-bandarísku lyfjafyrir- tæki, sem skýrði frá því á dögunum að hagnaður þess hefði rýrnað um 34% á öðrum ársfjórðungi. Fyrr á þessu ári seldi Volvo hlut sinn I Pripps-Ringnæs fyrir 3,1 millj- arð sænskra króna og 4,7% hlut sinn í SAS fyrir 221 milljarð sænskra króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.