Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 25 AÐSENDAR GREINAR Um synjun Hæstaréttar á endurupptöku Guðmundar- o g Geirfinnsmála HINN 15. júlí sl. tók Hæstiréttur Islands svo sem kunnugt er afstöðu til erindis Sævars Mar- inós Ciesielskis um end- urupptöku hæstarétt- armáls nr. 214/1978, sem betur er þekkt und- ir nafninu Guðmundar- og Geirfinnsmál. Rétt- urinn synjaði erindinu. Mál þetta hefur skiljan- lega verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu. Mér fínnst ástæða til að Jeggja orð í belg. Úrlausn réttarins er bæði ítarleg og vönduð að allri gerð. í henni er m.a. ástæðum fyrir endurupptökubeiðninni raðað upp með skipulegum hætti en á það hafði skort í erindi talsmanns Sævars Marinós til réttarins. Um ástæðurn- ar er svo fjallað hveija af annarri og þær afgreiddar með rökstuðn- ingi. Þessi vinnubrögð réttarins eru mjög að skapi starfandi lögmanns, enda ber úrlausnin með sér, að þær röksemdir sem fram var teflt í mál- inu hiutu skoðun og voru afgreiddar. Dómarnir uppfylltu ekki sönnunarkröfur Ég hef lengi talið að áfellisdómar Hæstaréttar 22. febrúar 1980 í þessu fræga dómsmáli hafi ekki uppfyllt þær kröfur sem gera verði til sönnunarfærslu í opinberum mál- um. Dómarnir voru byggðir á játn- ingum sakborninga sem fengnar voru við afar „frumstæðar" aðstæð- ur. Að mínum dómi fela játningar einar ekki í sér fullnægjandi sönnun- arfærslu í sakamálum. Þær hljóta að þurfa að styðjast við önnur „áþreifanlegri" sönnunargögn til að verða lagðar til grund- vallar dómi. Margt var athugavert við þessar játningar. Sumt af því skal nefnt: 1. Um var að ræða ungmenni sem stundað höfðu afbrot og neyslu vímuefna. Slíkt fólk er líklegra en ýmsir aðrir til að „kaupa sér frið“ við lögreglumenn með því að játa á sig þær sakir, sem það finnur að óskað er eftir. í málinu kemur fram að sakborningarnir hafa, meðan þeir voru í einangrun, leitað eftir samneyti við lögreglumennina. Þetta ber vott um það hugarástand, sem slík einangrun getur skapað og bendir til þess að tii hafi orðið við- leitni til að þóknast lögreglumönn- um. 2. í samhengi við þetta er nauð- synlegt að hafa hugfast að sakborn- ingarnir voru í einangrun og þannig ofurseldir rannsóknarvaldi, þar sem dómstóll og lögregla var á þessum tíma undir sama hatti. 3. Af málinu öllu er ljóst að rann- sóknin gekk fyrst og fremst út á að fá fram játningar. Við sakborn- ingana var oft rætt án þess að gerð- ar væru lögregluskýrslur. Ljóst er að lögregla sem svona starfar gerir frekar skýrslu, þegar eitthvað kemur fram, sem henni er að skapi. Lög- reglumenn báru upplýsingar á milli sakborninga, líklega fyrst og fremst með því að „bera undir“ einn það sem annar hafði sagt. í raun og veru er afar erfitt að greina hvaða hlutar af framburðarskýrslum sak- borninga eru frá þeim sjálfum komn- ar og hvaða hlutar frá lögreglu- mönnum. 4. Hafa verður í huga að langur tími leið frá meintum afbrotum, þar til tekið var að yfirheyra sakborn- inga, nær tvö ár í „Guðmundarmáli" og um hálft annað ár í „Geirfinns- máli“. Eftir þann tíma var tekið að spytja sakbominga um tímasetning- ar og atburði á tímaskeiði vímuefna- neyslu svo löngu fyrr. Við þessar aðstæður er svörum lítt treystandi. Fjöldi fólks hefur horfið á undanförnum áratug- um án þess að skýringar hafi fundist, segir Jón Steinar Gunnlaugsson, og fínnst eins standa á um þessa tvo menn. 5. Bent hefur verið á, að lögregl- an hafi látið undir höfuð leggjast að rannsaka strax atriði sem sjálf- sagt var að rannsaka, m.a. atriði sem hefðu getað horft til hagsbóta fyrir sakbominga. Nokkuð virðist vera til í þessu. T.d. hefði þurft að kanna miklu betur en gert var upplýsingar um ferð Sævars Marinós austur fyr- ir fjall um sama leyti og Guðmundur Einarsson hvarf. 6. í framburðarskýrslum sakborn- inga komu fram ýmis atriði sem síð- ar kom í ljós að ekki fengu staðist. Þetta var vitaskuld til þess fallið að rýra gildi þessara skýrslna fyrir dómi. Dæmi um þetta er framburður Alberts Klahns Skaftasonar, þar sem hann lýsti af nákvæmni aðstæðum við Hamarsbraut í Hafnarfirði, þeg- ar hann var fenginn til að koma á Toyota-bifreið föður síns til að flytja lík Guðmundar Einarssonar. Sú ná- kvæma lýsing hrundi til grunna þeg- ar í ljós kom að faðir hans hafði ekki átt Toyota heldur Volkswagen á þessum tíma. 7. Hafi játningarnar verið sann- leikanum samkvæmar, hvernig stóð þá á því að enginn sakborninga gat bent á hvar a.m.k. annað líkið væri að finna? Málið ber með sér að ýmsar frásagnir hafi komið fram um þetta hjá sakborningunum en engin þeirra hafi reynst rétt, þegar líkanna var leitað. Voru játningarnar trú- verðugri en þessar frásagnir af stað- setningu líkanna? í raun og veru hefur aldrei verið sannað með óyggj- andi hætti að nein glæpaverk hafi verið unnin við hvarf þessara tveggja manna. Fjöldi fólks hefur horfið á undanförnum áratugum á íslandi án þess að skýringar hafi fundist. Mér finnst eins standa á um þessa tvo menn. 8. Mikill þrýstingur var á rann- sóknarmönnum og raunar dómskerf- inu sem slíku um að upplýsa þessi mannshvörf. Málið var mikið fjölm- iðlamál og furðuleg pólitísk upp- hlaup urðu sem gerðu alla þjóðina upptekna af því um langan tíma. Enginn vafi er á að þessar kringum- stæður höfðu veruleg áhrif á rann- sakendur og síðar dómara. Annmarkar lágu fyrir Við meðferð beiðninnar um end- urupptöku fjallar Hæstiréttur um Jón Steinar Gunnlaugsson Qölda atriða sem telja verður til annmarka á rannsókn og málsmeð- ferð á sínum tíma. Langflestu af þessu er hafnað sem tilefnum til endurupptöku á þeirri forsendu að upplýsingar um þessa annmarka hafi legið fyrir í málinu, þegar það var dæmt á sínum tíma. I þessu felst sú kaldhæðnislega niðurstaða, að ekki er unnt að fá mál endurupp- tekið ef dómarar í málinu hafa vitað eða mátt vita um aðstæður sem leiða hefðu átt til sýknu, án þess að hafa látið þær aftra sér frá að sakfella! Ástæða þess að í lög eru settar heimildir til að endurupptaka opin- ber mál er sú, að við viljum ekki að menn þurfi að sitja uppi með ranga dóma. Það má vel vera að sú lögskýr- ing Hæstaréttar nú sé rétt, að ekki sé unnt að endurskoða ranga dóma hafi það verið dómarar sem beittu rangindum. Það er hins vegar alveg sama ástæða til að heimila endur- skoðun, þó að það séu menn með dómsvald sem brotið hafa rétt á sökuðum mönnum. Þess vegna verð- ur að breyta lagaákvæðunum um endurupptöku og rýmka heimildir að þessU leyti. Það verður þó að gera af mikilli varfæmi því megin- reglan er vitaskuld sú að dómar séu endanlegir. Viðfangsefni dómara í sakamálum Ég sé að lokum ástæðu til að minna á, að viðfangsefni dómara i sakamálum er ekki að svara spurn- ingu um hvað raunverulega hafi gerst. Viðfangsefnið er að ákveða, hvort lögfull sönnun hafi verið færð fram fyrir dómi um sekt þess manns sem fyrir sökum er hafður. Sé slík sönnun ekki færð fram, kann það að leiða til þess að sekur maður sleppi. Það er gjald sem réttarríki greiðir fyrir að geta talist réttarríki. Höfundur er hæsta- réttarlögmaður. W w - w®' WW - w-w w-w-w -- undanurslit tftirtaldir leikir lara fram í undanúrslitum Coca-Cola bikars karla Laugardaginn 9. ágúst: ÍBV ■ KR Hásteinsvöllur kl. 16:00 Sunnudaginn 10. ágúst: Keflavík ■ Leiftur Keflavikurvöllur kl. 17:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.