Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Rætt um EMU og stækkun Evrópusambandsins á leiðtogafundi ESB í Lúxemborg Orlagaríkar ákvarðanir á dagskránni ONSEIL DE L'UNION BOURG '97 onseil Européen 12- 13 Reuters VINNUKONUR stijúka ryk af merki leiðtogafundar Evrópusambandsins í Lúxemborg, sem hefst í dag, en hann markar hápunkt hálfs árs forsætistimabils furstadæmisins í ESB. Lúxemborg. Reuters. VERA kann að eitt örlagaríkasta hálfs árs skeið- ið í sögu Evrópusambandsins (ESB) hefjist í dag þegar leiðtogar aðildarríkjanna fímmtán koma saman í Lúxemborg til þess meðal annars að taka ákvörðun um það hvaða ríki í Mið- og Aust- ur-Evrópu fá að hefja viðræður um aðild að sam- bandinu á næsta ári og um það hvernig nánar skuli standa að stofnun Efnahags- og mynt- bandalagsins, EMU. Þjóðar- og rfldsstjórnaleiðtogar ESB-ríkjanna sitja á rökstólum í dag og á morgun um þessi tvö meginmálefni og fleiri úrlausnarefni sem aðeins er á valdi leiðtoganna að taka ákvarðanir um, en leiðtogafundir þessir fara að öllu jöfnu fram á hálfs árs fresti. Á síðasta slíka fundinum í Am- sterdam í júní sl. var endurskoðaður grundvallar- sáttmáli sambandsins samþykktur og þar með endir bundinn á ríkjaráðstefnuna svokölluðu, en í nóvember komu þeir saman sérstaklega til að ræða atvinnuleysisvandann. Djúpstæður ágreiningur Þegar rúmlega 380 dagar eru til stefnu áður en til stendur að hleypa Efnahags- og myntbandalag- inu af stokkunum er enn um djúpstæðan ágreining að ræða milli þeirra ríkja sem eru svo til örugg um að verða meðal stofn- aðila og hinna sem annaðhvort vilja ekki eða geta ekki verið með frá upphafi. I síðamefnda hópnum eru Bretland, Svíþjóð, Danmörk og Grikkland. Ágreiningurinn snýr aðallega að því hvort þessi ríld fá að taka þátt í svokölluðu „Evró-x“-ráði, sem hugmyndin er að verði vettvangur aðildaníkja EMU til að samræma efnahagsstefnu sína eftir að þau hafa tekið upp sameiginlega mynt. Hætt er við að þessi deila skyggi á hitt meginviðfangsefni leið- togafundarins, sem er að taka ákvörðun um hvaða ríkjum sem áður tilheyrðu Austurblokkinni verður boðið að hefja aðildarviðræður í mai-z næstkom- andi og hvað bjóða skuli þeim ríkjum sem sótt hafa um aðild en ekld fá að hefja aðildarviðræður að sinni. Á þessu sviði er ágreiningur- inn einnig alldjúpstæður. Hvaða svör fá Tyrkir? Framkvæmdastjóm Evr- ópusambandsins mælti með því í júlí síðastliðnum að samninga- viðræður yrðu hafnar á næsta ári við fimm af tíu ríkjum Mið- og Austur-Evrópu, sem sótt hafa um aðild, það er Pólland, Tékkland, Ungverjaland, Slóveníu og Eistland, auk Kýpur, en lengra er síðan landinu var lofað að aðildarviðræður hæfust rúmlega hálfu ári eftir að ríkjaráðstefnunni lyld. Nokkur ESB-ríkjanna - Svíþjóð og Danmörk eru þar fremst í flokki - vilja að formlega verði hafnar viðræður við öll A-Evrópuríkin samtímis svo að ekkert þeirra fái ástæðu til að teljá sig skilið útundan, þótt eðlilegt sé að þau fái síðan aðild eftir því hve fljót þau em að uppfylla sett skilyrði. Viðkvæmasta spumingin í þessu sambandi er hvaða svör leiðtogarnir em tilbúnir að gefa Tyrkj- um, sem sóttu fyrst um aðild að Evrópubandalag- inu fyrir 35 áram. Nokkur ESB-ríki vilja gefa þeim skýr skilaboð um að Tyrkland sé velkomið í hópinn, til að veita vestrænt þenkjandi öflum í tyrkneskum stjórnmálum stuðning. En Grikkir, sem eiga í erjum við nágranna sína á Anatolíuskaganum, hafa hótað að beita neitunar- valdi gegn þátttöku Tyrkja í fastaráðstefnu vænt- anlegra aðildarríkja ESB sem hugmyndin er að komið verði á fót í febrúar. Því er einnig ósvai-að hvort EFTA-ríkin ísland, Noregur og Sviss fá að- ild að þessari ráðstefnu, en ESB-leiðtogamir verða að svara því áður en Lúxemborgarfundin- um lýkur á morgun. Evrópusambandið Boða aðhald í kvótaút- hlutun Brusscl. Reulers. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins tilkynnti í gær að „alvarlegt ástand" tiltekinna fiskistofna gerði að verkum að nauðsynlegt væri að setja afgerandi takmörk á veiðikvóta næsta árs. Ástandið gott í Norðursjó Tillögur framkvæmda- stjómarinnar um veiðihámark á næsta ári og ríkjakvóta verða ræddar á fundi sjávar- útvegsráðherra aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) 18. og 19. desember. „Nýjustu ráðleggingar vís- indamanna staðfesta að ástand tiltekinna auðlinda sem nauðsynlegar era evr- ópskum fiskveiðum er alvar- legt,“ sagði í yfírlýsingu fram- kvæmdastjórnarinnar. Því væri nauðsynlegt að grípa til strangs aðhalds í kvótaúthlut- un næsta árs. Segir framkvæmdastjórnin ástandið í Norðursjó vera harla gott, og jafnvel komi til greina að áuka kvóta. Þetta sé árangur 15 ára stjórnar. Hins vegar sé ástandið í Suður-Atl- antshafi og á Biscayaflóa al- varlegt vegna ofveiði. Grensásve}»i 3 Sími 568 1144 netfang: iog@mmedia.is Meðalgreiðsla á VISA og Euro í 36 mánuði kr. 5.035,- Góðar jólanætur framundan Verð aðeiwsto 145 I 11 DögghjónarúmlóO x 200 cm. m/tveimur náttborðum og gorma dýnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.