Morgunblaðið - 15.01.1998, Síða 31

Morgunblaðið - 15.01.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 31 Samvinna verkamanns og listamanns HVERT er hlutverk lista- mannsins og hversu mikið frelsi þarf einstaklingurinn að hafa til að þroska sína fagur- fræðilegu vitund? Þessu hefur listamaðurinn Ólafur Gíslason lengi velt fyrir sér og á sýningu í Galleríi Ingólfsstræti 8, sem verð- ur opnuð í dag kl. 16, kynnir hann samvinnuverkefni sitt og nokkurra verkamanna sem nefnist Deila með og skipta. Verkefninu er ætlað að skapa snertiflöt milli atvinnulffs og list- heims, rjúfa einangrun listarinnar og færa hana til raunveruleikans. Ólafur leitaði til atvinnufyrirtækja í borginni og fór fram á þátttöku þeirra f verkefninu með því að velja einstakling úr hópi starfs- manna sinna og greiða honum laun í þá þrjá daga sem viðkom- andi starfaði með listamanninum að verkefninu. Verkefnið var lagt fyrir starfsmannaráð fyrirtækj- anna og kynnt starfsmönnum þeirra. Síðan var valið úr hópi ein- staklinga sem buðu sig fram til þátttöku. eir sem tóku þátt í að deila með og skipta við listamann- inn voru þau Birgir Eggerts- son, starfsmaður Mjólkursamsöl- unnar, Baldur Gunnarsson frá Nóa-Sír/usi, Ólafur Stefánsson frá Kassagerðinni, Finnur Leifsson frá Áburðarverksmiðjunni, Magnús Skúlason frá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar og Erna Arnórsdóttir frá Granda. Listamaðurinn hitti þátttakendurna einslega og settist niður með þeim við vinnuborð þar sem málin voru rædd og í samein- ingu reynt að komast að þvf hvað hverjum einstaklingi lá á hjarta og hvernig best væri að koma því til skila í gegnum listina. Fagurfræði- legt mat er mjög tengt lífshlut- verki einstaklingsins og sköpun er mest notuð sem hvíld frá daglegu streði. Þessir einstaklingar höfðu ekki tengt það að mála vegginn heima hjá sér því að hafa pólitísk- ar skoðanir eða að fullkomna framleiðsluvélar með hugmynda- ríkum og einfóldum lausnum við listsköpun. Ólafur segir að það hafi hrifið sig í samtöium við þátt- takendur hversu hispurslaust þau gengu að inntaki verka sinna og voru ftjáls gagnvart ytri formum. ferli sínum hefur Olafur gjarnan unnið verkefni sem tengjast út i' samfélagið með einum eða öðrum hætti. Þó aldrei jafn beinskeytt og nú þegar sam- vinna á sér stað sem tekur mið af persónu ákveðinna einstaklinga og hugmyndum þeirra. I september sl. vann Ólafur að verkefni í Vín sem nefndist Vika bóhemsins. Þar fékk hann til samstarfs við sig nokkur veitingahús í borginni sem buðu gestum sínum upp á sérstak- an Menu Boh'eme utan við eigin matseðil. Gestir sem völdu af bó- hemamatseðlinum þurftu ekki að greiða fyrir matinn í peningum heldur myndsköpun og hjálagt á borðum þeirra voru penslar og lit- ir og gert var upp við þjóninn með teikningu. yrr í sumar hafði listamaður- inn sett upp fljótandi pramma rétt utan við vin- sæla sólbaðsströnd í Þýskalandi. Þangað gátu gestir staðarins synt og á prammanum beið þeirra síðan leir sem þeir gátu mótað úr að vild. Á sama tíma og sýning Ólafs stendur yfir í Galleríi Ingólfsstræti 8 verður opnuð á Listasafni Is- Iands sýning á nýjum aðföngum safnsins þar sem til sýnis verður verk Ólafs, Myndpöntun, frá 1991. Listamaðurinn auglýsti í Morgun- blaðinu þjónustu sína við gerð Iistaverks sem unnið væri sam- kvæmt óskum kaupandans. Rúsín- an í pylsuendanum var sú að hvert verk yrði unnið í tveimur eintök- um, annað fengi kaupandinn en hitt færi inn á listasafn og þar með yrðu verk þessara einstaklinga einnig að safngripum. Myndpönt- ÚTSALAN í fullum gangi TÍSKUVERSLUN KRINGLUNNl 8-12 SÍMI 553 3300 LISTIR Morgunblaðið/... RAUNVERULEIKATENGSL listarinnar eru myndlistarmanninum Ólafi Gíslasyni ákaflega mikilvæg. Á sýningu sinni, Deila með og skipta, í Galleríi Ingólfsstræti 8 hefur hann gengið til samstarfs við sex fulltrúa verkafólks í listsköpun. un segir hann standa næst hug- myndum sinum í verkinu Deila með og skipta. „I báðum tilvikum er ég að draga upp portrettmynd af ákveðnum einstaklingum. Per- sóna þessara nafngreindu einstak- Iinga skín í gegnum óskir þeirra og þrár og hið fasta form listalífs- ins og hversdagslífsins, einkalífs- ins, hefur verið leyst upp,“ segir Ólafur. „Þetta byrjar sennilega allt á vangaveltum mínum um hlut- verk listamannsins. Hvort er ég viðtakandi eða gerandi? Þessi gagnvirku áhrif milli mín og áhorfandans eru mjög mikilvæg og aldrei sem nú þegar ég vinn í beinum samskiptum við einstak- linginn.“ Olafur segir að sýningin gefi þversnið af ákveðnum þjóð- félagshóp þar sem vettvang- ur listarinnar sé víðs íjarri raun- veruleikanum. „Eg gegni helst hlutverki miðils í þessari vinnu og tengi þessa einstaklinga inn í list- heim sem er þeim mjög fjarri en ég get opnað þeim leið inn í með minni reynslu,“ segir Ólafur. „Sköpunin felst í forsendunum, inntaki hlutarins, því enginn verð- ur listamaður af því einu að mála með olíu eða móta í leir. Allt helg- ast það af samhenginu og þvi hvernig hlutirnir eru gerðir. Það er þó ekki ætlun mín að gera þetta fólk að listamönnum. Eg hef hins vegar áhuga á tengslum listarinn- ar við raunveruleikann. Nái þessir tveir heimar saman á sýningunni held ég að verkefnið hafi tekist.“ UTSALAN HEFST ÍDAG Jakkaföt áður 17.900, nú 9.900 Buxur áður 4.900, nú 2.900 Skyrtur áður 2.900, nú 1.500 Vesti áður 4.900, nú 2.900 Jakkar áður 9.900, nú 6.900 VCXJ Kringunni, sími 533 1720 Laugavegi 91, sími 511 1718.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.