Morgunblaðið - 05.04.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.04.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Fordómar Frá Önnu Heiðu Pálsdóttur: SL. laugardag hlustaði ég á brot úr viðtali við Öm Clausen hrl. á Bylgj- unni, en mér skildist að viðtalinu hafí upprunalega verið útvarpað í þættinum „Pjóðbraut" fimmtudag- inn 12. mars. I viðtalinu rekur Örn tildrög þess að hann hlaut heims- meistaratitil í boðhlaupi fyrir all- mörgum árum en þau vom þannig (að hans sögn) að nokkrir „negrar“ frá ýmsum löndum voru að keppa í boðhlaupi. Eg trúði varla mínum eigin eyr- um er ég heyrði lögmanninn taka svo til orða í viðtalinu, þar sem ég hélt frekar að um menn frá ýmsum löndum væri að ræða en „negra“. En Örn endurtók orð sín er hann sagði að „negrarnir" hafi beðið hann að hlaupa með þeim. Mig langar að benda Erni á það, sem talsmann réttvísinnar í þessu landi, að orð sem þessi hafa niðrandi merkingu og eru alls ekki við hæfí hvort sem er á opinberum vettvangi eða ann- ars staðar. Þessir félagar Ai-nar og meðbræður eru menn, hvaða litar- hátt sem þeir bera, enda get ég ekki séð nokkra ástæðu til þess að til- taka þurfí hvort þeir hafí verið þeldökkir eða ekki. Örn á heims- meistaratitilinn að hluta til þeim að þakka og ætti að virða þá meira en hann gerir. Þar sem ég heyrði aðeins brot úr viðtalinu gat ég ekki heyrt að dag- skrárgerðarmaðurinn leiðrétti við- mælanda sinn. Sem betur fer eru flestir fréttamenn þó orðnir nokkuð meðvitaðir um að í fréttaflutningi eigi það alls ekki við að tiltaka litar- hátt manna. Fyrir aðeins um fjórum árum mátti þó sjá flennistóra fyrir- sögn á forsíðu DV þar sem sagt var frá því að íslensk hjón urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að vakna upp við það á hótelherbergi sínu í Amsterdam að þeldökkur maður stóð í miðju herberginu hjá þeim. Atvikið varð hjónunum ef- laust miklu meira áfall þar sem maðurinn tilheyrði þessum kyn- stofni en ef hann væri hvítur eins og þau. Stór þáttur i því að útrýma for- dómum er að útrýma niðrandi orð- um og yfirlýsingum um ólíka kyn- þætti úr tungumálinu og nota þess í stað orð sem sýna virðingu fyrir hinum (sem betur fer) ólíku með- bræðrum okkar. ANNA HEIÐA PÁLSDÓTTIR, Álfaheiði 42, Kópavogi. DV er ekki óháð dagblað SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 45 Frá Karli Ormssyni: STEINÞÓR Jónsson skrifar grein í Morgunblaðið 19. mars um að áherslur DV hafi breyst með nýjum ritstjóra. Ég fer ekki í neinar graf- götur um að margt af því sem Stein- þór segir er rétt og segi bara mikið var að einhver annar en ég tók eftir því. Ég sagði blaðinu upp skömmu eftir að Össur Skarphéðinsson var ráðinn ritstjóri, enda hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum með það, mér fannst sem ég væri að lesa gamalt vinstri sinnað blað. Þegar ég sagði upp blaðinu gat ég þess að ég hafi haldið að ég væri áskrifandi að frjálsu, óháðu blaði. Erfitt getur verið að sanna að Össuri sé einum um að kenna þessi breyting á blaðinu. En skrýtin til- viljun að slíkt gerist um leið og svili Ingibjargar Sólrúnar er ráðinn. Ég varð fyrir vonbrigðum og reyndar furðu lostinn þegar þeir feðgar Sveinn R. Eyjólfsson og Eyjólfur Sveinsson réðu Össur að blaðinu og leyfa sér svo kalla það frjálst og óháð á eftir. Merki Össurar sjást bæði undir dulnefni og eigin nafni, eins og Steinþór segir réttilega í Morgunblaðinu. Össur er einfald- lega einn af þeim sem getur ekki verið hluthlaus, hann hagar sér eins og þegar hann var ritstjóri Þjóðvilj- ans gamla. Sem dæmi má nefna að margt það skemmtilegasta í DV, s.s. Sandkorn, er lagt undir sleggju- dóma um fulltrúa sjálfstæðismanna í borgarstjóm. Hvort það sé allt Össmú að kenna þarf ekki að vera, en blaðið breyttist við komu hans sem ritstjóra. Fólk eins og hann breytist aldrei þótt það flakki á milli flokka. Enginn getur þjónað tveim- ur herrum. Um það er Össur Skarp- héðinsson lýsandi dæmi. Ég hélt að þingmannsstaða væri fullt starf og launin greidd af skattborgurunum. Það er vafasamur heiður fyrir eigendur DV að hafa Össur sem rit- stjóra á kosningaári, og útilokað að blaðið standi undir nafni sem frjálst og óháð dagblað. Að minnst kosti þarf R-hstinn ekki að kvíða því að vera gagnrýndur of mikið á síðum DV. KARL ORMSSON, fv. deildarfulltrúi. Páskaferö í Öræfin Brottför föstudaginn langa kl. 9.00, komið til baka seinnipart páskadags. • Skemmtileg ferð með lifandi leiðsögn • Gisting og fullt fæði á Hótel Skaftafelli • Ferð að Jökulsárlóni, göngu- og skoðunarferðir um sveitina • Kvöldvaka með sögum og söng Staðgreiðsluverð miðað við 2 í herbergi kr. 15.900 ISAFOLD Sími 564 3010 Njótið páskahelgarinnar í stórbrotinni náttúru Öræfanna með ferðaþjónustunni ísafold í samvinnu við Hótel Skaftafell, Freysnesi. Sími 478 1845 ■■ M m m m 0 m M m m mm m rij- Þýsk hágæða vara MliREA dhnst aUsláðat S atvinnulínnu. ÐIZCRBA vogir ög þrehtarárí jyrír verslanir, kjðtvlnnslti, flskvinnslu ðg „ . . ■ malvælaiðtiað. Kirkjulundi 19, Garðabæ Sími 565 9393 Fax 565 9399 Gott verð! BALLY SWITZERLAND Næstu daga munum viö rýma fyrir nýjum sendingum af Bally skóm. Þess vegna býöst nú það einstæða tækifæri aö kaupa eldri geröir á verulega niðursettu verði. SINCE 1851 RÝMUN FYRIR NÝJUM SENDINGUM Athugið! Stendur aðeins í örfáa daga. 30% AFSLÁTTUR SKÚVERSLUN KÓPAVOGS KAIWRRBORG 3 • SIWI 5S4 1754 Magni Sigurhansson Fromkv.st|óri Alnabae „Með ndminu fékk ég mjög góðo yfirsýn yfir möguleika PC tölvunnar og góða þjólfun í notkun þess hugbúnaðar sem ég nota hvað mest í starfi mínu,þ.e. ritvinnslu, töflureikni og Intemetinu. Oll aðstaða, tækjabúnaður og frammistaða kennara hjó NTV var fyrsta flokks og nómið hnitmiðað og órangursríkt." Kennt er þrisvar í viku í fjórar vikur. Windows 95, Word 97, Excel 97, og notkunarmöguleikar Internetsins. Samtals 48 klukkustundir. Næstu nómskeið byrja 14. apríl. Vönduð nómsgögn og bækur fylgja öllum nómskeiðum ■LL'AJB Bjwðum upp á Vtsa & Euro rBðgroiðslur Nýi tölvu- & viðskiptaskólinn Hólahrauiii 2 - 220 Hafnarfirði - Simi: 555 49% - Fax: 555 4981 TfihnipástfBng: Bknli§ntvÍB - Hrimaaffla: wwwjitvÍB f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.