Morgunblaðið - 07.04.1998, Side 5

Morgunblaðið - 07.04.1998, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998 B 5 KÖRFUKNATTLEIKUR Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkur, eftir tap í fjórða leik fyrir Keflavík Meirí breidd „VIÐ þurftum svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum, sér- staklega í vöminni. Við vorum ákveðnir í að sigra og losna þar með við fimmta leikinn," sagði Jón Sigurðsson, þjálfari KR, eftir leikinn. „Það var kominn tími til að við næðum að sigra á útivelli í úrslita- keppninni. Við höfum meiri breidd og getum keyrt á öllum tíu leikmönnunum og ég held að þar hafi skilið á milii í kvöld. Þeir voru orðnir þreyttir undir lokin en við náðum að leika á fullu allan tímann, alveg eins og í síðasta leik okkar.“ Hann sagði mikilvægt fyrir körfuknattleikinn í Reykjavík að lið úr höfuðstaðnum kæm- ist í úrslit. „Nú vil ég bara fá húsfylli á Seltjamamesinu og mér er alveg sama hvort við fáum Keflavík eða Njarðvík," sagði Jón og vildi ekkert segja um hvort liðið hann teldi að hentaði KR-ingum betur að leika við. Okkur skorti trúna „Því miður emm við komnir í sumarfrí, það hefði verð virkilega gaman að komast áfram og mæta Keflvíking- um,“ sagði Damon Johnson, besti maður Skagamanna eftir að hafa tapað fyrir KR. „Ég held að okkur hafi skort trúna á að við gætum sigrað. Ég hef sagt það áður að við erum með nógu gott lið til að komast langt og því kom það mér ekki á óvart hversu langt við komumst þótt sumum öðrum hafi komið það á óvart. KR-ingar hafa fleiri leik- menn sem þeir geta notað og því fengu menn þar að hvíla sig en við vorum orðnir þreyttir undir lokin og gerð- um þá mikið af mistökum sem KR-ingar refsuðu okkur fyr- ir,“ sagði Johnson. Morgunblaðið/Einar Falur MAURICE Spillers, bandarískur leikmaður Keflavíkur, treður hér í fyrri hálfleik viðureignarinnar við Njarðvík. Örlygur Sturluson og Kristinn Einarsson geta lítið að gert. KEFLVÍKINGAR unnu lífsnauð- synlegan sigur á Njarðvíkingum á sunnudagskvöld, 92:81, og knúðu þannig fram oddaleik við þá grænklæddu í undanúrslit- um íslandsmótsins. Hann fer fram í Njarðvík í kvöld og mun sigurvegari hans kljást við KR- inga um íslandsmeistaratitilinn. Edwin Rögnvaldsson skrifar Góð hittni Keflvíkinga á heima- velli gerði gæfumuninn í þessum fjórða leik Suðumesjaliðanna í 4-liða úrslitum. Upphafskafli „Keflavíkurhraðlestar- innar“ í síðari hálfleik var með eindæmum. Staðan var 45:43, heimamönnum í hag, eftir að Njarð- víkingar höfðu gert fyrstu körfuna eftir hlé. Þá gerði Falur Harðarson þriggja stiga körfu og þeir Gunnar Einarsson og Guðjón Skúlason gerðu slíkt hið sama í næstu tveimur sókn- um - án þess að gestimir næðu að svara. Ekki bætti úr skák fyrir Njarðvíkinga að Guðjón fékk þijú vítaskot í næstu sókn á eftir og hitti úr þeim öllum. Þannig gerðu Keflvík- ingar tólf stig í röð og gerbreyttu gangi leiksins - tóku skyndilega fjórt- án stiga forskot. Það var bil sem gest> unum reyndist ómögulegt að brúa. Urslitakeppnin körfuknattleik 1998 Fjórði leikur liðanna i undanúrslitum, leikinn í Keflavík 5. apríl 1998 KEFLAVÍK NJARÐVÍK 92 Skoruð stig 81 21/25 Vítahittni 14/17 9/17 3ja stiga skot 3/9 22/34 2ja stiga skot 29/52 22 Varnarfráköst 20 11 Sóknarfráköst 7 15 Bolta náð 13 21 Boita tapað 16 17 Stoðsendingar 17 20 Villur 19 Þegar tólf mínútur lifðu leiks misstu Njarðvíkingar góðan mann er Páll Kristinsson fékk fimmtu villu sína og varð því að yfirgefa völlinn. Það blés því ekki byrlega fyrir gest- unum, en þeir sýndu mikinn vilja- styrk er þeir náðu boltanum af heimamönnum hvað eftir annað. Þegar tæpar fjórar mínútur voru eft- ir hafði Njarðvíkingum tekist að minnka muninn í sex stig, en nær komust þeir ekki. Ef til vill þurftu þeir að eyða of miklum kröftum í að minnka forskot meistaranna um átta stig, því þeir virtust hikandi. T.d. rann skotldukkan út án þess að þeir beindu sjónum sínum að körfunni. Njarðvíkingar reyndu pressuvöm síðustu tvær mínúturnar, sem gekk þolanlega til að byrja með, en skotin heppnuðust ekki að þessu sinni. „Mikið rosalega er ég þreyttur,“ sagði Falur Harðarson, sem lék allan leiktímann - fjörutíu mínútur. „Við vorum staðráðnir í því að láta ekki staðar numið hér og nú. Við vorum á æfingu [á laugardag] og þá sagði Sigurður [Ingimundarson, þjálfari]: „Þetta er ekki í síðasta skiptið sem við hittumst í vetur!“ Við ætlum okk- ur lengra. Nú er kominn tími til að spila góðan leik í Njarðvík, en þar höfum við átt tvo slæma leiki í röð,“ sagði Falur, sem gerði þrjár glæsi- legar þriggja stiga körfur í síðari hálfleik - alls fimm í öllum leiknum. Maurice Spillers lék einnig mjög vel fyrir heimamenn, gerði 24 stig og tók 18 fráköst. Guðjón Skúlason hafði hægt um sig, ef frammistaða hans á góðum leikkafla Keflvíkinga er frátalin. Hann hitti þó úr öllum níu vítaskotum sínum. „Við sigrum í oddaleiknum. Ég er alveg sannfærður um það,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkur. „Við vitum alveg hvað fór úrskeiðis í þessum leik hjá okkur. Við lékum nokkuð vel langtímum saman, en þriggja stiga körfur þeirra gerðu okkur erfitt fyrir. Skot- in rötuðu rétta leið í þetta skiptið og það reyndist munurinn á liðunum í þessum leik,“ sagði Friðrik. Enginn leikmanna Njarðvíkinga skar sig úr í þessum leik. Petey Sessoms hefur oft skorað meira og Teitur Örlygsson fékk ekki mörg op- in skotfæri. Hann virtist þó hafa fundið taktinn í blálokin. Dagur KR KR-INGAR fögnuðu 82:70-sigri á sunnudaginn í fjórða leik sínum við Skagamenn í undan- úrslitum úrvalsdeildarinnar i körfuknattleik. Segja má með sanni að sunnudagurinn hafi verið KR-dagur því vesturbæj- arliðið komst í úrslitarimmuna og fjórir yngri flokkar félagsins urðu íslandsmeistarar. Fyrri hálfleikur var eldfjörugur og skemmtilegur. Bæði lið léku stífa maður á mann vöm en þrátt fyrir það var skorað Skúli Unnar mikið framan af hálf- Sveinsson leiknum enda leikur- skrifar inn nijög hraður. Gestimir byrjuðu bet- ur en síðan voru það heimamenn sem náðu yfirhöndinni og náðu átta stiga foyrstu, 24:16, þegar 11 mínút- ur voru eftir. Þá tóku KR-ingar leikhlé og það virkaði vel því næstu átta stig voru þeirra og auk þess misfórust tvö skot frá Damon John- son, en hann hafði farið á kostum í liði Skagans. Leikurinn var í jám- um eftir þetta, allt þar til sex mínút- ur voru til leiksloka. Staðan var 61:60 fyrir Skagamenn en þá var eins og heimamenn hættu hreinlega að hitta um tíma og KR-ingar gerðu 13 stig gegn þremur heimamanna og þar með varð Ijóst að það yrðu vest- urbæingar sem kæmust í úrslitin. Það var greinilegt strax í byrjun leiks að KR-ingar vildu ekki fá fimmta leikinn. Hver einasti maður barðist af miklum krafti og Jón Sig- urðsson þjálfari skipti ótt og títt inná. Gott dæmi um það er að þegar leikurinn hafði staðið í rétt rúmar átta mínútur höfðu allir leikmenn KR fengið að reyna sig. Þrátt fyrir að leikurinn væri hraður og vel tek- ið á í vöminni höfðu dómararnir mjög góð tök á honum. Þeir leyfðu leikmönnum að takast aðeins á og leyfðu talsvert meiri snertingu en oft áður og var það vel. Sem dæmi um þetta má nefna að þegar leikið hafði verið í níu mínútur hafði hvort liðið aðeins fengið á sig tvær villur. Heldur róaðist leikurinn síðari hluta fyrri hálfleiks og eftir hlé hertu menn enn á í vöminni og urðu sóknirnar þá enn lengri. Vamar- leikur Skagans var frábær framan af hálfleiknum og tóku KR-ingar sér það til fyrirmyndar og léku fína ■inga vörn ef undan eru skildar fyrstu mínútumar í síðari hálfleik. Fyrstu stig KR eftir hlé komu ekki fyrr en eftir 2 mínútur og 40 sekúndur og Skagamenn náðu átta stiga forystu sem þó var fljót að fara og svo var eins og slökkt hefði verið á þeim gulklæddu því síðustu mínútumar hittu þeir bókstaflega ekki neitt. Vöm KR var mjög góð á þessum kafla og miklu munaði að Keith Vassel lék vel á móti Damon Johnson sem varð að taka erfið skot sem rötuðu ekki rétta leið. Johnson var frábær í fyrri hálf- leik og gerði þá 21 stig og þegar ÍA hafði gert 31 stig var hann með 19 þeirra. Dagur Þórisson átti ágætan leik en aðrir náðu sér ekki vel á strik. Þegar liðin voru að hita upp hittu Skagamenn ótrúlega vel úr þriggja stiga skotum sínum, en er í leikinn kom gekk ekki eins vel. Skagamenn em komnir í sumarfrí og geta verið ánægðir með árangur- inn í vetur þó að leikmenn og stuðn- ingsmenn liðsins hefðu ekkert haft á móti því að komast alla leið. Það verður að bíða betri tíma. Nökkvi Már jónsson var bestur í annars jöfnu liði KR. Hann tók fjöl- Úrslitakeppnin í körfuknattleik 1998 Fjórði leikur liðanna i undanúrslitum, leikinn á Akranesi 5. apríl 1998 ÍA KR 70 Skoruð stig 82 14/20 Vítahittni 19/22 4/18 3ja stiga skot 7/16 22/53 2ja stiga skot 21/37 21 Varnarfráköst 24 12 Sóknarfráköst 5 10 Bolta náð 14 10 Bolta tapað 22 17 Stoðsendingar 10 19 Viilur 20 mörg fráköst og var grimmur, bæði í vörn og sókn. Keith Vassel leyndi á sér því manni fannst hann ekki áberandi í fyrri hálfleiknum en þó gerði hann 13 stig og átti fínan leik í vörninni, sem þó átti eftir að batna til muna eftir hlé. KR-liðið var ann- ars jafnt og það er aðal þess því þar á bæ eru allir með og allir tilbúnir að leggja sig fram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.