Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JRwgtiiiliIjifrife 1998 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ BLAD KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn Stangarstökk kvenna viður- kennd grein ALÞJÓÐA frjálsíþróttasambandið, IAAF, til- kynnti í gær að keppt yrði í stangarstökki og sleggjukasti kvenna í heimsmeistarakeppninni í SevUla á Spáni 1999 og á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu 2000. Primo Nebiolo, forseti IAAF, sagði að þessi ákvörðun yrði til þess að æ fleiri konur gætu keppt jafnfætis við karla og það væri ánægjulegt en eftir þessa viður- kenningu keppa konur í sömu greinum og karlar. Ekki hefur verið keppt í þessum gi'ein- um á stórmótum en árangur hefur verið skráð- ur og viðurkenndur í stangarstökki kvenna síðan 1992 og í kringlukasti kvenna síðan 1994. í vetur var keppt í stangarstökki kvenna í fyrsta sinn á Evrópumeistaramótinu innan- húss og greinin verður á dagskrá Samveldis- leikanna í Malaysíu í sumar, einnig í fyrsta sinn. Áhorfendamet í Þýskalandi AÐSÓKN að leikjum þýsku deildarinnar í knattspyrnu hefur aldrei verið ineiri en á líð- andi timabili. I fyrra voru 30.267 manns á hverjuni Ieik að meðaltali en fyrir síðustu um- ferðina er sambærileg tala 32.375. Alls hafa 9.615.505 mætt á leiki tímabiisins fyrir síðustu umferðina sem verður um helgina og er gert ráð fyrir að tala áhorfenda fari yfir 10 mil\j- ónir í fyrsta sinn. Dortmund hefur fengið flesta áhorfendur, 54.265 að meðaltali á leik, en Bayern Miinchen hefur fengið 54.000 manns að meðaltali. Bilið minnkar en langt á milli EKKI hefur emi náðst samkomulag um sjón- varpsútsendingar frá íslensku knattspymunni í sumar. Eins og greint hefur verið frá keypti þýska fyrirtækið UFA einkasölurétt á beinum sjónvarpsútsendingum frá heimalandsleikjum Islands og efstu deild karla, bikarkeppninni og deildabikarkeppninni og gerði samning þar um til fjögurra ára. íslensku sjónvarpsstöðv- amar vora langt því frá tilbúnar að greiða uppsett verð UFA fyrir efnið en að undan- förau hafa viðræður staðið yfír og hafa menn nálgast þótt enn sé langt á milli. UFA vill semja við eina sjónvarpsstöð um allan pakkann í íjögur ár og vegna samkeppn- innar fæst ekki uppgefið hvaða tölur er um að ræða. Hins vegar er Ijóst að farið er fram á mun meira fyrir efnið en áður hefur verið greitt og munar milljónum króna, jafhvel tug- um milljóna á tímabilinu. Islensku stöðvaraar fengu tilboð í liðinni viku og gerði Sjónvarpið munnlegt gagntilboð í gær en íslenska út- varpsfélagið, sem rekur Stöð 2 og Sýn, gcrir ráð íyrir að svara þýska fyrirtækinu í dag. GOLF Birair Leifur á KR í úrslit KR-INGAR tryggðu sér sæti í úrslitum deildabikar- keppninnar með því að vinna IA 4:3 eftir víta- spyraukeppni í undanúrslit- um á Tungubakkavelli í gærkvöldi. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. KR mætir Val í úrslitaleik á þriðjudag. Á myndinni skallar Heimir Guðjónsson, fyrrum KR-ing- ur, boltann og Þórhallur Hinriksson fylgist spenntur með. ■ KR vann / D2 Birgir Leifur Hafsteinsson fór fyrsta hring á pari á opnu golf- móti á Mallorca í gær, en mótið er liður í Evrópsku mótaröðinni. Hann er í 28. til 48. sæti, fimm höggum á eftir fyrstu mönnum, sem fóru hringinn á 67 höggum, en 144 kylfingar luku keppni í gær. „Þetta gekk mjög vel,“ sagði Birgir Leifur við Morgunblaðið. „Ég hef aldrei spilað á þessum velh fyrr en það háði mér ekki. Þvert á móti var ég óheppinn ef eitthvað var. Hins vegar er völlurinn erfiður og auðvelt að gera mistök en ég reyni að halda áfram á sömu braut.“ Birgir Leifur fór fyrstu fimm holurnar á pari en síðan lék hann par fimm holu á aðeins þremur höggum eða emi. Næst fór hann á einu höggi yfir pari og síðan fjórar holur á pari. Á 12. braut fékk hann skolla, fugl á 13. braut, aftur skolla á 14. braut en fjórar síðustu hol- umar lék Birgir Leifur á pari. Spánverjamir Miguel Martin og Santiago Luna vora í fyrsta sæti eftir daginn, fímm höggum undir pari. Fjórir kylfingar vora á 68 pari höggum, fjórir á 69, átta á 70 og níu á 71 höggi. Þjóðverjinn Bem- hard Langer, sem lék æfingahring með Birgi Leifi á þriðjudag, er á pari eins og Skagamaðurinn en Spánverjinn Seve Ballesteros er í 89. til 109. sæti á 75 höggum, þremur yfir pari. Tveir kylfingar era á 10 höggum yfir pari, þrír á 11 yfir pari og einn á 84 höggum. KORFUKNATTLEIKUR: HERBERT OG FELAGAR LEIKA UM HTILINN / D4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.