Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 D 3 ■ WALTER Smith, knattspyrnu- stjóri Rangers, hefur samþykkt að vera áfram hjá félaginu og hafa yf- irumsjón með varaliðinu og ung- lingaliðunum. Hann gerir samning til tveggja ára vegna þessara verk- efna en áréttaði að hann kæmi ekki nálægt úrvalsdeildarliðinu. ■ HANS Krankl hefur ákveðið að halda áfram þjálfun austurríska liðsins SV Salzburg og hefur gert nýjan samning til tveggja ára. Real Zaragoza bauð honum starf en hann sagði ða spænska félagið hefði ekki gengið heilt til verks og jafn- vel verið með aðra í huga. ■ DON Hutchison, leikmaður Everton, hefur beðið Emmanuel Petit afsökunar á því að hafa brotið gróflega á honum á sunnudaginn er liðin áttust við á Highbury. Petit varð að fara af velli rétt fyrir leik- hlé eftir að Hutchison hafði í tvígang brotið fólskulega á Frakk- anum. ■ „ÉG sendi honum símbréf með afsökun og óskum um velgengni í úrslitaleiknum í bikarkeppninni," sagði Hutchison. ■ BRYAN Robson, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, fær 2,5 millj- arða króna til Ieikmannakaupa fyi-ir næstu leiktíð til þess að tryggja lið- inu öruggt sæti í úrvalsdeildinni. KNATTSPYRNA Ríkharður skorar enn fyrir Viking Ríkarður Daðason skoraði mark fyrir Viking í 3:1 sigri á Haugasundi í norsku deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Viking hafði 1:0 yfir í hálfleik en Hauga- sund jafnaði í upphafi síðari hálf- leiks en það var síðan Ríkharður sem kom sínu liði yfir í 2:1 og síðan gulltryggði Gunnar Aase sigur Viking með þriðja markinu undir lok leiksins. Tryggvi í sigurliði Tromsö sigraði Brann, 1:0, og lék Tryggvi Guðmundsson allan leikinn fyrir Tromsö^ en markið gerði Ronny Westad. Ágúst Gylfa- son var einnig í liði Brann. Óskar Hrafn Þorvaldsson lék með liði Strömgodset sem tapaði á heima- velli fyrir Lilleström, 2:3. Rúnar Kristinsson og Heiðar Helguson voru ekki í liði Lilleström. Molde vann stórsigur á Moss, 6:0, og skaust þar með í efsta sæti deildarinnar. Bjarki Gunnlaugs- son var ekki í liði Molde. Stabæk náði óvænt jafntefli gegn meistur- RIKARÐUR Daðason hefur staðið sig vel með Víking í norsku deildinni og gerði þriðja mark sitt á tímabilinu í gærkveldi. um Rosenborg á útivelli, 2:2. Helgi Sigurðsson var ekki í liði Stabæk. Kongsvinger vann Sogn- dal, 3:2, og Válerenga og Bodö/Glimt skildu jöfn, 2:2. Brynj- ar Gunnarsson var ekki í liði Válerenga. Sverrir og Ólafur skoruðu fyrir Malmö Sverrir Sverrisson og Ólafur Öm Bjarnason skorðu báðir fyrir Malmö, sem sigraði Vestra Fröl- unda, 3:1, á útivelli í sænsku deild- inni í knattspyrnu í gærkvöldi. Frölunda náði forystunni á 15. mínútu en Ólafur Öm jafnaði fjór- um mínútum síðar. Sverrir kom Malmö yfir á 76. mínútu og var þetta þriðja mark hans fyrir liðið í fimm leikjum. Yksel Osmanovski gulltryggði síðan sigur Malmö á lokamínútunni. Ólafi Emi var skipt út af á 79. mínútu. Norrköping hélt efsta sætinu í deildinni með því að gera jafntefli við Elfsborg, 1:1. Haraldur Ing- ólfsson var ekki í liði Elfsborg. Uppselt á alla leiki á HM í Frakklandi HEIMSMEISTARAKEPP NIN í knattspyrnu fer fram í Frakklandi og hefst 10. júní. Fyrir hálfum mánuði setti franska skipulagsnefndin 110.000 miða í almenna sölu og bætti fljótlega við 60.000 miðum. Sala þessara miða fór eingöngu fram í síma og gátu aðeins íbúar innan Evrópska efnahagssvæðis- ins nýtt sér tilboðið. Þeir brugðu skjótt við og þegar á fyrsta degi var eftir- spurnin mun meiri en hægt var að anna en í gær seldust síðustu 1.000 mið- arnir. Umræddir iniðar voru aðeins á leiki í 1. umferð fyrir utan fyrsta Ieikinn og á leiki í 16 liða úrslitum en áður höfðu verið seldar um tvær milljónir miða á alla leiki keppninnar. SIGFÚS Sigfússon, forstjóri Heklu, og Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands íslands, takast í hendur eftir undirskrift samningsins sem gildir 1998 og 1999 en samstarf KSÍ og Heklu hefur staðið yfir frá 1995. Samningur KSÍ og Heklu metinn á um 10 millj. kr. Nýr samstarfssamningur Knatt- spyrnusambands íslands og Heklu hf. var undirritaður í gær og gildir hann fyrir árið í ár og það næsta en samstarfíð hefur staðið yfir frá 1995. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði áður en hann undirritaði samninginn að sam- starfið við Heklu hefði verið mjög gott. Fyrirtækið væri stórt, vel rek- ið og í sviðsljósinu og vonandi væri hægt að segja það sama um KSÍ. Á 50 ára afmælisári sambandsins í fyrra hefði Hekla verið einn helsti styrktaraðili úrslitakeppni piltalandsliða sem fór fram hér á landi og lánað KSÍ 55 bíla án end- urgjalds en í nýja samningnum felst m.a. að bflar frá Heklu verða opinberir bflar KSÍ. Hekla verður áfram einn af aðalsamstarfsaðilum KSÍ og í tengslum við Evrópu- keppni landsliða, sem hefst í haust, verður hver aðgöngumiði jafnframt happdrættismiði. A hverjum leik verður dreginn út vinningur frá raftækjadeild Heklu og á síðasta heimaleik riðlakeppninnar verður aðalvinningurinn dreginn út, VW Golf bifreið. Eggert sagði að samn- ingurinn væri metinn á 10 milljónir króna og dró Sigfús Sigfússon, for- stjóri Heklu, ekki úr því áður en hann staðfesti samninginn með undirskrift sinni. Meistarakeppnin á morgun Hekla tengist áfram Meistara- keppni KSÍ, keppni íslandsmeist- ara og bikarmeistara KSÍ, og heitir keppnin Meistarakeppni KSÍ og Heklu eins og áður á samstarfstím- anum. Meistarakeppnin hefur verið í gangi síðan 1969 þegar KR sigraði ÍBV og var hugmyndin að keppnis- timabilið hæfist formlega með þess- um viðburði en litið var til leiksins um góðgerðarskjöldinn á Englandi í því sambandi. Fyrir tveimur árum var ákveðið að tímabilinu lyki með honum. Því voru tveir leikir 1996, vorleikur milli KR og ÍA sem unnu sér rétt til að leika í keppninni árið áður og síðan haustleikur ÍA og ÍBV vegna framgöngu þeirra á tímabilinu. Til stóð að Islandsmeist- arar ÍBV og bikarmeistarar Kefla- víkur mættust á liðnu hausti en leiknum var frestað. Hann fer fram á grasvellinum í Keflavík á morgun og hefst kl. 16. GOLFVEBSLDW LEIKFANGAVERSLUN GOLFARANS Nethyl 2, Reykjavík • Simi: S77-252S ;GASTA ÍÞRÓTTAFÓLKINU Sbærplakötaf FRÆ. Heimilisfang:___ Póstn. & staður: Kennitala:______ Sími:___________ _sendið gíróseðil visa/euro nr:_____ Askriftarsími: 568-2929, fax: 568-2935 FIMM MÖMMUR í STJÖRNUNNI! ÞÓRHALLUR MIÐILL SPÁIR! HEMMI SAT VIÐ HLIÐINA Á PELE! BECKHAM HERDÍS PÁLL & JASON Tveir a lausú! Nýtt Sportlíf komið á blabsölustaði! Nú fæst Sportlíf eirrnig í áskrift. Aðeins 249 krónur á mánuði. Vertu áskrifandi að eina íþróttablaðinu á markaðnum í dag. ___Ég óska eftir áskrift fyrir aðeins 249 krónur á mánuði Na fn:______________________________________________

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.