Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ViKI) M LAUGARDAGUR 11. JULI1997 25 Enn vakna bjartar vonir PRÆGASTA lið Pollamótsins er án efa Bjartar vonir vakna en liðs- menn þess hafa keppt á öllum mót- unum frá upphafi og jafnan verið með ýmsar uppákomur. Eitt árið til dæmis ýtti fyrirliðinn barna- vagni á undan sér inn á völlinn með, í honum voru keppnisbúning- arnir og leikmenn klæddu sig í þá inn á velli en þemað var afturhvarf til æsku. Þeir hafa einnig hitað upp með hljómsveit og spiluðu þá leiknienn fyrir og eftir leiki en hljóðfærin voru gítar, saxófónn og harmoníka. Liðið hefur einnig sér- stakt hirðskáld, Friðrik Stein- grímsson frá Grímsstöðum. Félagið var stofnað við eldhús- borðið hjá Olafi Sverrissyni fyrir tíu árum þegar hann, Róbert Agn- arsson og Kristján Yngvason ákváðu að selja saman „old boys“ lið og voru að hanna búninga. Ró- bert hafði þá hannað merkið og var stoltur mjög af því að hafa bætt inn á merkið „Mývatni allt“. Rósa Jónsdóttir, kona Olafs, stakk síðan upp á nafninu Bjartar vonir vakna - hún taldi það segja allt sem segja þurfti. „Hvað við ætlum að vera lengi að? - það veit guð almáttugur,“ sagði Ólafur þegar spurður um hvort eiga mætti von á liðinu næsta ár. „Ætli við sjáum ekki til eftir tíu ár til viðbótar. Við náðum í undanúrslit í fyrra en vorum eitt- hvað neðar núna en það skiptir ekki mestu máli. Mest er um vert að hafa gaman af þessu og bjartar vonir eru vissulega enn að vakna hjá okkur.“ LIÐSMENN Bjartar vonir vakna hafa tekið þátt í öllum tíu Pollamótun- um og beðnir um að stilla sér upp fyrir myndatöku voru þeir ekki lengi að verða við því - „strákar, Ungmennafélagsuppstillingin," sagði fyrirlið- inn og afraksturinn má sjá hér að ofan. Þeir eru, í neðri röð frá vinstri: Jóhannes Steingrímsson, Hinrik Árni Bóasson, Jón „Lambi“ Harðarson, Sverrir Haraldsson. Efri röð frá vinstri: Páll Ríkharðsson, Ólafur Sverr- isson, Jónas Pétur Pétursson, Kristján Yngvason, Egill Freysteinsson. Hökta um völlinn hærugráir huppasíðir Mývetningar HIRÐSKÁLD Bjartra vona vakna, Friðrik Steingrímsson frá Grímsstöðum í Mývatnssveit, hef- ur samið vísur eða söngtexta fyrir flest Pollamótin í gegnum árin. Eftirfarandi eru nokkur sýnis- horn. Fyrst er söngtexti saminn íyrh’ Pollamótið 1989 við lagið „Hafíð bláa hafið“. Bjartar vonir vakna er víkur elli vöðum fram um víðim völl í dag. Stórirjá og stæðilegir á velli syngjum við vort baráttunnar lag. Bolta gefum spörk allir skorum mörk brunum fram í bráðum hug. Þó vambir víða hristist og keppir þeir birtist sýnum við vorn styrk og drengjadug. Friðrik samdi einnig eftirfarandi fyrir Pollamótið á síðasta ári: Lávarðanna kappar knáir kempur þykjast vera slyngar hökta á völlinn hærugráir huppasíðir Mývetningar. Eins þó hafí skorpinn skrokk skakkan bæði og snúinn allajafna er þó nokk andinn reiðubúinn. Þó svo heildin heldur aum hampi gengi slöku skulu konugreyin gaum gefa næstu stöku. Þó að fimir fætur fari að tapa snilli eru þeir samt eins og fyrr ókey þar á milli. Fékk yfír mig flóðhest ÁRNI Freysteinsson úr KA kallar ekki allt ömmu sína og þó að hann brákaði viðbein þegar „hann fékk yfir sig flóðhest“ að eigin sögn, hélt hann sínu striki og lét vefja um öxlina til að ná næsta leik. Þegar spurður um hvort hann gæti beitt sér almennilega með hægri öxlina veika sagðist hann enn hafa þá vinstri til að tuska mótheijanna til. íí. iPPl!..aaS’B VARNARVEGGUR Víkvetja í aukaspyrnu var vígalegur þó að sum lið hefðu uppá að bjóða mun fleiri rúmmetra í vörninni. Ofnar og helluborð Blöndunartæki sem hjálpa þér að hafa eldhúsið þitt aðeins öðruvísi - Gæðatæki - Fáguð hönnun Blöndunartæki WðeruminæstahUS' V'ð//^ VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR á íslandi Stærsia hoimiiis-og rBltækjaverslunafkflÖ|a f Evrópu NARDI DHÚSTÆKJA / m ■ 9-11 júlí Fáanlegt í hvítu, svörtu, kopar og stál Dagana 9-11 júli veröur hjá okkur sérfræöingur frá =*<=NARDI og gefur góð ráð viö val á eldhústækjum. Einnig kynnum viö Gessi blöndunartæki sem og Airone eldhúsháfa. RflFTíEKMPERZLUN ÍSLflNDSIf - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 Fáanlegt í hvítu, svörtu, kopar, stál og grænu daga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.