Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 4
4 E SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ INNKAUP Verktakafyrirtæki óskar að ráða starfsmann í innkaupamiðstöð fyrirtækisins í Reykjavík. Starfið felst í innkaupum og þjónustu við vinnustaði fyrirtækisins um allt land. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á byggingaefnum og vélavarahlutum, auk þess sem almenn tölvukunnátta er æskileg. Leitað er að sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi með þægilegt viðmót. Vinnutími erfrá kl. 7:30-17:00. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí n.k. Upplýsingar veittar á skrifstofu Liðsauka. Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um störf á http://www.lidsauki.is Fólk ogr þekkinsr Lidsauki Skipholt 50c, 105 Reykjavík simi 562 1355, fax 562 3767 Netfang: www.lidsauki.is Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjóri Staða leikskólastjóra við leikskólann Hlíðaborg við Eskihlíð er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk. Upplýsingar gefa Bergur Felixson framkvæmd- astjóri og Margét Vallý Jóhannsdóttir deildar- stjóri í síma 563 5800. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 563 5800. Ritarar Liðsauki auglýsir eftir riturum í fullt starf fyrir skrifstofu Alþingis. Óskað er eftir umsækjendum með góða kunnáttu í vélritun og tölvuinnslætti. Gott vald á íslenskri tungu er áskilið og kunnátta í norðurlandamáli og ensku er æskileg. Umsækjendur verða að geta starfað sjálfstætt og unnið mikið á álagstímum. Þeir sem koma til álita þreyta hæfnispróf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags starfsmanna Alþingis. Umsóknarfrestur er til og með 31. júlf n.k. Ráðið verður í stööurnar eigi síðar en 15. september n.k. Upplýsingar fást á skrifstofu Liðsauka frá 13-15. Einnig er hægt að skoða auglýsingar og sækja um störf á http://www.lidsauki.is Fólk og þekking m m •% m m Lidsauki Skipholt 50c, 105 Reykjavlk simi 562 1355, fax 562 3767 Netfang: www.lidsauki.is Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is HRÍSEYJARHREPPUR Sveitarstjóri Hríseyjarhrepps Starf sveitarstjóra Hríseyjarhrepps er laust til umsóknar. Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins, situr á fundum sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt. Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd þeirra ákvarðana sem sveitarstjórn tekur, er prókúruhafi sveitarsjóðs og æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitar- félagsins. í boði er krefjandi starf fyrir áhugasaman ein- stakling. Ráðningartími sveitarstjóra er hinn sami og kjörtímabil sveitarstjórnar, þ.e. 4ár. Áskilin er góð menntun og hagnýt starfs- reynsla. Starfskjör verða ákveðin í ráðningar- samningi. Húsnæði er í boði. Hríseyjarhreppur er sveitarfélag með um 230 íbúa. í sveitarfélaginu er rekin hitaveita, vatns- veita, leikskóli, grunnskóli og sundlaug. Þá er rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars í hönd- um sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Narfi Björgvinsson, oddviti, í símum 466 1745 eða 898 7345. Umsóknirskulu berast á skrifstofu Hríseyjar- hrepps, Skólavegi, 630 Hrísey. Umsóknarfrestur til 20. júlí 1998. Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps. Keflavík PricewaterhousCoopers ókar að ráða viðskiptafræðing til starfa á skrifstofuna í Keflavík. Sameining tveggja af stærstu endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækjum íheimi, Price Waterhouse og Coopers & Lybrand tók gildi 1. júlí og til varð langstærsti sam- starfsvettvangur sinnar tegundar þar sem um 740.000 starfsmenn í meira en 150 löndum mynda þjónustunet fyrir viðskiptalífið. Við erum stolt afþví að tilkynna að frá fyrsta degi erum við aðilar að þessu samstarfi. Viðskiptavinir okkar hafa því enn betrimögu- leika en áður á að afla upplýsinga um viðskipti og/eða fá þjónustu erlendis þegar þeir þurfa á því að halda. Starfssvið: • Uppgjör, afstemmingar og frágangur bókhalds til endurskoðunar. • Skattauppgjör og skattframtöl. • Skýrslugerð. Við leitum að viðskiptafræðingi af endur- skoðunar-/fjármálasviði. Reynsla í upp- gjörsstörfum og gerð skattframtala æskileg. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð, nákvæmni og ábyrgð í störfum. Upplýsingar veita Þórir Þorvarðarson í síma 550 5300 og Davíð Einarsson í síma 421 3219. Skriflegar umsóknir óskast sendar til RáðningarþjónustuPricewaterhouseCoopers merktar „Keflavík PwC" fyrir 18. júlí n.k PricewaTerhouseQopers £1 Áður Ráðningarþjónusta Hagvangs hf. Höfðabakka 9 T 112 Reykjavík - Sími 550 5300 Jf Rétt þekking á réttum tíma Bréfsími 550 5302 1 L_ www.pwcglobal.com^fi Grunnskólar Seltjarnarness Lausar stöður næsta skólaár Á Seltjarnarnesi eru um 700 nemendur í tveimur grunnskólum, Mýrar- húsaskóla og Valhúsaskóla. Áhugasömum starfsmönnum gefst kostur á að sækja fræðslufundi, námskeið og vinna að þróunarstarfi í skól- unum. Við auglýsum eftir áhugasömum og metnaðarfullum starfsmönnum. í Mýrarhúsaskóla er 1.—7. bekkur með tæplega 500 nemendur. Þar vantar bekkjarkennara í fjórða bekk. Okkurvantareinnig starfsmenn í Skólaskjól (heilsdagsskóla) Umsóknirberisttil Regínu Höskuldsdóttur, skólastjóra, vs. 561 1980, hs. 551 1496 og 899 7911, sem jafnframt veitir nánari upplýs- ingar um stöðurnar. í Valhúsaskóla er 8. —10. bekkur með um 200 nemendur. Þar vantar enskukennara í rúm- lega 2/3 stöðu. í Valhúsaskóla vantar einnig skólaritara í um 80% stöðu frá 17. ágúst til áramóta. Umsóknir berist til Sigfúsar Grétarssonar, skólastjóra, hs. 471 1765 og 897 0021, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um stöðurn- ar. Umsóknareyðublöð fyrir kennarastöðurnar liggja frammi á Skólaskrifstofu Seltjarnaness, Mýrarhúsaskóla eldri v/Nesveg. Umsóknarfrestur er til 27. júlí 1998. grunnskólafulltrúi. FJÓROUNGSSJÚKRAHÚSIO A AKUREVRI Eftirtalin störf eru laus til umsóknar frá 1. september nk. Eftirtalin störf eru laustil umsóknarfrá 1. sept- ember nk.: Starf símavarðar. Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu við skiptiborð stofnunarinnar. Æskilegt er að umsækjendur hafi nokkra tungumálakunnáttu. Starf bókavarðar. Um er að ræða 40% starf við umsjón og dreifingu bókakosts fyrir sjúk- linga. Starf skrifstofumanns. Um er að ræða 50% starf við launaútreikning á skrifstofu. Umsækj- endur þurfa að hafa,góða reynslu og hæfni í tölvunotkun. Við ráðningu í störfin verður lögð áhersla á hæfni til mannlegra samskipta og samstarfs. Laun eru skv. kjarasamningi STAK. Nánari upplýsingar um störfin veitir Vignir Sveinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri, og skulu umsóknir sendast honum fyrir 25. júlí nk. Öllum umsóknum um störfin verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. — reyklaus vinnustaður — Sölumaður Framsækið iðnfyrirtæki óskar eftir góðum sölu- manni/samstarfsaðila til að annast markaðs- setningu á framleiðsluvörum sínum á Suðvest- urlandi og Reykjavíkursvæðinu. Um er að ræða krefjandi starf við sölu á þekktum vörum sem þegar eru í dreifingu á svæðinu. Viðkomandi verður að hafa bíl til umráða. Gæti hentað einstaklingi með eigin smárekstur. Launakjör eru samkomulagsatriði. Umsóknum skal skilaðtil afgreiðslu Mbl., merktum: „Sölumaður — 5316", fyrir 25. júlí. Lagermaður Þekkta húsgagnaverslun í Reykjavík vantar lagermann til starfa. Starfið felst m.a. í losun gáma, afgreiðslu á vörum og útkeyrslu. Fjölbreytt og líflegt starf en umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin atriði: Hafa bílpróf. Vera líkamlega hraustir og tilbúnir að með- höndla þunga hluti. Vera snyrtilegir og hafa góða skipulagsgáfu. Æskilegt er að umsækj- endur séu jafnframt laghentir. Umsóknirskal senda til afgreiðslu Mbl. merktar: „Lagermaður — 5351" fyrir 16. þ.m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.