Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 6
6 E SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ HRÍSEYJARHREPPUR Sveitarstjóri Hríseyjarhrepps Starf sveitarstjóra Hríseyjarhrepps er laust til umsóknar. Sveitarstjóri erframlwæmdastjóri sveitarfélagsins, situr á fundum sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt. Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd þeirra ákvarðana sem sveitarstjórn tekur, er prókúruhafi sveitarsjóðs og æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitar- félagsins. í boði er krefjandi starf fyrir áhugasaman ein- stakling. Ráðningartími sveitarstjóra er hinn sami og kjörtímabil sveitarstjórnar, þ.e. 4 ár. Áskilin er góð menntun og hagnýt starfs- reynsla. Starfskjör verða ákveðin í ráðningar- samningi. Húsnæði er í boði. Fullkomin líkams- ræktarstöð verðurtekin í notkun í ágúst. Hríseyjarhreppur er sveitarfélag með um 230 íbúa. í sveitarfélaginu er rekin hitaveita, vatns- veita, leikskóli, grunnskóli og sundlaug. Þá er rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars í hönd- um sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Narfi Björgvinsson, oddviti, í símum 466 1745 eða 898 7345. Umsóknirskulu berast á skrifstofu Hríseyjar- hrepps, Skólavegi, 630 Hrísey. Umsóknarfrestur til 20. júlí 1998. Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps. Háskóli íslands Lífefna- og sameindalíffræði Rannsóknastofa í lífefna- og sameindalíffræði við læknadeild Háskóla íslands er staðsett á 5. hæð í Læknagarði. Þar er unnið að fjölbreytt- um rannsóknarverkefnum og aðbúnaður og tækjakostur er með því besta sem gerist. Á rannsóknastofunni eru laustil umsóknar eft- irtalin verkefnatengd störf: * Rannsóknir á áhrifum lýsis á sýkingar með áherslu á bráðfasaprótein, cýtókín og fituefni í blóði. Háskólapróf í líffræði, lífefnafræði, matvælafræði, næringarfræði, meinatækni eða skyldum greinum er æskilegt en til greina kemur að ráða nemanda á síðari stigum náms í þessum greinum í hlutastarf þartil að námi loknu. Möguleikar eru á að viðkomandi sæki um innritun í rannsóknatengt nám við lækna- deild. Nánari upplýsingarveitir Ingibjörg Harðardóttirfræðimaður(dósentfrá 1. ágúst) í síma 525 4276. * Rannsóknir í genalækningum fyrst og fremst þróun genaferju sem byggð væri á visnu- veiru. Háskólapróf í líffræði, lífefnafræði, meinatækni eða skyldum greinum er æski- legt en til greina kemur að ráða einstakling með annars konar bakgrunn. Möguleikar eru á að viðkomandi sæki um innritun í rannsóknatengt nám við læknadeild. Nánari upplýsingar veitir Jón Jóhannes Jónsson, dósent í síma 525 4845. Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðherra f.h. ríkisins. Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí nk. en upphafstími ráðningar er eftir samkomulagi. Skriflegum umsóknum skal skila til starfs- mannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Öllum umsókn- um verður svarað og umsækjendum síðan greintfrá því hvernig starfinu hafi verið ráð- stafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir, deildarstjóri á starfsmanna- sviði, í síma 525 4273. Lagermaður S. Guðjónsson ehf. óskar eftir starfsmanni á lager. Starfssvið er almenn lagerstörf, vörumóttaka og pökkun. Hæfniskröfur: Þekking á raflagnavörum æskileg en ekki skilyrði. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Eiga gott með mannleg samskipti. Umsóknum skal skilað til afgreiðslu Mbl., merktar: „SG lager — 5291", fyrir 18. júlí. S. Guðjónsson ehf. Lýsinga- og rafbúnaður Hrafnista Reykjavík Hjúkrunarfræðingar — sjúkraliðar Hjúkrunarfræðinga bráðvantar á næturvaktir í júlí og ágúst. Greidd er grunnröðun sam- kvæmt Ifl. 113 fyrir næturvaktir. Hjúkrunarfræð- inga vantar líka á helgar- og kvöldvaktir. Stöður sjúkraliða eru lausar í sumar og einnig fastar stöður í haust. Starfsfólk vantar til aðhlynningar ýmist í hlutastörf tímabundið og í fulla vinnu. Upplýsingar veitir Þórunn A. Sveinbjarnar hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 568 9500. jf g Pórshafnar/ireppur Grunnskólinn á Þórshöfn - Til móts við nýja tíma - Grunnskólinn er einsetinn og af bestu stærð, 60— 70 nemendur í 1.—10. bekk. Miklar endur- bætur hafa verið gerðar á húsnæði, búnaði og innra starfi skólans. Tónlistarskóli er starf- andi við skólann auk þess sem áætlað er að taka í notkun nýja og fullkomna íþrótta- miðstöð á næsta skólaári. Vilt þú ganga med okkur til móts vid nýja tíma ? Þér býðst spennandi starf í samvinnu við metnaðarfulla, áhugasama og skemmtilega kennara. Okkur vantar kennara, medal kennslu- greina auk umsjónarkennslu; enska, raun- greinar, heimilisfrædi, tölvur, mynd- og handmennt, sérkennsla og íþrótta- kennsla. Ef þetta er eitthvað fyrir þig hafðu þá samband við Rut Indriðadótturskólastjóra í síma 468 1164/468 1454 (skóli) eða 468 1475 (heima). Leikskólinn á Þórshöfn - Til móts við nýja tíma - Á leikskólanum eru u.þ.b. 30 börn á aldrinum 1 V2 tiI 5 ára. Boðið er upp á mismunandi lang- an vistunartíma og mat í hádegi. Unnið er að markvissri uppeldisstefnu við skólann og stefnt að nánu samstarfi leik- og grunnskóla til að tryggja börnunum sem besta þjónustu. Okkur vantar leikskólastjóra til starfa. Ef þetta er eitthvað fyrir þig hafðu þá samband við Fanneyju Jónsdóttur leikskólastjóra í síma 468 1223 (skóli) eða 468 1398 (heima). Á Þórshöfn þarf engum að leiðast enda vantar fólk til ýmissa starfa, ásamt því að öflugt félagslíf er fyrir hendi fyrir þá sem vilja taka þátt. Uppbygging á sviði skóla- íþrótta- og tómstundamála er áhersluatriði í rekstri sveitarfélagsins og stefnt að því að búa fjölskyldum aðstæður eins og best gerist. í boði er flutningsstyrkur, ódýrt húsnæði og góðar móttökur fvrir bá sem koma til starfa hjá okkur. SJÚKRAH ÚS REYKJ AVÍ K U R Öldrunarsvið Hjúkrunarfræðingar Lausar eru til umsóknar stöður hjúkrunarfræð- inga á öldrunarlækningadeildum Sjúkrahúss Reykjavíkur, LandakotL Ýmsir möguleikar eru á valÁafyrirkomulagi. Á öldrunarsviði fer fram öflug símenntun og í boði er heilsuræktfyrir starfsmenn. Unnið er eftir skipulagsformi ein- staklingshæfðrar hjúkrunar. Hjúkrunarfræðingur Næturvaktir Staða hjúkrunarfræðings á næturvaktir er laus til umsóknar á öldrunarlækningadeild K-2, Landakoti. Hjúkrunarfræðingur á næturvakt ber ábyrgð á hjúkrun sjúklinga á tveimur deild- um og vinnur samkvæmt hugmyndafræði hjúkrunar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og mark- miðum deilda. Sjúkraliðar Sjúkraliðar óskast til starfa á öldrunarlækn- ingadeildum. Vaktir eru 4—8 klukkustunda morgun- og kvöldvaktir. Boðið er upp á góða starfsaðstöðu, aðlögun, öfluga símenntun og heilsurækt fyrir starfsmenn. Umsóknarfrestur ertil 27. júlí 1998. Nán- ari upplýsingar um ofangreind störf veitir Sigrún Bjartmarz, hjúkrunarframkvæmda- stjóri öldrunarsviðs, í síma 525 1989 eða 525 1800. Læknaritari Laus ertil umsóknar staða læknaritara við öldr- unarlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, B-4 Fossvogi. Hér er um að ræða alhliða lækna- ritarastarf og skrifstofustjórn fyrir forstöðu- lækni öldrunarsviðs. Staðan er lausfrá og með 4. ágúst 1998 eða síðar eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 27. júlí nk. Umsókn sendist til skrifstofu Pálma V. Jónssonar, forstöðulæknis, sem jafnframt veitir nán- ari upplýsingar í síma 525 1889. Myndgreininga- og rannsóknasvið Meinatæknar Lausar eru til umsóknar stöður meinatækna við rannsóknadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. • Deildarmeinatæknir í blóðmeinafræði. • Deildarmeinatæknir í meinefnafræði. • Meinatækna á vaktir. Umsóknarfrestur er til 27. júlí nk. Um- sókn, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist til Jónhildar Hall- dórsdóttur, forstöðumeinatæknis, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í síma 525 1475 eða 525 1480. Lyflækninga- og endurhæfingasvið Aðstoðarmenn iðjuþjálfa Aðstoðarmenn iðjuþjálfa óskast til starfa á iðjuþjálfunardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi og á Landakoti. Hér er um að ræða aðstoð við þjálfun, afþreyingu sjúklinga og önnur störf sem til falla í tengslum við þjón- ustu iðjuþjálfa við skjólstæðinga sjúkrahúss- ins. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja þekkingu á tölvunotkun. Starfið ertilvalið fyrir fólk sem er að huga að námi í faginu og vill kynna sér störf iðjuþjálfa. Stöðurnar eru lausar frá og með 4. ágúst nk. eða síðar eftir sam- komulagi. Umsóknarfrestur er til 27. júlí 1998. Nán- ari upplýsingar veita Vala Steinunn Guð- mundsdóttir, deildariðjuþjálfi SHR Landa- koti, í síma 525 1941 og Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi SHR Fossvogi, í síma 525 1554. Viö ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja það kynið, sem er i minnihluta í viðkomandi starfsgrein, til að sækja um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.