Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 158. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll Övissa ríkir um utkomuna Róm. Reuters. REYNT er til þrautar að ná sam- komulagi um stofnun alþjóðlegs stríðsglæpadómstóls á ráðstefnu í Róm og standa viðræður í jámum. Samningamenn hafa frest til mið- nættis annað kvöld til að leggja fram drög að samningi um dómstól- inn. I gær var enn deilt um megin- atriði í honum en forseti ráðstefn- unnar, Kanadamaðurinn Philippe Kirsch, vann hörðum höndum að því að ná samkomulagi og mun í dag leggja fram ný samningsdrög, að því er Tómas H. Heiðar, þjóðréttar- fræðingur utanríkisráðuneytisins, sem situr fundinn, segir. Fulltrúar 160 ríkja hafa undan- famar fímm vikur rætt um eðli og hlutverk alþjóðlegs stríðsglæpa- dómstóls. Hópur um sextíu ríkja, sem Island tilheyrir, vill að dóm- stóllinn verði sjálfstæð stofnun, sem hafi vald til að sækja stríðsglæpa- menn til saka. Bandaríkin, Frakk- land og fleiri ríki vilja takmarka vaW og lögsögu dómstólsins. I gær kynnti fulltrúi Indlands breytingartillögu sem gerir ráð fyr- ir að notkun kjarnavopna verði sldl- greind sem stríðsglæpur, en kjam- orkuveldin fimm em andvíg því. Samkomulag hefur þegar náðst um 80% af texta samningsins en hart er tekist á um það sem upp á vantar. Að sögn Tómasar bíður Kirsch erfitt verkefni. „Ljóst er að eðli málsins samkvæmt er afar mik- ilvægt að ná samkomulagi við síðar- nefndu ríkin og að þau gerist aðilar að samningnum," segir Tómas. „Ekki er hins vegar mikið svigrúm fyrir hendi því samkomulagið má ekki fela í sér að dómstóllinn veikist og missi sjálfstæði sitt. Afdrif IMF-lánsins í höndum Dúmunnar Moskvu. Reuters. Norður-Irland Ráðist að lögreglu TIL átaka kom milli mótmælenda úr röðum Oraníumanna, sem krefjast þess að reglubræður fái að ganga fylktu liði niður Garvaghy-veg, og öryggissveita lögreglunnar í Porta- down á Norður-Irlandi í gær. Mótmælendurnh- kveiktu í gas- hylkjum og köstuðu bensínsprengj- um að lögreglumönnum, sem svör- uðu með því að skjóta plastkúlum að óeirðaseggjunum. Talsmaður lög- reglunnar sagði að einn mótmælend- anna hefði sést handleika byssu, en engum skotum var hleypt af. Oraníumenn hafa staðið mótmæla- stöðu við vegartálma lögreglunnar við Drumcree-kirkju síðan 5. júlí. Haft var eftir talsmanni lögreglunn- ar að mótmælendum þar hefði fækk- að mjög eftir að þrír ungir bræður létu lífið á hörmulegan hátt af völd- um eldsprengjuárásar öfgasinnaðra sambandssinna um helgina. Hann sagði að lögreglan þyrfti eftir sem áður að kljást við fámennan en harð- skeyttan hóp öfgamanna sem reyndi að brjótast í gegnum vegartálmana. Blair segist vongóður Tony Blah’, forsætisráðherra Bretlands, sagðist í gær vongóður um að með viðræðum og góðum vilja tækist að leysa deiluna. Hann sagð- ist eiga von á að viðræður við Óran- íumenn gætu brátt hafist á ný. „Þótt það vh'ðist undarlegt að segja þetta í ljósi hins hörmulega morðs á ungu bræðrunum þremur, er staðreyndin sú að við munum sigrast á vandanum," sagði Blair í ræðu á breska þinginu í gær, og vís- aði til þess að íbúar Norður-írlands hefðu tvisvar á þessu ári greitt at- kvæði í þágu friðar, annarsvegar í atkvæðagreiðslu um páskasam- komulagið og hinsvegar í þingkosn- ingunum í júní. Lögreglan skýrði frá því í gær að annar mannanna tveggja, sem teknir voru höndum vegna morðsins, hefði verið látinn laus án ákæru. DUMAN, neðri deild rússneska þingsins, afgreiddi í gær sem lög nokkur þeirra frumvarpa, sem ætl- að er að draga úr efnahagsöngþveit- inu í landinu og tryggja um leið mörg hundruð milljarða króna að- stoð frá alþjóðlegum lánastofnun- um. Enn eru þó mörg óafgreidd og stjórnin hefur aðeins frest fram til 20. þ.m. til að koma þeim í gegn. Stjórn IMF, Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, kemur saman nk. mánu- dag, 20. júlí, til að afgreiða fyrsta hluta aðstoðarinnar, 432 milljarða ísl. kr., en hún er að nokkru háð því, að stjórnin hafi gripið til ýmissa ráðstafana í efnahagsmálum. Verða níu stjórnarfrumvörp rædd í Dúmunni í dag, þar á meðal nýjar reglur um tekjuskatt einstaklinga. I umræðunum í gær lýstu margir þingmenn áhyggjum af því, að Rússland væri að verða of háð er- lendum lánastofnunum, og sögðu, að efnahagsráðstafanirnar, breyt- ingar á skattalögum og minni ríkis- útgjöld, myndu auka enn á vesöld- ina meðal rússnesks almennings. Listin að innheimta skatta Sergei Dúbínín, seðlabankastjóri í Rússlandi, sagði í gær, að hætt- unni á gengisfellingu hefði verið bægt frá í bili með fyrirheiti IMF um aðstoð en hún yrði þó ekki úr sögunni fyrr en rússnesk stjórnvöld lærðu þá list að innheimta skatta, þegar þau gætu farið að taka undir með Benjamin Franklin, sem hefði verið vanur að segja, að í þessum heimi væri ekkert öruggt nema dauðinn og skattarnir. Utför keisarans mótmælt NOKKRIR prestar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og fleira fólk komu í gær saman í Péturs- borg til að inótmæla formlegri útför Nikulásar II Rússakeisara og fjölskyldu hans, en hún verð- ur á morgun. Hefur þetta mál, sem upphaflega átti að vera eins konar sáttargjörð þjóðarinnar við sína eigin sögu, snúist upp í illdeilur og ásakanir en kirkjunn- ar menn segjast ekki enn vera vissir um, að líkamsleifarnar séu í raun af keisarafjölskyldunni. Veðurblíðan er nyrst og syðst í Evrópu Vætutíð á meginlandinu og óvenjukalt í jiilí Ósltí, London, Dallas. Reuters. DUDU er elsta panda í heimi, 36 ára, og býr í dýragarði í Wuhan í Kína. Hér hefur hún fengið klakastykki sér til hressingar í sumarhitanum og virðist ekki veita af. VEÐRIÐ hefur verið mjög undarlegt að und- anförnu, svækjuhiti sums staðar en hrollkalt annars staðar og víða skammt á milli veðra- kerfanna. í Norður-Noregi ríkir hitabeltis- veðrátta, 30 gráður á daginn og um 20 á nótt- unni, og á Spáni hefur hitinn legið í 40 gráð- um. Annars staðar í Evrópu hrylla menn sig yfir óvenjulega köldu og vætusömu sumri. Síðustu daga hefur víða verið 30 stiga hiti í Troms og Norðlandi en nokkru kaldara í Finnmörk eða „aðeins" 25 stig. I Vesturálnum fór hitinn ekki niður fyrir 20 stig á nóttunni og fólk er nú farið að streyma frá Suður-Noregi til að njóta veðurblíðunnar fyrir norðan heim- skautsbaug. Er sama veðrinu spáð áfram en það er þakkað miklu háþrýstisvæði yfii’ Barentshafi. Það mun einnig viðhalda vætu- tíðinni í sunnanverðum Noregi, Danmörku og Svíþjóð. í Vestur- og Austur-Evrópu hefur verið vætusamt í sumar. Var júní þó aðeins yfir meðallagi hvað hitafar snertir en það, sem af er júlí, hefur verið miklu kaldara en í meðal- ári. Hefur þetta bitnað verulega á gos- drykkja- og íssölu en reyndin er sú, að hún eykst eða minnkar um eitt prósent fyrir hverja gráðu, sem hitinn fer yfir eða undir meðallagið. 16 látnir í Dallas A Spáni, einkum inn til landsins, hefur hit- inn farið upp 140 gráður á celsíus og í Dallas í Texas í Bandaríkjunum í 43 gráður. Þar hafa 16 manns látist af völdum hitans, aðallega aldrað fólk og hjartveikt. Sjá veðurfræðingar ekki fyrir neina breytingu á næstunni en allir vona að sagan frá 1980 endurtaki sig ekki, en þá fór hitinn í og yfir 37 stig 69 daga í röð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.