Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.07.1998, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Vinnuskóli Reykjavíkur veitir þúsundum ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára atvinnu á hverju sumri og hefur gert í áratugi. María Hrönn Gunnarsdóttir spjallaði við Arnfínn U. Jónsson skólastjóra um starfsemi vlnnuskólans sem m.a. hefur stuðlað að sífellt snyrtilegri borg og skógi vöxnum heiðum. • Unglingar á vegum vinnuskólans plöntuðu drjúgum hluta þeirra rúmlega 10 milljóna trjáplantna sem gróðursett- ar hafa verið á heiðum í nágrenni Reykjavíkur og 1 Heiðmörk • Ymiss konar fræðsla og tómstunda- iðkun stendur unglingunum til boða utan vinnutíma. VINNUSKÓLI Reykjavík- ur er enginn venjulegur vinnustaður. Yfír vetrar- mánuðina starfa þar tveir menn, skólastjórinn og annar sem sinnir m.a. viðhaldi tækja og verk- færa, en á sumrin færist heldur betur líf í tuskurnar þegar um og yfir þrjú þúsund unglingar bætast á launaskrá fyrirtækisins. I annarri viku júnímánaðar ár hvert hefjast unglingar á aldrinum 14 til 16 ára handa meðal annars við að fegra götur og garða borgarinnar og gróðursetja trjáplöntur á heiðum og útivistarsvæðum í nágrenni hennar með þeim árangri að melar verða skógi vaxnir, göngustígar kurli þaktir og borgin breytir um svip. Únglingar á vegum vinnuskól- ans gróðursettu drjúgan hluta þeirra 10 milljóna trjáplantna sem hefur verið plantað í Heiðmörk og á heiðum í næsta nágrenni borgar- innar og lagt í Heiðmörk einni um 30 km af göngustígum frá því vinnuskólinn var stofnaður fyrir tæpum fimmtíu árum. Vinnuskólasöngur í morgunsárið „Vinnuskólar eru séríslenskir," segir Amfinnur U. Jónsson, skóla- stjóri vinnuskólans. „Það markast fyrst og fremst af því að skólastarf er styttra hér en víðast hvar annars staðar. A Islandi er líka rík hefð fyrir þátttöku unglinga í atvinnulífi. Hún hefur breyst með aukinni tækni og þess vegna eru vinnuskól- ar mikilvægir - að minnsta kosti á meðan skólatíminn lengist ekki. Síðan er svo margt sem þarf að gerast hér vegna þess hversu stutt sumarið er,“ segir hann og minnir þar með á að þess vegna veiti ekki af liðsauka unglinganna. „Aðdragandinn að stofnun Vinnuskóla Reykjavíkur nær allt til ársins 1937 en þá hafði bæjarstjórn Reykjavíkur áhyggjur af unglings- piltum sem höfðu ekkert íyrir stafni. Þeim var boðin vinna í Jós- epsdal við að grjóthreinsa skíða- brekkur. Þar bjuggu þeir í tjöldum og unnu undir miklum aga. Þeir voru vaktir fyrir allar aldir og síðan var fáni hylltur og vinnuskólasöng- urinn sunginn við lag Öxar við ána,“ segir Amfinnur. Því miður er texti vinnuskólasöngsins glataður en hann var eftir Jakob J. Smára. Hlé varð á starfseminni, allt þar til á stríðáranum að svokölluð Bretavinna bauðst fulltíða karl- mönnum. Var þá tekið til þess bragðs að ráða unglingspilta til að leggja hitaveitu í Reykjavík en á því hafði verið byrjað nokkra áður. Það var þó ekki fyrr en á árinu 1951 sem Vinnuskóli Reykjavíkur var stofnaður, að tilllögu vinnu- skólanefndar sem sett hafði verið á laggimar nokkru áður. „Síðan hef- ur skólinn verið starfræktur lítið breyttur fyrir utan að reynt hefur verið að fylgja breyttum tíðar- anda,“ segir Arnfinnur. Annað og meira en unglingavinna Að sögn Arnfinns er vinnuskól- inn annað og meira en unglinga- vinna því eitt meginmarkmið skól- ans er að unglingarnir fái tilsögn og leiðbeiningar um hvernig æskilegt sé að haga vinnu sinni auk þess sem þeim er boðið upp á iðkun ýmiss konar tómstundastarfa. ,Áður fyrr vandist unga fólkið við vinnu snemma, svo sem sveita- störf og fiskvinnslu. Nú er það liðin tíð og þess vegna leggjum við ríka áherslu á að undirbúa leiðbeinend- ur vinnuskólans vel áður en ung- lingarnir koma til vinnu.“ Fyrstu vikunni í júní era því haldin fjöl- breytt námskeið fyrir leiðbeinend- ur, meðal annars í skyndihjálp, stjórnun, um öryggi á vinnustöðum og um rétta líkamsbeitingu við vinnu. Leiðbeinendur hafa allir náð ÖNNUM kafnir unglingar í Hljómskálagarðinum. Morgunblaðið/Golli Vakið athygli erlendis Vinnuskólamir á íslandi hafa vakið athygli víða utan landstein- anna og segir Arnfinnur að tekið sé á móti erlendum gestum sem koma til að kynna sér starfsemina nánast á hverju ári. Um þessar mundir eru staddir hér 35 unglingar frá Þýska- landi að vinna ásamt jafnöldrum sínum í vinnuskólanum við að planta trjám, leggja göngustíga og dreifa áburði í Vinaskógi. Þá segir hann að í Finnlandi sé á döfinni að stofna vinnuskóla að íslenskri fyrir- mynd fyrir unglinga sem hafa flosnað upp úr námi en hafa ekki fengið atvinnu. Morgunblaðið/Jim Smart VINNUSKÓLARNIR á íslandi hafa vakið athygli víða erlendis, að sögn Arnfinns. 22 ára aldri og stunda flestir há- skólanám á vetuma. Vinnudagur unglinganna er mis- langur eftir því á hvaða aldri þeir era. „Þeir sem era 14 ára vinna í 314 tíma á dag í 6 vikur, 15 ára ung- lingar vinna í 7 tíma á dag í jafn- langan tíma en þeir elstu í 7 tíma á dag í 7 vikur. Heildarfjöldi vikna er þó vikunni lengri hjá þeim öllum þar sem þeim er skylt að taka sér einnar viku frí einhvern tíma á tímabilinu,“ segir Amfinnur og út- skýrir það aðeins nánar með bros á vör: „Grasið hættir ekki að spretta í bytjun ágúst og þess vegna reynum við að lengja starfstímann. Síðan vilja margir fara í ferðalag með for- eldram sínum eða á vegum íþrótta- félaga og við viljum gefa þeim færi á því.“ Eiga rétt á sumarfríi Fyrir þremur áram var vinnuvik- um vinnuskólans fækkað í það horf sem nú er. Segir Amfinnur að sú ákvörðun hafi verið tekin bæði til að það fé sem lagt er til vinnuskól- ans dygði til að allir sem óskuðu eftir vinnu fengju hana og vegna reglna Evrópusambandsins um vinnu barna og unglinga. „Nám í skóla er auðvitað ekkert annað en vinna og nú er litið svo á að ung- lingarnir eigi rétt á að taka sér frí frá vinnu eins og annað fólk. Maður heyrir og veit að þeir vildu geta haft meiri tekjur en þeir hafa hér og margir þeirra bæta við sig vinnu, t.d. við að bera út blöð.“ Ymiss konar fræðsla og tóm- stundagaman stendur unglingunum til boða á vegum vinnuskólans utan vinnutíma auk þess sem fjórum vinnudögum er varið til þess ein- göngu. Tveir fræðslustjórar og tómstundafulltrúi starfa hjá vinnu- skólanum og hafa þeir umsjón með þessum þætti starfseminnar. Meðal þess sem er í boði er fjallahjólaferð, golf, klettaklifur, ljósmyndanám- skeið, skákmót, skylmingar, út- varpsnámskeið, jóga og hugleiðsla. Starfsmenn eru óhræddir að brydda upp á nýjungum í starfinu og „við prófuðum meðal annars að vera með bókmenntaklúbb í sum- ar,“ segir Arnfinnur ánægður með viðtökurnar, en uppundir tíu manns skráðu sig í hann. -Hvaða verkefnum sinna ung- lingamir í vinnuskólanum í vinnu- tímanum? „Verkefnin fylgja árgöngunum. Þeir 14 ára vinna almennt við að snyrta og fegra umhverfi og við létt viðhald, fyrst og fremst við skóla og íþróttasvæði. Þeir sem eru 15 ára vinna í þrjár vikur utan borgar- marka, t.d. í Heiðmörk og við Nesjavelli, að gróðursetningu og landgræðsluverkefnum,“ segir Arnfinnur og bætir stoltur við að starf unglinganna við Nesjavelli hafi hlotið landgræðsluverðlaun forseta Islands árið 1994. „Hinar þrjár vikurnar vinna þeir í borginni við að snyrta garða eftirlaunaþega. I sumar starfa t.d. 33 vinnuflokkar við að snyrta um 750 garða. Öll vinna 16 ára unglinga er í samvinnu við gatna- og garðyrkjudeild borg- arverkfræðings. Um það bil helm- ingur þeirra vinnur við ýmis hreinsunar- og viðhaldsstörf á stofnanalóðum borgarinnar en hinn hópurinn starfar utan borgar- marka, t.d uppi á Hólmsheiði og Reynisásheiði en þar er skógrækt nokkuð skemur á veg komin en í Heiðmörk." Enginn venjulegur vinnustaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.