Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Héraðsdómur Reykjavíkur sýknar framkvæmdastjóra af ákæru vegna áfengisauglýsinga Bannið talið vera skerð- ing á tjáningarfrelsi Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar af kæru ákæru- valdsins um að hafa sem framkvæmda- stjóri fyrirtækisins „birt eða látið birta auglýsingar á áfengum bjór“, eins og segir í ákærunni. Kærðar voru birtingar auglýsinga á flettiskilti, í ríkissjónvarp- inu og í Morgunblaðinu. ÁKÆRT var vegna texta í auglýs- ingunum þar sem segir „6,2%... nú er Egill STERKUR" og í sumum útgáfunum er bætt við „í Ríkinu þinu í öllum landshlutum". Ekki var ágreiningur um málavexti heldur um hvort birting umræddra auglýsinga hafi verið brot gegn ákyæðum áfengislaga. í dóminum segir að eftir útgáfu ákærunnar hafi ný áfengislög tekið gildi en samhljóða eldri lögunum að því er varði refsinæmi verknað- ar og er ákvæði 20. greinar áfeng- islaganna nr. 75/1998 rakið en þar kveður á um bann við auglýsingu á áfengi. Tengjast markaðssetningu á áfengum bjór Síðan segir í dóminum: „Þegar texti auglýsinganna er skoðaður er hugsanlegt að upp í hugann komi eitthvað annað en auglýsing á áfengum bjór af tegundinni „Egill Sterkur". En þegar texti, útlit og auðkenni auglýsinganna er skoðað í heild og það borið saman við útlit umbúða bjórsins „Egill Sterkur“ telur dómurinn ljóst, að allar aug- lýsingarnar sem ákært er út af falla undir skilgreininguna í 2. mgr. 20. gr. áfengislaganna, sbr. áður 16. gr. a áfengislaga, og aug- lýsingarnar tengist allar markaðs- setningu á áfengum bjór af tegund- inni sem lýst var og af auglýsing- unum sé augljóst að um sé að ræða auðkenni sem snerta þessa bjór- tegund.“ Varðandi birtingu auglýsingar- innar á flettiskilti segir að áfengis- lögin segi ekkert um hver skuli bera refsiábyrgð þegar svo hátti sem í þessu tilviki, að viðsemjandi ölgerðarinnar eigi og reki fletti- skiltið, setji upp og birti auglýsing- una. Lögin séu að þessu leyti ólík útvarpslögum og lögum um prent- rétt, þar sem skýrt sé kveðið á um hver beri refsiábyrgð. Ekki sé unnt að slá því föstu að ákærði beri refsiábyrgð í tilvikinu um fletti- skiltið og beri því að sýkna hann. Varðandi útvarpsauglýsinguna taldi verjandi ákærða að fortaks- laus ákvæði áfengislaganna væru ósamrýmanleg 73. gr. stjómar- skrárinnar og 10. gr. mannrétt- indasáttmála Evrópu, en í um- ræddri stjómarskrárgrein segir m.a. að tjáningarfrelsi megi aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu, öryggis ríkisins, til vemdar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs. Dómurinn segir að tjáningar- frelsisákvæðið taki til auglýsinga eins og þeirrar sem hér er til um- fjöllunar og að 73. greinin feli það í sér að skerðing tjáningarfrelsis megi aldrei vera meiri en nauðsyn- legt sé til að ná þeim markmiðum sem skerðingin miðar að, í þessu tilviki að vernda heilsu fólksins í landinu. Síðar segir í dóminum: „Til að unnt sé að meta hvort hið fortakslausa auglýsingabann og skerðing tjáningarfrelsisins sem lýst er í 20. gr. áfengislaganna hafi verið nauðsynleg, af þeim sökum sem hér um ræðir, þurfa að mati dómsins að liggja fyrir einhver gögn eða vera unnt að ráða af lög- skýringargögnum hver rökin eru. Hvorugu er til að dreifa að mati dómsins. Dómurinn telur að tján- ingarfrelsið verði ekki skert með lögum án slíkra raka. Af þessum sökum verður ákærandi látinn njóta vafans við endanlegt mat á því hvort 20. gr. áfengislaganna fái samrýmst 73. grein stjórnarskrár- innar.“ Ókleift að auglýsa löglega framleiðslu Segir ennfremur að líta verði til hagsmuna Ölgerðarinnar að eiga þess kost að markaðssetja fram- leiðslu sína á þann hátt sem tíðkist nú á tímum og á sama hátt og er- lendir keppinautar sem auglýsi sambærilega vöin beint og óbeint hérlendis. „Með hinu stranga banni er framleiðendum áfengs bjórs hér á landi gert ókleift að auglýsa lög- lega framleiðslu sína. Þá takmark- ar hið skerta tjáningarfrelsi rétt fólksins í landinu til upplýsinga." Varðandi auglýsingarnar í Morgunblaðinu segir að þar sem enginn höfundur að auglýsingun- um sé nafngreindur á þann hátt sem áskilið sé í lögum um prent- rétt, enda þótt ráða megi hver aug- lýsandinn sé, sé ekki unnt að láta ákærða bera refsiábyrgð. Skipti heldur ekki máli þótt hann hafi lýst því fyrir dóminum að vinna við auglýsingamar hafi verið unnin innan fyrirtækisins og undir stjórn hans. Akvæði 15. gr. laga um prentrétt séu skýr og ljóst að ákærði beri ekki refsiábyrgð vegna ákæruatriðanna og beri því að sýkna hann. Ákærði var með öðrum orðum sýknaður af öllum kröfum ákæru- valdsins og skal sakarkostnaður greiðast úr ríkissjóði. Dóminn kvað upp Guðjón St. Marteinsson. Halldor Jónatansson, forstjón Landsvirkjunar, um afrakstur stóriðjustefnunnar Þjóðhagslegur ávinningur 92 milljarðar 1966-1997 Þ JOÐHAGSLE GUR ávinningur af þeim stóriðjustefnu sem Lands- virkjun hefur haft veg og vanda af sem raforkusöluaðili á árabilinu 1966-1997 nemur um 92 milljörð- um króna að núvirði á verðlagi árs- ins 1997 og er þá miðað við 4% reiknivexti sem em rúmlega með- alraunvextir Landsvirkjunar á þessu tímabili. Þessi ávinningur jafngildir um 0,5% af vergri lands- framleiðslu á hverjum tíma á um- ræddu tímabili. Jafnframt er ávinningur Landsvirkjunar á þessu tímabili um 6 milljarðar króna og er því ekki unnt að halda því fram að raforka til stóriðju hafi verið greidd niður af almenningi, að því er fram kom í ræðu Halldórs Jónatanssonar, forstjóra Lands- virlgunar, á fundi raforkusviðs Samorku í Borgamesi í gær. í ræðunni fjallar Halldór um framtíðarskipan raforkumála og sagði meðal annars að mark- aðsvæðing orkugeirans mætti ekki verða til þess að koma í veg fyrir að stór og öflugt orkufyrirtæki eins og Landsvirkjun fái að njóta sín og efla þjóðarhag í ríkara mæli en ætla mætti að smærru orkufyrir- tæki gætu. Sagði hann að reynsla annarra þjóða af markaðsvæðing- unni og samkeppni á grundvelli hennar væri ærið misjöfn og senni- lega of snemmt að fella dóma í þeim efnum, en hún sýni þó tví- mælalaust að nokkir annmarkar séu á markaðsvæðingu orku- geirans hérlendis. Rakti hann í ræðunni nokkur at- riði í þeim efnum, meðal annars það að hinn almenni raforkumark- aður væri svo lítill að erfitt væri að sjá að samkepponi geti notið sín. Ekki sé heldur fýsilegur kostur að skipta Landsvirkjun upp í smærri fyrirtæki, því af hagkvæmnisá- stæðum þurfi slík skipting að fylgja vatnasviðum orkuveitusvæð- anna, en um 60% af vinnslugetunni sé á Þjórsár-Tungnaársvæðinu. Þá bendir Halldór á að rafmagns- vinnsla hér á landi sé mjög einhæf í samanburði við það sem gerist annars staðar að því leyti að raf- orkuframleiðsla byggist hér aðal- lega á nýtingu vatnsafls. Sam- keppni hér yrði því sniðinn þrengri stakkur en annars staðar. Einnig geti óheft samkeppni orðið til þess að rýra mjög afhendingaröryggi orkunnar, en í þeim efnum skipti sköpum að orkuveitukerfið hér á landi sé enn ekki tengt raforku- kerfum nágrannalandanna. Loks muni markaðsvæðing leiða til þess að verðjöfnun verði ekki lengur komið við og finna verði aðrar leið- ir til hennar til dæmis með niður- greiðslur. 28% flutningskostnaður Halldór sagði einnig að aðrar leiðir til að lækka rafmagnsverð til almennings geti þannig hæglega reynst árangursríkari en með markaðsvæðingu og óheftri sam- keppni. Slíkir möguleikar felist ekki síst í lykiltölugreiningu og skiptingu kostnaðar í bókhaldi íyr- irtækja milli vinnslu, flutnings og dreifingar. Við slíka skiptingu komi í ljós að á árinu 1997 hafi um 28% af heildsöluverði Landsvirkjunar verið flutningskostnaður, enda Landsvirkjun gert að bera kostn- aðinn af meginflutningakerfi lands- ins. Sagði hann að lykiltölugrein- ingin hefði reynst Landsvirkjun vel til kostnaðarlækkana, en hún fæli í sér samanburð á einstökum kostn- aðarliðum orkufyrirtækja í vinnslu, flutningi og dreifingu á raforku. Sagði hann að hliðstæð úttekt þyrfti að fara fram á hagkvæmni LANDSVIRKJUN Skipting rekstrargjalda 1997 Framleiðsia 72 % Rekstur og viðhald Afskriftir Vextir Flutningur 28% Rekstur og viðhald Afskriftir Vextir, 14% smásölunnar á vegum almennings- rafveitna, jafnt með tilliti til skipu- lags sem kostnaðar, enda sé hlutur smásölunnar ekki langt frá því að vera áþekkur heildsöluþætti Landsvirkjunar í verðinu til al- mennings. Halldór sagði síðan: „Samkeppni á skilyrðislausan rétt á sér í orku- geiranum sem annars staðar enda sé öruggt að hún fái notið sín með tilætluðum árangri. í þessari um- fjöllun minni má því ekki misskilja varnaðarorð mín svo að ég leggist alfarið gegn samkeppni í orkugeir- anum heldur aðeins gegn sam- keppni sem ekki byggist á könnun sem leiði ótvírætt í ljós að sam- keppni á grundvelli markaðsvæð- ingar feli í sér ávinning fyrir hinn almenna rafmagnsnotanda umfram það sem óbreytt skipulag raforku- mála myndi leiða af sér.“ Fjallgöngumennirnir Senn haldið í grunn- búðir FJALLGÖNGUMENNIRNIR úr Fiskakletti í Hafnarfirði, sem munu klífa Ama Dablam í lok þessa mánaðar, hafa nú lokið aðlögun sinni að mestu í fjallasölum Himalaja og halda í grunnbúðir Ama Dablam á næstu dögum. í fyrradag gengu þeir á fjallið Kala Pattar, sem er 5.545 metram yfir sjávarmáli. Þar slógu allir leiðangurs- menn persónuleg hæðarmet sín. „Við eyddum þar dágóðri stund og virtum fyrir okkur það glæsilega útsýni sem þar er að hafa, Everest í návígi, suðurhlíð Pumori, vesturhlíð Nuptse og að sjálfögðu Ama Dablam,“ segir í skeyti frá leiðangrinum. Heilsa leiðangursmanna er góð ef frá er talin magakveisa, sem flestir þeirra hafa fengið. Þeir hafa ekki fengið allan búnað sinn sendan, en vænta hans innan skamms og halda þá beina leið í grunnbúðir til að hefja sjálfa fjallgönguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.