Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 54
64 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Þórdís Bene- diktsdóttir fæddist 4. febrúar 1902 að Smáhömr- um í Kirkjubóls- lireppi í Stranda- sýslu. Hún lést í St. Franciskusspítala í Stykkishólmi 27. september síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Bene- dikt Guðbrandsson, bóndi á Smáhömr- um, f. 27. september 1868, og Elinborg Steinunn Jónatans- dóttir frá Mýnim í Eyrarsveit, f. 28. apríl 1870, dáin 23. október 1902. Benedikt faðir hennar flutti til Ameríku 1905 og ílent- ist þar og ólst Þórdís upp hjá fóðurömmu sinni, Matthildi Benediktsdóttur, og seinni manni hennar, Birni Halldórs- syni hreppstjóra á Smáhömrum. Matthildur lést á Smáhöminm í janúar 1950 102 ára gömul. Þór- dís var yngst þriggja barna Benedikts og Elinborgar, en eldri systkin voru: Jónatan Hall- ■ dór, kaupfélagsstjóri á Hólma- vík, f. 1894, hans kona Þuríður Samúelsdóttir, f. 1903 er enn á lífi, og Borghildur, f. 1897, kona Föðursystur minni Þórdísi, sem nú er látin á 97. aldursári eftir mai-gra ára heilsuleysi og erfiða banalegu, kynntist ég náið þegar ég fór að vera í sveit hjá henni og Karli á Smáhömrum í byrjun fjórða ára- tugarins. Ferðir mínai- í sveitina jyoru ávallt mikið tilhlökkunarefni á hverju vori eftir að skóla lauk, enda framundan leikur og störf við áhuga- verð verkefni svo sem smölun og rúningu og heyskap á heimatúni og engjum sumarlangt. Búið á Smáhömrum var mikið fyr- irmyndarbýli og er það enn hjá syni Þórdísar, Birni, og sonarsyni, Guð- brandi. Hafa þeir gi'einilega tekið fyrri ábúendur, Þórdísi og Karl, sér til fyrirmyndar, ekki síst í sauðfjár- ræktinni og almennri snyrtimennsku við bú og bústörf. Leynir sér ekki jafnvel frá þjóðvegi séð að Smá- hamrar eru snyrtilegt myndarbýli. Þórdis var sérstaklega elskuleg kona og hugsaði um mig og aðra kaupstaðarstráka sem hjá henni #Voru í sveit eins og sín eigin börn. Leið mér alla tíð einstaklega vel hjá Dísu frænku og átti hún drjúgan þátt í að þroska unglinginn og draga fram betri hliðar hans á viðkvæmu þroskaskeiði. Tel ég mig hafa búið að því alla tíð síðan. Smáhamraheimilið var í tíð Þórdísar rómað fyrir gest- risni og voru þau hjón mjög samhent í að taka vel á móti gestum sínum. Var oft mikið um gestakomur bæði sveitunga og lengra að kominna gesta. Urðu við þau tækifæri ávallt líflegar og uppbyggilegar umræður um margvísleg þjóðþrifamál, sem húsráðendur tóku áberandi þátt í, enda höfðu þau oftast margt til mál- anna að leggja. ■ ^ Þórdís var vel lesin og vel að sér á mörgum sviðum. Hún var einstak- lega minnisgóð fram á síðustu ár, átti létt með að rekja ættir og rifja upp og tengja saman liðna atburði. Vai' unun að sitja hjá henni og hlusta á fróðlegar frásagnir frá liðnum tím- um. Blómagarður Þórdísar var fagur og vel hirtur og bar vott um snyrti- mennsku hennar og alúð við allt lif- andi. Má telja kraftaverk hve vel henni tókst að halda lífi í fögrum og viðkvæmum blómum þrátt fyrir tíð- an norðannæðing og særok frá Húnaflóanum, sem er svo að segja /við bæjardyrnar. Þórdís fluttist til dóttur sinnar El- inborgar og tengdasonar Helga Ei- ríkssonar í Stykkishólmi eftir að bóndi hennar lést. Hafði hún litla íbúð í húsi þeirra þar sem hún bjó sér sitt eigið heimili með sterkum einkennum frá Smáhömrum. Heim- sóknir til hennar í Stykkishólm voru „jíjinstaklega ánægjulegar og gefandi. Þegar aldurinn færðist yfir og heils- Jakobs skálds Thorarensen. Þau Borghildur og Jónatan eru bæði látin. Hálfsystkin Þórdísar voru Guð- brandur, bóndi á Broddanesi, f. 1887, d. 1979, og Elinborg Steinunn, f. 1896, d. 1980. Þórdís stund- aði nám í Kvenna- skólanuin í Reykja- vík veturinn 1919. Þórdís giftist Karli Aðalsteinssyni 27.12. 1931, en hann lést 2. september 1982. Karl og Þórdís hófu búskap á Smáhömr- um árið 1932 og bjuggu þar til ársins 1970. Börn þeirra eru: Björn Hilmar, f. 1931, bóndi á Smáhömrum, kvæntur Matthildi Guðbrandsdóttur frá Heydalsá, og Elinborg, f. 1936, húsfreyja í Stykkishólmi, gift Helga Eiríks- syni rafvirkja. Barnabörn Þór- dísar eru sex, tveir synir Björns og Matthildar og tveir synir og tvær dætur Elinborgar og Helga. Barnabarnabörn Þórdís- ar eru sjö talsins. Utför Þórdísar fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. unni hrakaði naut hún í vaxandi mæli einstakrar umhyggju dóttur sinnar og tengdasonar. A sjúkrahúsinu í Stykkishólmi þurfti hún að dvelja síðustu mánuð- ina, því dagleg aðstoð og umhyggja hjúki-unarfólks og lækna var orðin nauðsynleg. Við hjónin höfðum ætlað okkur að heimsækja Þórdísi laugar- daginn 26. september sl., en af því gat ekki orðið, því í Ijós kom að hún var þá þegar við dauðans dyr og lést snemma morguns næsta dag. Við þökkum Þórdísi alla hennar elsku í okkar garð og fjölskyldu okkar og ánægjulega samfylgd í gegnum lífið, um leið og við biðjum henni og börn- um hennar og fjölskyldum þeirra guðs blessunar. Svavar Jónatansson. Mig langar að minnast ömmu minnar Þórdísar Benediktsdóttur frá Smáhömrum. Á sjötta ári fór ég í sveitina til ömmu og afa og var það fyrsta sum- arið sem var aðeins það fyrsta af átta farsælum sumrum, ég gat varla beð- ið eftir vorinu, þegar skóla lauk að komast til ömmu og afa í sveitina, því þar var svo gott að vera. Amma var mjög trúuð kona og kenndi mér margar fallegar bænir, þegar ég var kominn á fætur fórum við saman með morgunbænina okkar. Nú er ég klæddur og kominn á ról, Kristur Jesú veri mitt skjól. í Guðs óttanum gef þú mér ég gangi í dag svo líki þér. Um haustið átti skólaganga mín að hefjast og fannst ömmu að drengur- inn yrði að vera læs áður en hann færi í skóla og lét hún mig lesa þegar hún hafði tíma aflögu, og sýnir það hvað menntun var mikils virði í hennar augum og hve vel hún fylgd- ist með hvernig okkur gekk í skóla. Alltaf átti amma til sokka og vett- linga sem hún prjónaði því hún var alltaf að hugsa um okkur barnabörn- in sín. Heimilið og fjölskyldan voru ömmu mjög ofarlega í huga og að maður lærði góða umgengni og framkomu. Ef gesti bar að garði, sem mér fannst mjög oft, var alltaf veisluborð tilbúið á svipstundu hjá ömmu og fór enginn þaðan svangur. Garðurinn hennar ömmu var vel ræktaður og ekki síst hjónabandið og fjölskylduböndin. Þegar amma gróðursetti blóm í garðinum sínum þá fór hún með þetta erindi úr ljóði Jónasar Hallgrímssonar. Faðirogvinurallssemer annastu þennan græna reit. Blessaðu faðir blómin hér blessaðu þau í hverri sveit. Hjá þeim ömmu og afa leið mér afskaplega vel, afi sagði mér allt um skepnurnar og hvernig ætti að um- gangast þær. Þegar ég er á fjórt- ánda ári deyr afi og amma flytur til okkar í Stykkishólm og býr í íbúð á neðri hæð ásamt mér. Samband okkar ömmu styrktist enn frekar og hugsaði hún alltaf jafnvel um mig. Þegar ég kom heim vissi maður ekki af fyrr en búið var að hlaða eld- húsborðið af kökum og boðið var uppá kaffi, líkt og var alltaf í sveit- inni. Amma var mjög ættfróð og hafði unun af lestri góðra bóka, ef við sátum og vorum að spjalla og ég sagði henni deili á vini eða kunn- ingja, gat hún rakið ættir hans og sagt mér frá fólkinu hans. Þegar amma var um nírætt fórum við heim eins og hún var vön að segja, þegar hún talaði um Smáhamra. Alla leið- ina talaði hún um sveitirnar þar sem við fórum um og þegar í Hrútafjörð var komið, gat hún talið upp hvern sveitabæinn af öðrum og sagði okk- ur sögur frá þeim. Síðustu árin var amma orðin rúmliggjandi en alltaf fylgdist hún með okkur, og því sem var að gerast í þjóðfélaginu. Amma var orðin blind en þegar við komum til hennar, þekkti hún mann strax á röddinni svo skýr var hún alltaf. Núna er amma komin á þann stað sem hún hafði beðið svo lengi eftir að komast á, og langar mig að lok- um að fara með kvöldbænina sem hún kenndi mér. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Nú þegar ég kveð þig, elsku amma mín, vil ég þakka þér allt sem þú hef- ur gert fyrir mig, megi guð vera með þér. Þinn, Karl Matthías Helgason. Elsku amma, mig langar að minn- ast þín með fáeinum orðum. Þú hef- ur nú fengið hvíldina sem þú þráðir svo heitt síðustu árin og sameinast elskuðum Kalla afa sem lést fyrir sextán árum. Margs er að minnast frá heim- sóknum mínum að Smáhömrum og síðustu árin til þín á Aðalgötuna í Hólminum. I Hólminum áttir þú heima síðustu sextán árin, hjá for- eldrum mínum, og þar áttir þú gott og öruggt skjól. Það var alltaf gam- an að koma í heimsókn til þín og heyra þig segja frá fólkinu í sveit- inni og spjalla saman um lífið og til- veruna. Sveitin þín var þér mjög kær og alltaf var hugurinn fyrir norðan. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fékk fyrst að greiða þitt síða hár, sem alltaf var í fléttum, og þegar ég var búin að rekja upp flétturnar gat ég falið mig í hárinu. Þótt þú hafir verið sárlasin og tæpast getað setið í stól þegar ég klippti og lagaði hárið þitt í síðasta skiptið sagðir þú: „Ég hef nú alltaf verið svolítið pjöttuð." Það voru líka orð að sönnu. Þú vildir alltaf líta sem best út. Ég vil fá að þakka þér fyrir allt það sem þú gafst mér og mínum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guó þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Amma mín, minnig þín mun lifa. Þín nafna, Þórdís (Dísa). Dísa langamma bjó niðri hjá ömmu minni og afa í Stykkishólmi. Ég man best eftir henni ömmu minni þegar ég fór niður til hennar og spurði hana kannski um mynd, þá þurfti ég bara að lýsa fólkinu á myndinni og þá vissi hún strax hverjir það voru. Þá sagði hún mér oft sögu eða fór með vísu um fólkið á myndinni. Alltaf fékk ég brjóstsykur eða súkkulaði hjá Dísu ömmu. Dísa amma var mjög góð kona, ég sakna hennar mjög mikið og vona að henni líði miklu betur núna. Þóra Sif. Smáhamrar við Steingrímsfjörð í Strandasýslu. Það varð strax um aldamótin síð- ustu bjart yfir þessu bæjarnafni í hugum þeirra manna er þar þekktu til. Á Smáhömrum var rekinn um- svifamikill búskapur til lands og sjávar. Þar var flest stærra í sniðum og með meiri myndarbrag en títt var á öðrum bæjum í nálægum byggðar- lögum. Það var blómagarður á þeim bæ. Þar stóð stærsta og veglegasta íbúðarhúsið og þar bjuggu heiðurs- hjónin Matthildur Benediktsdóttir Jónssonar á Kirkjubóli og útvegs- bóndinn Björn Halldórsson Jónsson- ar frá Níp á Skarðsströnd. Og þar fæddist og ólst upp ein af allra glæsi- legustu heimasætum sýslunnar, Þór- dís Benediktsdóttir frænka mín, sem nú undir lok aldarinnar hefur kvatt jarðlífið háöldruð eftii- að hafa gegnt húsmóðurstörfum á Smáhömrum með rausn og miklum sóma í alla þá áratugi sem henni entist þrek og heilsa. Foreldrar Þórdísar voru hjónin Elínborg Jónatansdóttir frá Mýrum í Eyrarsveit Jónssonar og Benedikt sonur Matthildar á Smáhömrum og fyrri manns hennar, Guðbrandar Jónssonar frá Broddanesi. En meðal systkina Guðbrandar voru séra Bjöm á Miklabæ og Guðbjörg rithöf- undur í Broddanesi. Benedikt Guð- brandsson, sem var einbirni, var að- eins 16 ára gamall þegar faðir hans veiktist og féll frá í blóma lífsins fer- tugur að aldri sumarið 1884. Tveim árum síðar giftist Matthildur öðru sinni dugnaðarmanni, Birni Hall- dórssyni, sem var náskyldur fyiTÍ manni hennar, því að þeir voru systrasynir. Björn tók við góðu búi á Smá- hömrum meðan enn stóð yfir harð- indatímabilið mikla á níunda tug 19. aldarinnar og með framúrskarandi atorku og útsjónarsemi vann hann að umbótum á jörð sinni í þeim mæli að eftir var tekið. Jöfnum höndum sótti hann sjó og stundaði útgerð fiskibáta í vaxandi mæli. Átti hann um skeið fjóra ái-abáta. Þeirra stærstur var sexæringurinn Kringl- an, sem lengi var gerð út á hákarl frá Gjögri. Þá var og fiskverkunarstöð á Smáhömrum þar sem framleiddur var sólþurrkaður saltfiskur. Þarna var því mikið athafnalíf og oft margt um manninn, enda stóð þá á mörgum fótum fjárafli Smáhamrabóndans eins og sagt var um annan bónda suður í Borgarfirði. En velgengni Smáhamraheimilisins var ekki Birni bónda einum að þakka. Þar átti Matthildur húsfreyja einnig hlut að máli og hann ekki lítinn. Hún var framúrskarandi myndarleg og stjórnsöm húsmóðir og verkstjóri, sem öllum var ljúft að hlýða, enda þurfti hún ekki að hafa mörg orð um hlutina. Guðbjörg rithöfundur í Broddanesi, sem var mágkona Matt- hildar, dáði hana mikið í ræðu og riti og kvað hana ekki hafa þurft að falda motrinum til þess að bera af öðrum konum. (Gamlar glæður.) Líktist hún að því leyti föðui' sínum, héraðshöfð- ingjanum Benedikt Jónssyni á Kirkjubóli, sem þótti bera af öðrum mönnum í sjón og reynd. Benedikt Guðbrandsson stundaði nám í Möðruvallaskóla en tók að öðru leyti þátt í atvinnulífi þeiiTar tíðar, var m.a. við hákarlaveiðar á Gjögri og er haft fyrir satt, að þá hafi hann fengist við að kenna skip- verjum ensku í landlegum. Árið 1894 stofnar hann heimili og byrjar bú- skap á Smáhömrum með konu sinni Elínborgu í skjóli móður sinnar og stjúpa. Varð þeim þríggja barna auð- ið og var Þórdís yngst þeirra, fædd 4. feb. 1902. Það sama ár um haustið varð heimilið fyrir þeirri þungu sorg að Elínborg veiktist og dó aðeins 32 ára að aldri. Var þess þá skammt að bíða að heimili þeirra leystist upp. Þau Björn og Matthildur tóku elsta barnið Jónatan og Þórdísi í fóstur, hann sjö ára og Dísu á fyrsta ári, en Borghildur ólst upp á vegum Guð- jóns á Broddadalsá og foreldra hans Brynjólfs Jónssonar og Ragnheiðar Jónsdóttur, sem var afasystir Borg- hildar. En Benedikt festi ekki lengur yndi í átthögunum. Hann fór til Am- eríku og ílentist þar, mót von manna, sem töldu víst að hann kæmi fljót- lega aftur. Systkinin, þau Þórdís og Jónatan, ólust upp í stórum hópi barna og ÞORDIS BENEDIKTSDÓTTIR unglinga þar sem guðs orð og góðir siðir voru hafðir í heiðri. Húsbænd- urnir máttu ekkert aumt sjá og létu ekki staðar numið við töku fóstur- barna fyrr en þau voru orðin átta. En fyrir áttu þau Björn og Matthild- ur þrjú börn á unglingsaldri, Guð- björgu, fyrstu konu Ásgeirs Ásgeirs- sonar, kaupmanns í Reykjavík, Matthildi, er átti Jón H. Jónsson sparisjóðsstjóra frá Tröllatungu, og Guðbrand, er kvæntist Ragnheiði Guðmundsdóttur frá Ofeigsfirði og bjó á Heydalsá. Þó að reglusemi væri mikil á þessu menningarheimili var þar oft líf og fjör eins og gjarnan vill verða þar sem margt æskufólk er saman komið. En við húslestra sátu allir hljóðir og hlustuðu og eins þeg- ar Vigdís Björnsdóttir, móðir hús- bóndans, stytti börnunum stundir með því að segja þeim sögur. Þá röð- uðu þau sér þétt í kringum hana og vildu ekki missa af neinu orði. En Vigdís kunni ógrynnin öll af sögum og kvæðum og sagði vel frá. Þegar þau Bjöm og Matthildur brugðu búi árið 1926 ráku þau systk- inin, Jónatan og Þórdís, búið um skeið þar til Karl Aðalsteinsson, bróðursonur Björns, kvæntist Þór- dísi og tók við jörðinni árið 1932. Það kom fljótt í Ijós eftir að ungu hjónin tóku við búsforráðum að þau ætluðu sér ekki að láta merkið falla, sem gert hafði garð þeirra frægan á sinni tíð. Karl var harðduglegur maður. Jafnframt búskapnum stundaði hann sjósókn á vélbátum fram á miðja öld- ina og annaðist fiskmóttöku og salt- fiskverkun fyrir Kaupfélag Stein- gi'ímsfjarðar eins og Björn Halldórs- son hafði áður gert. Og Þórdís varð sama fyrirmyndar- húsfreyjan og Matthildur, amma hennar, hafði verið, sem hún kallaði ætíð mömmu sína og þótti afar vænt um. Heimilishaldið einkenndist af snyrtimennsku, gesti’isni og um- hyggjusemi. Þórdís var dökkhærð, fríð og tíguleg kona og bai’ mikla persónu þótt hún væri fremur lág- vaxin. Hún hafði sérstaklega skýran og þægilegan málróm og bar gott skynbragð á íslenska tungu. Og vai’la var sá galgopi til sem leyfði sér klúrt orðbragð í návist hennar. Þeim Karli varð tveggja barna auðið. Þau eru Björn Hilmar, f. 30. des. 1931, bóndi á Smáhömrum, kvæntui’ Matthildi Guðbrandsdóttur frá Heydalsá, og Elínborg, f. 10. sept. 1936, húsmóðir í Stykkishólmi, gift Helga Eiríkssyni rafverktaka. Oft lá leið okkar í Heydalsárfjöl- skyldunni að Smáhömrum, enda er það næsti bær að austanverðu. Mér er minnisstætt hvað þau Karl og Þórdís sýndu þeim Birni og Matt- hildi mikla nærgætni og umhyggju og hvernig þau bjuggu blindu gamal- mennin undir nætursvefninn með hlýju viðmóti og viðeigandi orðum. Mér fannst sú athöfn bæði lofsverð og falleg. Á betri umönnun fyi’h’ elli- móða vai'ð ekki kosið. Björn varð áttatíu og tveggja ára gamall, en Matthildur náði eitt hundrað og tveggja ára aldri og hafði verið blind í 26 ár þegar hún dó 17. jan. 1950. Þegar tímar liðu varð Karl Aðal- steinsson landsþekktur fyrir þann árangur sem hann náði í sauðfjár- ræktinni og sama má segja um þá Björn Hilmar, son hans, og Guð- brand, sonarson Karls og Þórdísar. Þeii’ feðgar hafa allir verið samtaka um að rækta og bæta jörðina, stækka túnin og reisa nýjar bygg- ingar, þannig að Smáhamrar eru nú í fremstu röð jarða í Strandasýslu hvað byggingar og ræktun snertir. Áttræð missti Þórdís mann sinn árið 1982, er Karl var 74 ára að aldri. Hefur fráfall hans verið henni þung- bær raun, því að þau voru mjög sam- rýnd. Um nokkurt skeið átti hún áfram heimili á Smáhömrum, en flutti síðan til Elínborgar, dóttur sinnar, og Helga Eiríkssonai’ í Stykkishólmi og átti þar ánægjulegt ævikvöld. Með Þórdísi er fallin frá ein af merkustu konum Strandasýslu. Ást- vinum hennar sendum við hjónin innilegar samúðarkveðjur. Kæra frænka. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, (V. Briem.) Torfi Guðbrandsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.