Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 58

Morgunblaðið - 12.11.1998, Side 58
FIMMTUDAGUR 12. NOVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR A-B 75-85 tai38-44 stcing 38-42 Kynbundið mis- rétti í tómstunda- og íþróttastarfí VERULEGRAR mismununar gætir milli kynja í tómstunda- og íþróttastarfsemi hér á landi. Þarf ekki annað en að líta til umfjöllun- ar fjölmiðla í þeim efnum. Sú skýr- ing er oftast nefnd að karlar séu virkari en konur og áhugi almennings sé meiri á íþróttum karla en kvenna. Slík skýr- ing tekur engan veginn til róta vandans sem margir telja að mótist af gamalgrónum við- horfum. Þau viðhorf koma fram í minni hvatningu og stuðningi við kvenkyns iðkendur íþrótta. Hér er þörf á skilningi á aðstæðum og vilja til breytinga í átt til jafnræðis. Aðstöðumunur kynja Á liðnu sumri urðu töluverðar umræður um aðstöðumun kynja til þátttöku í knattspyrnu og öðrum íþrótta- greinum. Landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu tjáði sig skýi-t og greinilega um þessi mál í fjölmiðl- um og lagði áherslu á að minna fé væri varið til íþrótta kvenna en karla. Til þess mætti meðal annars rekja minni þátttöku kvenna í íþróttum og lakari árangur. Nú ný- lega varð uppi fótur og fit þegar það fréttist að Skáksamband ís- lands hefði ákveðið að greiða fyrir þátttöku drengja í skákmóti er- lendis en ekki íýrir þátttöku stúlkna í sama móti. Sú umræða leiðir hugann að því hvort ekki sé nauðsynlegt að setja í lög eða regl- ur ákvæði þess efnis að fjárfram- lögum opinberra aðila til æsku lýðs-, tómstunda- og íþróttamála skuli skipt þannig að fyllsta jafn- ræðis sé gætt milli kynja. Víða erlendis hefur verið unnið markvisst að breyttri stefnu með auknum stuðningi við konur í íþróttum og hafa slíkar aðgerðir tvímælalaust skilað árangri. Dæmi um slíkt er átak Norðmanna í kvennaíþróttum á árunum 1984-1986 er þeir vörðu jafnmikl- um fjármunum til uppbyggingar landsliða karla og kvenna í hand- knattleik. Það skilaði sér í stór- bættum árangri kvennalandsliðs- ins á alþjóðlegum mótum næstu ár á eftir. Reglur um fjárframlög Undirrituð hefur ásamt Guðnýju Guðbjörnsdóttur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að settar verði reglur er kveði á um að við veitingu fjármuna opinberra aðila til æskulýðs-, tómstunda- og íþróttastarfs skuli gætt jafnræðis milli kynja. Konur á Alþingi hafa margsinnis Bryndís Guðmundsdóttir A-B-C 75-90 tai38-44 string 38-42 553 3600 áður sýnt vilja sinn til að stuðla að breytingum í þessum efnum með flutningi þingsályktunartillagna og fjölda fyrirspurna. Má þar nefna tillögur um eflingu íþróttaiðkunar kvenna og um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna. Á síðasta þingi lagði Kristín Halldórsdóttir fram íýrirspurn um fjár- framlög til íþrótta- starfsemi, m.a. um hvort sett hefði verið skilyrði af hálfu ríkis- ins um jafnræði milli kynja við nýtingu fjár- framlaga til íþrótta- mála. I svarí mennta- málaráðherra kom fram að á íjárlögum hefðu ekki verið sund- urgreind framlög til karla annars vegar og kvenna hins vegar og segir það sína sögu. I skýrslu nefndar sem fjallaði um stefnumótun um íþróttir stúlkna og kvenna er að finna margar góðar tillögur sem vænlegar eru til að Kvenkynsiðkendur íþrótta, segir Bryndís Guðmundsddttir, eiga á brattann að sækja í flestu tilliti. rétta hlut kvenna á þessu sviði. Meðal tillagna nefndarinnar var eftirfarandi: a) Allur stuðningur, fjármagn og aðstaða, sem ríki og sveitarfélög veita til íþrótta, skiptist hlut- fallslega jafnt á milli karla og kvenna. b) Þeir sem fá slíkan stuðning, fjármagn og aðstöðu sýni fram á að skiptingin sé sem jöfnust. c) Eftirlit verði með skiptingu fjármagnsins, t.d. mætti festa ákvæði þess efnis í íþróttalögum eða í lögum ISI. Því miður náði efni þessarar til- lögu ekki inn í endurskoðun íþróttalaga á síðasta þingi. Sjálfsagður réttur stúlkna og kvenna Með tilliti til umræðu í samfélag- inu mætti ætla að fyrir hendi væri skilningur og vilji til jafnræðis en staðreyndir tala sínu máli. Kven- kyns iðkendur íþrótta eiga á bratt- ann að sækja í flestu tilliti. Þeirra ástundun nýtur ekki sömu virðing- ar og strákanna. Fjölmiðlar sýna afrekum þeirra lítinn áhuga, jafn- vel þó að þau séu meiri og eftir- tektarverðari. Þeim gengur erfið- lega að fá styrktaraðOa á meðan strákarnir njóta stuðnings fjár- sterkra aðila. Þær njóta engan veginn sambærilegs skilnings, stuðnings eða hvatningar. Rann- sóknir hafa staðfest jákvæð áhrif íþróttaiðkunar og æskulýðsstarfs á andlegan, líkamlegan og félagsleg- an þroska einstaklingsins. Sjálfs- myndin eflist, félagsþroskinn eykst auk þess sem heilbrigð íþrótta- og tómstundaiðkun reynist hafa ótví- rætt forvarnargildi. Kynbundið misrétti á hvergi rétt á sér og stríðir gegn tilgangi og markmið- um jafnréttislaga. Stuðningi opinberra aðila til íþrótta- og tómstundastarfs ber að sjálfsögðu að skipta jafnt á milli kynja. Þvi hafa þingkonur Kvenna- listans nú lagt fram áðurgreinda þingsályktunartillögu. Höfundur er námsráð/rjafi og situr á þingi fyrir Kristínu Hnlldórsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.