Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 B 5 FRJALSIÞROTTIR Vala sækir í sig veðrið Stökk yfir 4,40 m í Frakklandi VALA Flosadóttir, ÍR, náði sínum besta árangri í stangarstökki í tæpt ár er hún fór yfir 4,40 metra á stigamóti Alþjóða frjálsíþrótta- sambandsins í Lievin í Frakklandi á sunnudag. Vala hafnaði í öðru sæti í stangarstökkinu, næst á eftir Evrópumethafanum innanhúss, Zsuzu Zsabó frá Ungverjalandi. Ef marka má keppnina um helgina er Vala að ná sér upp úr þeim öldudai sem hún hefur verið í í vetur því stökk hennar voru vel útfærð og hraðinn í atrenunni meiri en áður. Zsabó stökk 4,45 metra af öryggi og átti tvær þokkalegar til- raunir við heimsmet innanhúss, 4,56 metra. ívar Benediktsson skrífar Islandsmet Völu er 4,44 metrar en það er jafnframt Norðurlandamet. Það setti hún fyrir rúmu ári, en síð- ast stökk Vala yfir 4,40 metra á Evrópumeist- aramótinu í Valeneia sunnudaginn 1. mars í fyrra. Aðeins er hálfur mánuður þai’ tO heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum fer fram í Japan og því er þessi árangur Völu mikilvægur fyrir sjálfstraustið áður en að því móti kemur. Þar verður líklegt að teljast að Vala verði að stökkva a.m.k. 4,40 metra til þess að blanda sér í keppni þeirra bestu á mótinu, þar sem gríðarlegar framfarir hafa átt sér stað í stangarstökki kvenna síðustu misseri. Vala fór yflr 3,95 metra í fyrstu til- raun og 4,10 metra í þeirri annairi. Þá fór hún yfír 4,20 og 4,30 metra í fyrstu atrennu og var stökk hennar yfir 4,30 vel yfir og gefur fyrirheit um að hún eigi nokkuð inni. Nokkur óheppni ríkti yfir Völu í tilraunum George bætir heimsmetið í stangarstökki EMMA George frá Ástralíu bætti eigið heimsmet í stang- arstökki kveima utanhúss á móti í Sydney á laugardag- inn. Hún stökk 4,60 metra og bætti fyrra met. ura 1 cm. Það setti hún í Brisbane 21. mars á síðasta ári. George býr sig nú undir þátttöku á heims- meistaramótinu iniianhúss um aðra helgi þar sem hún er staðráðin í að gera bet.ur en á heimsmeistaramótinu í París fyrir tveimur árum er hún varð að sætta sig við silfur- verðlaun og vera nokkuð fjarri sínu besta. hennar við 4,40 sem hún fór loks yfir í þriðju tilraun af öryggi. Þegar hækkað var upp í 4,45 metra vora Vala og Zsabó einar eftir, Zsabó fór yfir í fyrstu tilraun en greinileg þreyta var faián að segja til sín hjá Völu eftir 8 stökk og því voru 4,45 metrar henni um megn að þessu sinni. Vala stökk alls 11 sinnum á mótinu. Zsabó var hins vegar rólegri enda hafði hún ekki byrjað fyrr en í 4,20 metram og hafði aðeins stokkið fjór- um sinnum þegar kom að 4,45 metr- um. Þriðja sætið kom í hlut Elmarie Gerryts, S-Afríku, hún stökk 4,30. Vala keppir á síðasta stigamóti IAAF í Stokkhólmi á fimmtudaginn og verður það síðasta mót hennar fyrir HM. Búast má við skemmtilegri keppni á mótinu í Stokkhólmi því auk Völu og Zsabó eru þýski methafinn Nicole Humbert, Evrópumeistarinn Anzhela Balakhonova, frá Úkraínu, Þjóðverjinn Nastja Rysich, Rússinn Elena Belyakova og Elmarie Gerryts á meðal keppenda, en allar hafa þær verið að stökka 4,35 og hærra á þessu keppnistímabili. Misheppnaðar mettilraunir Auk heimsmetstilraunar Zsabó í stangarstökkinu gerðu þrír íþrótta- menn til viðbótar atlögu að heims- meti á mótinu í Lievin. Rúmeninn Gabriela Zsabó var aðeins hálfri sekúndu frá heimsmeti í 3.000 metra hlaupi kvenna, hljóp á 8.34,09 mínút- um. Maria Mutola, Mósambík, hljóp 800 metra á 1.57,06, sem er innan við einni sekúndu frá heimsmetinu. Loks gerði Eþíópíumaðurinn brosmildi, Haile Gebrselassie, misheppnaða til- raun til að slá met erkióvinar síns, Daniels Komens, á hlaupabrautinni í 3.000 metra hlaupi. Gebrselassie hljóp á 7.31,25 mínútum sem er tæp- um sjö sekúndum frá heimsmetinu. Eigi að síður vann hann öraggan sig- ur, var 11 sekúndum á undan Paul Bitok, Kenýa. I Urslit / B11 VALA Flosadóttir á góðu róli, en aðeins er hálfur mánuður þar til heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum fer fram í Japan. BLAK „ , Morgunblaðið/Golli STUDINUR fögnuðu innilega sigri í bikarkeppni Blaksambandsins á laugardaginn. Hér hefur Miglena Apostolova bikarinn hátt á loft og fyrirliðinn Ingibjörg Gunnarsdóttir og Agnes Benidiktsdóttir fylgjast með. Stúdínur bikarmeistarar fjórða árið í röð Nýju reglurn- ar tóku á taugarnar MIKIÐ gekk á í íþróttahúsinu við Austurberg á laugardaginn þeg- ar ÍS og Víkingur léku til úrslita í bikarkeppni Blaksambandsins - það gekk meira á en venjulega því leikið var eftir nýjum reglum þar sem gefið var stig fyrir hvern unninn bolta í stað þess að lið þyrftu að vinna sér sendingarrétt áður en möguleiki var á að fá stig. Fyrir vikið gekk leikurinn hratt, mistök voru á mun dýrara verði keypt en venjulega og því mun meiri bikarstemmning. Eftir að liðin höfðu unnið hvort sínar tvær hrinurnar var gripið til oddahrinu og þar hafði ÍS 16:14 sigur, vann því 3:2 og hampaði bikarnum fjórða árið í röð. Stefán Stefánsson sknfar Liðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar og hafa unnið hvort sinn leikinn sín á milli en ekki er útséð með þann þriðja vegna kærumála. Með það í huga og um leið að leikið yrði eftir nýju reglunum, var Ijóst að brugðið gæti til beggja vona og úrslit myndu velta að mestu á hvoru liðinu tækist að halda taki á taugunum. I fyrstu hrinu höfðu stúdínur for- ystu framan af en eftir fimm farsæl- ar uppgjafir Mettu Helgadóttur úr Víkingi snerist taflið við og Víkingur vann 25:22 en í næstu hrinu létu stúdínur ekki slá sig útaf laginu aft- ur og unnu 25:18. Víkingar náðu strax forystu í þeirri þriðju og héldu henni til loka í 25:21 sigri en enn snerist taflið og í fjórðu hrinunni hafði ÍS tögl og hagldir, 25:18. í úr- slitahrinunni var mikil spenna og jafnt á öllum tölum fram að 14:14 en þá gekk Stúdínum allt í haginn og þær unnu tvo næstu bolta, sem skilaði sigri því þó að lotan væri upp að 15 þurfti tveggja stiga mun til að sigra. Sáum stressið hinum megin „Við vorum rólegar og yfirvegaðar því við vissum að í nýja kerfinu voru mistök dýrkeypt og við sáum stressið magnast hinum megin á vellinum,“ sagði Ingibjörg Gunnars- dóttir, fyrirliði ÍS, eftir leikinn en hún og Miglena Apostolova voru góðar. Reyndar gengu þær til liðs við IS um jólin, Ingibjörg vai- við nám erlendis og Miglena gekk yfir í ÍS frá Þrótti. „Við erum með mikið breytt lið og það eru aðeins þrjár úr byrjunarliðinu í fyrra en við eflumst stöðugt og ætlum okkur að endur- heimta Islandsmeistarabikarinn af Víkingum í vetm-.“ Að sögn Ingibjargar er hún sátt við nýju reglurnar. „Það reynir meira á taugamar og hlutirnir ger- ast hratt, refsað er fyi'h- hver mistök, sem aftur tekur meira á taugarnar og skapar meiri spennu, ekki síst fyrir áhorfendur. í dag kom sér það vel fyrir okkur því leikurinn var erf- iðari fyrir þær þar sem þær eru eldri,“ bætti Ingibjörg við brosandi. Mistök dýr með nýjum reglum „Þetta var góður leikur og mikil spenna enda týpískur bikarleikur með fullt af mistökum þar sem stutt var á milli sigurs og taps - okkar var að tapa í dag og við tökum því þó að það sé súrt í bragði,“ sagði Hildur Grétarsdóttir, fyrirliði Víkinga, efth' leikinn. „Það skiptir sköpum að þeg- ar hvert stig er talið má lítið út af bera, mistök eru dýr og við klúðruð- um of mörgum uppgjöfum því þegar mikið er í húfi er meira stress, meira um klaufaleg mistök, sem eiga ekki að sjást og það lið sem gerir færri mistök vinnur.“ Hildur var þó ekki af baki dottin, lið hennar er efst í deild- inni og segir hún það ekki láta Is- landsmeistarabikarinn af hendi. „Nú er stefnan að vinna deildina, þai- er fyrirkomulagið öðruvísi og leikirnir lengri. Við höfum mikla reynslu, sem ætti að koma sér vel - átti reyndar að gera það í dag líka - en stressið spilaði of mikið inní,“ bætti Hildur við. Metta og Ragnhildur Einai-s- dóttir voru góðar hjá Víkingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.