Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 7

Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 7
- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 B 7 KNATTSPYRNA Reuters ossel, Marcel Desailly og Jody Morr- nenn ákaft Reuters E>g Roberto Baggio, leikmaður Inter, tir leik liðanna í Róm. Milan, hafði átt skalla að marki Cagli- ari en Villa breytti stefnu boltans, sem hafnaði í netinu. h Little boðar breyt- ingar hjá Stoke „ÞETTA voru verstu úrslit sem lið undir minni stjórn hefur orðið fyrir á tólf ára ferli mfn- um sem knattspyrnustjóri,“ sagði Brian Little eftir að Stoke hafði tapað fyrir Millwall, 2:0, á laugardaginn. Það sem Little svíður sárast er að Millwall lék aðeins með 9 leikmenn undir lokin eftir að tveimur liðsmönnum hafði veirð vísað af leikvelli. Tveimur fleiri tókst Stoke ekki að rétta sinn hlut. Lárus Orri Sigurðs- son lék ekki með Stoke að þessu sinni, þar sem hann tók út leikbann. Með þessum úrslit- um er Stoke komið í 7. sæti deildarinnar en ekki eru nema tveir mánuðir síðan það var í efsta sæti. Nú boðar Little breytingar á liðinu og segir að það verði að gera eitthvað róttækt til þess að rétta liðið við. Hann boðar að jafnvel gæti farið svo að tveir til þrír leikmenn verði seldir, en ekki er víst að það verði auðvelt þar sem takmark- aður áhugi ku vera á leikmönn- um liðsins. Little er hins vegar nauðugur sá kostur að selja vilji hann kaupa menn þar sem fjárhagur liðsins er slæmur. „Það eru of margir leikmenn að leika illa og vonast eftir því að enginn taki eftir hversu slakir þeir eru. Þessum mönn- um verð ég að gefa frí og fari ekki betur nota ég bara unga og óreynda menn. Ég verð að gera hvað sem mögulegt er til þess að koma liðinu á rétt ról á ný og koma því upp í 1. deild- ina.“ Mesta áhyggjuefni Littles er það hversu illa það gengur að skora mörk. Eftir leikinn á laugardag hefur Stoke leikið í 318 mínútur án þess að skora eitt einasta mark. Meistaraeinvígi þriggja liða NÚ stefnir ailt í að baráttan um enska meistaratitiiinn í knatt- spyrnu standi á milli þriggja liða, Manchester United, Chelsea og Arsenal. Mesti móðurinn virðist hins vegar runninn af leik- mönnum Aston Villa, þeir eru nú 10 stigum á eftir forystusauð- unum í Manchester United eftir markalaust jafntefli við Wimbledon á Selhurst Park á sunnudag í fremur tilþrifalitlum leik. Daginn áður höfðu efstu liðin þrjú unnið sína leiki, mestur glæsibragur var á 5:0 sigri meistara Arsenal á Arnari Gunn- laugssyni og samherjum í Leicester, þar sem Nicolas Anelka gerði þrennu. Eftir að hafa tryggt sér sæti í úrslitum deildabikarkeppninn- ar í síðustu viku mættu leikmenn Leicester bjartsýnir í heimsókn til meistara Arsenal á Highbury. En þeir voi'u fljótlega minntir að þeir voru ekki komnir í heimsókn til einhvers miðlungs liðs. Anelka skoraði í þrígang og Ray Parlour eins sinni áður en Martin O’Neal knattspymustjóri Leicester fékk tækifæri til þess að sötra te um leið og hann talaði yfír hausamót- um þeirra í hálfleik. Um tíma í fyi'ri hálfleik var um hreina sýni- kennslu í knattspyrnu að ræða hjá meistumnum þar sem Tony Ad- ams fékk að taka þátt í sóknar- leiknum. Dennis Bergkamp lék við hvern sinn fingur og lagði upp tvö fyrstu mörkin fyrir Frakkan unga. I síðari hálfleik var meiri ró yfir leiknum, en meistararnir héldu þó gestum sínum í heljargreipum og vom ekki á því að hleypa þeim upp á dekk. Ray Parlour innsiglaði sig- urinn á fjórðu mínútu síðari hálf- leiks og þar með gátu heimamenn slakað örlítið á og leyft varamönn- um að fá tækifæri. Arnar átt eitt skot sem ógnaði marki Arsenal lít- ið eitt en þó ekki nægjanlega til þess að markvörður enska lands- liðsins og Arsenal, David Seaman, Kvendómari á Spáni CAROLINA Domenech varð um helgina fyrsta konan til að dæma leik í efstu deild karla í spænsku knattspyrnunni. Domenech dæmdi leik Espanyol og Deport.ivo Cor- unia og komst vel frá starfi sínu. Hún hafði áður dæmt leiki í 3. deildinni og verið að- stoðardóinari í 2. deild. sæi ástæðu til þess að láta það raska ró sinni á fremur rólegum degi. „Aivsenal-liðið lék frábærlega og sýndi tilþrif sem það var þekkt fyr- ir í fyrravor," sagði O’Neal knatt- spyrnustjóri Leicester. „Að sama skapi voram við slakir. Ég vildi óska þess að geta sagt að við hefð- um verið næstbesta liðið á vellin- um, en því miður vomm við ekki nógu góðir til þess að standa undir því.“ O’Neal bar lof á frammistöðu Bergkamps í leiknum og sagði hann hafa farið á kostum. „Líklega er samt hægt að segja svipað um flesta aðra leikmer.n liðsins." Það var ekki sami glæsibragur á leik Manchester United og oft áður en það kom ekki að sök. I heim- sókn til Coventiy City nægði mark Ryan Giggs 12 mínútum fyrir leikslok til sigurs og þar með áframhaldandi veru í efsta sæti. Giggs kom inn í byrjunarlið United í fyrsta sinn í nokkum tíma vegna meiðsla. Hann hafði þó fengið smjörþefinn með því að leika lokakaflann gegn Ai'senal sl. mið- vikudag. Þá kom Dennis Irwin inn í liðið á ný eftir nokkra fjarvera. Coventry átti í fullu tré við Manchester-liðið fram eftir fyiTÍ hálfleik og Daninn vaski, Peter Schmeichel, þurfti í tvígang að taka á honum stóra sínum til þess að bjarga marki liðsins, fyrst skoti af 30 metra færi frá George Boa- teng og síðan frá Gary McAllister. „Eg vissi að þetta yrði erfiður leikur,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United. „Þess vegna er ég ánægð- ur með að fá öll stigin þótt ekki hafi frammistaðan verið merkileg og við vart fengið marktækifæri í fyi'ri hálfleik. Það er enginn hægð- arleikur að koma í heimsókn til Coventi-y og ætla sér öll stigin, það hafa leikmenn Chelsea og Liver- pool meðal annars fengið að reyna í vetur.“ Ekki vænkaðist hagur Notting- ham Forest um helgina er það fékk Chelsea í heimsókn á City Ground og eftir að flautað hafði verið til leiksloka og niðurstaðan var enn eitt tapið sagði Ron Atkinson knattspyrnustjóri Forest að sér liði eins og skipstjóranum á Titanic er hann sá fram á að skip hans var að sökkva. Gestirnir skorðu tvö fyrstu mörkin, fyrst skoraði Bjame Gold- bæk eftir sendingu Gianfranco Zola og síðan bætti Marcel Desa- illy gráu ofan á svart fyrir heimaliðið. Hollenski vændræða- pilturinn Pierre van Hooijdonk klóraði í bakkann á 40. mínútu eft- ir mistök Frank Leboeufs. Gold- bæk innsiglaði síðan sigurinn 5 mínútum fyrir leikslok. Leikmenn Forest reyndu þó hvað þeir gátu til þess að skora áður en Chelsea innsiglaði sigurinn en allt kom fyr- ir ekki. Van Hooijdonk og félagi hans í fremstu víglínu, Jean- Claude Darcheville, náðu ekki að gera sér mat úr þeim færam sem þeir fengu og eftir að Chelsea hafði innsiglað sigurinn klúðraði varamaðurinn Hugo Porfirio einu færi til viðbótar áður en flautað var til leiksloka. Lífróðui' leikmanna Charlton heldur áfram og þessa dagana miðar honum vel. Þriðju helgina í röð vann liðið og í þetta sinn á úti- velli gegn slöku liði Derby County á Pride Park. Derby, sem hafði að- eins tapað tveimur leikjum á heimavelli á leiktíðinni þegar Charlton kom í heimsókn, olli stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum, liðið lék ekki sem heild og menn lögðu sig ekki fram. Engu breytti þótt Jim Smith knattspyrnustjóri skipti Dean St- urridge og Rory Delap út af fyrir Paulo Wanchope og Lars Bohinen eftir aðeins hálftíma leik. Þeir höfðu vart endurskipulagt sveit sína þegar gestirnir skoruðu eftir að gamla brýnið John Barnes hafði gert þeim skráveifu. Hann átti síð- an hornspyrnu eftir rúmlega hálf- tíma leik sem Andy Hunt skoraði úr fyrsta mark leiksins. Martin Pr- ingles innsiglaði síðan sigurinn með þriðja marki sínu fyrir Charlton í fimm leikjum. ■ Úrslit/B10 ■ Staðan/B10 ■ NICOLAS Anelka skoraði þrennu í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni í 5:0 sigri á Leicester. Að leikslokum var Anelka gefínn bolti leiksins til minningar um áfangann. ■ ARSENE Wenger knattspyrnu- stjóri Arsenal segir að það geti dreg- ist í nokkum tíma að landi hans, Emmanuel Petit, leiki með félaginu vegna meiðsla í ökkla. Þau hafi versnað til muna við landsleik Frakka og Englendinga á dögunum og nú sé svo komið Petit gangi við hækjur og geti vart tyllt fætinum niður. ■ JAAP Stam var skipt af leikvelli í hálfleik vegna meiðsla. I hans stað kom Henning Berg. Aður hafði Stam fengið gult spjald í leiknum, það fimmta á leiktíðinni og á þar með yfir höfði sér eins leiks keppnis- bann. „Stam er lítillega meiddur og ég vil ekki taka neina áhættu vegna leiksins við Internazionale eftir ell- efu daga og því ákvað ég að gefa honum frí í síðari hálfleik,“ sagði Alex Ferguson eftir leikinn við Coventry. ■ LEICESTER hefur ekki unnið í síðustu þrettán heimsóknum sínum á Highbury, þar hafa leikmenn liðsins tapað 11 af þessum 13 viðureignum. ■ MARTIN O’Neal knattspyrnu- stjóri hefur samþykkt munnlega nýj- an samning við Leicester, sem tryggir honum áframhaldandi starf á Filbert Street til vorsins 2002. Samningurinn verður undirritaður á næstu dögum. ■ JOHN Gregory hefur í hyggju að bjóða 4 milljónir punda í Alan Stubbs, varnarmann hjá Ceitic, en tveir varnarmanna Aston Villa eru meiddir og leika ekki á næstunni, það eru Ugo Ehiogu og Gareth Southgate. Leeds mun einnig hafa áhuga á Stubbs en hann lék með Bolton áðui- en hann var seldur til Celtic. ■ COLIN Todd knattspyrnustjóri Bolton segir að þrátt fyrir að hann hafi selt Amar Gunnlaugsson frá fé- laginu verði framherjar liðsins, Bob Taylor og Dean Holdsworth, að standa sig í stykkinu, annars verði þeim skipt út fyrir Eið Smára Guðjohnsen, sem verði brátt tilbúinn að veita þeim harða samkeppni um sæti í liðinu. ■ GUÐNI Bergsson lék ekki með Bolton í 0:0 jafntefli við Birmingham á útivelli á sunnudaginn. Bolton er nú í öðru sæti 1. deildar og Todd knattspyrnustjóri segir að hann telji möguleika vera á að skáka Sunder- land úr fyrsta sæti deildarinnar áður en yfir lýkur í vor. ■ HERMANN Hreiðarsson var með Brentford sem vann 4:2 sigur á Rotherham á útivelli en sigurinn var kærkominn eftir rysjótt gengi liðsins í 3. deildinni síðustu vikur. ■ SIGURÐUR Jónsson var hins vegar ekki með Dundee United í 3:0 heimasigri á Aberdeen í skosku úr- valsdeildinni. ■ CARLOS Aguir verður þjálfari Atletico Madrid í einhvern tíma til viðbótar eftir að félaginu tókst ekki að ná samkomulagi við Daniel Passarella fyrii' helgina. Passarella sagði þegar upp úr slitnaði að ásteyt- ingarsteinninn hefði verið lengd samningsins, hann hefði viljað gera langan samning en félagið hefði ekki verið tilbúið til þess. ■ STEPHANE Dalmat leikmaður fi'önsku meistarana Lens hefur verið orðaður við AC Milan eftir því sem franska íþróttablaðið L’Equipe greindi frá á sunnudag. Dalmat er aðeins tvítugur og eitt mesta efni sem fram hefur komið í franskri knattspyrnu um nokkurn tíma. ■ HENRIK Larsson skoraði 4 mörk í 7:1 sigri Celtic á Motherwell í skosku úrvalsdeildinni. Þar með hef- ur Larsson skorað 31 mark fyrir Celtic á leiktíðinni en liðið er í öðru sæti deildarinnar, 10 stigum á eftir Rangers.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.