Morgunblaðið - 28.02.1999, Page 20

Morgunblaðið - 28.02.1999, Page 20
20 SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson INGVAR Kristinsson, framkvæmdasijóri hugbúnaðarfyrirtækisins Hugvits, Baldur Johnsen, forstöðumaður upplýsingasviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur og Niels Chr. Nielsen, forstöðulæknir á skurðlækningasviði SR, hafa unnið að uppbyggingu sjúkraskrárkerfis. Skiptir miklu að upplýsingar séu tiltækar FYRIR nokkrum árum var mis- jafnt hvemig læknaritarar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur færðu sjúkraskrárupplýsingar. Sumir vélrituðu upplýsingamar á þar til gerð eyðublöð, en aðrir vom tölvu- væddir. Tölvumar vora hins vegar notaðar á sama hátt og ritvélar. „Það skiptir miklu að sjúkraskrár- upplýsingar séu tiltækar þegar á þarf að halda og það voru þær ekki,“ segir Niels Chr. Nielsen, forstöðulæknir á skurðlækninga- sviði SR, sem hefur unnið að tölvu- væðingu á sjúkrahúsinu ásamt Baldri Johnsen, forstöðumanni upplýsingasviðs sjúkrahússins og Ingvari Kristinssyni, fram- kvæmdastjóra hugbúnaðarfyrir- tækisins Hugvits. Árið 1995 var ákveðið að útrýma ritvélunum, tölvuvæða læknaritara og tengja þá saman á skipulegan hátt. „Við vissum að uppbygging sjúkraskrárkerfís gat kostað hund- ruð milljóna króna, svo við ákváð- um að leita ódýrari lausna," segir Niels. „Við byrjuðum á að setja upp Lotus Notes kerfi sem til- raunaverkefni á skurðlækninga- sviði árið 1996.“ Baldur segir að sjúkraskrá sé ekkert annað en safn af skjölum. „Tölvukerfí, sem heldur utan um sjúkraskrár, þarf að vera auðvelt í notkun fyrir alla þá sem þurfa að nota gögnin. Granneining í Lotus Notes kerfínu er skjal með ýmsum eiginleikum, svo kerfíð hentar mjög vel tíl verkefnisins. Eftir að verkefnið komst á skrið var skurð- lækningasviðið fljótlega komið með Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefur verið byggt upp tölvukerfí með sjúkraskrárupplýs- ingum og því hægur vandi fyrir starfs- fólk að nálgast nauðsynlegar upp- lýsingar um sjúk- linga. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við þá sem best þekkja til og komst að því að kerfíð býð- ur upp á ýmsa möguleika. ágætar upplýsingar inn í tölvukerf- ið, sem vora færðar inn jafn óðum.“ Saga sjúklings rakin Allir ritarar Sjúkrahúss Reykjavíkur, hátt í 70 talsins, nota sjúkraskrárkerfið, sem og allir sérfræðingar, deildarlæknar og aðstoðarlæknar, um 140 manns. Hægt er að opna sjúkraskrá eftir kennitölu, nafni, deild á sjúkra- húsinu, nafni læknis eða dagsetn- ingu. Þegar sjúklingur er fundinn er hægt að lesa hvenær hann lagð- ist inn á sjúkrahúsið, á hvaða deild, hvaða rannsóknir og að- gerðir voru gerðar, hver stofnaði fyrst til skrárinnar, hver breytti henni og á hvaða hátt og hverjir hafa lesið hana. Skránum er ekki hægt að breyta án þess að um- merki sjáist. Ef læknis leiðréttir t.d. upplýsingar í sjúkraskrá getur hann ekki eytt fyrri útgáfu henn- ar, heldur geymist hún eins og sú leiðrétta. Læknir getur setið við skjáinn og beðið um ýmsar rannsóknir á sjúklingi og þegar niðurstöður era komnar getur hann skoðað þær í tölvunni. Þá er hægt að kalla upp ýmis eyðublöð Tryggingastofnunar og fylla þau út, en enn sem komið er þarf að prenta þau og senda til Tryggi ngastofnunar. Hins vegar styttist í beinh'nutengingu við stofnunina. Niels segir að grannur vinnunn- ar sé gamall, skráning sjúkraskrár og ritun læknabréfa. „Ein stærsta hindranin sem við þurftum að yfir- stíga var þó ekki fólgin í tölvukerf- inu, heldur að fá notendur þess til að skilja að þeir hefðu ekki val um eyðublöð. Þetta gekk reyndar ótrú- lega vel.“ Ingvar segir að tugir eða hundr- uð mismunandi eyðublaða hafi ver- ið í umferð. Þar af hafí menn haft val um 15 eða 20 mismunandi út- Upplýsingakerfi sjúkrahúss Kostnaðargreining Fjárhags-, stjórnunar- og rekstrarupplýsingakerfi _J_ Vefviðmót og gagnasafnskerfi : j u i—i—i—i—i 1 h~t o> ■3 Ul I •§ p> a> ‘E Í I ■§ 1 co S. ■S I c S, S> c s 1 2 ■§ o> c >o CD ■§ I c & s> c !p I cu I .</> s <S) I co I co 1 I CD' i •o Q. gáfur af læknabréfum. „Okkur tókst að koma þessu inn í eitt form á skömmum tíma.“ Læknar fengu áhuga á ritarakerfinu Vegna góðrar reynslu skurð- lækningasviðs af kerfinu fengu aðrar deildir áhuga á að nýta sér það. Baldur bendir á, að yfirleitt sé kostnaðarsamt og tímafrekt að kenna fólki á ný kerfí, en þetta sé svo einfalt í notkun að ekki hafí þurft mikla kennslu. Ingvar segir ástæðuna þá, að í kerfinu sé hægt að endurspegla eyðublöð; þau birt- ist í raun á skjánum. „Viðmótið er það sama og fólk þekkti frá papp- írsgögnum, en hins vegar þarf ekki að eyða miklum tíma í að rita inn ýmsar grannupplýsingar, eins og nafn, kennitölu og fleira.“ Kerfið var upphaflega hugsað sem vinnuumhverfi læknaritara en áhugi lækna á að nýta sér það vaknaði fljótlega, enda sáu þeir að hægt var að nálgast gögnin hvar sem var í húsinu, í stað þess að hlaupa á milli deilda eftir skjala- bunkum. „Þegar við áttuðum okk- ur á þessum áhuga þurftum við að fara að huga að því að setja reglur um hverjir mættu hafa aðgang að gögnunum," segir Baldur. Framkvæmdastjórn sjúkrahúss- ins setti upp vinnuhóp, sem mótaði reglur um aðgang að kerfinu, haustið 1997, tæpu ári áður en um- ræða um að sjúkragögn lægju á glámbekk skaut upp kollinum, eins og Baldur bendir á. „Síðasta vor skilaði vinnuhópurinn tillögum, þar sem skilgreint er nákvæmlega hvaða aðgang hver starfsstétt hef- ur. Þetta var lykilatriði til að geta haldið áfram að þróa kerfið. Við höfum farið fram á að fjárveitinga- valdið tryggi fjármuni, svo hægt sé að útfæra kerfið á sem tryggastan hátt, í samræmi við þessar reglur. Við þurfum að breyta tölvukerfum Sjúkrahúss Reykjavíkur til að geta tímasett aðgang ákveðinna starfs- stétta og fleira í þeim dúr. Núna eru ýmis kerfi í gangi, fyrir röntgendeild, rannsóknadeildir, apótek og fleira. Þessi kerfi þurfa að vinna saman og sjúkraskrár- kerfið er í raun bara toppurinn á þessu öllu.“ Niels segir að nú sé unnið að því að tengja kerfi saman. „Við veltum þessu fyrir okkur á alla kanta, en duttum svo ofan á þá lausn að nota

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.