Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 1
55. TBL. 87. ARG.
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
j Morgunblaðið/Brynjar Gauti
í sól og snjó í Skálafelli
Serbneskir harðlínumenn
í Bosníu hóta hemaði
Sar^jevo. Reuters.
• •
Ofgafull um-
hverfísvernd
ÆTLA mætti, að myndin af Jesú með app-
elsínusneið yfir höfði sér í stað árunnar
væri nútímalistaverk en svo er ekki. Hún
er liður í áróðursherferð bandarískra um-
hverfísverndarsamtaka, PETA, sem berj-
ast fyrir „siðlegri meðferð á dýrum“ og
meðal annars gegn kjötáti, sem þau líkja
við mannát. Á annarri áróðursmynd er því
haldið fram, að Jesús hafi verið græn-
metisæta og á enn öðrum eru sýndar kýr
við guðsþjónustu. Þar er kjötáti jafnað við
morð og fólk hvatt til að neyta aðeins
grænmetis. Ætla samtökin að auka þenn-
an áróður um allan helming um páskana
og hafa reynt að fá til liðs við sig ýmsa
leiðtoga kristinna samtaka í Bandaríkjun-
um. Bandaríkjamenn vilja vera miklir um-
hverfisverndarmenn en nú fínnst mörgum
mælirinn vera orðinn meira en fullur. Eru
margir því reiðir hvernig samtökin nota
og eigna sér Jesú sjálfum sér til fram-
dráttar.
Færeyingar óánægðir
Þreyttir á
norskri áreitni
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYINGUM fínnst yfirgangur Norð-
manna gagnvart færeyskum sjómönnum
keyra svo úr hófi, að Anfínn Kallsberg,
lögmaður Færeyja, hefur farið fram á sér-
stakan fund með norskum yfirvöldum til
að ræða málið.
„Það er nú orðið þannig, að Norðmenn
eru orðnir okkar mestu fjendur. Þeir gera
allt til að hrella okkur, eru stöðugt um
borð í skipunum og að standa í samninga-
viðræðum við þá er hreinasta martröð,"
sagði Jákup Sólstein, formaður í félagi
færeyskra útgerðarmanna. Hefur hann
lagt til, að Færeyingar geri norskum skip-
um í færeyskri lögsögu sömu skil.
Færeyingar hafa leyfi fyrir nokkur skip
innan norsku lögsögunnar en þeir segjast
verða þar fyrir beinum ofsóknum. Norsku
eftirlitsmennirnir séu eins og gráir kettir
um borð og fyrir um hálfum mánuði var
færeyska togaranum Vesturvón skipað að
sigla til hafnar þar sem útgerðin var sekt-
uð um nokkur hundruð þúsunda króna.
Sökin var sú, að aflinn var of mikill, innan
við eitt tonn umfram.
Önnur gildi
Kallsberg segir, að ólíku sé saman að
jafna, viðskiptunum við íslendinga og
Norðmenn. Norðmenn gefi aldrei eftir
einn einasta þumlung en Færeyingar hafi
aftur á móti notið vináttu Islendinga árum
saman. Við ísland hafi þeir fengið að
veiða án nokkurs endurgjalds.
„Það er eins og það séu allt önnur gildi í
gangi í samskiptum okkar við íslendinga
en Norðmenn," sagði Kallsberg.
HARÐLINUMENN í Serbneska lýðveldinu
í Bosníu hafa hótað að grípa til vopna og
verja bæinn Brcko en alþjóðlegur dómstóll
hefur úrskurðað, að hann skuli vera hlutlaus
og heyra hvorki undir Serba né sambands-
ríki Króata og múslima í Bosníu. Serbar,
sem líta á Brcko sem nauðsynlega tengingu
milli austur- og vesturhluta Serbneska lýð-
veldisins, lögðu bæinn undir sig í Bosníu-
stríðinu og drápu og ráku burt króatíska og
múslimska íbúa hans.
Mikil ólga er í Serbneska lýðveldinu eftir
að Carios Westendorp, eftirlitsmaður Vestur-
veldanna í Bosníu, rak harðlínumanninn
Nikola Poplasen úr embætti forseta en hon-
um er gefið að sök að hafa hunsað niðurstöð-
ur kosninganna í september og kynt undir
óróa. Þegar svo úrskurðurinn um Brcko var
kynntur, sagði hinn hófsami Milorad Dodik,
forsætisráðherra lýðveldisins, af sér embætti.
Áfall fyrir Milosevic
Þing Bosníu-Serba hefur verið kvatt sam-
an til skyndifundar í dag, sunnudag, en
serbneskir harðlínumenn, sem láta sig enn
Segjast munu verja yf-
irráð sín í Brcko
dreyma um stórserbneskt ríki, hafa hótað að
grípa til vopna á ný til að verja yfirráð sín
yfir Brcko.
Vestrænir embættismenn segja, að ákvörð-
un Westendorps um að reka Poplasen og úr-
skurðurinn um stöðu Brckos séu
hvorttveggja áfall íyrir Slobodan Milosevie,
forseta Júgóslavíu, en hann hefur verið sak-
aður um að stýra serbnesku harðlínumönnun-
um í Bosníu á bak við tjöldin. Er það sérstak-
lega dómurinn um Brcko, sem gerir draum-
inn um Stór-Serbiu erfiðan í framkvæmd.
Hóta hefndum
Javier Soiana, framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, sagði á föstudag,
að herlið þess í Bosníu væri við öllu búið en
ljóst er, að spennan milli þess og Serba fer
vaxandi. Talsmaður friðargæsluliðsins sagði
á fóstudagskvöld, að einn hermanna þess
hefði brugðist við í sjálfsvöm og skotið vopn-
aðan Serba, sem ráðist hefði á hann á veit-
ingahúsi.
SRNA, fréttastofa Bosníu-Serba, og
Tanjug, júgóslavneska fréttastofan, sögðu,
að maðurinn hefði verið Krsto Micie, vara-
formaður Róttæka flokksins, flokks Poplas-
ens og harðlínumanna, í bænum Ugljevik.
Sagði Tanjug, að flokksmenn hefðu hótað að
hefna dauða hans.
Talsmaður friðargæsluliðsins sagði, að
NATO-hermaðurinn hefði skotið í sjálfsvörn
er 14 vopnaðir Serbar hefðu ráðist á hann og
þrjá aðra hermenn á veitingahúsi skammt
frá búðum rússneskra gæsluliða í Ugljevik.
Ekki var tekið á stöðu Brcko í Dayton-
samningunum, sem bundu enda á Bosníu-
stríðið, en sambandsríkin tvö í Bosníu, Serb-
neska lýðveldið og sambandsríki Króata og
múslima, gera bæði kröfu til borgarinnar.
Dodik, sem nú hefur sagt af sér sem forsæt-
isráðherra í Serbneska lýðveldinu, harmaði
úrskurðinn en Alija Izetbegovic, fulltrúi
múslima í forsætisnefnd Bosníu, fagnaði
honum en með fyrirvara þó. Sagði hann úr-
skurðinn vera illskásta kostinn.
Engin lægð
svo djúp
Flaga 30
tekur flugið
Vilja vernd
en deila um leiðir
Fœrandi fiendi