Morgunblaðið - 07.03.1999, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 17
Með Landnámu inn í 21. öldina
CJkesilegur aldamótabæklingur Landnámu er komínn út.
Náttúruvænar ævíntýraferðír fram til ársíns 2001
Ævintýraferðin til Ekvador, Galapagoseyja
mi og í Amasón regnskóginn endurtekin 17. október.
Aöeins 10 sæti laus.
£]& Minnesota - Náttúruparadís fyrir fjölskylduna.
' Dvöl í sumarhúsum í vatnalandinu Ely.
Hundasleðaferö til Grænlands með Ara Trausta 10. apríl.
/x Metnaðarfullar menningarferðir í sumar til Eistlands,
Lettlands og Litháens, Grikklands, Frakklands og Spánar.
Náttúruvænar aldamótaferðir til Madagaskar og Máritíus,
||p: Patagóníu og Eldlands og til Papúa - Nýju Gíneu.
Með Síberíuhraölestinni um Rússland, Mongólíu og Kína.
-
Nepal og Tibet
páskaferðin 26. mars.
Nokkur sæti laus.
§
~ r-s Nepal- og Tibetfarar athugið!
^ 7 Ferðakynning í Norræna Húsinu
á mánudagskvöld kl. 20: 30.
. V Ari Trausti kynnir ferðina
í máli og myndum
Allir velkomnir.
ERLEJ\DAR
BÆKUR
Spennusaga
UNDARLEGIR HLUTIR
„PECULIAR THINGS"
eftir Tam Hoskyns. Penguin Books
1999. 249 síður.
TAM Hoskyns heitir nýr breskur
spennusagnahöfundur sem vert er
að veita nokkra athygli. Hún hefur
einungis sent frá sér tvær bækur og
er því rétt að byrja að feta sig áfram
á spennusagnasviðinu. Hún býr í
London og hefur reynslu af vinnu í
sjónvarpi og á leiksviði en íyrsta
skáldsaga hennar heitir „The
Talking Cure“. Bók hennar númer
tvö heitir Undarlegir hlutir eða
„Peculiar Things“ og kom út fyrr á
árinu í vasabroti hjá Penguin-útgáf-
unni. Breskir bókagagnrýnendur
hafa hrósað Hoskyns fyrir hversu
leikin hún er í því að segja sögur og
skapa andrúmsloft óróleika og
spennu og það er svo sem ekki of-
sögum sagt. Undarlegir hlutir er
óvenjuleg spennusaga, skemmtilega
samin og full af óvæntum krókum og
. kimum sem forvitnilegt er að
skyggnast um.
Sigurður
Orlyggson
sýnir í
SPRON
OPNUÐ verður sýning á málverk-
um Sigurðar Örlygssonar í dag,
sunnudag, kl. 14, í útibúi SPRON í
Mjódd.
Sigurður Örlygsson fæddist í
Reykjavík 28. júlí 1946. Hann nam
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1967-1971,
við Den Danske
Kunstakademi
1971-1972 og hjá
Richard Morten-
sen við Art Stu-
dents League of
New York
1974-1975.
Sigurður hefur
Sígurður haldið fjölda
Örlygsson einkasýninga,
bæði innanlands
og erlendis, og má sem dæmi nefna
sýningar á Kjarvalsstöðum 1978,
1986, 1988 og 1990, sýningar í ýms-
um galleríum í Reykjavík, Konung-
legu akademíunni í Stokkhólmi og
Gallery Persons og Lindell í
Helsinki 1989, The Iceland Gallery í
Haag 1991, Shad Thames Gallery
London 1993, Gallery Valery
London 1994, Listasafni Kópavogs
1996 o.fl. o.fl.
Pá hefur Sigurður einnig tekið
þátt í fjölda samsýniga heima og er-
lendis s.s. The Rostock Biennal og
Galleríi Sóloni íslandusi 1976 og
1986,17 íslenskir málarar Þórshöfn,
Færeyjum 1984, Icelandic Art Köln
og Dusseldorf 1990, Norðanvindur,
Casa Golferich, Barcelona 1992,
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
1995, á heimssýningunni í Sevilla á
Spáni 1997, 6 samsýningum hjá
FIM, vinnustaðasýningum auk
fjölda annan’a samsýninga.
Sigurður tók þátt í að styrkja
American Scandinavian Foundation
með gerð Ólympíufána 1993, kenndi
við Myndlista- og handíðaskólann
1980-1990 og 1994, vann ýmis
nefndarstörf hjá FIM og var for-
maður þess í eitt ár. Þá var hann
stofnandi og meðeigandi Gallerís
Sólons íslanduss 1976-1978 og Gall-
erís Gangskarar 1986, starfaði í op-
inberum dómnefndum vegna list-
skreytinga, var þátttakandi í lokaðri
samkeppni um veggskreytingu í
Ráðhúsi Reykjavíkur 1991, fékk
menningarverðlaun DV 1988. Hann
hefur unnið við uppsetningu u.þ.b.
50 myndsýninga fyrir aðra og notið
starfslauna frá íslenska ríkinu.
Sýningin mun standa til 9. júlí og
verður opin mánudaga til föstudaga
á þeim tíma sem útibúið er opið, kl.
9.15-16.
Undarleg fjölskyldumál
ímyndun og veruleiki
Umfjöllunarefni Hoskyns í nýju
sögunni er fjölskyldan og þeir und-
arlegu hlutir sem geta átt sér stað
innan fjölskyldu sem á yfirborðinu
virkar ósköp venjuleg, hvað sem það
nú annars er. Hún er um feðraveldi
sem er misnotað, ofbeldi og ótta og
sár sem menn bera með sér þangað
til þeir þola ekki meira. Hún er um
leyndarmál, erfðafé, sjálfsmorð og
jafnvel morð, um framhjáhald og
brjálæðislega ofsóknarkennd kon-
unnar sem reynir að fletta ofan af
öllu saman. Hún er kasólétt í þokka-
bót og því viðkvæmari en ella og
ekki er ólíklegt að hún sé að ímynda
sér allt heila klabbið.
Það er á hinni þunnu línu milli
ímyndunar og raunveruleika sem
Tam Hoskyns lætur sögu sina ger-
ast og lesandinn getur í rauninni
engu treyst, sem eykur enn á áhrif-
in. Sögumaðurinn er kona að nafni
Na. Hún er kasólétt og að því er
virðist ekki alltaf heil á geðsmunum.
Maðurinn hennar, Jack, fremur
sjálfsmorð í byrjun sögunnar og
henni til mikillar furðu er hún allt í
einu orðinn eigandi að stórhýsi í
nærliggjandi sveitahéraði, sem var í
eigu fjölskyldu mannsins. Hún
ákveður að kynnast húsinu og ná-
grenni áður en hún tekur ákvörðun
um hvað hún geri við það.
Þegar hún kemur á staðinn eru
bræður mannsins hennar þar fyrir,
Max, sem er einhleypur og hefur bú-
ið erlendis lengi, og Neil, sem er
kvæntur Láru. Jack var elstur
bræðranna og létu foreldrarnir, sem
báðir eru látnir, því húsið renna til
hans og þannig lenti það í eigu Na
þegar hann lést. Svo virðist sem
bræðurnir séu ekki á því að hún fái
arfinn baráttulaust.
Það gæti þó bara verið ímyndun í
Na, sem sannfærist um að setið sé
um líf hennar og barnsins. Hún
heyrir líka ókennileg hljóð í húsinu
og einhvern tíma sýnist henni að
Neil og Lára séu að burðast með lík-
ið af Max. Lögreglan virðist ekki
taka neitt mark á henni og loks er
hún lögð inn á geðsjúkrahús.
Hoskyns lýsir því vel hvernig of-
sóknarkenndin þrengir smám sam-
an að sögumanninum og lokar hann
inni í sínum eigin ruglingslegu og
óskiljanlegu hugleiðingum um hljóð
og sýnir og grunsemdir sem bland-
ast saman við óttann um að barnið
verið tekið frá henni; sjálf er hún
tökubarn. Sagan hefur marga góða
kosti sem spennusaga; athyglisverð-
ar persónur, sem leyna á sér til góðs
eða ills, óvægna fortíð er gæti verið
lykillinn að gátum sem fram eru
settar, algjört bjargarleysi sögu-
manns.
Allt kemur þetta heim og saman í
spennandi sögu Tam Hoskyns, sem
lætur vonándi ekki deigan síga.
Arnaldur Indriðason