Morgunblaðið - 07.03.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 27
FRÉTTIR
tók ekkert mark á ákærða um að
tilgangur ferðarinnar hefði verið sá
að leggja að henni að mæta fyrir
dóminn, enda var ákærða ljóst að
ráðstafanir höfðu verið gerðar af
hálfu dómara, lögreglu í Kaup-
mannahöfn og á Islandi til að fá
vitnið fyrir dóminn og var aðalmeð-
ferð frestað í eina viku eingöngu í
því skyni að yfirheyra Patriciu.
Um framburð eins aðalvitnis
ákærða í málinu, íslendings sem
býr í Kaupmannahöfn, segir dóm-
urinn m.a. að hafi verið með ólík-
indum og frásögn hans lítt trúverð-
ug, svo ekki sé fastara að orði kveð-
ið.
Framburður mannsins
að engu hafandi
Dómarar tóku það fram í dómi
sínum að framburður eins íslensks
vitnis vegna myndarinnar væri að
engu hafandi, en vitnið sagðist hafa
séð umrædda mynd í júlímánuði
1994 í Gallerí Borg. Þótti dómurum
vitnisburðurinn skrýtinn þar sem
vitnið kvaðst ekki hafa vitað um
hvaða spurningar yrðu lagðar fyrir
hann í yfirheyrslunni, en gat samt
um það borið á örfáum andartökum
að einmitt umrætt verk hefði hann
séð í júlímánuði rúmum fjórum ár-
um áður. Vitnið, sem kom fram af
hálfu ákærða, upplýsti ekki fyrr en
dómarar gengu hart að honum, að
hann og ákærði hefðu staðið saman
að uppboðum á Akureyri, m.a. að
uppboðinu 21. maí 1995.
Starfsmaður Bruun Rasmussen
upplýsti í lögregluskýrslu að
ákærði hefði verið á uppboðinu 18.
ágúst 1994, boðið í tvö umræddra
verka og keypt þau.
Einn eða tveir kaupendur?
Dýrasta verkið, „Páskaliljur"
(Nature morte med frugter og Nat-
ure morte med blomster), sem selt
var á 473 þúsund krónur, var metið
af sérfræðingum á líkan hátt og
hinai’ myndirnar. Verkið var hins
vegar keypt á rúmar 40 þúsund
krónur á uppboði í Kaupmannahöfn
og þótti dómurum framburður
ákærða um kaup myndarinnar
óstöðugur og ótrúverðugur og að
hann hefði borið úr og í um það
hvort hann eða viðskiptafélagi
hans, búsettur í Danmörku, hefði
keypt myndina. Viðskiptafélaginn
staðfesti það að hann hefði boðið
símleiðis í myndina ásamt annarri
mynd og var reikningurinn settur á
ákærða til að ákærði fengi endur-
greiddan söluskatt vegna útflutn-
ings myndanna, en einstaklingar
búsettir í Danmörku þurfa hins
vegar að greiða hann.
I dóminum sagði að ekki yi’ði
fullyrt um hvor þeirra hefði keypt
„Páskaliljur", en þegar litið væri til
ótrúverðugs framburðar þein’a og
tengsla þeirra, sem væru meiri en
þeir vildu vera láta, þótti sannað að
ákærði hefði tekið þátt í kaupum
myndarinnar og að hann hefði tekið
fullan þátt í sölu hennar í blekking-
arskyni sem og hinna myndanna
tveggja.
Akærði áfrýjaði dómi héraðs-
dóms og bíður niðurstöðu Hæsta-
réttar. Málskostnaður og skaða-
bótakrafa nema samtals tæpum 2,4
milljónum króna að svo komnu
máli, sem ákærði þarf að greiða.
Eldur í eld-
húsinn-
réttingu
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kallað út vegna bruna á Karlagötu á
föstudagskvöld.
Kviknað hafði í út frá feitispotti og
hafði eldurinn læst sig í eldhúsinn-
réttingu. Ibúar höfðu náð að slökkva
eldinn þegar slökkviliðið kom á vett-
vang en þurftu að flýja út vegna mik-
ils reyks. Slökkviliðsmenn
reykræstu íbúðina.
ÍUm klukkan 7 að morgni laugar-
dags var slökkvilið á ný kallað út til
að reykræsta íbúð við Laugaveg. Þar
hafði pottur gleymst á eldavél og
mikill reykur myndast.
MARANTZ SR39
Útvarpsmagnari
MARANTZ CD 38
Geislaspilari
2 frábærir Títan
hátalarar frá Paradigm
Pottþétt hijómgæði!
HLJOMSYN
HLJÚUTÆKIr H E I U A B I ÓY G £ I S L A D I S K A fí
Ármúla 38 - Sími 588-5010
Faxafeni 5 » 108 Rvk » Simi:588-8477
TILGANGURINN í LÍFI ÞÍNU
NÁMSKEIÐ HELGINA 20.-21. MARS
Ferðalag inn á við, með það að markmiðið að kanna hver
er tilgangur þinn í lífinu og stóri draumurinn, svo þú getur
skapað þér líf sem veitir þér fyllingu, hlaðið af þeirri lífs-
gleði sem nærir sálina.
Gitte Lassen, sími 551 1573.
í miklu úrvali
Suöurlandsbraut 10 sími 568 6499
www.poulsen.is
Morgunverðarfundur á Hótel Sögu
Miðvikudaginn 10. mars 1999, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal Hótels Sögu
ER SAMKEPPNIFRAMUNDAN
í ORKUMÁLUM?
• Hafa stjórnvöld markað framtíðarstefnu í orkumálum?
• Hvenær verður komið á samkeppni í vinnslu, dreifingu og sölu orku?
• Er nauðsynlegt að breyta rekstrarformi orkufyrirtækja?
• Verður eignarhaldi orkufyrirtækja breytt á næstu árum?
• Munu breytingar skila betra verði og þjónustu til neytenda?
FRAMSÖGUMENN: ___________________________________________________
' " N
Finnur Ingólfsson, iönaöar- og viðskiptaráðherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðumesja
V________________________________________________
Að loknum framsöguerindum geta íúndarmenn komið á ftamfæri fyrirspumum eða
komið með athugasemdir.
Fundargjald (morgunveröur innifalinn) kr. 1.500,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirftam í síma 510 7100 eöa
bréfasíma 568 6564 eða meö tölvupósti mottaka@chamber.is.
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
4