Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 40
^40 SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
MiNNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN JÖRGENSSON
kennari,
dvalarheimilinu Sæborg,
Skagaströnd,
áður til heimilis
í Grænumýri 15, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju á Akureyri
mánudaginn 8. mars kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga.
Ingibjörg Björgvinsdóttir, Steindór Haraldsson,
Böðvar Björgvinsson, Ástríður Andresdóttir,
Margrét Björgvinsdóttir, Sigurvin Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
HÖRÐUR SIGURJÓNSSON,
er lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 25. febrúar sl.,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 9. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Reykjalund.
Hulda Harðardóttir,
Erla Harðardóttir,
Hörður Þórðarson,
Arnar Þórðarson,
Svava Björg Þórðardóttir,
Anna Rós Þórðardóttir,
Meyvant Meyvantsson,
Þórður Walters,
Elva Bergsteinsson,
Björnstad,
Tiffany Patton,
Sigurður F. Meyvantsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR BRAGI STEFÁNSSON
húsasmíðameistari,
Þinghólsbraut 77,
Kópavogi,
lést mánudaginn 1. mars, verður jarðsunginn
frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 10. mars
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd.
Sigurveig Jónsdóttir,
Jón Sigurðsson, Sólrún Ástþórsdóttir,
Hallsteinn Sigurðsson, Erla María Vilhjálmsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Árni Ólafsson,
Stefán Bragi Sigurðsson,
Guðrún Halldóra Sigurðardóttir, Reynir Ásmundsson
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ANDRÉS KRISTJÁN GUÐLAUGSSON
húsasmíðameistari,
Langholtsvegi 48,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöidi mánu-
dagsins 1. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 11. mars kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Vinafélag Sjúkra-
húss Reykjavíkur eða hjúkrunarþjónustuna Karitas.
Pálína Júlíusdóttir,
Júlíus Hafsteinsson, Ingibjörg Richter,
Rannveig Andrésdóttir, Sveinn Finnbogason,
Björg Andrésdóttir, Einar H. Einarsson,
Þorleifur Andrésson, Ragnheiður Valgarðsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
SIGURÐAR ÓLAFS MARKÚSSONAR
skipstjóra,
Lautasmára 1,
áður Skógargerði 5.
Ásta K. Árnadóttir,
Árni Ó. Sigurðsson, Sigríður Hjaltested,
Sigurður M. Sigurðsson, Ágústa E. Þorláksdóttir,
Ásta Lára Sigurðardóttir, Kjartan Kjartansson
og barnabörn.
HELGA JÓNÍNA
MAGNÚSDÓTTIR
vinnumaður hjá þeim hjónum. Þá
kynntist ég Helgu betur og fann að
hún var ekki bara stolt og virðuleg
kona heldur einnig afar hlý mann-
eskja. Búskapurinn var rekinn af
reisn af þeim hjónum. Það voru
margir sem nutu dvalar á heimili
þeirra hjóna. Vinnufólk þeirra var
jafnframt heimilisfólk þeirra.
Frá því Helga varð tengdamóðir
Mörtu systur minnar hef ég notið
þess að eiga áfram tengsl við Blika-
staðafólkið. Ég vil þakka þau tengsl
um leið og ég og kona mín sendum
innilegar kveðjur til Sigsteins og
fjölskyldu. Guð blessi minningu
Helgu Magnúsdóttur.
Gunnar Sigurðsson.
Kynni mín og fjölskyldu minnar
af Helgu Magnúsdóttur á Blikastöð-
um hófust síðla sumars 1973 en þá
var nýtt hús okkar í byggingu í
Mosfellssveit. Við höfðum selt íbúð
okkar í Kópavogi og leitaði ég þá
íbúðar til leigu um 3-4 mánaða
skeið en ætlan þeirra Blikastaða-
hjóna var að leigja til lengri tíma.
Er Helga heyrði um aðstæður og að
fjölskyldan væri með þrjú lítil börn
ákváðu þau hjón að leigja okkur og
urðu Blikastaðir samastaður okkar
framundir jól, þegar flutt var í nýtt
hús. Hjá Helgu og Sigsteini á Blika-
stöðum áttum við dásamlegar
stundir þann tíma sem við vorum
þar og gleymist það aldrei.
Þessi afstaða Helgu Magnúsdótt-
ur til fjölskyldunnar sem var á
hrakhólum með börnin sín mun að-
eins hafa verið spegilmynd af henn-
ar lífssýn og afstöðu hennar til
bama og unglinga alla tíð og reynd-
ar allra sem minna máttu sín. - Hún
stóð vörð um velferð og sálarheill
ungmenna þegar á bjátaði hjá þeim
og var ávallt sterkust stoðin þegar
erflðleikar knúðu sem fastast að
dyrum.
Helga Magnúsdóttir og Sigsteinn
Pálsson bjuggu í 50 ár á Blikastöð-
um og eignuðust tvö börn, Magnús
og Kristínu. Jörðin var kostamikil
og búið stórt, mannmargt þar og
mjög gestkvæmt, enda jörðin í þjóð-
braut bæði fyrr og nú. Helga lét sig
miklu varða félagsstörf og afkastaði
þar gífurlegu starfi í viðbót við
annasamt heimili. Hún sat í skóla-
nefnd Mosfellshrepps árin
1950-1958, kjörin í hreppsnefnd
1954-1962 og oddviti seinna kjör-
tímabilið. Var hún síðasti oddviti
Mosfellshrepps, sem hafði öll störf
nánast á einni hendi, en kjörtímabil-
ið þar á eftir var ráðinn sveitarstjóri
í fullt starf. - Helga var formaður
Kvenfélagasambands íslands
1963-1971, hún var í Kvenfélagi
Lágafellssóknar, varð þar heiðurs-
félagi og einnig Kvenfélagasam-
bands fslands.
Helga var í stjórn Ungmennafé-
lagsins Aftureldingar í nokkur ár og
mun hún hafa gengið í félagið 1919,
þá þrettán ára gömut. í sjötíu ára
afmælisriti Aftureldingar frá 1979
má lesa frásögn hennar úr starfi
UMFA frá þessum tíma, sem nefn-
ist „Ur sjóði minninganna" og má
geta þess hér að frásögnin mun
birtast í nýju afmælisriti sem teng-
ist 90 ára afmæli UMFA 11. apríl
nk.
Nú þegar komið er að leiðarlok-
um þessarar mikilhæfu konu, sendi
ég og fjölskylda mín hjartanlegar
samúðarkveðjur til Sigsteins,
Magnúsar, Kristínar og fjölskyldna.
Gylfi Guðjónsson.
Helga Jónína Magnúsdóttir frá
Blikastöðum er látin 92 ára að aldri.
Helga var kosin í hreppsnefnd Mos-
fellssveitar 1954 og endurkjörin
1958 og sat í hreppsnefnd til 1962.
Helga tók við oddvitastörfum í
ágústmánuði 1958 og gegndi þeim til
loka þess kjörtímabils. Helga var
ein af fyrstu konum til að gegna
ábyrgðarstörfum fyrir sveitarfélag
hér á landi. Var hún síðasti oddviti
hreppsins sem hafði öll störf á eigin
hendi áður en hreppurinn fékk
skrifstofu og sveitarstjóra, en af-
greiðslan var þá í anddyri Félags-
heimilisins Hlégarðs þar sem hún
tók á móti bæjarbúum. Helga var
vel menntuð kona, nam við Kvenna-
skólann í Reykjavík og stundaði síð-
an verslunarnám við Köbmands-
skolen í Kaupmannahöfn. Skólamál
voru þvi Helgu alla tíð mjög hugleik-
in og sat hún í skólanefnd Mosfells-
sveitar 1950-1958. í oddvitatíð sinni
beitti Helga sér fyrir byggingu
Varmárskóla, sem tekinn var í notk-
un 1961 og leysti úr brýnni þörf á
skólahúsnæði á þeim tíma. Helga
beitti sér einnig fyrir því að fjár-
munir fengust til byggingar Varm-
árlaugar og var hafin bygging henn-
ar í oddvitatíð Helgu. Sagði hún mér
ekki alls fyrir löngu að það sem hún
væri ánægðust með úr sínu oddvita-
starfi væri að hafa fengið fjármuni
frá ríkinu til að byggja sundlaugina,
en það hefði tekið margar hringing-
ar niður á Alþingi til þess að fá það í
gegn. Helga beitti sér fyrh' því að
jörðin Varmá var leyst úr ábúð.
Hafði lengi staðið í deilum milli ábú-
enda og sveitarfélagsins því vilji
sveitarstjórnarinnar stóð til þess að
byggja upp skólamannvirki á jörð-
inni í hjarta sveitarfélagsins. Það
tókst og í dag prýða jörðina helstu
skóla- og íþróttamannvirki bæjar-
ins.
Helga var virkur þátttakandi í fé-
lagslífi í bæjarfélaginu. Hún sat í
stjóm Ungmennafélagsins Aftureld-
ingar í Mosfellssveit nokkur ár, var
formaður Kvenfélagasambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu 1948—
1964, og formaður og heiðursfélagi í
Kvenfélagi Lágafellssóknar. I við-
tölum mínum við eldri Mosfellinga,
sem búið hafa hér í áratugi, hefur
Helga alltaf verið vel látin í öllu
starfi og gjörðum og sýnt af sér
höfðingsskap, einkum þegar einhver
hefur verið í nauðum staddur. Þessi
ummæli segja mikið um mannkær-
leika hennar. Ég varð þeirrar
ánægju aðnjótandi að kynnast
Helgu í gegnum störf mín sem bæj-
arstjóri. Þar fór ljúf og indæl kona
sem vildi láta gott af sér leiða.
Blessuð sé minning hennar.
Ég vil færa eftirlifandi eiginmanni
Helgu, Sigsteini Pálssyni, og fjöl-
skyldu þeirra mínar innilegustu
samúðarkveðjur við fráfall hennar.
Jóhann Sigurjónsson, bæj-
arsljóri í Mosfellsbæ.
Langi-i og farsælli ævi er lokið.
Helga á Blikastöðum hefur kvatt,
elskuleg eiginkona, móðir og
heilladísin hans frænda míns. Nafn
hennar tengist Blikastöðum í hugum
allra, sem kynntust henni, en þar
var hún húsmóðir frá árinu 1942 er
þau hjónin, hún og Sigsteinn Páls-
son frá Tungu í Fáskrúðsfirði, tóku
við búi að fóður hennar látnum.
Magnús faðir Helgu fluttist frá
Vesturhópshólum í Húnavatnssýslu,
ekkjumaður með tvær ungar dætur,
Sigurbjörgu og Helgu. Margrét
móðir hans fylgdi honum suður til
Reykjavíkur til að annast litlu syst-
urnar.
Magnús keypti Blikastaði í Mos-
fellssveit og töldu margir að hann
veldi sér þar ekki góðan kost, þar
sem þessi jörð var talin með léleg-
ustu kotum í sveitinni, bæði að hús-
um og ræktunarskilyrðum. En
Magnús var framsýnn og breytti
þessu koti í stórbýlisjörð.
Síðari kona Magnúsar var Ki-istín
Jósafatsdóttir frá Holtastöðum í
Laugardal. Hún gekk dætrum
Magnúsar í móðurstað og veit ég að
Helga unni henni sem móður. Sam-
an gerðu þau Blikastaði að einu
mesta stórbýli landsins.
Helga ólst upp á Blikastöðum og
mikið var gaman að heyra hana
segja frá ýmsu sem gerðist á þeim
árum; það var ævintýri líkast í eyr-
um okkar Tungusystkina.
Hún var afburða námsmaður, út-
skrifaðist frá Kvennaskólanum í
Reykjavík og stundaði síðar nám við
Kpbmandsskolen í Kaupmannahöfn.
Þaðan útskrifaðist hún með glæsi-
legum vitnisburði eftir eins árs nám.
Að því loknu hóf hún skrifstofustörf
hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur,
Mjólkursamlagi Kjalarnesþings og
Mjólkurstöðinni í Reykjavík og vann
þar í tíu ár, til ársins 1941.
Þegar Helga og Sigsteinn tóku við
búskapnum á Blikastöðum var orðin
mikil breyting á kotinu, sem Magn-
ús keypti forðum, og hér var ekki
látið staðar numið. Helga og Sig-
steinn bjuggu við rausn alla tfð og
bættu enn jörðina.
Blikastaðir voru landsþekkt stór-
býli og þangað var gjarnan komið
með útlenda tignargesti, sem áhuga
höfðu á að kynnast því sem fremst
var í íslenskum landbúnaði. Þegar
Lyndon B. Johnson, varaforseti
Bandaríkjanna, var hér á ferð ásamt
konu sinni og dóttur kaus frúin að
fara í heimsókn á sveitabæ. Þá var
leitað til Helgu á Blikastöðum og
tók hún á móti frú Johnson sem
dvaldi hjá henni í sóma og yfirlæti
meðan tími gafst.
Eitt sinn voru hér á ferð norræn
ungmenni að kynna sér íslenskan
landbúnað. Var Gísli Kristjánsson
ritstjóri umsjónarmaður þessa hóps
og fór fram á það að mega koma í
Blikastaði. Honum þótti víst farið
fram á fullmikið, þar sem hann var
með 120 manns. En Helgu fannst
sjálfsagt að veita öllum beina og svo
var veitinga notið ekki aðeins inni
heldur einnig úti í garði í góðu veðri
öllum til mikillar ánægju.
Helga var eftirsótt til félagsstarfa
svo sem kunnugt er. Hún var mjög
virk í ungmennafélagi sveitarinnar,
kvenfélaginu og Kvenfélagasam-
bandi Islands. Þar var hún formaður
1963-1971. Þá veit ég að hún bauð
fulltrúum á þingi sambandsins heim
og hélt þeim rausnarlegt matarboð
með glæsilegum borðbúnaði og
smekklegri framreiðslu. Fleiri störf
hafði Helga á hendi, einkum fyrir
sveit sína, en hún var bæði í skóla-
nefnd og hreppsnefnd um árabil.
Hún var síðasti oddviti hreppsins,
sem sinnti því starfi að fullu áður en
hreppurinn fékk skrifstou og sveit-
arstjóra. Öll þessi störf rækti Helga
með sóma.
Sigurbjörg systir Helgu er látin.
Hún var gift dönskum manni, Þor-
keli Hansen. Börn þeirra eru tvö,
Jóna og Nils. Mjög kært var með
þeim systi-um og vinátta með börn-
um Sigurbjargar og Helgu.
Hlýja og góðvild Helgu náði til
fleiri en systurbarna hennar. Þegar
frændi minn fór alfarinn frá Tungu
var hans sárt saknað af öllum, ekki
síst okkur bróðurbömum hans. Það
gleymist ekki hvílíkur fognuður
fylgdi heimsóknum hans til okkar og
þó sérstaklega, þegar kann kom
með Helgu með sér. Hún vann hug
og hjarta okkar allra með elsku
sinni og allri framkomu. Og þegar
við fórum að sækja skóla suður og
vorum langdvölum hjá systrum
pabba og Stefáni bróður hans heim-
sóttum við Helgu og Sigstein
hvenær sem tækifæri gafst. Ég
minnist allra góðu stundanna með
innilegu þakklæti og veit að svo er
um marga fleiri. Og nú að leiðarlok-
um þakka ég Helgu fyrir hönd okk-
ar allra Tungusystkina allt, sem hún
gerði fyrir okkur frá fyrstu kynnum
og bið guð að launa henni.
Helga og Sigsteinn eignuðust tvö
börn, Magnús og Kristínu. Magnús
er bútækniráðunautur hjá Bænda-
samtökum íslands. Hann er kvænt-
ur Mörtu Sigurðardóttur og eiga
þau fjögur böm. Kristín er kennari
að mennt, gift Grétari Hanssyni og
eiga þau þrjá syni. Allt er þetta efni-
legt og gott fólk. Auk þessara af-
komenda eru svo barnabarnabörnin,
sem hafa verið umvafin ást
langömmu og langafa og eru nú að
vaxa upp til að verða nýtir þjóðfé-
lagsþegnar.
Frændi minn, sem nú syrgir og
saknar, mun huggast við dýrmætar
minningar frá liðnum hamingjudög-
um.
Þú sæla heimsins svala lind
ó, silfurskæra tár,
er allri svalar ýta kind
og ótal læknar sár
(K.J.)
Guð blessi ástvini Helgu og þerri
tár þeirra.
Með innilegri samúð.
Elínborg Gunnarsdóttir
frá Tungu.