Morgunblaðið - 07.03.1999, Page 64
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
s
Agæt loðnu-
veiði við
" Stokksnes
Flugferðum til Fær-
eyja verði fjölgað
ÁGÆT loðnuveiði var aðfaranótt
laugardagsins við Stokksnes. Að
sögn Sturlu Þórðarsonar, skip-
stjóra á Berki NK, glæddist veiðin
þegar dimma tók á föstudagskvöld
og gengu veiðarnar vel fram undir
morgun en í birtingu lögðust
loðnutorfurnar á botninn. Börkur
var með fullfermi, 1.800 tonn, á
leið til löndunar á Norðfirði þegar
rætt var við Sturlu í gærmorgun,
laugardag. Börkur er í eigu Sfld-
arvinnslunnar hf. í Neskaupstað.
Samkvæmt upplýsingum tilkynn-
ingaskyldu íslenskra fiskiskipa
, „ voru þá 33 Ioðnuskip skráð úti.
1 ’ Mörg voru á siglingu að eða frá
miðunum því fáir bátar voru eftir
við Stokksnes samkvæmt upplýs-
ingum skipstjórans á Berki. Mynd-
in var tekin á föstudag þegar
loðnuskipin biðu úti af Hornafirði
eftir að loðnan yrði veiðanleg.
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra og Finnbogi Arge, ferðamála-
og samgönguráðherra Færeyja, vilja
fjölga flugferðum milli landanna og
gera ísland að viðkomustað Færey-
inga á leið til Bandaríkjanna og
Færeyjar að viðkomustað Islendinga
á leið til Danmerkur.
Halldór, sem nú er í opinberri
heimsókn í Færeyjum, Birgir
Þorgilsson, fyrrverandi formaður
Ferðamálaráðs, og Kristján Júlíus-
son, bæjarstjóri á Akureyri, funduðu
í gær með Finnboga og Magna Arge,
forstjóra færeyska flugfélagsins Atl-
antic Airways.
„Við ræddum með hvaða hætti
hægt væri að auka samskipti land-
anna með gagnkvæmum viðskiptum,"
segir Halldór. „Sérstaklega ræddum
við það að beina því til Atlantic og
Flugfélags Islands hvort hægt væri
að setja sér það sem fyrsta mark að
fjölga ferðum milli Islands og
Færeyja í fimm á viku yfír sumarið
og þrjár yfír veturinn. I framtíðinni
mætti jafnvel stefna að því að hafa
þessar ferðir á hverjum degi.“
Færeyingar tengist
Ameríkuflugi Flugleiða
Halldór segir að Ijóst sé að
stopular ferðir milh landanna standi
ferðaþjónustu og viðskiptum þeirra á
milli fyrir þrifum. „Meðal annars
hafa Færeyingar áhuga á því að geta
tengst Ameríkuflugi Flugleiða frá
Keflavíkurflugvelli og með sama
hætti myndu tíðari ferðir opna mögu-
leika á þvi að farþegar með Flugleið-
um gætu komið við í Þórshöfn á leið
sinni til Kaupmannahafnar."
Halldór segir að rætt hafí verið
um að bjóða inætti íbúum á lands-
byggðinni á íslandi upp á sérstök
kjör á ferðum til Færeyja. „Ég hef
talað við Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóra Flugfélags Islands,
um þessi mál og hann hefur áhuga á
því að flugfélögin komi að því, í sam-
vinnu við stjómvöld, að reyna að
auka ferðatíðnina milli Islands og
Færeyja."
Halldór segist hafa rætt við
Færeyingana um það að ástæða væri
til þess að láta gera sérstaka rann-
sókn á því hvemig hægt sé að auka
ferðaþjónustu og samskipti landanna.
Opinbemi heimsókn Halldórs til
Færeyja lýkur í dag.
Árásar-
maðurinn
handtekinn
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók á tólfta tímanum í gærmorgun,
laugardag, 18 ára pflt, sem grunað-
ur er um að hafa ráðist á leigubíl-
stjóra í Grafarvogi á föstudags-
kvöld.
Pilturinn var handtekinn í húsi
við Rósarima í Grafarvogi og er
hann grunaður um að hafa veitt
leigubílstjóra á sextugsaldri
áverka á hálsi með eggvopni og
stolið peningaveski hans.
Lögreglan leitaði hans ákaft írá því
að atvikið átti sér stað og fram á há-
degi á laugardag og beitti m.a. leitar-
hundi. Málið er í rannsókn.
Kristinn Björnsson
Sárast að
valda von-
brigðum
KRISTINN Björnsson, skíða-
maður frá Ólafsfirði, segir um
gengi sitt í svigkeppni heims-
bikarsins í vetur að sárast sé
að valda vonbrigðum, því
hann vildi svo gjarnan gera
betur. Þetta kemur fram í ít-
arlegu viðtali við Kristin í
Morgunblaðinu í dag.
Kristinn sló eftirminnilega í
gegn á heimsbikarmóti í Park
City í Bandaríkjunum í nóv-
ember 1997, náði þá óvænt
öðru sæti. Skömmu síðar end-
urtók hann leikinn á heims-
bikarmóti í Sviss, en síðan þá
hefur lítið gengið í keppni
þeirra bestu.
Allar áætlanir brugðust
„Það er vissulega skemmti-
legra þegar vel gengur, en
þetta er líldega lexía sem mér
er ætlað að ganga í gegnum,“
segir Kristinn í viðtalinu þeg-
ar hann ræðir um vonbrigði
vetrarins. „Allar áætlanir
okkar Hauks [Bjamasonar
þjálfara] hafa brugðist, það er
ekkert hægt að leyna því. En
mikilvægast er að halda haus
og berjast áfram - það er eng-
in lægð svo djúp að maður
komist ekki upp aftur.“
■ Engin lægð svo djúp/22
Hátæknifyrirtækið Flaga hf. ráðgerir að fjölga starfsmönnum verulega vegna aukinna umsvifa
Selur tæki sín til
um þrjátíu landa
FORSVARSME NN hátæknifyrir-
tækisins Flögu hf. sjá fram á stór-
aukna framleiðslu á rannsóknar-
tækjum þeim sem fyrirtækið byggir
starfsemi sína á. Helgi Kristbjarn-
arson, stofnandi Flögu hf., segir í
viðtali i sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins að árið 1997 hafi fyrirtækið
selt alls 10 tæki en nú liggi fyrir
pöntun frá einu fyrirtæki upp á alls
* ' 25 tæki og þannig sé útlit fyrir stór-
aukna framleiðslu.
Upphaf Flögu hf. er rakið til tæk-
isins Emblu, sem notað er við svefn-
rannsóknir, en út frá sömu hug-
mynd hafa síðan önnur tæki verið að
þróast, svo sem tæki til að mæla
heilarit, hjartarit og til annarra
J^æknisfræðilegra rannsókna. Að
sögn Helga eru yfirleitt samsvar-
andi tæki til á markaðnum, en Flaga
leggi sig fram um að gera sín tæki
fullkomnari og fyrirferðarminni.
„Nú erum við til dæmis að velta fyr-
ir okkur tækjum vegna þvagfæra-
vandamála og öðrum tækjum til að
mæla astma hjá börnum og öndun
hjá nýburum til að koma í veg fyrir
ungbarnadauða," segir Helgi.
Að sögn Helga er vöxturinn í fyr-
irtækinu slíkur að hann gerir ráð
fyrir að starfsmönnum muni fjölga
úr 35 eins og nú er, upp í mörg
hundruð, ef allt gangi samkvæmt
áætlun. „Við erum með margar mis-
munandi vörur, sem tengjast ekki
bara svefnrannsóknum og því getur
framleiðslan orðið mjög mikil í
framtíðinni. Við ætlum okkur að
verða eitt öflugasta fyrii-tækið í
þessum geira.“
Kynna tæki til lungnalækninga
Flaga hefur selt framleiðsluvörur
sínar til um 30 landa og segir Helgi
að þær séu í notkun á flestum
þekktustu svefnrannsóknarstofum
heims. I framhaldi af samvinnu við
bandaríska fyrirtækið ResMed, sem
nýverið keypti 10% hlut í Flögu,
segir Helgi að lögð verði áhersla á
að kynna tækin næst fyrir lungna-
læknum, sem eru umsvifamestir í
hroturannsóknum og mun stærri
markhópur en þeir sem stunda
svefnrannsóknir.
I samtalinu keinur fram að nú
hafi tvö fyrirtæki í heiminum mark-
aðsforskot á Flögu. „Við erum þó
alltaf að draga á þau, enda enim við
tæknilega með fullkomnustu vöruna
og forritið okkar er það öflugasta.
Nú þegar við erum komnir með
ResMed sem samstarfsaðila tel ég
líklegt, að við náum að verða mark-
aðsleiðandi á þessu ári, a.m.k. ekki
síðar en á því næsta.“
■ Flaga/30