Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Augnlæknafélags Islands hófst í gær GUÐLEIF Helgadóttir hjúkrunarfræðingur fjailaði um augnsjúkdóminn aldursbundna hrörnun í augnbotnum, sem er algengasta orsök blindu hjá fólki eldra en 50 ára hér á landi, en margt bendir til þess að sjúkdóm- urinn sé ættgengur. Morgunblaðið/Ásdís AÐALFUNDUR Augnlæknafélagsins hófst í gær en um 50 manns sóttu fundinn. Dagskráin held- ur áfram í dag og hefst klukkan 9 en lýkur um klukkan 16. Sjúkdómur sem veldur blindu ættgengur FYRSTU niðurstöður rannsóknarverkefnis um augnsjúkdóminn aldursbundna hrörnun í augn- botnum (AMD) benda til þess að hann sé ættgeng- ur, en sjúkdómurinn er algengasta orsök blindu á íslandi hjá einstaklingum 50 ára og eldri. Þetta kom fram á aðalfundi Augnlæknafélags Islands, sem hófst í gær í húsi félagsins í Hlíðarsmára, en um 50 manns sóttu fundinn. Rannsóknin er samstarfsverkefni augndeildar Landsspítalans og íslenskrar erfðagreiningar. Guðleif Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og verk- efnastjóri rannsóknarinnar, sagði að helstu orsak- ir sjúkdómsins væru tengdar hækkandi aldri en auk þess væri talið að um sambland gæti verið á milli erfða og umhverfísþátta. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hvort sjúkdómurinn sé ættgengur en um 1.340 manns eru í rannsóknarhópnum, 890 konur en 450 karlar. Þegar litið er á kynjahlutfallið ber að hafa í huga að meðalaldur kvenna er hærri en karla og meðalaldurinn í hópnum er í kringum 80 ár. Einstaklingarnir 1.340 hafa allir verið skyld- leikagi-eindir og kom í Ijós að þeir tengjast betur en búast mætti við ef um slembiúrtak væri að ræða. Einstaklingarnir eiga færri forfeður en al- mennt gerist og fyrstu niðurstöður rannsóknar- innar benda því til þess að um ættgengan sjúkdóm sé að ræða. Næsta skref rannsóknarinnar er hafíð en nú er leitað að meingeni eða meingenum sem valda þessum sjúkdómi, en búið er að skoða 50 einstak- linga og af þeim eru 32 með sjúkdóminn og 18 skyldmenni. Notkun bílbelta hefur áhrif á augnslys A fundinum fjallaði Haraldur Sigurðsson augn- læknir um augnslys á Islandi fyiir og eftir lögleið- ingu sætisbelta. I rannsókn Haralds kemur fram að augnslysum vegna umferðarslysa fækkaði úr 22 í 8 eftir lögleiðingu sætisbelta árið 1987. Rann- sókn Haralds spannaði 9 ár eða frá 1987 til 1995 og bar hann niðurstöður sínar saman við niður- stöður úr rannsókn Guðmundar Viggóssonar, en hans rannsókn stóð einnig í 9 ár eða frá 1971 til 1979. Sambærilegar niðurstöður er að finna úr breskri rannsókn frá 1984 en þar fækkaði slysum úr 24 í 6 eftir lögleiðingu sætisbelta. Haraldur fjallaði einnig um augnskaða vegna gleraugna sem brotna, en rannsóknin spannaði sama tíma og sætisbeltarannsóknin eða 9 ár. Á þessum 9 árum hlutu 10 manns áverka á auga vegna brotinna gleraugna og í 9 tilfellum var um alvarlegan áverka að ræða. Yfirleitt gerist þetta þannig að högg kemur á gleraugun, sem brýtur glerið, sem síðan skerst í augað. I flestum tilfellum er um gler að ræða en ekki plast, en glerið er sterkara sem veldur því að það brotnar í færri hluta en t.d. plast og er því líklegra til að valda meiri skaða á auga. í dag verður áframhaldandi dagskrá hjá Augn- læknafélaginu og hefst fyrsti fyrirlesturinn klukk- an 9. Guðrún Helgadóttir ekki meðal frambjóðenda Yinstri hreyfíngar - græns framboðs Þríeykið settist þar sem það vildi „ÉG ER auðvitað pínulítið leið, ég neita því ekki. Ég var tilbúin til að verða að einhverju liði þama,“ sagði Guðrún Helgadóttir alþingismaður þegar viðbragða hennar var leitað við niðurstöðunni um framboðslista Vinstri hreyfingar - gi-æns framboðs í Reykjavík, þar sem hún er ekki meðal frambjóðenda. Ogmundur Jónasson sagði að sér þætti miður að Guðrún hefði ekki tekið sæti á listan- um. Guðrún Helgadóttir sóttist eftir 2. sæti listans en uppstillingamefnd lagði til að fundi VG í fyrrakvöld að Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri yrði í 2. sæti, á eftir Ögmundi Jónassyni. Á fundinum kom fram til- laga um Guðrúnu í annað sætið en Guðrún dró hana baka og yfirgaf fundinn. Var tillaga uppstUlingar- nefndar að því búnu samþykkt. Aldrei verið góð í að plotta „En það er alveg ljóst að það myndaðist þríeyki, Ögmundur Jónas- son, Hjörleifur Guttormsson og Kristín Halldórsdóttir, sem beitti sér mjög í þessu máli. Þau settust þar sem þau vildu setjast með sitt fólk. Ég kann ekki svoleiðis klæki og vissi ekki fyrr en þetta var allt saman klappað og klárt. Ef einhver viðbrögð eru, þá er ég kannski svolítið undr- andi. Ég hélt satt að segja að ég gæti kannski komið að einhverju gagni, en þetta er það sem gerist í pólitík. Ég hef kannski unnið fleiri sigra en margir stjórnmálamenn, það hlaut að koma að því að ég biði ósigur. Ég hef hins vegar aldrei verið góð að plotta og aldrei komið mér upp hörðum stuðningsmannahópi innan flokksins," sagði Guðrún. „Ég hef sótt fylgi mitt til Reykvíkinga og þess vegna hefur mér alltaf gengið afskaplega vel í prófkjörum en ekki alltaf átt auðvelt innanflokks. Á þess- um fundi í gær var aðallega það fólk sem er á listanum eins og hann lítur út núna. Það kom vissulega til greina að greiða atkvæði um undirritaða, en ég bað fólk að hlífa mér við því og ég heyrði að fólk veigraði sér við að hrófla við listanum. Þarna voru m.a. konur sem hafa tapað fyrir mér hvað eftir annað í prófkjörum og þóttust ekki skulda mér neitt; ég nefni Stef- aníu Traustadóttur og Álfheiði Inga- dóttur, sem hafa um árabil barist fyr- ir þingsæti. Ég hef auðvitað verið fyrir þeim allan tímann, mér er það ljóst,“ sagði Guðrún. „En mér líður ekkert voðalega illa, - ég er kannski svolítið hissa.“ Guð- rún sagðist engin áform hafa um að segja sig úr hreyfingu Vinstri hreyf- ingar - græns framboðs. „Ég hef ekkert skipt um pólitíska skoðun og fór ekki í neinu fússi,“ sagði Guðrún og bætti við að það liti allt út fyrir að hún lyki þingferli sínum í þingflokki óháðra. Gerði kröfu um ákveðið sæti Ögmundur Jónasson sagði að það væri ekki sitt að svara því af hverju ekki hafi verið gerð tillaga um Guð- rúnu í annað sæti listans, þegar leitar var skýringa hans í gær, það væri hlutverk uppstillingarnefndar. „En mér er kunnugt um að Guðrúnu var boðið sæti á listanum og eftir því gengið við hana að hún tæki það. Sjálf gerði hún kröfu til tiltekins sæt- is og þegar ekki reyndist hljóm- grunnur fyrir því í uppstillingarnefnd varð niðurstaðan þessi,“ sagði Ög- mundur. Tók hann fram að sér þætti þetta miður enda væri Guðrún kröftugur samherji sem gott hefði verið að hafa á listanum. „Eg vona að hún verði með okkur 1 baráttunni enda óskaði hún okkur góðs gengis,“ sagði Ög- mundur. Listinn í Reykjavík Eftirfarandi framboðslisti Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík var samþykktur á fundi á fimmtudagskvöld: 1. Ögmundur Jónasson alþingis- maður. 2. Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri. 3. Hjörleifur Guttormsson alþingismaður. 4. Drífa Snædal tækniteiknari. 5. Guðmundur Magn- ússon, forstöðumaður dagvistar Sjálfsbjargar. 6. Stefanía Trausta- dóttir félagsfræðingur. 7. Óskar Dýrmundur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi. 8. Ragnar Stef- ánsson jarðskjálftafræðingur. 9. Guðrún Kr. Óladóttir, stjórnarmaður í Eflingu. 10. Percy Stefánsson, fyrrv. formaður Samtakanna ‘78. 11. Álfheiður Ingadóttir, líffræðing- ur/ritstjóri. 12. Guðrún Gestsdóttir, formaður Iðnnemasambands Is- lands. 13. Kolbeinn Proppé sagn- fræðingur. 14. Guðlaug Teitsdóttir, skólastóri Einholtsskóla. 15. Rúnar Sveinbjörnsson rafvirki. 16. Garðar Mýrdal eðlisfræðingur. 17. Elín Sig- urðardóttir prentsmiður. 18. Sig- varður Ari Huldarsson, formaður Æskulýðssambands íslands. 19. Olga Guðrún Árnadóttir rithöfundur. 20. Stefán Karlsson, kennari/stjórn- málafræðingur. 21. Herdís Jónsdott- ir, víóluleikari/leiðsögumaður. 22. Hallveig Ingimarsdóttir leikskóla- kennari. 23. Jóhannes Sigursveins- son múrari. 24. Hrefna Sigurjóns- dóttir háskólakennari. 25. Sigur- sveinn Magnússon, skólastjóri Tón- skóla Sigursveins D. Kristinssonar. 26. Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistar- maður/leiðsögumaður. 27. Sigurður Haraldsson textafræðingur. 28. Svala Helgadóttir námsmaður. 29. Sveinn Rúnar Hauksson læknir. 30. Sigurbjörg Gísladóttir efnafræðing- ur. 31. Tryggvi Friðjónsson, fram- kvæmdastj. Sjálfsbjargarheimilisins. 32. Sigríður Kristinsdóttir sjúkraliði. 33. Páll Bergþórsson veðurfræðing- ur. 34. Jón Böðvarsson íslenskufræð- ingur. 35. Ólöf Ríkarðsdóttir, fyrrv. formaður Öryrkjabandalagsins. 36. Björn Th. Björnsson listfræðingur. 37. Margrét Guðnadóttir prófessor. 38. Helgi Seljan, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins. 100 ára af- mælishátíð KFUM og KFUK KFUM og KFUK halda upp á 100 ára afmæli sitt með vegleg- um hætti í Perlunni laugardag' og sunnudag. Verður þar fjöl- breytt fjölskyldudagskrá þar sem börn og unglingar verða í aðalhlutverki. Hátíðin í Perlunni er stærsti viðburður- inn á afmælisári félaganna. Gagnvart börnunum í KFUM og KFUK er Perluhá- tíðin einnig uppskeruhátíð. Mörg þeirra hafa unnið að und- irbúningi hennar í allan vetur. Framlög þeirra eru margvís- leg: Dans, söngur, leikþættir o.fl. Arnþrúður tii Frjálslyndra ARNÞRÚÐUR Karlsdóttir verður í fyrsta sæti lista Frjálslynda flokksins á Norð- urlandi eystra í vor. Stjórn kjördæmisfélagsins á Norður- landi eystra, sem jafnframt er uppstillingarnefnd, kom saman eftir stofnfund 11. mars sl. og skoraði á Arnþrúði Karlsdótt- ur, kaupkonu í Reykjavík, að gefa kost á sér í 1. sæti í lista flokksins í kjördæminu. I til- kynningu frá flokknum kemur fram að hún hafi orðið við þeirri ósk. Arásarmál upplýst LÖGREGLAN í Reykjavík hefur upplýst að fullu árásar- málið sem upp kom í Grafar- vogi föstudagskvöldið 5. mars þegar 18 ára piltur stakk leigu- bílstjóra í hnakkann með egg- vopni og stal peningaveski hans. Pilturinn var handtekinn 1 húsi við Rósarima á laugar- dagsmorgun eftir ákafa leit lögreglu með leitarhunda. Pilturinn fer ekki í gæslu- varðhald þar sem ekki er þörf á því rannsóknarúrræði fyrst málið er upplýst og verður það því sent embætti ríkissaksókn- ara til áframhaldandi meðferð- ar í dómskerfinu. Kyoto-tillögu vísað til ríkisstjornar Þingsályktunartillaga þing- manna Samfylkingarinnar um að ríkisstjórnin_ undirriti nú þegar fyrir íslands hönd Kyoto-bókunina, bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um lofslagsbreytingar, náði ekki fram að ganga á Álþingi á fimmtudag og var henni vísað til ríkisstjórnarinnar. I áliti meirihluta umhverfis- nefndar Alþingis, sem mælti með vísun tillögunnar til ríkis- stjórnar, segir m.a. að undirrit- un Kyoto-bókunarinnar sé ótímabær. Jarðskjálfti við Krísuvík JARÐSKJÁLFTI mældist um 4 km norðaustan við Krísuvík kl. 1.02 í fyrrinótt. Styrkur skjálftans var 2,6 á Richterkvarða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.