Morgunblaðið - 13.03.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 15
Fjarkennsla við VMA komin af tilraunastigi
Mun fleiri umsóknir
en hægt er að sinna
Morgunblaðið/Kristján
ADAM Oskarsson kerfisstjóri, Haukur Jónsson skólameistari og Hálf-
dán Örnólfsson aðstoðarskólameistari.
FJARKENNSLA í Verkmennta-
skólanum á Akureyri hefur síðustu
fimm ár verið rekin sem tilrauna-
verkefni en því skeiði lauk um síð-
ustu áramót. Ætlunin er að þjónust-
an verði framvegis mikilvægur þátt-
ur í starfsemi Verkmenntaskólans.
A þessum tíma hefur starfsemin
vaxið og dafnað og stunda nú 270
nemendur nám í fjarkennslu við
skólann.
Haukur Jónsson skólameistari
sagði nokkur tímamót í fjarkennsl-
unni nú þegar hún færi af tilrauna-
stiginu, en vilyrði hefði fengist í
menntamálaráðuneytinu fyrh' því, að
auknar fjárveitingar fengjust til
verkefnisins. Alls eru nú 5 tölvustof-
ur í skólanum og nemendur hafa að-
gang að 80 til 90 tölvum. Nýlega var
öflugt tölvuherbergi tekið í notkun
við skólann eða nokkurs konar verk-
efnastofa sem ætlunin er að bjóða
fyrirtækjum og stofnunum að nýta
iyrir námskeiðshald íyrh- starfsfólk
sitt.
Haukur Agústsson kennslustjóri
fjarkennslu og öldungadeildar sagði
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. hefur leigt frystitogarann Sval-
bak EA á ný til þýska útgerðarfyrh-
tækisins Mecklenburger Hochseef-
ischerei, MHF. Sæmundur Friðriks-
son, útgerðarstjóri ÚA, sagði miðað
við að skipinu öðlist nýjan fána út
um miðjan apríl og það verði í leigu í
um hálft ár.
Sæmundur sagði að Svalbakur færi
til karfaveiða á Reykjaneshrygg á
vegum MHF í næsta mánuði. Skipið
var í leigu hjá MHF á síðasta ári en
kom til ÚA í byrjun nóvember sl.
Svalbakur hefur farið þrjá túra
fyifr ÚA frá þeim tíma og á eftir að
fara einn túr til viðbótar á vegum fé-
að vorið 1994 hefði lítil tilraun verið
gerð til að prófa hvort hægt væri að
kenna gegnum tölvur, byrjað hefði
verið á að kenna einn áfanga í ensku
og einn kennari sinnti kennslunni.
Nú væru 116 áfangar í boði og
lagsins. Svalbakur kom til Akureyr-
ar í vikunni, eftir rúmlega 30 daga
túr, og var aflaverðmætið um 53
milljónir króna. Afli upp úr sjó var
rúmlega 460 tonn en uppstaðan var
karfi og þorskur.
Kaldbakur EA, ísfisktogai'i ÚA
hélt til veiða á ný í gær, eftir að hafa
landað rúmum 160 tonnum hjá félag-
inu, mest karfa. Þá kemur ísfisktog-
arinn Árbakur EA inn til löndunar
um helgina með fullfermi, eða 120-
130 tonn, eftir vikutúr. Arbakur hef-
ur verið að gera það ágætt að undan-
förnu en skipið landaði um 70 tonn-
um á Eskifirði nýlega eftir fjögun-a
daga veiðiferð.
kennarar 48 talsins. Áður voru
kennarar eingöngu úr VMA, en nú
eru á bilinu 40 til 45% þeirra utan
skólans, m.a. er einn í Noregi. „Það
skiptir engu hvar nemendur og
kennarar eru staðsettir," sagði
RANNSÓKNARNET verður sett
upp á vegum Rannsóknarráðs fs-
lands í samvinnu við Háskóla Is-
lands og Háskólann á Akureyri.
Tilgangurinn er að efia rann-
sóknir og uppbyggingu þekking-
ar á íslandi með aukinni sam-
hæfingu og samstarfi háskól-
anna og stofnana atvinnuveg-
anna. Þetta kom fram í máli Þor-
steins Gunnarssonar, rektors
Háskólans á Akureyri, á fundi
um þekkingarbúskap og byggða-
þróun sem Rannsóknarráð Is-
lands efndi til í Háskólanum á
Akureyri í gær.
„Rökin fyrir því að reka
byggðastefnu eru efnahagsleg,
menningarleg og snúa að örygg-
ishagsmunum. En ekki síst felast
rökin fyrir því að reka byggða-
stefnu í þeirri ögrun sem felst í
því að vera Islendingur og búa
og starfa í strjálbýlu og harðbýlu
landi. Sú íjölbreytta og krefjandi
reynsla gerir Islendingum kleift
að leggja sitt af mörkum til ann-
arra þjóða. Ekki síst mun upp-
bygging þekkingarsamféiags 21.
aldarinnar við slikar aðstæður
geta orðið markvert framlag Is-
lendinga til heimsmenningarinn-
ar,“ sagði Þorsteinn og bætti við
að háskóli, sem tæki það alvar-
Iega að vinna að byggðaþróun,
þyrfti að hafa það sem stefnu að
Haukur, en til að mynda á síðasta
misseri dreifðust nemendur yfir 17
tímabelti, voru allt frá Tailandi og
að strönd Kaliforníu. Mai-gir nem-
anna eru í Evrópu og Bandaríkjun-
um, einnig í Rússlandi, Grænlandi
og Mið-Ameríku.
Að jafnaði sækja um 400 til 450
manns um nám í fjarkennslunni en
ekki er unnt að taka við nema um
250 til 270 nemendum á önn. Kennd-
ir eru áfangar til stúdentsprófs og
þegar hafa stúdentar verið braut-
skráðir frá skólanum úr fjarkennslu.
í framtíðinni er ætlunin að byggja
upp starfsgreinatengt nám, þróa
námskeiðsform í samvinnu við at-
vinnulífið og þá sagði Haukur það
sinn draum að bjóða upp á kennslu
fyrir útlendinga í íslensku og kynna
þeim menningu og sögu landsins.
Adam Oskarsson kerfisstjóri
sagði að uppbyggingin væri miðuð
við eðlilega tölvueign almennings.
„Við reynum að hafa þetta eins ein-
falt og mögulegt er svo allir eigi
þess kost að stunda námið,“ sagði
Adam.
þjóna atvinnulífi um allt land og
líta á það sem hlutverk sitt að
auka lífsgæði í landinu með því
að leggja sérstaka áherslu á
landsbyggðina.
„Þjóðarháskóli"
Um fyrirhugað rannsóknarnet
sagði háskólarektor, að sú fram-
tíðarsýn kæmi fram í stefnumót-
un Rannsóknarráðs íslands að
rannsóknarstofnanir hins opin-
bera ásamt háskóluin landsins
mynduðu sameiginlegan heild-
arvettvang, eins konar „þjóðar-
háskóla“ til þekkingaruppbygg-
ingar, vísindaþjálfunar og hag-
nýtra rannsókna. Rannsóknar-
ráð Island í samvinnu við Há-
skóla Islands og Háskólann á
Akureyri hefðu haft uin það for-
göngu að bjóða rannsóknar-
stofnunum atvinnuveganna til
samstarfs uin að setja rannsókn-
ametið á laggirnar.
Ávinningurinn gæti m.a. falið
í sér að stofnanirnar efla þekk-
ingaruppbyggingu um leið og
starfsmenn þeirra tengjast þjálf-
un nemenda í rannsóknarnámi,
háskólarnir tengjast öfiugri að-
stöðu til rannsókna og samstarf
þeirra við atvinnulífið eykst og
fyrirtækjum býðst þátttaka í öfl-
ugu rannsóknar- og þróunar-
starfi.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskólinn verður kl. 11 á morgun
í safnaðarheimilinu. Föndur. Guðs-
þjónusta kl. 14 sama dag, flutt
verður litanía séra Bjarna Þor-
steinssonar, sem er með því feg-
ursta sem íslenska kirkjan á.
Æskulýðsfélagið fer í skautaferð á
Vestmannsvatn á morgun, takið
með ykkur nesti. Biblíulestur í
safnaðarheimilinu kl. 20.30 á mánu-
dagskvöld í umsjá sr. Guðmundar
Guðmundssonar. Mömmumorgunn
í safnaðarheimili kl. 10 til 12 á mið-
vikudag. Föstuguðsþjónusta kl.
20.30 á miðvikudagskvöld, sungið
úr Passíusálmum, lesið úr píslar-
sögunni og flutt litanía. Kyrrðar- og
fyrirbænastund á fimmtudag kl. 12
sem hefst með orgelleik. Sam-
skipta- og sjálfsstyrkingarnám-
skeiðið Konur eru konum bestar
hefst mánudaginn 22. mars í Lax-
dalshúsi, leiðbeinandi sr. Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir. Hjónanámskeið
verður haldið fimmtudagskvöldið
25. mars í safnaðarheimilinu.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera
og messa kl. 11 á morgun, sameig-
inlegt upphaf. Foreldrar hvattir til
að mæta með börnunum, vænst er
þátttöku fermingarbama og for-
eldra þeirra. Fundur æskulýðsfé-
lagsins verður kl. 20 í kirkjunni.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera
kl. 12 til 13 á miðvikudag. Helgi-
stund og léttur málsverður að
henni lokinni. Fjölskyldumorgunn
kl. 10 til 12 á fimmtudag, heitt á
könnunni og safi fyrir börnin.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, almenn
samkoma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20. Heimilasamband kl. 15
á mánudag. Krakkaklúbbur fyrir
6-10 ára á miðvikudag og 11 plús
'mínus fyrir 10-12 ára á fóstudag kl.
17. Flóamarkaður á fostudögum frá
10 til 18.
HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnudaga-
skóli í kirkjunni kl. 11 á morgun,
sunnudag. Kirkjukvöld í kirkjunni
kl. 20.30 um kvöldið. Ræðumenn
verða dr. Arnór Sigfússon fugla-
fræðingur og Arna Ýn- Sigurðar-
dóttir guðfræðingur.
HÚSAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli á morgun kl. 14. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Ræðumaður er Jónas
Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Kaffi og með-
læti eftir messu í Kirkjubæ þar
sem Jónas kynnir hjálparstarfið í
máli og myndum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam-
komur helgarinnar falla niður
vegna sýninga á leikritinu „Frá
hliðum himins til loga vítis“, sem
sýnt verður í félagsheimilinu
Laugaborg í Eyjafjarðarsveit
sunnudags-, mánudags- og þriðju-
dagskvöld kl. 20 öll kvöldin. Að-
gangur er ókeypis og allir velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, ld. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við
Eyrarlandsveg 26.
KFUM og K: Almenn samkoma kl.
20.30 á sunnudagskvöld. Ræðumað-
ur er Jónas Þórisson. Fundur í
yngri deild kl. 17.30 á mánudag fyr-
ir drengi og stúlkur 8-12 ára.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa í Kaupvangskirkju kl. 11 á
morgun. Messa í Grundarkirkju
sama dag kl. 13.30 og á Krist-
nesspítala kl. 15. Foreldrar vænt-
anlegra fenningarbarna sérstak-
lega velkomnir ásamt börnum sín-
um, en stutt stund verður með
þeim og sóknarpresti að lokinni at-
höfn. Föstumessa verður í Munka-
þverárkirkju kl. 20.30 á miðviku-
dagskvöld.
ÓL AFSF J ARÐ ARKIRKJ A: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, messa
kl. 14, sr. Guðmundur Guðmunds-
son messar, kirkjukaffi.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli kl.
13.30 á morgun í Lundarskóla. Al-
menn samkoma á Sjónarhæð,
Hafnarstræti 63, kl. 17. Fundur
fyrir 6-12 ára börn kl. 18 á Sjónar-
hæð.
Fyrirhuguð verslunarbygging í Vatns-
mýrinni í Reykjavík
Mikil eftirspurn
eftir plássi
GÍFURLEG efth-spurn er eftir
plássi í því verslunarhúsnæði, sem
Vatnsmýrin ehf. fyrh'hugar að reisa í
Vatnsmýrinni i Reykjavík, við Um-
ferðarmiðstöðina BSI. Kaupfélag
Eyfirðinga á 60% hlut í félaginu og
sagði Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs KEA,
að áhuginn væri miklu meiri en gert
hafi verið ráð fyrir.
„Við erum því að reyna hámarka
byggingarétt á lóðinni, sem er um 3
hektarar, en förum þó ekki af stað
fyrr en gengið hefur verið frá öllum
málum gagnvart umhverfinu og
borgaryfirvöldum. Við erum að
semja við skipulagsyfirvöld og vænt-
anlega fer fram grenndarkynning,
eins og við barnaspítalann þai-na
skammt frá.“
Margir vilja selja upp pítsustað
Sigmundur sagði að áhuginn hjá
þeim aðilum sem reka pítsustaði
væri sérstaklega mikill og að nánast
allir þeir aðilar sem reka slíka staði
hafi haft samband. Auk þess fjöl-
mai'gir aðrir aðilar sem eru með sér-
verslanir og annan rekstur.
Sigmundur sagði að BSÍ vildi vera
áfram á sama stað og tengjast KEA
og félagið sjái sér hag í því. Hann
sagði að einnig hafi verið rætt um að
Flugrútan, sem sér um akstur til
Keflavíkurflugvallar, komi þarna á
svæðið.
Morgunblaðið/Kristján
SVALBAKUR EA fer á ný undir þýskan fána í næsta mánuði. Áður
fer skipið einn túr til viðbótar á vegum ÚA.
Svalbakur EA undir
þýskan fána á ný
Morgunblaðið/Kristján
FRÁ fundi um þekkingarbúskap og byggðaþróun í Háskólanum á
Akureyri í gær.
Rannsóknarráð íslands, Háskóli íslands
og Háskólinn á Akureyri
Setja á laggirnar
rannsóknarnet