Morgunblaðið - 13.03.1999, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 39
NEYTENDUR
Verðmunur milli verslana í Eyjafirði og á
Vestfjörðum þar sem meðalverð úr öllum
verslunum í könnuninni er 100
KEA-Nettó, Akureyri
Hagkaup, Akureyri
KEA Hrísalundur
Samkaup, ísafirði
Valberg, Ólafsfirði
KEA, Byggðavegi
KEA, Ólafsfirði
KEA, Dalvík
KEA, Sunnuhlíð
Hraðkaup, Akureyri
KEA, Hrísey
KS, Hólmavík
Verslun G.S. Þingeyri
Sandafell Þingeyri
LÆGRA VERÐ HÆRRA VERÐ
17,5% HfL
8,4% ■fi-; > Meðalverð úr öllum
8,3% wm 3,0% ■ 0,1%! verslunum, er sett sem 100% 0,4% 1 0,9% 1 1,0% 1 1,2%
■ 2,5%
> íIHl 6,6%
9,3%
..flHBI 12,8%
Verðmunur milli KEA Nettó, Hagkaups og Samkaup
á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni
KEA - NETTÓ
HAGKAUP
101,2% -100,7%
SAMKAUP
106,7%
105,4%
Akureyri Reykjav. Akureyri Reykjav. ísafjörður Hafnarfj.
Verðbreytingar í versl. í Eyjafirði og á Vestfjörðum
frá 8. júlí 1998 til 3. mars 1999
KEA-Nettó, Akureyri
Hagkaup, Akureyri
KEA Hrísalundur
Samkaup, ísafirði
Valberg, Ólafsfirði
KEA, Sunnuhlíð
KEA, Byggðavegi
KEA, Ólafsfirði
KEA, Daivík -11.68
KEA, Hrísey
Verðkönnun í matvöruverslunum á
Eyjafjarðarsvæði og Vestfjörðum
Verðið lægst í
KEA-Nettó og
Samkaupum
Á EYJAFJARÐARSVÆÐI _ er
verð lægst í KEA Nettó og á ísa-
firði er verðið lægst í Samkaup-
um. Þetta kemur fram í verðkönn-
un sem gerð var á vegum Neyt-
endasamtakanna og verkalýðsfé-
laga á Eyjafjarðarsvæðinu og
Vestfjörðum. Álls var farið í 14
matvöruverslanir 3. mars sl. Ein
verslun, Eló á ísafirði, neitaði að
taka þátt í könnuninni.
Að sögn Ágústu Ýrar Þorbergs-
dóttur hjá Neytendasamtökunum
hefur vöruverð lækkað í öllum
verslunum á Eyjafjarðarsvæðinu
nema í Hagkaupi frá því könnun
var síðast gerð í júlí sl. Kann skýr-
ingin að vera sú að ný verslun,
Hraðkaup, hefur hafið starfsemi á
svæðinu. Ágústa segir að á sama
tíma og könnunin var gerð hafi
verið gerð svipuð könnun í versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu. „Það
reyndist ekki marktækur munur á
þeim þremur keðjum sem reka
verslanir bæði á höfuðborgar-
svæðinu og þeim svæðum sem
þessi könnun náði til.“
Ágústa segir að í fyrri könnun-
um hafí verið um 3% verðmunur á
KEA Dalvík og KEA Ólafsfirði.
Þessi munur segir hún að hafi
minnkað og var þegar könnunin
var gerð um 1%. KEA er eina
verslunin á Dalvík, en á Ólafsfirði
er KEA í samkeppni við verslun-
ina Valberg sem tekur þátt í inn-
kaupasamstarfi undir heitinu Þín
verslun. Allar þessar þrjár versl-
anir hafa lækkað verð frá síðustu
könnun í júlí og þá KEA Dalvík
mest. Verð hjá Samkaupum á Isa-
firði hefur lækkað um 4% frá síð-
ustu könnun.
Alþjóðadagur neytendaréttar 15. mars
Upplýs-
ingamið-
stöð fyrir
neytendur
ALÞJÓÐADAGUR neytendarétt-
ar er haldinn hátíðlegur þann 15.
mars. Lágmarkskröfur neytenda
voru fyrst settar fram árið 1962 af
John F. Kennedy þáverandi for-
seta Bandaríkjanna. Alþjóðasam-
tök neytenda hafa síðan bætt við
kröfurnar.
- En hverjar eru þessar kröfur
og hvernig stöndum við að vígi með
tilliti til þessara krafna?
„Fyrsta krafan er um rétt neyt-
enda til fullnægjandi grunnþarfa
eins og fæðis, klæða og skjóls“,
segir Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna.
„Væntanlega Mlnægir samfélag
okkar þessari kröfu. I öðru lagi er
það rétturinn til öryggis, að neyt-
endur geti áhyggjulausir keypt
vöru og þjónustu sem í boði er. Is-
lensk stjómvöld hafa tekið á sig
ábyrgð í þessum efnum með EES-
samningnum. Eg fullyrði þó að
brotalöm sé á eftirliti hér, það þarf
að bæta og samræma betur en nú
er gert.“
Jóhannes segir að þriðja atriðið
sé mikilvægt fyrir neytendur en
það er rétturinn til upplýsinga.
„Þama skipta fjölmörg atriði máli
s.s upplýsingar um rétt neytenda,
framboð og verð, gæði vöra og
þjónustu og upplýsingar á umbúð-
um vöra. Neytendasamtökin leggja
til að þessu verði náð með því að
sett verði á stofn Upplýsingamið-
stöð neytenda.
Fjórða lágmarkskrafa neytenda
er rétturinn til að velja, að neyt-
endur eigi völ á góðu úrvali vara og
þjónustu á sanngjömu samkeppn-
isverði. Úrvalið er að mestu í lagi
hér, en er verðið alltaf sanngjamt?
Hvað með vörar eða þjónustu fyr-
irtækja á fákeppnis- og einokunar-
mörkuðum? Ög hvað með við-
skiptahömlumar sem enn era við
lýði?
Rétturinn til áheyrnar er fimmta
krafa neytenda sem felur í sér að
tekið sé tillit til sjónarmiða neyt-
enda, þegar lög og reglur eru sett-
ar er varða hagsmuni þeirra. Þarna
er oft við ramman reip að draga og
fámennir og öflugir þrýstihópar
virðast oftast hafa meiri áhrif á
ákvarðanir stjórnmálamanna en
fulltrúar hagsmunasamtaka neyt-
enda.“
Umboðsmaður neytenda
Rétturinn til bóta er sjötta kraf-
an og hún er mikilvæg að mati Jó-
hannesar. „Við eigum rétt til bóta
ef okkur era seldar gallaðar vörar
eða þjónusta eða salan fer fram á
röngum forsendum. Neytendum
hefur verið tryggður aðgangur að
ódýram og fljótvirkum úrlausnar-
leiðum utan dómstóla með Kvört-
unarþjónustu NS og úrskurðar-
nefndum sem samtökin stóðu að
stofnun á. Þá þarf að tryggja rétt-
mæta markaðssetningu og að ýms-
ar sanngjamar leikreglur gildi á
markaðnum. Það á að gera með
stofnun sérstaks embættis Um-
boðsmanns neytenda.“
N eytendafræðsla
fyrir grunnskóla
Rétturinn til fræðslu er sjöunda
krafan. Jóhannes bendir á að á
þessum vetri hafi verið gefið út
námsefni í neytendafræðslu fyrir
grannskóla sem marki tímamót en
það sé þó einungis byrjunin.
Áttunda og síðasta krafan er
réttur neytenda til heilnæms og
sjálfbærs umhverfis. „Vissulega
stöndum við þama vel í saman-
burði við flestar aðrar þjóðir. En
ýmislegt má þó bæta.“
LAGERSALA
Seld verða sýnishorn úr versluninni,
útlitsgallaðar vörur og síðustu eintök.
Samsettar og ósamsettar vörur.
■
40-80 AFSLATTU
i
Aðeins laugardag og sunnudag.
Fyrstur kemur - fyrstur fær!
OPIÐ UM HELGINA
10:00-17:00 LAUGARDAG
12:00-17:00 SUNNUDAG
- fyrir alla mmti
i»róttir á Netinu
^mbl.is