Morgunblaðið - 13.03.1999, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AUGLÝSING
SÁÁ FRÉTTIR
Birtar í Morgunblaðinu
2. tbl. mars 1999
Ábm: Theódór S. Halldórsson
AUGLÝSING
SÁÁ, Samtök áhugafólks um
áfengis- og vimuefnavandann
Ármúla 18 • 108 Reykjavík
Sími: 581-2399 • Fax: 568-1552
Nýjar tölur úr meðferðarstarfi SÁÁ
Sýna að áherslubreytingar voru réttar
Ungu fólki í meðferð á Vogi fjölgar stöðugt í sjúklingahópnum. Síðustu átta ár
hefur hlutfall 19 ára og yngri aukist úr því að vera 4% af sjúklingunum í 14%.
Ungu fólki í meðferð á sjúkrahúsinu
Vogi fjölgar enn. Þetta kemur fram í
samantekt Þórarins Tyrfmgssonar,
yfirlæknis á Vogi. Tölur ársins 1998
sýna að þá komu 227 einstaklingar
19 ára eða yngri í meðferð á Vog. Það
er 10% aukning frá 1997 og meira en
100% aukning frá 1991.
„Þessi stöðuga aukning yngsta ald-
urshópsins staðfestir að það var rétt
ákvörðun hjá SÁÁ að leggja áherslu á
að bæta aðstöðu fyrir ungt fólk í
meðferð,“ segir Þórarinn og vísar þar
til byggingarframkvæmda við nýjar
álmur á sjúkrahúsinu Vogi. I annarri
álmunni verður sérstök meðferðar-
deild fyrir ungt fólk. Áætlað er að
hún taki til starfa á hausti komandi.
Samantekt ársins 1998 sýnir að
neysla ólöglegra vímuefna á borð við
hass og amfetamín fer sívaxandi
meðal unga fólksins. Þórarinn Tyrf-
ingsson segir engan vafa leika á að
þarna sé neysla ólöglegra vímuefha-
meira vandamál en áfengisneysla.
„Nú er svo komið að tæplega tveir
af hverjum þremur þessara ungu ein-
staklinga greinast stórneytendur
kannabisefna og tæplega helmingur
þeirra er stórneytendur amfetamíns.
Þetta er hærra hlutfall en nokkru
sinni fyrr,“ segir Þórarinn.
Hann telur að samverkandi ástæð-
ur séu fyrir þessari óheillaþróun.
„Hluti af þessum vanda er alþjóðleg-
ur, við sjáum sömu breytingar og á
meginlandi Evrópu og í Norður Am-
eríku. Ólögleg viðskipti með vímu-
efni hafa stóraukist og markhópur
viðskiptavina virðist sífellt yngjast.
Þá hefur umræðan um þessi vímu-
efni, sem oft er jákvæð í vissum fjöl-
miðlum og á Internetinu, vakið for-
vitni og skapað eftirspurn hjá ung-
lingunum."
Þórarinn bendir jafnframt á að til
viðbótar þessum vanda geri aðrir
þættir ástandið verra, þ.á. m. aukið
agaleysi unglinga og ónóg geð-
heilbrigðisþjónusta f þeirra þágu.
„Þeir unglingar sem eiga við veru-
leg vandamál að stríða áður en þeir
hefja vímuefnaneyslu fara jafnan
verst út úr henni og eiga erfiðast með
að ná árangri í áfengis- og vímuefna-
meöferð," segir hann ennfremur.
Að mati Þórarins er vænlegasta
ráðið að ná til unglinganna áður en
þeir hefja vímuefnaneysluna. „Það
þarf að finna þau snemma og veita
þeim viðeigandi og næga þjónustu.
Vimuefnaforvarnir þurfa því einkum
að ná til þeirra unglinga sem hættast
er við að ánetjast vímuefnum. Þetta
er verkefni sem þolir enga bið. Töl-
urnar úr meðferðarstarfinu á Vogi
sýna alvarlega og óheillavænlega þró-
un sem verður að stemma stigu við.“
Dagskrárstjórar SÁÁ
skiptast á vinnustöðum
Nýlega urðu dagskrárstjóraskipti
milli göngudeildar SÁÁ og sjúkra-
hússins Vogs. Hjalti Þór Björnsson,
dagskrárstjóri göngudeildar, fór í
starf Gísla Stefánssonar dagskrár-
stjóra á Vogi og Gísli fluttist yfir í
göngudeildina.
En hvers konar dagskrá er það sem
dagskrárstjórar SÁÁ stjórna?
„Það er meðferðardagskráin sem
slík,“ segir hinn nýi dagskrárstjóri á
Vogi, Hjalti Þór Björnsson. „Meðferð
sjúklinganna byggist á ffæðslu og
vinnu með einstaklingana. Þetta er
skipulögð dagskrá sem hefst t.d. hér
á Vogi kl. 8 á morgnana og lýkur kl.
21 á kvöldin, alla sjö daga vikunnar.
Ráðgjafar á Vogi, sem eru 11 talsins,
halda fýrirlestra, stýra hópfundum
og ræða við sjúklingana. Á kvöldin
eru svo haldnir AA-fundir. Starf dag-
skrárstjórans er að halda utan um
þessa vinnu, sinna gæðaeftirliti og
stýra þjálfun
nýrra ráð-
gjafa.“
Til viðbótar
ráðgj öfum
vinna sjúkra-
liðar, hjúkr-
unarfræðing-
ar og læknar á
Vogi að með-
ferðarstarfinu.
Geta nýinnritaðir sjúklingar kom-
ið inn í dagskrána hvenær sem er?
„Já, dagskráin hefur hvorki form-
legt upphaf né endi, heldur fer hún í
hring á einni viku og hver dagur er
óháður öðrum,“ segir Hjalti.
Göngudeildarþjónusta
AKUREYRI
Glerárgötu 20»Sími 462-7611
Göngudeild SÁÁ á Ákureyri er
opin fyrir viðtöl og ráðgjöf alla
virka daga ffá kl. 9-17.
Fundir og ff æðsla í mars:
Mánudagur 15. mars, kl. 20:
Fyrirlestur Stefáns Ingólfssonar
ráðgjafa „Föll og fallþróun alkó-
hólista". Fyrirlesturinn er öllum
opinn. Aðgangseyrir er kr. 500.
Mánudagur 29. mars, kl. 18.30:
Læknir SÁÁ heldur fyrirlestur.
Hjalti Þór Björnsson
Hamagangur á Hóli...
Oheillavænleg þróun hjá unga fólkinu
Ungt fólk í SÁÁ er félagsskapur ungra endurhæfðra flkla sem vinnur saman að því að treysta féiagslegan tilverugrund-
völl sinn. Unga fólkið lagði upp í langþráða skíðaferð til Siglufjarðar um slðustu helgi, dagana 5. til 7. mars. Alls tóku 46
manns þátt í ferðinni, sem var afar vel heppnuð. Gist var i skíðaskálanum Hóli og hið glæsilega skíðasvæði Siglfirðinga
stóð undir öllum væntingum. Það rættist sem segir í dægurlaginu: „...hæ, hó og hopp og hí og hamagangur á Hóli..."
f samantekt Þórarins Tyrfingssonar
um meðferðarstarf SÁÁ á sjúkrahús-
inu Vogi á síðasta ári koma fram fjöl-
breyttar upplýsingar um þróun að-
stæðna sjúklinganna milli ára. Þar er
m.a. skoðuð neyslusaga þeirra,
aldursskipting, heilsufar og sitthvað
fleira.
Tölulegar upplýsingar um með-
ferðarstarfið á Vogi hafa verið teknar
saman með þessum hætti allt frá ár-
inu 1984 og sýna þær í hnotskurn
ástandið í áfengis- og vímuefnamál-
um þjóðarinnar hverju sinni. Enginn
vafi leikur á að þróunin er hvað
óheillavænlegust hjá unga fólkinu.
Fjöldi einstakiinga
Siðustu 8 ár hefur ungu fólki I með-
ferð fjölgað frá ári til árs. Mest er aukn-
ingin I yngsta aldurshópnum, 19 ára og
yngri. Hann hefur rúmlega tvöfaldast.
Nú er þessi aldurshópur 14% af heildar-
fjölda sjúklinga á Vogi, en árið 1988 var
hann 4% af sjúklingahópnum.
Ungir piltar í meðferð fyrir tvítugt
Fjöldi Fjöldi Hlutfall
Ár_______pilta i árgangi af árgangi
1971 50 2.131 2,35%
1972 59 2.269 2,60%
1973 64 2.300 2,78%
1974 59 2.077 2,84%
1975 58 2.103 2,76%
1976 66 2.151 3,07%
1977 66 1.970 3,35%
1978 91 2.072 4,39%
Taflan sýnir þann fjölda úr hverjum
fæðingarárgangi áranna 1971 til 1978
sem kom í meðferð á Vog fyrir tvítugt.
Mesta stökkið er hjá piltum sem fæddir
eru 1978, en alls kom 91 þeirra í með-
ferð á Vog áður en þeir urðu tvítugir,
eða 4,39% árgangsins.
Lifrarbólga C meðal þeirra Líkur á að fara i meðferð
sem sprauta Aldur Karlar Konur
sig reglulega í æð 20 ára 3,7% 2,1%
' Hífa 20-29 ára 7,2% 2,8%
Fjöldi j iangvinna lifrarbólgu C Hafa ekki \ lifrarbólgu l 30-39 ára 4,5% 1,6%
einstaklinga I (237) \ (22?) 40-49 ára 3,6% 1.7%
50-59 ára 2,5% 1,2%
60-69 ára 1,3% 0,5%
69 ára 0,5% 0,1%
Fengu bata eftir iifrarbólgu C (56) Ævilfkur 23,2% 10%
Fjntdi einstakringa stórneytendur
Tæplega 20% sjúklinganna sem koma á
Vog hafa sprautað sig í æð meö vímuefn-
um. Þeim er hætt við að fá lifrarbólgu C
af áhöldum sem smitandi sprautufíklar
hafa notað. Af þeim sem sprautuðu sig
reglulega 1991-1998 var tæpur helming-
ur með langvinna lifrarbólgu C, sem get-
ur leitt til lifrarskemmda.
Út frá upplýsingum um nýkomufólk á
Vogi síðustu 4 ár eru reiknaðar út líkur
einstaklinga á að fara i áfengis- og vímu-
efnameðferö einhvern tíma á ævinni.
Meginniðurstaða þeirra útreikninga er
að miðað við núverandi ástand muni
23% íslenskra karlmanna fara í meðferð
einhvern tíma ævinnar og 10% kvenna.
Þeir sem hafa notað ólögleg vímuefni
vikulega síðustu 6 mánuðina áður en
þeir leggjast inn á Vog teljast stórneyt-
endur viðkomandi efna. Frá 1995 hefur
nánast orðið sprenging í fjölda þessara
stórneytenda á aldrinum 19 ára eða
yngri, einkum í kannabisefnum en þó
einnig á amfetamini.
Göngudeildarþjónusta
REYKJAVÍK
SÍÐUMÚLA 3-5 • Sími 581-2399
Fundir og fræðsla á vegum SÁÁ:
Kynningarfundir SÁÁ eru haldnir
í Síðumúla 3-5 alla fimmtudaga.
Kynningin hefst kl. 19 og stendur í
45 mín. Á eftir eru leyfðar fýrir-
spurnir. Á fundunum er fjallað'um
starfsemi SÁÁ, áfengissýki og aðra
fíkn og meðvirkni.
Meðferðarhópur (M-hópur):
Móttöku- og kynningarfundir eru
á fimmtudögum kl. 16.15. Fundir
M-hóps eru fýrir þá sem geta nýtt
sér áfengismeðferð á göngudeild.
Meðferðin fer fram á hópfundum,
fyrirlestrum og með viðtölum.
Fyrstu 4 vikurnar er mætt 4 kvöld í
viku en síðan vikulega í 3 mánuði.
Víkingahópur: Fundir eru á
mánudögum og fimmtudögum frá
kl. 16-17. Móttaka og skráning er á
sömu dögum kl. 15.30. Eftir Vík-
ingameðferð á Staðarfelli er
göngudeiidarstuðningur í eitt ár.
Fyrstu 8 vikurnar er mætt tvisvar í
viku en síðan vikulega í 44 vikur.
Kvennahópur: Móttaka og skrán-
ing er mánud. kl. 15.30 og fimmtu-
daga kl. 17. Eftir „Kvennameðferð“
á Vík er veittur göngudeildar-
stuðningur í 1 ár. Fundir eru 2svar
í viku fýrstu 12 vikurnar síðan einu
sinni í viku. Fjölskyldumeðferð er
liður í stuðningi við hópinn.
Spilafíklar: Fundir eru á þriðju-
dögum frá kl. 18-19. Móttaka og
skráning er sömu daga ki. 17.30.
Eftir viðtal við ráðgjafa geta spila-
fíklar fengið ótímabundinn stuðn-
ing. Þessum hópi og aðstandend-
um standa til boða ffæðsluerindi,
viðtöl og hópstarf. Ef nauðsyn
krefur býðst spilafiklum meðferð
um helgar.
Unglingahópur: Vikulega eru
haldnir stuðningsfundir fýrir ungt
fólk, 14-22 ára, með vímuefna-
vandamál. Móttaka og skráning er
mánud. kl. 17.20. Fólk kemst inn í
hópinn að lokinni meðferð á Vogi
eða á eftirmeðferðarstöðum SÁÁ.
Stuðningshópur fyrir alkóhólista
hittist daglega kl. 11 árdegis. Inn-
ritanir eru hjá læknum á Vogi.
Einnig geta ráðgjafar á göngudeild
komið fólki í hópinn.
Stuðningshópur fýrir aðstandendur:
Fundir aðstandenda alkóhólista
eru á þriðjud. kl. 16. í þann hóp fer
fólk eftir viðtöl við ráðgjafa eða
fjölskyldunámskeið á göngudeild.
Foreldrahópur er stuðningshópur
fýrir foreldra ungra vímuefnaneyt-
enda. Hópurinn er jafnt fyrir
foreldra sem eiga börn í meðferð
og barna sem hafa lokið meðferð.
Jafnframt er hópurinn fýrir þá for-
eldra sem leita sér upplýsinga
vegna gruns um fíkniefnaneyslu.
Fræðslunámskeið fyrir alkóhólista:
Helgarnámskeið um bata og ófull-
kominn bata verður haldið helgina
27.-28. mars. Á því er fjallað um
ýmsa þætti sem koma í veg fýrir
bata fyrstu mánuði eftir meðferð.
Námskeiðið hentar einnig þeim
sem eru að ná sér eftir önnur áföll.
Fjölskyldunámskeið SÁÁ. Helgar-
námskeið verður 13.-14. mars. Á
því er leitast við að auka þekkingu
aðstandenda alkóhólista á vímu-
efnasjúkdómnum, einkennum,
birtingarformi og áhrif á fólk sem
er í nábýli við sjúkdóminn.
Þriðjudagsfyrirlestrar: SÁÁ stend-
ur fýrir fýrirlestrum alia þriðju-
daga kl. 17. Þeir eru öllum opnir en
aðgangseyrir er kr. 500. Á næst-
unni eru eftirtaldir fýrirlestrar:
16. mars: Tilfinningar: þáttur við-
horfa og hugsunar.
23. mars: Vandi aðstandenda.
30. mars: Bati við alkóhólisma.
6. apríl: Streita og síðhvörf.
G.A. fiindir eru haldnir á fimmtu-
dögum kl. 20.30 og kl. 18 sömu
daga eru haldnir Gam-anon fundir.