Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 62

Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Raddlaus rödd Freðryk Fuse Leggöng tunglsins Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir RLR Áfram Mínus! TðNLIST Tónabær MÚSÍKTILRAUNIR Músíktilraunir Tónabæjar, fyrsta til- raunakvöld af fjórum. Þátt tóku RLR, Minus, Fuse, Raddlaus rödd, Kruml, Trekant, Leggöng tunglsins og Freðryk. Áheyrendur um fjögur hundruð. Haldið í Tónabæ sl. fimmtu- dagskvöld. MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæj- ar hófust síðastliðið fimmtudags- kvöld og eins og jafnan var þar sitthvað gott að heyra í bland við margt miður gott eins og gengur. Undanfarnar tilraunir hafa stakar stefnur og straumar verið áber- andi, en að þessu sinni venju frem- ur litrík tónlistarflóra, allir að spila allt. Fyrsta sveit á svið var reyndar ekki sveit heldur tveir rapparar, en annar þeirra sneri að auki tökkum og skrámaði plötur. Þeir félagar í RLR stóðu sig bærilega, komust oft vel að orði og náðu góðu flæði á köflum. Heldur var undirspilið dauft framan af, en svínvirkaði í síðasta laginu. Með þéttari grunn og pældari texta gætu þeir félagar náð lengra. Hressilega var skipt um gír þegar Mínusmenn stigu á svið; þrautæfðir og afslappaðir. Þeir settu í fluggír í fyrsta lagi, knúnir áfram af frábærum trymbli sem barði sem mest hann mátti. Gott var fyrsta lagið, annað enn bera og það þriðja hreint framúrskar- andi; þau hefðu mátt vera fleiri. Mest var fjölbreytni í söng í þriðja laginu, ýmist þrumaði Odd- ur Hrafn yfir liðinu, eða hann brá sér í hlutverk ballöðusöngvara með góðum árangri. Yfirburða- sveit. Fuse gerði tilraunir, sem er vel, en verra að þær gengu ekki upp. Fyrsta lag sveitarinnar fór hægt af stað og var reyndar sífellt að fara af stað þar til það var allt í einu bú- ið. Lítil framvinda var og í öðru laginu og bráðsnjöll hugmynd um tvo trymbla gekk ekki upp, þeir voru ekki að gera neitt sem einn hefði ekki annað hvort eð var. Hljómborðsleikarinn átti spretti í öðru laginu. Raddlaus rödd lék gamaldags vagg og veltu; einfalt rokk og hnit- miðað, en fulleinfalt á köflum. Ann- að lag sveitarinnar var ekki fullæft því menn fóru á misjöfnum hraða í gegnum það, en það þriðja gekk betur upp. Meiri bjögun og hávaði hefðu bjargað miklu. Kruml hóf leikinn með látum eftir hlé, vel studd af salnum. Sveitin er ekki ýkja gömul og þrátt fyrir ágæta spretti varð oftar en ekki að taka viljann fyrir verkið. Lokalagið sýndi þó að þeir Kruml- félagar geta gert betur og eiga ef- laust eftir að koma sterkir til leiks að ári. Bassaleikari Trekant vakti mikla athygli íýi'ir múnderingu og dró heldur athygli frá tónlistinni fram- an af að minnsta kosti. Það var þó í upphafskafla þriggja hluta rokkóp- eru sem þeir félagar stóðu sig hvað best, vel spilandi og sæmilega þréttir. Undir lok síðasta kaflans sprettu þeir reyndar skemmtilega úr spori og sýndu góða takta. Líkja má tónlist Legganga tunglsins við skoska sýru og víst dró hún dám af ýmsu góðu sem þaðan hefur komið, en ekki síst af bandarískri háskólamæðu. Þegar best lét tókst að skapa eitthvað sérstakt á sviðinu; gítarleikarinn hlóð hverjum hljómaflekanuni ofan á annan vel studdur af skemmtileg- um bassaleikara. Lokalag sveitar- innar var besta lagið með góðu jafnvægi hljóma og stemmningar, en mærðarlegt ljóð spillti. Lokasprettur Músíktilrauna að þessu sinni var samkrull tölvutóna og rafrokks hjá Freðryki. Gekk upp á köflum, en alls ekki í fyrsta laginu þar sem hafsbotnshljómur í gítar drap niður alla stemmningu. Lokalag sveitarinnar var og niður- drepandi og alltof langt. Mínus rúllaði kvöldinu upp, sigr- aði af öryggi, en Trekant varð ofan á í atkvæðagreiðslu dómnefndar. Árni Matthíasson Möguleiki að losna við sjóbleikjunet úr sjó? ÞAÐ færist í vöxt að unnið sé að því að auka arðsemi sjöbleikju- veiði. Þessi veiðimaður, Marinó Guðmundsson, lenti í moki í Fljótaá í Fljótum. VEIÐIMÁLASTOFNUN hefur nýverið hrundið af stað þróunar- verkefni til að styðja veiðifélög til að efla arðsemi veiða á sjóbleikju. Dæmi um veiðifélag sem þegar er komið á fullan skrið í þessum efn- um er Veiðifélag Svarfaðardalsár, en meðal þess sem fiskifræðingar hafa hvatt til, er að veiðifélög taki sig saman og fái úrskurð veiði- málastjóra til að takmarka eða stöðva sjávarveiðar á sjóbleikju sem bæði dragi úr veiði í ferskvatninu og skemmi þá rækt- unarstarfsemi sem kann að vera reynd. Við skulum glugga í skýrslu um búsvæði og nýtingu á sjóbleikju í Svarfaðardalsá sem fiskifræðing- arnir Sigurður Guðjónsson og Bjarni Jónsson tóku saman í lok síðustu vertíðar. Þar stendur m.a.: Sjávarveiði á bleikju er stunduð í Eyjafirði, eins og víða við landið. Samkvæmt reglugerð er bann við sjávarveiði á bleikju að vestan í Eyjafirði, en að austan gilda al- menn ákvæði laga. Óvíst er um magn og engar skýrslur eru til um þá veiði. Ljóst er að sjávarveiði með netum tekur verulegan toll af bleikju og með því að hætta eða draga verulega úr þeirri veiði myndi bleikjugengd aukast í árnar og þar með veiði. Verðgildi stanga- veiddrar bleikju er langtum meira en í netaveiði. Einnig hamlar stjórnlaus netaveiði í sjó allri ræktunarstarfsemi. Ekki þýðir að auka við fiskgengd með aðgerðum ef vitað er að aukningin endar í netum í sjó. Það er því brýnt að á þessu verði tekið með einhverjum hætti. Síðan vitna þeir félagar í reglu- gerðir sem virðast draga mjög í efa réttindi viðkomandi jarða sem veiða bleikju í sjó í Eyjafirði og halda síðan áfram: Sú spuming hlýtur að vakna hvort einhver hef- ur rétt til silungsveiða í sjó sam- kvæmt lögum og þá hve margir og hversu mörg net þeir mega hafa. Úr þessu er unnt að fá skorið í dómsmáli. Önnur leið virðist einnig vera til staðar til að komast að nið- urstöðu um þetta mál. í 14. gr. 7. mgr. laxveiðilaganna segir: „Rétt er veiðimálastjóra að takmarka eða banna veiði göngusilungs í sjó á til- teknum svæðum og um tiltekinn tíma, enda komi ósk um slíka friðun frá einstökum veiðieigendum eða veiðifélagi sem ætla verði að njóti góðs af friðun þessari. Um mat á bótum vegna slíkrar takmörkunar fer skv. 95. og 97. gr., en bætur skulu greiddar af þeim sem tak- mörkunar óskar.“ Ef veiðifélög í Eyjafirði færu fram á slíkt í Eyja- firði þyrftu sjávarveiðijarðir að sýna fram á verðmæti veiðanna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.