Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 79
FRETTIR
„Síberíuhrað-
lestin44 sýnd í
bíósal MÍR
KVIKMYNDIN „Síberuhraðlest-
in“ verður sýnd í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, sunnudaginn 7. mars
kl. 15.
Mynd þessi var gerð í Kazakhst-
an á áttunda áratugnum undir leik-
stjórn Eldars Úrazbajevs, en hand-
ritshöfundar vora þeir Alexander
Adabashjan og Nikita Mikhalkov í
samvinnu við Andrei Mikhalkov-
Kontsalovskíj. Sagan, sem sögð er í
myndinni gerist á árinu 1927.
Japanski iðnjöfurinn Saito telur að
samlandar sínir eigi að stunda við-
skipti við Rússa en ekki standa í
stríði við þá og fer því í viðskiptaer-
indum til Moskvu. Leyniþjónusta
Japana undirbýr þá áætlun um að
myrða Saito í svefnklefa hans í Sí-
beríuhraðlestinni og vekja síðan
grun um að sovéskur útsendari hafí
framið morðið. Inn í ráðagerðina er
blandað kabaretteigandanum
Pham, sem er Kazakhi að þjóðerni
en með kínverskt vegabréf. Ætlun-
in er að láta Demidovu, sem læst
vera kona Phams, skjóta á Saito, en
síðan á að koma þeim hjónaleysun-
um fyrir kattarnef og lauma skil-
n'kjum og byssu í vasa Phams. En
japanska leyniþjónustan veit ekki
að Pham er sovéskur TSEKA-mað-
ur og heitir í reynd Omar Kasym-
kanov. Áform Japana renna því út í
sandinn.
Myndin er talsett á ensku. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Samæfíng björg-
unarsveita á
Suðurnesjum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
samæfíngu björgunarsveita á Suð-
urnesjum ásamt Almannavörnum
Suðurnesja, Brunavörnum Suður-
nesja og slökkviliðinu á Keflavíkur-
flugvelli ásamt svæðisstjórn laug-
ardaginn 13. mars. Fyrirhugað er
að hafa æfinguna milli kl. 13 og 18.
I æfingunni er gengið út frá því
að um stórslys sé að ræða, segir í
fréttatilkynningu. Boeing 727
einkavél með um 30-40 manns um
borð lendir í mikilli ísingu á leið til
Keflavíkurflugvallar og er í miklum
vandræðum í lokastefnu á braut.
Fær vélin ís í tvo mótora, missir
mikla hæð og brotlendir í sjó við
Stafnesvita, brotnar í þrjá hluta og
dreifíst um stórt svæði. Mikill eldur
kemur upp í vélinni.
í æfingunni taka þátt Björgunar-
sveitirnar Skyggnir í Vogum, Ægir
í Garði, Sigurvon, Sandgerði, Eldey
í Höfnum, Þorbjörn í Grindavík,
Suðurnes, Reykjanesbæ, Oreon
Keflavíkurflugvelli, björgunarbát-
arnir Hannes Þ. Hafstein, Sand-
gerði, og Oddur V. Gíslason, Gr-
indavík, Almannavarnir Suður-
nesja, Brunavarnir Suðurnesja,
Slökkvilið Keflavíkurflugvallar, Til-
kynningaskyldan, svæðisstjórn,
lögreglan í Keflavík og Slökkvilið
Sandger ðisbæj ar.
Skíðaganga og
gönguferð
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
tveggja sunnudagsferða á sunnu-
dag. Kl. 10.30 er skíðaganga yfir
Leggjabrjót, gömlu leiðina milli
Þingvalla og Hvalfjarðar. Sú ganga
er fyrir vant skíðagöngufólk. At-
hugun hefur leitt í ljós að skíðafæri
er erfitt og því æskilegt að vera á
skíðum með stálköntum.
Kl. 13 er gönguferð á Reykja-
borg (286 m. y.s.) og Æsistaðafjall í
Mosfellssveit. Brottför frá BSI,
austanmegin og Mörkinni 6. Átta-
vitanámskeið er þriðjudaginn 16.
mars kl. 20. Skráning á skrifstof-
unni. Aðalfundur ferðafélagsins er
miðvikudagskvöldið 17. mars kl.
20.30 í Mörkinni 6. Upplýsingablað
um páskaferðirnar liggur frammi á
skristofunni og er einnig hægt að fá
sent.
SIGURLIÐ síðasta árs í aldursflokki 12-15 ára.
Nemendasýning og liða-
keppni í dansi á Broadway
NEMENDASYNING Dansskóla
Jóns Péturs og Köru verður
haldin á Broadway sunnudaginn
14. mars nk. Þar munu allir nem-
endur í barna- og unglingahóp-
um skólans ásamt nokkrum full-
orðinshópum koma fram með
sýnishorn af því sem þeir hafa
lært í vetur. Húsið verður opnað
kl. 13 og hefst sýningin kl. 14.
Strax að lokinni sýningu kl. 15
verður liðakeppni á milli dans-
skóla og hefur nokkrum dansskól-
um verið boðið til leiks. Keppt
verður í tveimur aldursflokkum,
11 ára og yngri og 12-15 ára.
Hvert lið samanstendur af íjórum
danspöram, tveimur sem dansa
standard dansana. Fimm dómarar
munu dæma keppnina.
Miða á sýninguna og keppnina
verða seldir á Hótel íslandi 14.
mars og hefst miðasala kl. 13.
Frítt er fyrir 11 ára og yngri en
aðgangseyrir fyrir 12 ára og
eldri er 500 kr.
Málþing
um streitu
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG
Reykjavíkur efnir til málþings í
Þingsal 1, Hótel Loftleiðum, þriðju-
daginn 16. mars kl. 20. Málþingið
ber yfirskriftina: Líf án streitu.
í fréttatilkynningu segir að fjallað
verði um spurningar á borð við
hvaðan streitan sé komin, hvort við
getum hamið hana, hvort hægt sé að
nýta hana til góðs eða þurfi að út-
rýma henni.
Fundarstjóri verður Anna Páls-
dóttir, upplýsingafulltrúi Heilsu-
stofnunar NLFI í Hveragerði.
Frummælendur verða: Þórkatla Að-
alsteinsdóttir sálfræðingur, Konráð
Adolphsson, skólastjóri Stjórnunar-
skólans, Katrín Fjeldsted heimilis-
læknh- og Hildur Hákonardóttir,
forstöðumaður Listasafns Árnes-
inga.
Anna Elísabet Olafsdótth-, mat-
væla- og næringafræðingur, Anna S.
Pálsdóttir prestur og Magnús
Scheving þolfimikennari verða með
pallborðsumi-æður.
Aðgangseyrir er 400 kr. en frítt
verður íyrir félagsmenn.
Kosningamið-
stöð VG opnuð
KOSNINGAMIÐSTÖÐ Vinstri
hreyfingarinnar _ græns framboðs
verður opnuð á morgun, sunnudag,
kl. 16, á Suðurgötu 7, á horni Vonar-
strætis og Suðurgötu.
Listamenn flytja orð og tóna og
nokkrir frambjóðendur og forystu-
menn flokksins ávarpa gesti.
Kaffi og sætabrauð á boðstólum.
Frjálslyndi flokkurinn
Stj órnmálafundur
og kjördæmafélag
SVERRIR Hermannsson boðar til
almenns stjórnmálafundar í Félags-
lundi á Reyðarfirði í dag, laugai’dag-
inn 13. mars, kl. 15.
Klukkustund fyrr verður stoftifund-
m- kjördæmisfélags Austurlands hald-
inn á sama stað. Þegar hafa verið
stofnuð kjördæmafélög í Reykjavík, á
Reykjanesi, í Norðuríandskjördæmi
vestra og Norðurlandskjördæmi
eystra, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu fi’á Frjálslynda flokknum.
VINNINGSHAFINN í afmæhsleik mbl.is var Hulda Jónsdóttir sem á
myndinni hefur tekið við gjafabréfi af Guðna Hreinssyni hjá Flugleið-
um (t.v.) en fulltrúi afmælisbarnsins mbl.is, Halldór Bachmann, er
lengst til hægri á myndinni.
Afmælisleikur mbl.is
í TILEFNI af eins árs afmæli
mbl.is 2. febrúar sl. var gestum
vefsins boðið að taka þátt í leik á
smávef sem gerður var af þessu
tilefni.
Á vefnum komu fram upplýs-
ingar um sögu vefsins, heim-
sóknatölur, fjölda sérvefja sem
birst hafa o.m.fl. Þátttakendur í
leiknum voru spurðir spurninga
úr þessum upplýsingum og vora
vegleg verðlaun í boði: Ferð fyrir
tvo til Minneapolis með Flugleið-
um með gistingu á fimm stjörnu
lúxushóteli ásamt tveim miðum á
eina vinsælustu leiksýninguna
þar í borg. Þetta virtist falla í
góðan jarðveg hjá gestum mbl.is
því fjöldinn allur tók þátt í hon-
um.
Maraþon í
sundi fyrir hreyfí-
hamlaða unglinga
UNGLINGAHÓPURINN BUSL
sem er á vegum Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, mun halda mara-
þon í sundi. Maraþonið hefst laugar-
daginn 13. mars kl. 9 í sundlaug
Sjálfsbjargarheimilisins í Hátúni 12,
gengið inn að norðanverðu.
Tilgangur þessa sunds er að safna
áheitum til styrktar utanlandsferð
hópsins sem farin verður árið 2000.
Þeir sem hafa áhuga á að styrkja
ferðina með áheitum eða öðrum
hætti geta haft samband við skrif-
stofur Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra. Hópurinn hefur stofnað
bankareikning í Sparisjóði vélstjóra
og er númer reikningsins 407 546,
segir í fréttatilkynningu.
Samkoma Súð-
víkinga, Álftfírð-
inga og Seyðfírð-
inga syðra
FÉLAG Súðvíkinga, Álftfii-ðinga og
Seyðfirðinga syðra verður sunnudag-
inn 14. mars í Safnaðarheimili Dóm-
kirkjunnar að lokinni messu í kirkj-
unni sem hefst kl. 14. Prestur er sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson, fyrrver-
andi sóknarprestur Súðvíkinga.
Félagsstjómin gengst fyrh’ sam-
komunni og dagskrá hennar. Fólk úr
þessum sveitum við Djúp er velkom-
ið ásamt fjölskyldum sínum til þess
að styrkja kynnin og rifja upp liðna
tíð, segir í fréttatilkynningu.
Lýst eftir
stolinni bifreið
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir bifreiðinni HX-898 sem er Toyota
Corolla árgerð 1986, rauð að lit.
Bifreiðinni var stolið frá Sjúkra-
húsi Reykjavíkur, Fossvogi, mánu-
daginn 8. mars. s.l.
Þeir sem hafa einhverjar upplýs-
ingar um bifreiðina hafi samband við
lögregluna í Reykjavík.
Fyrstu nemend-
ur í jarðlagna-
tækni útskrifast
FYRSTU nemai’ í jarðlagnatækni
eru nú að ljúka námi. Samorka hefur í
samvinnu við Menningar- og fræðslu-
samband alþýðu, Eflingu stéttarfélag
og Landssímann undirbúið nám í
jarðlagnatækni. Sautján manns munu
ljúka námi. Markmiðin með starfs-
náminu era betri og ánægðari starfs-
kraftar, aukin gæði á lagnakerfi og
auknir möguleikar á að bæta kjör
starfsmanna og gera starfsmenn jafn-
víga á jarðlagnir hjá vatnsveitum,
hitaveitum, rafveitum og síma.
Námið er hugsað fyrir ófaglærða
starfsmenn sem vinna við jarðlagnir
hjá hitaveitum, rafveitum, vatnsveit-
um, fráveitum, Landssímanum og
verktökum. Kenndar era bæði al-
mennar greinar s.s. íslenska, stærð-
fræði, tölvukennsla og bókleg og verk-
leg kennsla í jarðlögnum, jarðvegs-
fræði, rafrnagnsfræði og vélfræði.
Einnig er íjallað um veitufyrirtækin,
öryggismál, réttindi og skyldur á
vinnumarkaði og lög og reglugerðir er
varða veitufyrirtækin. Starfsnámið er
alls 300 tímar. Kennt er í þremur hálfs
mánaðar tömum. Gert er ráð fyrir að
næsti hópm’ byrji á haustmánuðum.
Afhending skírteina fer fram í
móttökuhúsi Vatnsveitu Reykjavík-
ur kl. 14 laugai’daginn 13. mars nk.
og mun borgarstjóri, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, afhenda skírteinin.
Ólafur Ólafsson
ræðir um sam-
skipti lækna og
sjúklinga
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
verður með opið hús mánudaginn 15.
mars kl. 20.30 í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík.
Olafur Ólafsson, fyrrverandi land-
læknir, ræðir um samskipti lækna og
sjúklinga. í frétt frá Styrk segir að
allir velunnarar félagsins séu vel-
komnfr.
Fyrirlestur um
uppeldisaðferðir
DR. SIGRÚN Aðalbjarnardóttir,
prófessor við Háskóla Islands, ræðir
á fræðslufundi í Hofsstaðaskóla um
uppeldisaðferðir og samskipti for-
eldra og barna mánudaginn 15. mars
k. 20.30. Nefnist fyrirlestur hennar:
Ræðum saman heima - uppeldisað-
ferðir foreldra.
Sigrún hefur mikla reynslu af því
að vinna með börnum og unglingum
og hefur gert rannsóknir m.a. á sam-
skiptahæfni barna og áhrifum upp-
eldisaðferða á áhættuhegðun. Sigrún
hannaði einnig námsefnið Samvera
sem notað hefur verið í grunnskólum
með góðum árangri, segir í fréttatil-
kynningu.
Að loknum fyrirlestri verðm- boðið
upp á kaffi og síðan verða fyiirspumh’.
Árshátíð Alli-
ange Fran^aise
ÁRSHÁTÍÐ Alliance Francaise
verður haldin fóstudaginn 19. mars í
Risinu, Hverfisgötu 105.
Dagskráin hefst kl. 20 með hátíð-
arkvöldverði að katalónskum hætti.
Matreiðslumeistari er Fancis Fons
sem ættaður er frá Katalóníu, héraði
á landamærum Frakklands og Spán-
ai’. Meðan á borðhaldi stendur verða
uppákomur og leikir og verður happ-
drætti þar sem meðal vinninga verð-
ur flugferð til Parísar. Loks verður
stiginn dans fram á nótt.
Aðgansmiðar liggja frammi í húsa-
kynnum Alliange Frangaise, Austm’-
stræti 3. Miðaverð er 2.950 kr. og
veitir hver miði þátttöku í happ-
drættinu.
3.950 kr. fyrir félagsmenn en 5.650 kr.
fyrir aðra. Tekið er við ski’áningu á
ski’ifstofu Gigtarfélags íslands, Ár-
- múla 5, segir í fréttatilkynningu.
Kaffidagur Dýr-
fírðingafélagsins
DÝRFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík heldur hinn árlega kaffi-
dag félagsins sunnudaginn 14. mars í
Bústaðakirkju. Hefst hann með
guðsþjónustu kl. 14 en prestur verð-
ur sr. Pálmi Matthíasson. Þegar
messunni lýkur hefst kaffisala í safn-
aðarheimilinu.
Allir velunnrar félagsins og Dýra-
fjarðar era velkomnir og er félags-
mönnum 70 ára og eldri sérstaklega
boðið.
Námskeið um að
styrkja bak
BAKSKÓLI Gigtarfélags íslands
hefst mánudaginn 15. mars kl.
17.-19. Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir
sjúkraþjálfari kennir hvernig á að
nota og styrkja bak á réttan hátt.
Á námskeiðinu verður farið i upp-
byggingu baksins og helstu mein og
varnh’ þeirra, líkamsbeitingu og
vinnuvemd. Hver tími er byggður
upp af bæði bóklegum og verklegum
þáttum. Einnig er gert ráð fyrir að
hópurinn geti hist eftir 4-6 vikur til að
ræða hvemig gangi og rifja upp það
sem lærst hefur. Námskeiðið kostar
3.950 kr. fyrir félagsmenn en 5.650 kr.
fyrir aðra. Tekið er við skráningu á
skrifstofu Gigtarfélags Islands, Ár-
múla 5, segir í fréttatilkynningu.
Leiðrétt
Internetið - útflutningsleið
nútímans
í frétt sem birtist í Morgunblað-
inu í gær um ráðstefnuna „Intemet-
ið - útflutningsleið nútímans“ féll
niður annar aðstandandi ráðstefn-
unnar. Hið rétta er að ráðstefnan
var haldin á vegum Útflutningsráðs
íslands og Samtaka íslenskra hug-
búnaðarfyrirtækja. Er beðist vel-
virðingar á þessum mistökum.
Aðalfundur Eimskips
I frétt er birtist í Morgunblaðinu í
gær um aðalfund Eimskips vantaði
orð (arð) inn í textann. Bfrtist hann
réttur hér: Á fundinum var sam-
þykkt samhljóða að greiða 10% arð
til hluthafa. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.