Morgunblaðið - 24.04.1999, Side 22
22 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Flugfélagið Atlanta hlýtur útflutningsverðlaun forseta fslands 1999
Velgengnin
sýnir stórhug
eigendanna
FLUGFÉLAGINU Atlanta hf.
hafa verið veitt útflutningsverðlaun
forseta íslands 1999. Afhending
verðlaunanna, sem nú eru veitt í
ellefta sinn, fór fram við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum á sumardag-
inn fyrsta. Hjónin Þóra Guðmunds-
dóttir og Amgrímur B. Jóhannsson
tóku við verðlaununum fyrir hönd
Atlanta, úr hendi forseta Islands,
hr. Olafs Ragnars Grímssonar.
Utflutningsverðlaunin eru veitt í
viðurkenningarskyni fyrir mark-
vert framlag til eflingar útflutn-
ingsverslun og gjaldeyrisöflun ís-
lensku þjóðarinnar. Við veitingu
þeirra er m.a. tekið mið af verð-
mætisaukningu útflutnings, hlut-
deild útflutnings í heildarsölu og
markaðssetningu á nýjum markaði.
I ávarpi Páls Sigurjónssonar,
formanns úthlutunamefndar kom
fram að flugfélagið Atlanta hefði
haslað sér völl á erlendum markaði,
„í mikilli alþjóðlegri samkeppni,
þar sem sérstaða íslensks fyrirtæk-
is er einvörðungu fólgin í þekkingu,
reynslu og útsjónarsemi stjómenda
og starfsmanna félagsins." Vöxtur
og velgengni félagsins að þessu
leyti sýndi stórhug eigenda þess.
Páll sagði Atlanta mjög mikil-
vægt íslensku þjóðarbúi þar sem
það væri dæmi um fyrirtæki sem
„gæti á arðbæran hátt boðið þjón-
ustu sína um víða veröld“. Flugfé-
lagið Atlanta ætti ennfremur
drjúgan þátt í framföram í sam-
göngum milli landa „íyrir hönd
okkar Islendinga". Fram kom að
fyrirtækið rekur nú 16 farþegaþot-
ur og að starfsmannafjöldinn er
tæplega 1.000 manns þegar mest
er. í úthlutunamefnd sátu, auk
Páls, Komelíus Sigmundsson, fi'á
embætti forseta íslands, Brynjólf-
ur Sigurðsson, fulltrúi viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Islands,
Einar Benediktsson, fulltrúi
Landsnefndar alþjóða Verslunar-
ráðsins og Þórann Sveinbjömsdótt-
ir, fulltrúi Alþýðusambands ís-
lands. Verðlaunagripurinn er gerð-
ur af listakonunni Brynhildi Þor-
geirsdóttur og heitir verkið
FLUGS.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Lloyds-TSB leitar út
HJÓNIN Arngrímur B. Jó-
hannsson og Þóra Guðmunds-
dóttir með viðurkenningar-
skjal vegna útflutningsverð-
launa forseta Islands. Verð-
launagripurinn sést hægra
megin. Páll Sigurjónsson, for-
maður úthlutunarnefndar,
sagði Atlanta mjög mikilvægt
íslensku þjóðarbúi þar sem það
væri dæmi um fyrirtæki sem
„gæti á arðbæran hátt boðið
þjónustu sína um víða veröld".
BRESKI bankinn Lloyds-TSB
er á höttunum eftir samstarfsað-
ila í bankageiranum utan Bret-
lands. „Það er ekkei't leyndar-
mál að við myndum vilja stækka
með samruna eða kaupum á
tryggingafyrirtækjum, íbúða-
lánasjóðum og svipuðum aðil-
um,“ segir Peter Éllwood aðal-
bankastjóri Lloyds-TSB. Hann
bætti við að allir stórir samning-
ar af því taginu myndu líklega
verða stöðvaðir af samkeppnis-
yfirvöldum í Bretlandi, þar sem
engum einum aðila er leyft að
ráða yfir meira en 25% af nein-
um einstökum hluta fjármála-
geirans.
Sala hlutabréfa
Nýherja hf. CQ)
til hluthafa NÝHERJI
Dagana 26. apríl til 7. maí verður hluthöfum í Nýherja hf.,
miðað við hlutaskrá félagsins kl. 17.00 þann 15. aprfl 1999,
boðið að kaupa ný hlutabréf í félaginu á genginu 13,75.
Hluthöfum verða boðin til sölu hiutabréf að fjárhæð krónur 16.934.908,-
að nafnverði, í réttu hlutfalli við skráða hlutafjáreign sína og geta þeir
nálgast útboðs- og skráningarlýsingu ásamt áskriftarblaði á skrifstofu
Nýherja, Skaftahlíð 24, Reykjavík.
Samanburður á ársreikningum
árið 1998 EIMSKIP SAMSKIP
Rekstur 1998 1998
Ftekstrartekjur Milljónir króna 16.573 12.028
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði 737 294
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (95) 193
Hagnaður af reglulegri starfsemi 482 101
Aðrar tekjur 833 53,3
Haqnaður 1.315 154
Veltufé frá rekstri 2.106 492
Efnahagur 31. desember
Eigið fé Milljónir króna 8.097 1.234
Eiginfjárhlutfall 41% 18%
Arðsemi eigin fjár nÉ 19% 13%
Veltufjárhlutfall 1,30 il 1>09
SAMSKIP
Afkoma skipafélaganna á síðasta ári
8
í
i
Verði einhver hlutabréf óseld að lokinni sölu til hluthafa mun
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. kaupa þau hlutabréf sem eftir standa.
Hlutabréfin verða ekki boðin í almennri sölu.
Áður útgefin hlutabréf Nýherja að fjárhæð krónur 240 milljónir að
nafnverði eru skráð á Aðallista Verðbréfaþings íslands. Þau hlutabréf
sem seld eru að þessu sinni verða jafnframt skráð á Aðallista og er þess
vænst að skráning verði í maí 1999.
Umsjón með útboði og skráningu hefur Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins hf.
Unnt er að nálgast útboðs- og skráningarlýsingu og önnur þau skjöl
sem vitnað er til í henni hjá Nýherja, Skaftahlíð 24, Reykjavík sem og
heimasíðu Nýherja www.nyherji.is og hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
hf. að Ármúla 13a, Reykjavík og heimasíðu FBA www.fba.is.
FJARFESTINGARBANKI
ATVINNULÍFSINS H F
Ármúli 13a
108 Reykjavík
Sími: 580 50 00
Fax: 580 50 99
www.fba.is
Samanlagðar
rekstrartekjur tæp-
lega 30 milljarðar
SAMANLAGÐAR rekstrartekjur
Eimskips og Samskipa námu tæp-
lega 29 milljörðum króna á síðasta
ári, en félögin hafa bæði skilað árs-
reikningum fyrir 1998.
Rekstrartekjur Eimskipafélags-
ins vora tæplega 17 milljarðar á ár-
inu en 12 milljarðar hjá Samskipum
sem juku tekjur sínar um rúmlega
88% frá fyrra ári. Hagnaður Eim-
skipafélagsins var öllu meiri, eða
l. 315 milljónir króna á móti 154
m. kr. hjá Samskipum. Eins og sjá
má á meðfylgjandi töflu var arð-
semi eigin fjár Eimskipafélagsins
19% en 13,4% hjá Samskipum.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, sagðist þokkalega
ánægður með afkomu félagsins í
fyrra. Hann sagði óvenju stóran
hluta hagnaðar félagsins vera til-
kominn vegna sölu eigna þar sem
sala skipsins Vegu í fyrra réði
mestu. Jafnframt benti hann á um-
talsverðan hagnað af sölu hluta-
bréfa Burðaráss en talið er að fjár-
festingarfélagið sé nú um 40% af
heildarverðmæti Eimskipafélags-
ins. Aðspurður um horfurnar á
þessu ári sagðist Hörður reikna
með svipuðum rekstri og umsvifum
og í fyrra.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, sagði heildarafkomu sam-
stæðunnar heldur lakari en gert
var ráð fyrir í áætlunum en af-
koma móðurfélagsins sé hins veg-
ar framar væntingum. Hann segir
að auk sameiningar við Bischoff
Group skýrist aukin velta félagsins
einnig af flutningum út af vestur-
strönd Noregs, þar sem félagið er
með tvö skip í rekstri auk þess
sem velta innanlands hafi aukist
um 840 m.kr. Ólafur Ólafsson segir
að í áætlunum Samskipa sé gert
ráð fyrir meiri hagnaði í ár en í
fyrra.