Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 B 3 Morgunblaðið/Asdís AÐALSTEINN Jónsson þjálfari Stjörnunnar fagnar hér í hópi leikmanna sinna Islandmeistaratitlinum, Stjarnan kórónaði glæsilegan vetur GARÐBÆINGAR slepptu sér á áhorfendapöllunum í Ásgarði í gærkvöldi þegar „stúlkurnar þeirra“ sigruðu FH með yfirburðum í þriðja úrslitaleiknum í röð, 33:25, og bættu íslandsmeistaratitl- inum við Bikarmeistaratitilinn, sem þær unnu fyrr í vetur. Eftir daufa byrjun í gærkvöldi tóku Stjörnustúlkur rækilega við sér, litu aldrei aftur og náðu 11 marka forskoti áður en þær skiptu inná varamönnum sínum. Varnir beggja liða voru ekki á tán- um eins og 1 fyrri leikjum liðanna enda virðast stúlkurnar loks hafa náð að hugsa fyrir sóknarleiknum. Hafn- firðingar byrjuðu á að taka stórskyttuna Ragnheiði Stephensen úr umferð en þá tók Inga Steinunn Björgvinsdóttur við hlutverki henn- ar og hélt Stjömunni á floti með þrumuskotum. Fyrh- vikið varð for- ysta FH naum þrátt fyrir að nýta 9 af tólf sóknum sínum en þegar þeim fataðist flugið um tíma gengu Stjörnustúlkur með alla sína reynslu á lagið og náðu yfirhöndinni. Garðbæingar hófu síðari hálfleik- inn af miklum krafti í vörninni og tóku leikstjórnandann Þórdísi Brynjólfsdóttur úr umferð svo að Hafnfirðingar náðu ekki að komast inn í leikinn. Attu raunar í vök að verjast og reyndu að bregðast við því með að hafa þrjá leikmenn framar á vellinum í vörninni en það dugði skammt. Leikmenn beggja liða héldu áfram að raða inn mörkum en bilið minnkaði ekki - Stjarnan hafði alltaf 4 til 5 mörk í forskot. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var að duga eða drepast fyrir FH en lukkan hafði yfirgefið liðið og í staðinn léku heimasætumar á als oddi á meðan þær náðu ellefu marka forskoti. Eft- ir það voru úrslit ráðin. „Þetta var æðislegt, við vorum taugaveiklaðar í byrjun-því við viss- um að þær kæmu brjálaðar enda hrikalega svekktar eftir síðasta leik á meðan við reyndum að gleyma sigrunum í síðustu tveimur leikjum, staðráðnar í að hafa sigur í þremur leikjum," sagði Ragnheiður eftir leikinn. „Við höfum áður unnið upp tólf marka forskot og í úrslitakeppn- inni alltaf náð að komast nokkrum mörkum yfir og FH-stelpumar hafa eflaust misst eitthvað dampinn við það. Veturinn hefur ekki verið áfalla- laus en heilsteyptur hjá okkur fyrh- utan einn slakan bikarleik. Mörg lið misstu leikmenn í meiðsli en það hef- ur verið mikil stígandi hjá yngri leik- mönnum. Núna era nokkrar að koma heim svo að deildin verður enn skemmtilegri næsta vetur, annars veit ég ekki hverjar verða áfram hjá Stjörnunni en ég er hvergi hætt,“ bætti Ragnheiður við en hún hefur átt skínandi góðan vetur og er einn af bestu leikmönnum deildarinnar. í gærkvöldi nýtti Inga Steinunn tæki- færið þegar Ragnheiður var tekin úr umferð og átti frábæran leik og Inga SOKNARNYTING Annar leikur kvennaliðanna í undan- úrslitum, í Hafnarfirði 24. apríl 1999 FH Stjarnan Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 18 30 60 F.h 6 29 21 5 26 19 S.h 17 27 63 8 19 42 Frl. 9 20 45 31 75 41 Alls 32 76 42 9 Langskot 10 3 Gegnumbrot 5 7 Hraðaupphlaup 3 3 Horn 7 3 Lína 4 6 Víti 3 SOKNARNYTING Þriðji úrslitaleikur kvennaliðanna, leikinn í Garðabæ 26. apríl 1999 Stjarnan FH Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 14 27 52 F.h 12 27 44 20 33 61 S.h 13 34 38 34 60 57 Ails 25 61 41 12 Langskot 4 3 Gegnumbrot 5 4 Hraðaupphlaup 3 3 Horn 5 9 Lína 5 3 Viti 3 Fríða Tryggvadóttir var drjúg á lín- unni en fyrst og fremst var liðsheild- in aðal liðsins. „Við byrjuðum ágætlega en svo fór að bera á reynsluleysi hjá okkur því Stjörnustelpurnar vita hvað þarf til og þó að við hefðum kraftinn gekk ekkert upp hjá okkur,“ sagði Hildur Erlingsdóttir fyrirliði FH eftir leik- inn en var sátt við veturinn. „Ég er sátt við að hafa náð þó þetta langt en hefði viljað fara betur út úr úrshta- keppninni. Aftur á móti eram við með ungt lið, eigum framtíðina fyrir okkur og þetta er bara byrjunin. Ég vil samt ekki gefa neinar yfirlýsingar um næsta vetur en veram bara bjartsýn.“ „Við vissum að FH-stelpumar myndu fara á fullt og yi'ðu fastar fyrir en ef stelpurnar í skyttuhlutverkinu hjá okkur kæmust í gang myndu hlutimar ganga upp - og það gekk eftir því Inga Steinunn og Nína geta þetta alveg,“ sagði Aðalsteinn Jóns- son þjálfari Stjömunnar eftir leikinn en undir hans stjóm undanfarin tvö ár hefur liðið hampað mörgum bik- amum, unnu þrefalt í fyrra og Is- landsmeistara- og bikarmeistaratitil í ár. „Ég áttaði mig ekki strax á því hvað stelpurnar gera miklar kröfur til liðsins, félagsins og ekki síst sín. Kröfumar vora miklar og annað sæt- ið skiptir þær engu máli og þar sem ég þoli sjálfur ekki að tapa var það ágætt. Ótrúlegar sveiflur Eg öskraði bara nokkrum sirin- um að nú væri framhaldið und- ir þeim komið, þær yrðu að gera hlutina sjálfar, annars hefðu þær ekkert í síðari hálfleikinn að gera,“ sagði Aðalsteinn Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, í Kaplakrika á laug- ardaginn eftir annan úrslitaleikinn við FH. Og öskrin virtust duga því eftir að hafa aðeins skorað sex mörk á móti 18 fyrir hlé snerist taf- lið heldur betur við því Garðbæing- ar skoruðu þá 17 en FH aðeins fimm. Endanleg úrslit réðust síðan ekki fyrr en eftir tvær framleng- ingar með sigri Stjörnunnar, 32:31. Aðalsteinn sagðist aldrei hafa misst vonina. „Þær voru eins og kjánar í byrjun og þegar vörnin fer ekki í gang gengur sóknarleikurinn enn síður því það hefst allt með góðri vörn - þá aðeins kemur sókn- arleikurinn til. En stelpurnar kunna og geta og hafa reynslu svo þá valt allt á hvort viljinn væri fyr- ir hendi.“ Þjálfari FH, Magnús Teitsson, þurfti líka að halda ræðu í hálfleik því eftir annað eins og forskot og FH vann í fyrri hálfleik er hætta á spennufalli. „Ég sagði þeim að hugsa ekki um markatöluna heldur halda áfram og bæta við en það gekk ekki, einbeitingarleysið eftir hlé var algert og því fór sem fór,“ sagði Magnús eftir leikinn. ■ ELÍSABET Halldórsdóttir lið- stjóri Stjörnustúikna bar höfuðið hátt eftir sætan sigur Garðbæinga á laugardaginn og þegar Aðal- steinn Jónsson þjálfari ætlaði að ganga út um bakdyrnar við bún- ingsklefana í Kaplakrika, greip Elísabet í hann og sagði: „Nei, nú göngum við út um aðaldyrnar." ■ HRUND Grétai-sdóttir fyrirliði Stjörnunnar sagði að ein af ástæð- unum fyrir því að liðið náði sér á strik eftir hlé í Kaplakrika á laug- ardaginn hefði verið að Aðalsteinn þjálfari hefði sagst koma inná sjálf- ur ef þær myndu ekki taka sig á og það hefðu leikmenn ekki viljað - það hefði sýnt sig á æfmgum að það lifir ekki endalaust í gömlum glæðum. ■ DAGNÝ Skúladóttir úr FH, sem meiddist í undanúrslitaleiknum við Fram, kom inná í framlengingunni við Stjörnuna á laugardaginn og náði að skora eitt mark. ■ MARGRÉT Theódórsdóttir, hinn þrautreyndi leikmaður Stjörnunnar, fékk fast skot í höf- uðið þegar liðið hitaði upp fyrir leikinn við FH á laugardaginn og rotaðist. Stöllur hennar höfðu nokkrar áhyggjur en þegar Mar- grét raknaði úr rotinu, skellti hún í sig tveimur verkjatöflum og hóf síðan leikinn. ■ ÁHORFENDUR urðu margir hvumsa þegar leikmenn héldu til búningsherbergja eftir að fyrri framlenginguni lauk og vildu meina að það væri ekki í samræmi við reglur. Dómarar leiksins sátu við sinn keip og Óli P. Ólsen eftir- litsdómari sagði það í samræmi við reglur. ■ GÁRUNGARNIR á áhorf- endapöllunum sögðust ekki hissa á góðri frammistöðu FH-stúIkna í byrjun leiksins við Sfjörnuna á laugardaginn. I áhorfendastúkunni voru leikmenn Sádi-Arabíu, sem spiluðu um helgina þrjá landsleiki hér á landi og þar gæti leynst góð- ur fengur. ■ RAGNHEIÐUR Stephensen stórskytta úr Stjörnunni var tekin úr umferð allan leikinn við FH á laugardaginn. Hún lagði þó sitt af mörkum og greip inn í fjögur hraðaupphlaup mótherjanna, nýtti þrjú af fimm vítum og skoraði að auki fjögur mörk. BARWIMERKI BIKARAR VERÐLAUNAPENINGAR FANNAR LÆKJARTORGI S:5S1-6488 Skíðadeild KR INNANFÉLAGSMÓT SKÍÐADEILDAR KR verður haldið í Skálafelli 1. maí nk. í tilefni 100 ára afmælis KR. Þá er stóra stundin að renna upp. I tilefni af 100 ára afmæli KR býður Skíðadeild KR öllum félögum í KR til skíðamóts í Skálafelli hinn 1. maí nk. Skráning hefst kl. 11.00 í skiðaskálanum og keppni hefst kl. 13.00. Allir KR-ingar eru velkomnir en skráningargjald er kr. 500 (frítt fyrir 12 ára og yngri), innifalið er viðurkenning fyrir árangur, aukaverðlaun ásamt grillveislu. Mótið verður óvenju glæsilegt í tilefni af 100 ára afmæli KR, keppt verður í öllum aldursflokkum, þ.e. 6 ára og yngri, síðan hver árgangur upp í 16 ára, þá taka við ýmsir flokkar s.s. hefðarfrúr, hefðar- menn, þjálfarar, öldungar og o.fl. flokkar, þannig að allir eiga möguleika.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.