Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 rF MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 B HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR 1992 93 1993- 94 95 96 1996 97 1997 98 1998 99 Þjáifari: Guðmundur Þ. Guðmundsson Þjáifari: Guðmundur Þ. Guðmundsson Þjáifari: Guðmundur Þ. Guðmundsson 8 . sæti í 1. deild p. sæti í 1. deild Sigurvegarar f >; í 2. deild !? Nýir leikmenn Ingimundur Helgason, frá Víkingi Siggeir Magnússon, frá Vikingi Róbert Sighvatsson, frá Víkingi Þorkell Guðbrandsson, frá HK 8-liða úrslit: Q-2 oegn Haukum 8-liða úrslit: Undanúrslit: 2-1 gegn FH 0-2 gegn Val Þjáifari: Einar Þorvarðarson 6. sæti í 1. deild 8-liða úrslit: | 2-1 gegn StjÖm. Undanúrslit: | 1-2gegnVal Þjáifari: Einar Þorvarðarson Þjaifari: Skúli Gunnsteinsson pjáifan: Skúli Gunnsteinsson 1. Deildarmeistarar 4. sæti í 1. deild "^1 Bikarmeistarar . Deildarmeistarar 8-liða úrslit: Undanúrslit: f úrslitunum: 2-0 gegn FH 8-liða úrslit: | 0-2 gegn Val 2-1 gegn Fram 1-3 gegn KA 8-liða úrsiit: Undanúrslit: í úrslitunum: 2-1 gegn HK 2-1 gegn Haukum 3-1 gegn FH ’ Nýir leikmenn Páll Þórólfsson, frá Fram Alexei Trúfan, frá FH Gunnar Andrésson, fráFram Jason Ólafsson, frá Fram f Nýir leikmenn Bergsveinn Bergsveinsson, frá FH Ásmundur Einarsson, frá KR Jóhann Samúelsson, frá Þór, Ak. ftureld Nýir leikmenn Bjarki Sigurðsson, frá Víkingi Sebastian Alexandersson, frá ÍR Farnir leikmenn Jason Ólafsson, til Brixen, Ítalíu Nýir leikmenn Einar Gunnar Sigurðsson, frá Selfossi Sigurjón Bjarnason, frá Selfossi Sigurður Sveinsson, frá FH Jón Andri Finnsson, trá Fram Farnir leikmenn Jóhann Samúelsson, lil Danmerkur Alexei Trúfan, til Víkings Róbert Sighvatsson, til Schutterwald Nýir leikmenn Jason Ólafsson, frá Leuterhausen Magnús Már Þórðarson, frá ÍR Skúli Gunnsteinsson, trá Val Einar Einarssson, frá Stjörnunni Farnir leikmenn hui Bjarki Sigurðsson, til Drammen m Sigurjón Bjarnason, til Selfoss ll Sjö ára uppbygging meistaraliðs Nýir leikmenn Alexei Trúfan, frá Víkingi Maxim Trúfan, frá Víkingi Savukynas Gintaras, trá Litháen Galkauskas Gintas, frá Litháen Bjarki Sigurðsson, frá Drammen Hafsteinn Hafsteinsson, frá Stjörnunni Farnir leikmenn Þorkell Guðbrandsson, til Cottbus Jason Ólafsson, til Dessauer Einar Einarsson, til Stjörnunnar Ingimundur Helgason, til HK Gunnar Andrésson, til Amicitia Zurich Páll Þórólfsson, til Essen Sebastian Alexandersson, til Fram Kristján Arason, þjálfari FH, stjórnaði liðinu í síðasta sinn Get verið nokk- uð sáttur að leikslokum Liggur við að ég hafi flogið „ÉG veit ekki hvernig ég á að lýsa þeirri tilfinningu sem greip mig í leikslok," sagði Bergsveinn Bergsveinsson, markvörður Afureldingar, eftir leikinn þar sem hann sat hálfklökkur nokkuð fjarri félögum sínum sem sungu og dönsuðu í leikslok. „Þegar við komum til leiks var húsið hálffullt af Mosfellingum og gegnt þeim í salnum sat annar eins hópur af Hafnfirðingum og ég þekkti nærri því hvern einsta þeirra enda er ég fæddur, uppalinn og hef búið alla mína ævi hérna í Firðinum. Þetta er sérstök og ólýsanleg tilfinning en mér finnst hún og afrek okkar Aftureld- ingarmanna vera alveg meiriháttar. Ég læt stríðsdansinn bíða þar til ég kem með strákunum í Mosfellsbæinn á eftir.“ Eftir ivar Benediktsson ergsveinn segist hafa reynslu af því að standa uppi sem sigur- vegari úr einvígi sem þessu og eins af að vera í hlutverki þess sem tapar. Segir hann að þetta einvígi við FH hafi þróast líkt og reynslan segi, það lið sem tapar þriðja leiknum í ein- víginu brotnar og bíður lægri hlut. „Vörnin var mjög góð hjá okkur lengst af í leiknum, en nokkrir brottrekstrar í síðari hálfleik slógu okkur aðeins út af laginu. í fyrri hálfleik áttum við frekar á brattann að sækja en eftir að Savukynas Gintaras kom til liðs við sóknina í síðari hálfleik batnaði hún og við áttum auðveldara með að skora en áður. Eftir það fannst mér aldrei vera nein hætta á að við myndum tapa.“ Þú bókstaflega blómstraðir í úr- slitakeppninni. „Rétt er það og það þakka ég Bergi Konráðssyni, kírópraktor, sem ég heimsótti eftir fyrsta leikinn á móti Haukum í fjögurra liða úr- slitunum. Við skoðun hjá honum kom í ljós að allir hryggjarliðimir voru fastir, mjaðmagrindin skökk og vinstri fóturinn einum sentí- metra styttri en sá hægri. Frá því að þetta kom í ljós hef ég farið í hnykkmeðferð til Bergs þrisvar til fjórum sinnum í viku og það liggur við að ég hafi flogið í gegnum leik- ina, allar hreyfingar hafa verið mik- ið auðveldari og ég hef bókstaflega getað gert allt sem ég hef viljað í leikjum og það hefur svo sannarlega skilað sér. Þannig að ég vil þakka Bergi kærlega fyrir hans ómetan- lega hluta i þessum árangri mínum í síðustu leikjum.“ Hvað hefur þú fundið lengi fyrir þessum óþægindum sem þú nefnd- ir? „Allt frá því ég meiddist í upphit- un fyrir leik við Egypta í HM í Kumamoto fyrir tveimur árum. Síð- an hef ég verið slæmur í náranum sem kemur til af því að mjöðmin er skökk og föst og verkurinn leiðir niður í nárann. Nú hefur verið losað upp á þessu og ég er eins og nýr maður.“ Ætlar þú að vera áfram í Mos- fellsbænum eftir þetta glæsilega tímabil? „Ég á eitt ár eftir af samningi mínum við félagið og lýk þvi alveg örugglega, þá hef ég fullan hug á að vera lengur þvi ég yngist með hverju árinu og félagið er frábært og það er vel staðið að öllum málum. En ætli ég endi ekki ferilinn í FH, en það er bara svo langt þangað til að því kemur.“ Erum besta liðið „Við áttum miklu fleiri ása uppi í erminni til þess að vinna úr þessari stöðu eins og kom í ljós síðasta stundarfjórðunginn. Þannig að mér fannst það aldrei vera til í dæminu að til fimmta leiksins kæmi,“ sagði Jón Andri Finnsson, hornamaður Aftureldingar. „Spurning var hvort vörnin hjá okkur næði saman og eftir að það tókst náðum við að loka fyrir flesta möguleika FH-inga, það var einna helst að Guðjón Arnason væri að gera okkur skráveifu, hann skoraði alltof mikið. Með þessum sigri höfum við und- irstrikað að við erum með besta lið- ið á keppnistímabilinu, á því leikur enginn vafi. Okkur vantaði aðeins sigur á Opna Reykjavíkurmótinu til þess að vinna alla titla sem í boði voru.“ Nær því orðlaus „Ég er hæstánægður með að við náðum að forða slysi með því að vinna fjórða leikinn og innsigla ís- landsmeistaratitilinn,“ sagði Siggeir Magnússon, aðstoðarþjálfari Aftur- eldingar. Hann sagði í viðtali við Morgunblaðið eftir þriðja leikinn að það yrði slys hjá sínum mönnum innsigluðu þeir ekki sigurinn í ein- víginu í fjórðu viðureigninni. „Ég er nær því orðlaus yfir þeim persónu- leika sem býr í liði Aftureldingar og þeirri gríðarlegu samstöðu sem Mosfellingar sýndu okkur í allri úr- slitakeppninni og ekki hvað síst að þessu sinni þegar þeir hálffylla Kaplakrika. Þetta er alveg frá- bært,“ bætti Siggeir við og réð sér vart fyrir kæti. Er ekki útbrunninn „Það er mjög erfitt að leika góða vörn leik eftir leik, en það hefur hjálpað mér mikið í vetur að Gaulkaskas Gintaras kom til Aftur- eldingar í vetur. Við styðjum hvor annan og það má segja að við tölum sama tungumál inni á vellinum þar sem grunnur okkar í varnarleik er nokkurn veginn sá sami,“ sagði Alexei Trúfan, sem hefur leikið einstaklega vel í vörn Afturelding- ar á leiktíðinni og var svo sannar- lega kjölfestan í sterkri 6-0 vörn liðsins. Trúfan, sem verður fertugur í ágúst, kom á ný til UMFA sl. sumar eftir að hafa verið eitt ár þjálfari og leikmaður hjá Víkingi. Þótti ýmsum sem hann mætti muna sinn fífil fegri, en Trúfan blés á það með því að leika eitt sitt besta keppnistíma- bil í mörg ár. „Ég hef æft einstak- lega vel í haust og vetur og var stað- ráðinn í því að sanna það fyrir öllum að ég væri ekki útbrunninn. Og ég mæti galvaskur til leiks á ný í haust, ég hef ekki sagt mitt síðasta orð. Arangur liðsins fór fram úr mín- um björtustu vonum fyrir leiktíðina, ég vissi að gætum unnið einhverja titla, en að við ynnum allt, á því átti ég ekki von.“ KRISTJÁN Arason stjórnaði liði FH í síðasta sinn á sunnu- dag, en eins og komið hefur fram mun Viggó Sigurðsson taka við liðinu næsta tímabil. Kristján sagðist vera sáttur við veturinn þrátt fyrir að tapa úrslitarimmunni við Aftureld- ingu. „Ég held að við séum verðugir þess að vinna silfur- verðlaunin í ár og ég er stoltur af iiðinu. En ég er auðvitað aldrei alveg sáttur við að tapa, en það verður líka að líta á það að við misstum markvörðinn Lee úr liðinu frá því sem endaði í þriðja til fjórða sæti í úrslitakeppninni í fyrra. Nú skila ég liðinu í annað sæti í bikar- og íslandsmóti og sem þjálfari get ég verið mjög sáttur við það. Við erum fyrst og fremst að byggja á okkar eigin leikmönnum og það verður vonandi þannig í framtíðinni. Við eigum efnilega stráka í yngri flokkunum og FH þarf því ekki að kvíða framtíðinni.“ Kristján sagði að það sem helst hefði skort hjá FH í vetur væri að skyttur liðsins væru of lágvaxn- ar. „Það má segja að hæðarmunurinn hafi oftast verið okkar akkilesarhæll í vetur. Þrátt fyrir það þurfti Afturelding að hafa mikið fyrir þessum sigrum. Þetta voru allt hörkuleikir og við gáfum allt í þá eins og við höfum gert í allri úrslita- keppninni. Frá því í nóvember höf- um við verið að spila ágætlega. En Afturelding er með tvo frábæra leikmenn, Bjarka Sigurðsson og Bergsvein Bergsveinsson og þeir gerðu gæfumuninn í þessum leik. Við misnotuðum nokkur góð færi í seinni hálfleik og það reyndist okk- ur mjög dýrkeypt. Það er ekki hægt að misnota góð færi í leikjum eins og þessum ef sigur á að nást.“ Bergsveinn bjargvættur Aftureldingar Þið áttuð möguleika þegar tvær mínútur voru eftir og staðan var 22:24 og þið fenguð vítakastið? „Já, þá var þetta opið og því mik- ilvægt að minnka muninn niður í eitt mark með því að nýta vítakast- ið. Við vissum að þeir voru taugaó- styrkir á þessum kafla, en það má segja að Bergsveinn hafi bjargað þeim með því að verja vítakastið, þá var þetta búið fyrir okkur.“ Bergsveinn hefur verið ykkur erfiður, sérstaklega í vítaköstunum. Æfðuðþið ekki vítin sérstaklega? „Nei, það gerðum við ekki. En það var greinilegt að leikmenn mín- ir voru hræddir við hann. Þá vant- aði sjálfstraust og það var sama hver fór á vítapunktinn, ekkert gekk. Það er vitað mál að sá sem er smeykur í íþróttum nær aldrei fram nema 60 prósentum af sinni getu.“ Pressa í vítakastinu „Ég fann fyrir mikilli pressu þeg- ar ég tók vítið. Guðjón bað mig að taka vítið og ég skoraðist ekki undan því, enda var Knútur búinn að mis- nota eitt víti í fyrri hálfleik. En því miður tókst ekki að nýta það og þá rann möguleiki okkar endanlega út í sandinn,“ sagði Valur Amarson, sem misnotaði vítið í stöðunni 22:24 þeg- ar tvær mínútur voru eftir af leikn- um í Hafnarfirði á sunnudaginn. Áttum skilið að vera í úrslitum Valur sagði að þrátt fyrir tapið gætu FH-ingar borið höfuðið hátt. „Það bjóst enginn við þessum ár- angri af okkur, sérstaklega eftir slakt gengi í deildarkeppninni. Við náðum rétt inn í úrslitakeppnina sem sjöunda lið. Það voru allir búnir að afskrifa okkur þegar í úrslita- keppnina var komið og biðu þess að við féllum út. En við efldumst með hverri raun og sýndum hvað býr í liðinu. Við áttum fyllilega skilið að spila til úrslita um Islandsmeistara- titilinn,“ sagði Valur. Innilegur sigurkoss Morgunblaðið/Brynjar Gauti Guðjón Árnason lýrirliði FH Nú er ég hættur BERGSVEINN Bergsveinsson, markvörður Aftureldingar, fór á kostum í úrslitaleikjunum við FH og honum var sigurinn afar kærkominn að leikslokum. Gieði Bergsveins var innileg er hann tók við íslandsbikarnum og rak honum rembingskoss og iy^ndi um leið aftur augum. Félagar hans Magnús Már Þórðarson og Jón Andri Finnsson fylgjast með. GUÐJÓN Árnason, fyrirliði FH, sagði efth- leikinn við Aftur- eldingu á sunnudag að nú ætlaði hann að leggja handboltaskóna á hilluna. „Já, nú er ég hættur. Ég er orðinn 36 ára og ég kveð liðið mjög sáttur. Ég held að ég sé búinn að skila mínu fyrir fé- lagið. Þessi leikur var 651. leik- ur minn með meistaraflokki og þeir eru allir fyrir FH. Það verður sjálfsagt erfitt að standa utan vallar næsta vetur, en ég treysti strákunum til að standa sig vel,“ sagði Guðjón. „Við erum með fullt af ungum og efnilegum strákum og fram- tíðin er því björt hjá FH. Seinni hluti vetrarins er með því betra sem við höfum gert undanfarin ár. Við erum mjög sáttir og ber- um okkur ágætlega þrátt fyrir að tapa í úrslitum bæði um bik- arinn og íslandsmeistaratitil- inn,“ sagði Guðjón. „Við lékum vel í fyrri hálfleik og í upphafi síðari hálfleiks, en þá kom eitthvað óðagot í sókn- inni og við klúðruðum góðum færum. Leikurinn snerist þeim í hag á mjög skömmum tíma og þeir náðu fjögurra marka for- skoti. Þá var þetta orðið erfitt. En við vorum engu að síður mjög nálægt þessu í lokin.“ Gunnar íhugar að hætta Gunnar Beinteinsson sagðist vera að íhuga að hætta, en vildi samt ekki fullyrða neitt um það. „Ég hef mjög mikið að gera í vinnunni og ég hef því lítinn tíma aflögu. Eins og staðan er í dag eru meiri líkur á því að ég hætti, en haldi áfram. Én það er best að bíða með að gefa yfirlýs- ingu um að ég leggi skóna á hill- una frægu. Það kemur bara í ljós síðar í sumar hvað verður ofan á,“ sagði Gunnar, sem er á 33. ári. Hálfdán áfram Hálfdán Þórðarson, línumað- ur, sagðist reikna með því að halda áfram með FH næsta tímabil. „Meðan ég slepp við meiðsli verð ég áfram í þessu. Ég á ekki von á öðru en að ég leiki með liðinu næsta vetur. Þetta er svo skemmtilegt," sagði Hálfdán. Magnús Árnason, markvörð- ur FH, hefur ekki tekið ákvörð- un um hvort hann verði áfram, en taldi meiri líkur á því.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.