Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 34

Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 Ný lyf Prófanir eru hafnar á nýju geðdeyfðarlyfi í Bandaríkjunum. Rannsóknir Vísindamenn hafa greint tengsl milli sjónvarps- áhorfs og lystarstols. MORGUNBLAÐIÐ Reykingar Bandarískir tannlæknar segja vindlareykingar skaða munnheilsuna Sjúkdómar Enn frekari vísbend- ingar um hollustu vatnsdrykkju UMFJÖLLUN UM HEILBRIGÐISMÁL MORGUNBLAÐIÐ hefur í dag reglulega umfjöll- un um heilbrigðismál, forvarnir, nýjungar og með- ferð, sem jafnan verður birt á þessum síðum á laugardögum undir yfirskriftinni „Heilsa“. Morg- unblaðið hefur gert samning við útgáfufyrirtæki bandaríska dagblaðsins The New York Times um birtingarrétt á fréttum og öðru efni tengdu heil- brigðismálum, sem unnið er á vegum þess. Verður það efni merkt „Medical Tribune News Service" í heimildarlínu í upphafi frétta. Allt það efni, sem bandaríska fyrirtækið sendir frá sér með þessum hætti, er yfirfarið af þarlendum sérfræðingum áður en því er dreift til birtingar. Jafnframt mun Morg- unblaðið nýta efni frá alþjóðlegum fréttastofum á borð Reuters, Associated Press ofl. auk þess sem fréttir og greinar verða frumunnar á ritstjórn blaðsins. Magnús Jóhannsson læknir, prófessor í lyfjafræði, mun fara yfir þær fréttir og greinar er lúta að læknisfræði, meðferð, forvörnum og nýj- ungum á því sviði, áður en þær verða birtar á þess- um vettvangi í Morgunblaðinu. Rannsóknir á Fiji-eyjum sem voru sjónvarpslaust samfélag allt fram til ársins 1995 Ofát og lotu- græðgi bendluð við sjónvarpið RANNSÓKNIR sem gerðar hafa verið á Fiji-eyjum benda til þess að samband sé á milli sjónvarpsáhorfs og sjúkdóma á borð við lotu- græðgi (bulemiu) og lystarstol (anorexiu). Vísindamenn sem starfa við Læknaskóla Harvard-háskóla (Harvard Medical School) hafa á undanfómum árum stundað rannsóknir á Fiji-eyjum, sem voru sjónvarpslaust samfélag allt til ársins 1995. Anne Becker, mann- fræðingur, jafnar þessum umskiptum í lífi íbúanna við það er bresk- ir landkönnuðir komu fyrst til eyjanna á síðustu öld. Gjörbreytt fegurðarskyn Á Fiji-eyjum hefur fegurðarskyn innfæddra kveðið á um að glæsi- leiki fólks felist í kröftugri og þéttri líkamsbyggingu. Hugtakið „megrun“ var að sögn Anne Becker með öllu óþekkt fyrirbrigði á eyjunum fyrir tíu árum en nú fjölgar þeim stöðugt, sem grípa til slíkra ráðstafana sökum óánægju vegna eigin útlits. Fiji-eyjar voru án rafmagns allt til ársins 1985 og tíu árum síðar tóku landsmenn fyrst að geta horft á sjónvarp. í boði eru þættir frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Nýja-Sjálandi og ræðir þar um framleiðslu á borð við „Seinfeld" og „Melrose Place“. Vansælir unglingar Svo virðist sem sjónvarpið hafi gjörbreytt fegurðarskyni inn- fæddra og hugmyndum þeirra um glæsileika og vörpulegan líkams- vöxt. Þannig kváðust 74% stúlkna á unglingsaldri telja að þær væru „of stórar eða of feitar“ í könnun, sem mannfræðingurinn gerði árið 1998 þegar sjónvarpið hafði verið starfrækt í 38 mánuði. Af stúlkum þessum kváðust 15% þeirra hafa kastað upp í því skyni að hafa stjóm á líkamsþyngdinni. Fegurðardrottningin Ranadi Johnson, sem ber titilinn „Ungfrú Fiji-eyjar“, sagði í viðtali við breska útvarpið BBC að innfæddir hefðu ævinlega litið svo á að hold- Fiji-eyjar fyrir sjónvarpið. • Svo virðist sem vestrænar ímyndir hafi gjörbreytt fegurðarskyni ungra Fiji-húa, einkum stúlkna. Frá fegurðar- samkeppni Asíu- og Kyrrahafsríkja. Ungfrú Fiji lengst til hægri. skarpar konur væru ekki öðrum konum glæsilegri því grannt kven- fólk væri jafnan talið veikbyggt og því ekki sérlega eftirsóknarvert. „Fólk er alltaf að hvetja mig til að bæta á mig kílóum," sagði ungfrú Johnson. Megrunar-plága? Að sögn Anne Becker iðkar nú „uggvænlegur fjöldi ungs fólks“ á Fiji-eyjum megrun. Er nú svo komið að það athæfi stunda hlut- fallslega fleiri á Fiji-eyjum en i Massachusetts-ríki í Bandaríkjun- um. Kveður mannfræðingurinn ljóst að unglingar fái brenglaða mynd af veruleikanum í gegnum sjónvarpið sem aftur kalli fram þetta athæfi. Segist hún vona að umbreytingin á lífi innfæddra verði ekki sú sama og þegar landkönnuð- ir komu til eyjanna á síðustu öld. Þeir báru með sér mislinga og úr varð mikil plága. Fegurð=grannur vöxtur Læknar og vísindamenn eru ekki á einu máli um hvemig meta beri áhrif ímynda í fjölmiðlum á ungt fólk. Margir benda á að sýni- lega séu tengsl á milli aukinnar tíðni sjúkdóma á borð við lotu- græðgi og lystarstol og þeirra ímynda sem haldið sé að fólki í fjöl- miðlum þar sem fegurð sé lögð að jöfnu við það að vera grannholda. Aðrir vísindamenn telja að slíkir sjúkdómar séu fyrst og fremst erfðafræðileg fyrirbrigði fremur en menningarleg. Prófanir á nýju geðdeyfðarlyfi í Bandaríkjunum Þykir jafnast á við Prozac PRÓFANIR eru hafnar í Banda- ríkjunum á nýju geðdeyfðarlyfí, sem talið er að jafnast geti á við Prozac hvað virkni snertir. Nýja lyfið hefur áhrif á önnur efni í heila en Prozac, sem er þekktasta geðdeyfðarlyfið nú um stundir og þykir áhrifameira hvað varðar félagslega virkni sjúklinga. Virka efnið í lyfinu nefnist re- boxetín en það er framleitt af fyr- irtækinu Pharmacia & Upjohn Inc. Að sögn dagblaðsins Wall Street Joumal er nú verið að gera þær prófanir, sem nauðsynlegar eru á lyfínu áður en notkun þess verður leyfð í Bandaríkjunum. Talsmenn fyrirtækisins segja að lyfið muni auka meðferðarmögu- leika lækna er sinna þunglyndis- sjúklingum. Slen og áhugaleysi Lyfið eykur magn svonefnds noradrenalíns í heila en það efni tengist lífsorku og virkni einstak- lingsins. Falli efni þetta í heila undir eðlileg mörk stuðlar það að því að sjúklinginn skortir kraft, frumkvæði og áhuga á lífinu, sem oft eru birtingarmyndir þunglynd- is. „Með því að svipta burt grám- anum og gera líf sjúklingsins litrík- ara og áhugaverðara getum við breytt líðan miklis fjölda fólks,“ sagði aðstoðarforstjóri Pharmacia & Upjohn Inc. í samtali við Wall Street Journal. Röskun á sero- tóníni í heila Prozac (sem selt er á íslandi undir heitinu Fontex og fleiri nöfn- um) og skyld lyf hafa áhrif á magn svonefnds serotóníns í heila. Þau lyf hafa náð miklum vinsældum ekki síst sökum þess að notkun þeirra þykir mun öruggari en eldri geðdeyfðarlyfja. Hins vegar hafa rannsóknir sýnt fram á að í mörg- um tilfellum geðdeyfðar og þung- Prozac og skyld lyf hafa áhrif á magn serotónfns í heila en rannsóknir hafa leitt í Ijós að i mörgum tilfellum geðdeyfðar og þunglyndis er um að ræða röskun á magni annarra efna. lyndis er um að ræða röskun á magni annarra efna í heila svo sem noradrenalíns. Segja talsmenn Pharmacia & Upjohn að nýja lyfið verði hið fyrsta á markaði í Banda- ríkjunum, sem hafi sérstaklega áhrif á magn noradrenalíns í heila. Ekki talið ávanabindandi Fulltrúar fyrirtækisins segja að reboxetín-lyfið greini sig að mörgu leyti frá hefðbundnum geðdeyfðar- lyfjum. Þannig hafi engar vísbend- ingar komið fram um að lyfið sé ávanabindandi auk þess sem mun lengri tími líði áður en virkni þess kemur í ljós eða fjórar vikur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.