Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 FÓLK í FRÉTTUM r Sýnt á Stóra sóiii Þjóðteikhússins: SJÁLFSTÆTT FÓLK eftir Halldór Kiljan Laxness. Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Fvrri svnino: BJARTUR — Landnámsmaður íslands Fös. 11/6. Síðasta sýning á leikárinu. Síðari svnina: ÁSTA SÓLLILJA - Lífsblómið Rm. 10/6 — sun. 13/6. Síðustu sýningar leikársins. TVEIR TVÖFALDIR - Ray Cooney Lau. 12/6 síðasta sýning. MAÐUR í MISLTUM SOKKUM — Arnmundur Backmann Fös. 18/6 - au. 19/6 kl. 20.00. Á teikferð um landið: MAÐUR í MISLITUM SOKKUM — Arnmundur Backman Sýnt í Ýdölum 9/6 kl. 20.30 — á Egilsstöðum 11/6 og 12/6 kl. 20.30. Sýnt á Litta sUiði kt. 20.00: ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuel Schmitt Lau. 12/6 — fös. 18/6 — lau. 19/6. Síðustu sýningar. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst Sijnt i Loftkastata: RENT — Skuld — söngleikur e. Jonathan Larson Fös. 11/6 miðnætursýn. kl. 23.30 — lau. 12/6 kl. 20.30 nokkur sæti laus - fös. 18/6 kl. 20.30 - lau. 19/6 kl. 20.30. Miðasalan er opin mánudaga—þriðjudaga kl. 13—18, miðvikudaqa—sunnudaqa íd. 13—20. Símapantanir frá kI. 10 vlrka daga. Sími 5S1 1200. BORGARLEIKHÚSIÐ Á SIÐUSTU STUNDU: Síðustu klukkustund fyrir sýningu eru miðar seldir á hálfvirði. Stóra svið kl. 20.00: Litlá liHjttMýíbúðÍH eftir Howard Ashman, tónlist eftir Alan Menken. 4. sýn. lau. 12/6, blá kort, uppselt, 5. sýn. sun. 13/6, gul kort, upp- selt, 6. sýn. mið. 16/6, græn kort, nokk- ur sæti laus, 7. sýn. fös. 18/6, hvrt kort, nokkur 1^19/Mös. 25/6, lau. 26/6. Litla svið kl. 21.00: Maður ^1 liffandi Óperuleikur um dauðans óvissa tíma. Höfundur handrits: Árni Ibsen. Höfundur tónlistar: Karólína Eiríksdóttir. Höfundur myndar: Messíana Tómasdóttir. 4. sýn. lau. 12/6. Ath. síðasta sýning. n i svtii Leikferð um landið Bæjarleikhúsinu Vestmannaeyjum lau. 12/6 og sun. 13/6. Samkomiíiúsinu á Akureyri fös. 18/6, uppselt, lau. 19/6, örfá sæti laus, sun. 20/6, örfá sæti laus, mán. 21/6, þri. 22/6, örfá sæti laus, mið. 23/6. Félagsheimilinu Blönduósi fim. 24/6. Klifi Ólafsvík fös. 25/6. Félagsheimilinu Hnffsdal lau. 26/6 og sun. 27/6. Dalabúð Búðardal mán. 28/6. Þingborg í Ölfusi mið. 30/6. Sindrabæ Höfn í Hornafirði fim. 1/7. Egilsbúð Neskaupstað fös. 2/7. Herðubreið Seyðisfirði lau. 3/7.. Forsala á Akureyri í síma 4621400. Forsala á aðrar sýningar í síma 568 8000. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. Nemendaieikhúsið sýnir í Lindarbæ KRÁKUHÖLLIAJA eftir Einar öm Gunnarsson í leikstjóm Hilmis Snæs Guðnasonar. Aukasýningar: 8. júní, 9. júní, 14. júní og 15. júní Sýningar hefjast kl. 20.00. MIÐAVERÐ KR. 500. MIÐAP. í SÍMA 552 1971 ALLAN SOLARHRINGINN. 5 30 30 30 MAasda odn trá 12-18 ag Iram að sýningu sýrtosardaBa. OpU Irá 11 tyrt’ hádertdeldiísið HneTRn kl. 20.30. sun 13/6 nokkur sæti laus, fös 18/6 VÍCjpiá sosa HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00 faimsýn. mið 9/6 uppselt, fim 10/6, fös 11/6 TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA! 20% afsláttur af mat fýrir leikhúsgesti í Iðró. Botðapantanir í síma 562 9700. sun. 13/5 kl. 14, sun. 20/6. kl. 14 Ósóttar pantanir seldar fyrir sýningu Athugið. Sýningum fyrir sumarieyfi fer fækkandi fös. 11/6 kl. 23.30, miðnætursýning, lau. 12/6 kl. 20.30 nokkur sæti laus fös. 18/6 kl. 20.30 lau. 19/6 kl. 20.30 Miðasala í s. 552 3000. Opið virka daga kl. 10 — 18 og fram að sýningu sýningardaga Miðapantanir allan sólarhringinn. Borðdukar til bráðargjafa Uppsetningabúðin Hvcrfisgötu 74, sími 552 5270. Aðstandendur myndarinnar Rushmore KOMNIR YFIR ÞRÖSKULDINN Bandaríska myndin Rushmore, sem sýnd er í Bíóborginni, fjallar um ást skólastráks á kennara og hugmyndir hans um að reisa sædýrasafn á skólalóðinni henni til heiðurs. Hálfdán Pedersen talaði við leikstjóra og leikara myndarinnar. BILL Murray var verðlaun- aður af gagnrýnendum í New York fyrir frammi- stöðu sína í myudinni. JASON Schwartzman ákveður að reisa sædýrasafn til að ganga í' augun á kennara sínum. HVORT er það ákveðni eða þráhyggja sem einkennir Jason? KVIKMYNDIN Rushmore kom út fyrr á árinu í Banda- ríkjunum og skaust fljótlega upp á lista yfir tíu bestu myndir í mörgum tímaritum þar vestra, m.a. Rolling Stone, People og Newsweek. Einnig hefur Rushmore, sem leik- stýrt er af Wes Anderson, í sigurför sinni sópað að sér fjöldanum öllum af verðlaunum á kvikmyndahátíðum víðsvegar um Bandaríkin. Byggð á eigin reynslu Rushmore er önnur mynd Ander- sons í fullri lengd en áður leikstýrði hann Bottle Rocket. Handrit beggja mynda skrifaði hann með félaga sín- um Owen Wilson, sem einnig lék eitt aðalhlutverk fyrri myndarinnar. Greinarhöfundur hitti leikarana á Four Seasons-hótelinu í Los Angeles og fóru samræður hans við leikstjór- ann fram í gegnum gervihnött þar sem Anderson var staddur í Dallas í Texas ásamt Owen að vinna að nýju handriti. „Hvort tveggja eru mjög persónu- legar myndir fyrir okkur Owen,“ seg- ir Anderson og horfír alvarlegur fram af stórum sjónvarpsskermi fyr- ir miðju herberginu. Uppfærslur skólaleikrita Maxs eru byggðar á lífs- reynslu Andersons, sem segist sjálf- ur hafa verið einkar erfiður nemandi. „Foreidrar mínir skildu þegar ég var ungur og ég kunni ekki almennilega að kljást við það,“ segir hann. „Ég var alltaf að stofna tilvand- ræða og leikritaskrif mín voru því nokkurs konar flótti frá raunveru- leikanum. Dag einn gerði kennari minn samkomulag við mig - yrði ég til friðs næstu tvær vikurnar fengi ég að setja upp leikrit í skólanum. Þetta samkomulag virkaði og varði í nokkur ár. Ég tók þó alltaf bestu hlutverkin frá fyrir sjálfan mig og það var sennilega ástæðan fyrir því að ég nennti þessu.“ Eiginleiki sem okkur vantar Hvers vegna bregður þér þá ekki fyrir í eigin kvikmyndum? spyr greinarhöfundur í hljóðnemann. „Ætli athyglisþörfin hafi ekki dáið þegar sköpunargáfan fæddist," svar- ar Anderson með lymskufullu brosi. Wes og Owen eru æskuvinir og var það einmitt á gagnfræðaskólaár- unum sem þeir kynntust. Anderson bað Wilson að taka að sér hlutverk í einni uppfærslu sinni og frá þeim degi var mikið spjallað og pælt. Þeir settust einn dag niður við ritvél Owens og hófu skrif á handriti Bottle Rocket. En þá í stuttmynda- formi. Þeir skutu síðar myndina á 16mm filmu fyrir sparifé og klink. Þegar stuttmyndin féll svo óvart í hendurnar á „réttu aðilunum" var úti það hellst að skrifa og kvikmynda hana á nýjan leik, en þá í fullri lengd. En hvaðan kom hugmyndin að Rushmore? „Lykillinn að handritinu var karakterinn Max,“ segir Ander- son og leggur áherslu á að hugmynd- in sé þeirra beggja. „Við vildum skrifa sögu um strák sem væri hel- tekinn af þeirri hugmynd að hann gæti gert allt sjálfur, gæti stjórnað öllum pakkanum, rekið allan heim- inn úr bflskúrnum. Og láti ekkert aftra sér, aldrei. Svoleiðis karakter- ar heilla okkur því þessi óstjórnan- lega ákveðni er sennilega eiginleiki sem okkur skortir sjálfa." En að finna rétta leikarann kost- aði þá félaga meira blóð og meh’i svita en þá hefði nokkurntíma grun- að. Þeir kembdu leiklistar- og gagn- fræðaskóla í tveim heimsálfum lát- laust í níu mánuði, notuðust við fjór- tán ráðningarstjóra í Englandi, Kanada og Bandaríkjunum og aug- lýstu eftir leikurum á Netinu og í stærstu fféttablöðum Bandaríkj- anna, en allt án árangurs. 1.800 umsækjendum síðar... „Við vissum ekki hvað við vorum komnir út í,“ dæsir Anderson. „En ég vissi þó að ég ætlaði ekki af stað með þessa mynd nema ég fyndi hinn fullkomna Max.“ Það var ekki fyrr en um 1.800 umsækjendum síðar, þegar aðeins mánuður var í tökur, að ráðningarstjórinn Davia Nelson hitti Jason Schwartzman í partíi í San Francisco. Schwartzman rifjar upp atvikið fyi’ir greinarhöfundi. „Davia labbaði upp að mér og sagði: „Við erum að leita að strák sem er graður og líkar að skrifa leikrit". Og ég svaraði: „Vá, ég er maðurinn." Eg gaf henni sím- ann og heimilisfangið og þegar ég kom heim síðar þetta kvöld beið mín handrit við dyrnar." Anderson segir Jason hafa smellpassað í hlutverk Max og strax eftir þeirra fyrstu kynni hafi hann tilkynnt að leitinni væri lokið. í hlutverki Hr. Blume er Bill Murray og Anderson segist varla geta ímyndað sér betri leikara í hlut- verkið. „Við hefðum getað fengið frægar stjörnur í öll hlutverkin en vildum að myndin hefði sitt eigið að- dráttarafl. Bill var hrifinn af Bottle Rocket og sýndi Rushmore mikinn áhuga. Honum fannst handritið tært.“ Með þátttöku Murrays var leiðin greið. Hlutverkin féllu öll í skorður og hafist var handa. Útkoman bar ávöxt sem þeir félagar munu ávallt njóta góðs af. Af skrítnum karakterum Wes Anderson og Owen Wilson fengu kvikmyndabakteríuna á unga aldri. Anderson gerði mikið af mynd- um á vídeó þegar hann byrjaði í gagnfræðaskóla enda var þar til staðar ágætis safn af græjum sem Wes fékk ómæld not af. Tilrauna- stuttmyndir hlóðust upp í hillu þar til tími var kominn að takast á við stæi-ri verkefni. Það var um það leyti sem þeir Owen kynnast. „Þetta er búið að vera bölvað basl frá upphafi. Og það er núna fyrst sem hlutirnar eru farnir að ganga hjá okkur,“ segir hann. „Síðasta spurning,“ segii- stjóm- andi blaðamannafundarins og ber sig eftir hljóðnemanum. Greinai'höfundui- notar tækifærið og ber fram tværr: ,Að hvaða handriti eruð þið að vinna og hvers vegna skrifið þið í Texas?“ „Við skrifum alltaf í Texas. Við bjuggum í Texas og fáum það næði hér sem við þurfum. Ég vil síður segja frá hugmyndinni en þori þó að segja að karakterar sögunnar eru ekki síður skrítnir en þeir sem við höfum áður skapað." Greinarhöfundur bugtar sig fyrir umsjónarmanneskjunni og biður leikstjórann að bera saman reynslu- sögur Rushmore og Bottle Rocket og Anderson svarar: „Þetta var al- gjörlega sín hvor fæðingin. í saman- bm-ði við Bottle Rocket var enginn þrýstingur á okkur að klára Rus- hmore því við vorum búnh' að sanna okkur, búnir að klífa þennan leiðinda djö... þröskuld.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.