Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Rannsókn á gæðum og hollustu grænmetis á íslenskum markaði s Islenskt grænmeti stenst því erlenda snúning ÍSLENSKT grænmeti stenst fylli- lega samanburð við það erlenda grænmeti sem hér er á boðstól- um hvað varðar gæði og holl- ustu. Þetta er helsta niðurstaða rannsóknar á grænmeti á ís- lenskum markaði, sem nú er unn- ið að hjá Matvælarannsóknum á Keldnaholti. Greint er frá rannsókninni í fréttabréfi frá Garðyrkjuskóla ríkisins. Þar kemur fram að fylgst hafi verið með gæðum grænmetis á íslenskum markaði frá mars 1998 til mars 1999 og að tekin hafi verið hátt í 500 sýni hjá dreifíngarfyrirtækjum og í grænmetisborðum verslana. Voru gæðin metin út frá sjónar- hóli neytenda og var einkum horft til bragðgæða, útlits, efna- innihalds og hollustu. Islenskir tómatar safaríkir Grænmetistegundirnar sem metnar voru eru tómatar, gul- rætur og salat. Niðurstöður matsins sýna m.a. að íslenskir tómatar eru dekkri á Iit en er- lendir tómatar og að algengasti galli þeirra íslensku er ójafn þroski. Rispur voru hins vegar algengasti galli erlendra tómata. Þá taldist hlutfall gallalausra tómata hvað varðar útlit vera hærra meðal íslenskra tómata. Bragð og safi tómata voru einnig metin og þar töldust ís- lenskir tómatar hafa meira ein- kennandi tómatbragð en erlendir tómatar, auk þess að vera tals- vert safaríkari. Einnig var meira um að dómarar greindu fram- andi aukabragð í erlendum tómötum. Eru því niðurstöður úr þessum hluta matsins íslenskri framleiðslu í hag. Bragð og safi gulróta voru metin með því að smakka á gul- rótarmauki í stað heilla gulróta. Dómararnir fengu þó einnig lít- inn gulrótarbita til að meta hversu stökkt sýnið var. Hér voru niðurstöður ekki eins afger- andi og í matinu á tómötum því þótt íslensku gulræturnar hafi fengið hærri einkunn en þær er- lendu fyrir bragð og safa var heildareinkunn sýnanna svipuð. Þá var magn beta-karótíns í gul- rótunum mælt og kom þar í ljós að heldur minna er af því í ís- lenskum gulrótum en erlendum, enda myndast minna af því við lágan umhverfishita. Salat var einkum metið með til- liti til nítratinnihalds, en ungbörn eru viðkvæm fyrir nítrati og FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 21 Alumina Lux kerruvagn Úrvaiid er i\já okkur 3 3 6 6 B Æ Morgunblaðið/Ásdís ISLENSKIR tómatar töldust hafa meira einkennandi tómatbragð en erlendir tómatar. 1 1 1 mbl.is LLTA/= e/TTH\y'A€3 N kveður nýleg reglugerð Evrópu- sambandsins á um hámarksmagn þess í salati. Er þar miðað við að mtratinnihaldið fari ekki yfir 4.500 mg/kg yfir vetrarmánuð- ina, en yfir sumarmánuðina má það ekki vera hærra en 3.500 mg/kg í inniræktuðu salati og 2.500 mg/kg í útiræktuðu salati. Niðurstöður mats Matvælarann- sókna benda til þess að íslenskum framleiðendum gangi vel að halda nítratmagninu innan þessara marka. Reyndist magnið hjá þeim aldrei fara yfir mörkin yfir sum- armánuðina, en fór þó þrisvar yf- ir þau í þeim tólf mælingum sem gerðar voru yfir vetrarmánuðina. Mikilvæg rannsókn í fréttabréfi Garðyrkjuskóla ríkisins kemur fram að rannsókn- ir af þessu tagi hafi mikið gildi þar sem mikilvægt sé að efla gæðaeftirlit við ræktun og dreif- ingu þannig að íslenskir framleið- endur verði sem best í stakk bún- ir til að mæta auknum innflutn- ingi. Einnig segir í fréttabréfinu að nauðsynlegt sé að fyrir liggi upplýsingar um gæði íslensks grænmetis þegar nýir möguleik- ar opnast fyrir hráeftii í tilbúna rétti, en búast megi við aukningu á framleiðslu þeirra. Tilboð frá fimmtudegi til sunnudags' Livostin augndropar og nefúði gegn frjóofnœmi Tilboðsverð í verslunum Lyfju: ugndropar kr. 1069,- cóc r Fœst án lyfseðíls Ofnœmisdagur í Lyfju Lágmúla Veitum ráðgjöf í dag frá kl 14:00-18:00 D LYFJA Lyf á lágmarksverðl Sumarbústaðaþrenna þrjár plöntur í pakkningu Bergtoppur „Blátoppur" Lonicera caerulea var. altaica Blaðfallegur runni. Verður um 100-150cm. Ljósgreen blöð og gul blóm á vorin. Góður í limgerði. Harðgerð. Elinorsýrena Syringa x prestoniae „Elinor" Stórvaxinn runni. Verður um 200cm. Bleikir blómklasar í júni-júlí. Mjög biómsæll og harðgerður. Þrenna Heildarverð áður 1.690,- Fieiri bílastæði Tilboðið gildir frá fimmtudegi til sunnudags eða á meðan birgðir endast. NÚ 1.120,- • Pöntunarþjónusta fyrir landsbyggðina • Fagieg þjónusta • Gjafakort frá okkur er góð gjöf W GROÐRARSTOÐIN STJÖRNUGRÓF18, SÍMI581 4288, FAX 5812228 Sækið sumarið til okkar Stafafura Pinus contorta Fagurgrænt barrtré, fljótvaxin og harðgerð planta. Verður um 3-6m. Hentar vei í sumarbústaðaiand.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.