Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Indveijar vara Pakistana við vegna átakanna í Kasmír Rússnesk leyniskjöl um morðingja Kennedys Segjast ekki geta útilokað nvtt stríð Nýju-Delhí, Srinagar. Reuters, AFP. INNANRÍKISRÁÐHERRA Ind- lands sagði í gær að Indverjar yrðu að búa sig undir þann möguleika að þeir þyrftu að heyja nýtt allsherj- arstríð við Pakistana vegna deil- unnar um Kasmír. Yfírmaður ind- verska hersins tók í sama streng og sagði að svo gæti farið að herinn þyrfti að ráðast yfír markalínuna, sem skiptir Kasmír, en indverska stjómin yrði að samþykkja slíkar hemaðaraðgerðir. Stjórnvöld í Pakistan sögðust hafa aukið öryggisviðbúnað sinn vegna hugsanlegra loftárása Ind- verja en talsmaður pakistanska hersins kvaðst þó ekki líta svo á að allsherjarstríð væri yfírvof- andi. Indverjar og Pakistanar hafa tvisvar sinnum háð stríð vegna deilunnar um Kasmír á síðustu 50 árum. Deilan magnaðist fyrir nokkram vikum þegar hundrað vel vopnaðra skæraliða réðust inn á yfírráðasvæði Indverja í norður- hluta Kasmír og Indverjar hafa gripið til mestu hernaðaraðgerða sinna í þrjá áratugi til að flæma skæraliðana á brott. Aðgerðirnar hafa þó gengið hægt þar sem skæruliðarnir hafa komið sér fyrir á torfæram fjallgarði, sem er allt að 5.000 m hár og snævi þakinn. Hermálasérfræðingar segja að indverski herinn geti leitt hemaðinn gegn skæraliðunum til lykta á skömmum tíma ef honum yrði leyft að fara yfír markalínuna í Kasmír til að hindra að skæralið- arnir fái birgðir frá pakistanska yf- imáðasvæðinu. Pakistanar hafa hótað að svara slíkri innrás af full- um þunga og óttast er að allsherj- arstríð blossi upp milli ríkjanna fari indverski herinn yfír markalín- una. Indverska stjórnin er talin vera treg til að grípa til slíkra aðgerða þar sem ljóst er að þær myndu mælast mjög illa fyrir erlendis. Ved Prakash, yfirhershöfðingi indverska hersins, sagði þó í gær að ekki væri hægt að útiloka þenn- an möguleika. „Við fylgjumst alltaf grannt með ástandinu og ég hygg að ef nauðsynlegt verður að fara yfír markalínuna í þágu æðstu þjóðarhagsmuna þá verði það mál tekið fyrir í stjórninni,“ sagði hann. Útiloka friðarviðræður Lal Krishna Advani, innanríkis- ráðherra Indlands, kvaðst ekki geta útilokað að stríð blossaði upp og varaði Pakistana við því að það yrði þeim „óhemju dýrkeypt" ef þeir reyndu að magna átökin í Kasmír. Hann bætti við að ekki kæmi til greina að hefja friðar- viðræður við Pakistana fyrr en árásarmennimir færa af indverska yfírráðasvæðinu. Malik hershöfðingi sagði að Ind- verjar hefðu sannanir fyrir því að pakistanskir hermenn hefðu tekið þátt. í árás skæraliðanna yfir markalínuna. Hann sýndi ýmis gögn, svo sem bréf, persónuskilríki og pakistönsk vopn sem indverskir hermenn era sagðir hafa náð á átakasvæðinu. Indverskir þingmenn masgjarnir Bombay. AFP. RÍKISREKIÐ símafyrirtæki á Indlandi hefur lokað símum 387 fyrrverandi þingmanna, eftir að þeir létu undir höfuð leggjast að greiða símareikninginn. Þingmenn á Indlandi mega hringja 100 þúsund símtöl á ári án gjalds, það er að segja 274 símtöl á dag, og tali þeir meira verða þeir að borga. En þetta virðist ekki nægja, því síma- reikningar þingmanna fyrir um- framsímtöl á síðustu tuttugu ár- um nema samtals 222 milljónum íslenskra króna, að því er tals- maður símafyrirtækisins bar fyrir rétti í vikunni. Af þessari upphæð hefur aðeins tæplega sjötti hluti verið greiddur. Obreyttur borgari í Bombay, Manubhai Vashi, lagði fram kæra á hendur þingmönnunum vegna þessa fyrir tveimur ár- um, enda taldi hann að menn í valdastöðum, eins og þing- menn, ættu að vera ábyrgir gerða sinna. „Ef óbreyttur borgari borgar ekki símareikn- inginn er símanum lokað án tafar. Hvers vegna ættu þing- menn að hafa þessi forrétt- indi?“ spurði Vashi. toppurínn/ v úíívút mánud - fimmtud kl. 9 -18 föstudaga kl. 9-19 laugardaga kl.10-15 Kúlutjald Swallow 350 1.9 kg -15°c Hollowfiber lil a j Ti Vona að skjölin varpi ljósi á ráða- brugg Oswalds Washington, Moskvu. AP, AFP. BANDARÍSKIR sagnfræðing- ar sem rannsakað hafa morðið á John F. Kennedy í Dallas 22. nóvember 1963 eru vongóðir um að skjöl sem Boris Jeltsín Rússlandsforseti afhenti Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, óvænt á sunnudag muni varpa nýju ljósi á það hvort Lee Harvey Oswald lagði á ráðin um til- ræðið á meðan hann dvaldi í Rússlandi 1959-1962. Jeltsín afhendi Clinton skjölin, sem eru um áttatfu talsins og á rússnesku, á meðan á fundi G- 8 ríkjanna stóð í Köln í Þýskalandi um helgina. Kermit Hall, sem um árabil vann hjá stofnun sem leitaðist við að safna saman öllum til- tækum skjölum um tilræðið við Kennedy, sagði að óvænt gjöf Jeltsíns - sem inniheldur ýmis skjöl sem rússneska leyniþjónust- an (KGB) safnaði saman um veru Oswalds í Rússlandi - markaði „gífurleg tímamót11. Stofnuninni, sem Hall starfaði hjá, tókst ekld að fá Ieyfi rúss- neskra stjórnvalda til að skoða þessi skjöl árið 1996 en Hall er á þeirri skoðun að þau muni geta varpað ljósi á hvað Oswald aðhafðist í aðdraganda Kennedy- morðsins árið 1963. „Þessi skjöl eru afar mikilvæg," sagði Hall, sem kennir sagnfræði við rfldsháskólann í Ohio. „Þau gætu sagt okkur hvort Oswald var í raun að leggja á ráðin um til- ræðið.“ KGB fylgdist grannt með ferðum Oswalds Lee Harvey Oswald flúði yfir til Sovétríkjanna árið 1959 og af- salaði sér bandarískum rfldsborg- ararétti. Vakti þetta athygli KGB- manna og fylgdust þeir grannt með Oswald og rússneskri eigin- konu hans, Marinu. Þeir tóku m.a. upp á segulband allt það sem sagt var í ftiúð Oswalds í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi. KGB borgaði einnig nágrönnum Oswalds fyrir að veita sér upplýs- ingar og tókst þannig að sanka að sér gífurlegu magni um athafnir hans. Oswald varð á endanum nokkuð AP LEE Harvey Oswald, skömmu eftir að lögreglan í Dallas handtók hann fyrir morðið á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta. leiður á lífinu í Rússlandi og snéri aftur til Bandaríkjanna árið 1962 ásamt eiginkonu sinni og barni og settist að í Dallas. Er það skoðun sumra sagnfræðinga, sem rann- sakað hafa morðið á Kennedy, að Oswald hafi ekki hafíð ráðabrugg sitt um að ráða Kennedy af dög- um, fyrr en hann var kominn aftur til Bandaríkjanna á nýjan leik. Eins og kunnugt er úrskurðaði nefnd, sem kennd var við Earl Warren hæstaréttardómara, á sín- um tíma að Oswald hefði verið einn að verki. Oswald var sfðan sjálfur ráðinn af dögum tveimur dögum síðar þegar Jack Kuby, sem átti næturklúbb í Dallas, skaut hann til bana. Skjölin sögð sanna það eitt að Rússar komu ekki að morðinu Mikhail Lyubimov, fyrrverandi foringi í KGB, sagði hins vegar í samtali við Echo-útvarpsstöðina í Moskvu að það eina sem fengist staðfest af þessum skjölum væri sú staðreynd að leiðtogar Sovétrfltj- anna höfðu ekkert með tilræðið að gera. Lyubimov sagði að stjórnarherr- um í Moskvu hefði brugðið mjög við fréttum af tilræðinu á Kennedy og helst óttast að þeim yrði kennt um morðið. „[Nikita] Krúsljoff rauk í flýti til bandaríska sendi- herrans til að fullvissa hann um að við hefðum ekkert haft með þetta að gera,“ sagði Lyubimov. Loftpnessup Allar stærðír og gerðir Hagstætt verð ÞAO LIGGUR í LOFTIMU JWfSHÁiiTÆýCl llF.. Ganðsenda 21, 108 Reykjavík, sími 568 8925. Saddam vill stöðva viskuleka Bagdad. AFP. SADDAM Hussein, forseti íraks, ákvað í gær að náða háskólakennara sem flúið hafa land og leyfa þeim að snúa aftur án þess að þeir þurfí að óttast ákæru, að því er opinbera fréttastofan INA skýrði frá. Mikið hefur borið á flótta menntamanna frá írak og menntamálaráðherrann Abdel Jabbar Tawfíq lofaði í gær að allir háskólakennarar sem snera aftur heim fengju störf sín aftur og héldu full- um fríðindum. Laun kennara í Irak nema nú einungis tæp- lega þúsund krónum á mán- uði vegna gengisfalls dínars- ins undanfarin níu ár, síðan Sameinuðu þjóðimar settu viðskiptabann á landið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.