Morgunblaðið - 02.07.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 9
_____________FRÉTTIR___________
Jarðeigendur í Árnessýslu skila
landamerkjakröfum til óbyggðanefndar
Vilja að jarðeigendur
eignist afréttinn
EIGENDUR 79 jarða í Árnessýslu
eru þessa dagana að skila inn kort-
um og landamerkjakröfum til
óbyggðanefndar. Jarðeigendur í
sýslunni gera m.a. þá kröfu að af-
réttir verði skilgreindir sem land-
fræðileg eign jarðanna. Páll Lýðs-
son, formaður Afréttamálafélags
Flóa og Skeiða, telur ekki ólíklegt að
bændur muni láta reyna á rétt sinn
fyrir dómstólum verði úrskurður
óbyggðanefndar þeim óhagstæður.
Óbyggðanefnd var stofnuð með
lögum um þjóðlendur sem nýlega
voru samþykkt á Alþingi, en lögin
gera í stuttu máli ráð fyrir að allt land
sem einstaklingar eða félög geta ekki
sýnt fram á að sé eign þeirra teljist
eign ríkisins. Óbyggðanefnd hefur
fengið það verkefni að skýi'a hvar
landamörkin eru milli lands í eigu rík-
isins og lands í eigu eintaklinga og fé-
laga, en þessir jarðeigendur eru flest-
ir bændur. Óbyggðanefnd ákvað að
hefja þetta verk í Amessýslu og er
búist við að niðurstaða af þessum
fyrsta áfanga verkefnisins ráði miklu
um niðurstöðuna fyrir landið í heild.
Mikil vinna við gagnaöflun
og kortagerð
Afréttamálafélag Flóa og Skeiða og
sveitarfélögin í Ámessýslu réðu Pál
Lýðsson, sagnfræðing og bónda í
Litlu-Sandvík, til þess verkefnis að
afla gagna til að rökstyðja kröfur jarð-
eigenda í Ámessýslu. Páll sagði að
jarðeigendur hefðu orðið að leggja á
sig talsverða vinnu og kostnað við að
rökstyðja kröfur sínar. M.a. þyrftu
þeii' allir að leggja fram kort af jörðum
sínum þar sem landamerkin væru
teiknuð inn á. Hann sagði að að mörgu
leyti hefði verið eðlilegra að ríkið bæri
kostnað af þessari vinnu sem það hefði
óskað eftir að yrði ynnt af hendi.
Páll sagði að á áranum 1882-1890
hefði verið unnin greinargerð um
alla landamerkjapunkta í Árnessýslu
og jafnframt hefði verið óskað eftir
að fólk gerði athugasemdir við þá.
Síðan hefði þessum landamerkjum
verið þinglýst. Nú væri verið að
vinna þetta verk aftur og að þessu
sinni með landakortum.
Óvissa um afréttínn
Páll sagði að jarðeigendur í Ár-
nessýslu gerðu kröfu til þess að af-
réttir yrðu skilgreindir sem land í
eigu jarðanna. Hann sagðist gera sér
grein fyrir að um þetta væm skiptar
skoðanir, en bændur biðu spenntir
eftir því að heyra afstöðu óbyggða-
nefndar til málsins.
„Eg hef alltaf litið svo á að afrétt-
ur væri svæði þar sem fé væri haldið
til beitar og hrossum hér áður fyn'
og jafnvel geldneytum og að þetta
væri landfræðilegt hugtak. En mér
sýnist að verið sé að reyna að gera
þetta að einhvers konar gerandi
hugtaki sem tekur til beitarréttinda,
berjatínsluréttinda, vikurnámurétt-
inda og réttinda til að tína fjallagrös.
Þeir sem hafa þessa afstöðu telja að
ríkið eigi sjálft landið.“
Páll sagði að ef óbyggðanefnd
hafnaði kröfum bænda til eignar á
afréttum mætti gera ráð fyrir að
þeir létu reyna á afstöðu dómstóla til
þessa máls. Þarna væra miklir hags-
munir í húfi og ólíklegt að bændur
sættu sig við að afréttir yrðu teknir
af þeim án þess að þeir leituðu allra
leiða til að spyrna við fótum.
Nú þegar jarðeigendur í Árnes-
sýslu hafa lýst kröfum sínum mun
óbyggðanefnd fara yfir kröfurnar og
meta þær. Nefnd á vegum fjármála-
ráðuneytisins, sem var sett á stofn til
að gæta hagsmuna ríkisins í málinu,
mun einnig skila skýrslu um málið
og að því búnu kveður óbyggðanefnd
upp úrskurð. Bæði ríkið og jarðeig-
endur geta höfðað dómsmál sætti
þeir sig ekki við úrskurðinn. Niður-
staðan í þessum málum gæti tekið
talsverðan tíma, en óbyggðanefnd er
ætlað að starfa til ársins 2007.
Ýmls tilboð I gangi
Bolir
áður 1.490, nú 950
Buxur
áður 3.950, nú 1.995
Peysur
áður 3.450, nú 2.600
Kringlunni, sími 568 3242
. : : . ’ . : . . :: ■ : :. . ; ::
ftówpBIl
“ ...pottþétt
Silfurpottar í Háspennu frá 16.júní til 30.júní 1999
Dags. Staður Upphæð
20. júní Háspenna, Laugavegi.............54.511 kr.
21. júní Háspenna, Hafnarstræti.....137.317 kr.
22. júní Háspenna.Laugavegi..............57.387 kr.
24. júní Háspenna, Hafnarstræti......98.272 kr.
Háspenna, Laugavegi............53.081 kr.
Háspenna, Laugavegi.......138.683 kr.
29. júní Háspenna, Laugavegi.............80.473 kr.
30. júní Háspenna, Laugavegi........140.738 kr.
26. júní
29. júní
Dragtir, buxur,
bolir, peysur frá
K.S. Selection
íría
Skólavörðustíg 4a,
s. 551 3069.
Víðtækar rannsóknir hafa sýnt fram á mjög áhugaverðar niðurstöður fyrir notendur hins einstaka
fæðubótarefnis PROLOGIC
wm
\
,\N S
SHOQ,
_
*iu^
LÍKT
fæst í flestum apótekum og lyfjaverslunum um land allt.