Morgunblaðið - 02.07.1999, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MÁLVERK af Salome Þorkelsdóttur, fyrrverandi forseta Alþing-
is, var afhjúpað fyrir nokkru í Alþingishúsinu. Frá vinstri: Ólafur .
G. Einarsson, fyrrverandi forseti Alþingis, Salome Þorkelsdóttir
og Kristin Þorkelsdóttir myndlistarkona.
Málverk af
Salome afhjúpað
MÁLVERK af Salome Þor-
kelsdóttur, fyrrverandi for-
seta Alþingis, var afhjúpað í
Alþingishúsinu fyrir nokkru,
en þetta er í fyrsta skipti sem
gerð er vatnslitamynd af for-
seta Alþingis, því aðrar por-
trettmyndir af forsetum Al-
þingis hafa verið olíumál-
verk.
Málverkið, sem afhjúpað
var að viðstöddum Ólafi G.
Einarssyni, sem var að láta
af störfum sem forseti AI-
þingis, forsætisnefnd, for-
mönnum þingflokka og fleiri
gestum, er eftir myndlistar-
konuna og grafíska hönnuð-
inn Kristínu Þorkelsdóttur.
Salome var forseti Alþingis
á kjörtímabilinu 1991 til 1995
og varð hún fyrst til að
gegna því embætti eftir að
deildaskipting þingsins var
lögð niður og þinginu breytt í
eina málstofu.
Færeyskur þingmaður um viðræður Færeyinga
við fslenska erfðagreiningu
Upplýsingum haldið
leyndum fyrir Lögþinginu
JENI av Rana, þingmaður á Lög-
þingi Færeyja, segir að heilbrigðis-
yfirvöld á eyjunum hafi haldið
leyndum fyrir þinginu mikilvægum
upplýsingum um samningaviðræður
milli þeirra og íslenskrar erfða-
greiningar sumarið 1998. I nýjasta
hefti danska mánaðarritsins Press
kemur fram að ÍE gerði uppkast að
samningi um erfðarannsóknir í
Færeyjum sem lagt var fyrir heil-
brigðisyfirvöld. Press segir að
samningurinn hafi falið í sér einka-
rétt IE á erfðarannsóknum í hagn-
aðarskyni í Færeyjum og útilokað
færeyskt-danskt rannsóknarverk-
efni sem var hafið á þessu sviði.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir
að engin einkaleyfisákvæði hafi ver-
ið í samningsuppkastinu.
Kári segir að samningsuppkastið
hafi viljandi verið misskilið í frétta-
flutningi af málinu í Danmörku og
Færeyjum. „I þessum samningi
segir um þau verkefni sem við fjár-
mögnum fyrir þá, að þeir megi ekki
selja það öðrum, þeir megi ekki fara
í „commercial alliance“ [viðskipta-
bandalag] um sama verkefni. Það er
ósköp eðlilegt. Þetta er ekki einka-
leyfi til að gera erfðafræðirann-
sóknir. Ef við fjármögnuðum verk-
efni áttu þeir ekki að mega snúa sér
við og selja það öðru erfðafræðifyr-
irtæki.“
Skrifað að beiðni Færeyinga
Kári segir að samningsuppkastið
hafi verið skrifað eftir forskrift Páls
Weihe, sjúkrahúsforstjóra í
Færeyjum, sem hafi haft samband
við ÍE að fyrra bragði. „Hann bað
okkur um að skrifa upp. plagg sem
byggðist á okkar samræðum. Hans
uppástungur voru meira að segja
upphaflega að við ættum að flytja
blóð frá Færeyjum, sem við sögðum
að við vildum ekki gera.“
Kári segir að rannsóknir í
Færeyjum hefðu í raun ekki bætt
neinu við í starfi ÍE, fremur væri
þörf á rannsóknum á fjölmennari
hópi en Islendingum. „Það eina sem
við vorum að gera var að leitast við
að hjálpa mönnum sem leituðu til
okkar. Við brugðumst vel við og úr
því varð þetta vesen.“
Enginn þrýstingur
afhálfuÍE
Pál Weihe sagði í grein í Dimma-
lætting á mánudag að ástæða þess
ÍE segir samn-
ingsuppkast vilj-
andi hafa verið
misskilið
að samningsuppkastinu hefði verið
hafnað væri sú að þar hefði verið
einkaréttarákvæði. I kjölfarið hefði
ÍE óskað eftir tillögum Færeyinga
sjálfra. í samtali við Morgunblaðið
dregur Weihe úr því að samnings-
uppkastið hafi falið í sér einkaleyfi.
„Það er of sterkt til orða tekið að
tala um einkaleyfi (monopol). Það
var ákvæði um að ef við færum í
samstarf ætti það að vera bara við
þá. Það var samt langt í frá að þetta
væri eitthvert virðulegt plagg.
Þetta var bara tillaga, sem svara
mátti já eða nei. DeCode var ekki
að setja nein skilyrði. Þeir sögðu að
við skyldum gera þetta þannig að
báðir aðilar yrðu ánægðir. Að Kári
eða DeCode hafi þrýst á okkur á
nokkum hátt er rangt.“
Aðspurður hvort ákvæði samn-
ingsuppkastsins hefðu hindrað starf
annarra erfðafræðirannsakenda í
Færeyjurn, segir Weihe að það
hefði farið eftir því hvað þeir hefðu
viljað rannsaka. „Eins og ég skil
þetta hefði ekki verið leyft að vera í
samstarfi við aðra aðila um rann-
sóknir á sömu hlutum. Ef við hefð-
um til dæmis byrjað að rannsaka
Parkinsonveiki í samstarfi við
DeCode hefðum við ekki mátt vera
einnig í samstarfi við aðra um Park-
insonveikirannsóknir."
Lögþingið leitt
á villigötur
Jenis av Rana, þingmaður Mið-
flokksins í Færeyjum, segir í sam-
tali við Dimmalætting á miðviku-
dag, að svo virðist sem heilbrigðis-
yfirvöld hafi verið að reyna að leiða
Lögþingið á villigötur og að samn-
ingaviðræður IE og þeirra virðist
ekki hafa ekki þolað dagsins ljós.
Hann segir að Lögþingið hafi átt að
fá allar upplýsingar um þær. „Það
var alltaf gert lítið úr sambandinu
milli Færeyja og DeCode,“ segir
Jenis. „En það er hreint ekkert
smáatriði, að ítarlegt uppkast hafi
verið uppi á borðum."
Akvæði í samningnum sem
danska blaðið Press vitnar einkum í
því til stuðnings að leitað hafi verið
eftir einkaleyfi hljóðar svo, sam-
kvæmt upplýsingum frá Páli Weihe
í þýðingu Morgunblaðsins:
„3.2. Einkaréttur á rannsóknar-
sambandi. Færeyjar skulu ekki gera
annan samning um samvinnu af við-
skiptatagi eða taka upp aðra sam-
vinnu sem takmarkar möguleika
Erfðagreiningar á að nýta sér niður-
stöður samvinnunnar fjárhagslega í
samræmi við ákvæði þessa samn-
ings. Sú skuldbinding sem felst í
þessu ákvæði helst þótt samningi
þessum verði af einhverjum ástæð-
um rift eða hann falli úr gildi.“
Páll segir að töluverð umræða
hafi verið í Færeyjum í vetur um
hvaða leiðir eigi að fara varðandi
erfðarannsóknir í Færeyjum. I
byrjun júní var haldin ráðstefna um
málið í Norræna húsinu. Það sem
einkum er rætt um er að stofna ein-
hvers konar ríkisrekna rannsóknar-
miðstöð. Páll segir að aðvaranir ís-
lenskra lækna vegna miðlægs
gagnagrunns á Islandi hafi verið
misskildar af mörgum Færeyingum
sem almenn andstaða við erfða-
rannsóknir og því hafi vaknað tor-
tryggni gagnvart þeim. Hann segir
það fjarri lagi, sem haldið hafi verið
fram í færeyskum fjölmiðlum, að ÍE
hafi viljað arðræna Færeyjar á
nokkurn hátt eða að þeir hafi beitt
blekkingum í samningaviðræðum.
Nýslátrað lambakjöt í Nýkaupi
NYKAUP býður nú um helgina
nýslátrað lambakjöt í kjötborðum
verslananna í Kringlunni og á Sel-
tjarnarnesi. Er þetta nýjung á þess-
um tíma árs og greinilegt að bænd-
ur eru að verða mun meðvitaðri um
að vera með nýslátrað lambakjöt á
markaðnum, segir í tilkynningu.
Nýkaup, Ferskar kjötvörur og
Kaupfélag Skagfirðinga vinna visst
frumkvöðulsstarf með því að bjóða
neytendum upp á nýslátrað lamba-
kjöt og munu fram að sláturtíð
bjóða upp á um 2.000 dilka, segir
ennfremur.
Þá verður nýtt íslenskt blómkál til
sölu í verslunum Hagkaups í dag og
verður til í Kringlunni fyrir hádegið.
Stértr bMar • Óá$tit bilar * Dýfir bifeír
ilyu mnur o'j LílliiuiiiiuT^aSCSg
«swa 11033 - 320 3020 • SHftáí;