Morgunblaðið - 02.07.1999, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Umhverfíssumarbúðir
í Onundarfirði
SKOTTLAUSA tófan sem Valur
veiddi fyrir stuttu í Svalvogum.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
REFASKYTTUR ísafjarðarbæjar, Valur Richter og Amfinnur Jónsson.
Skutu
rófulausa
tófu
fsafirði - Nýlega var gengið frá
ráðningu þeirra Arnfinns Jóns-
sonar og Vals Richters til refa-
veiða á vegum Isafjarðarbæjar í
sumar.
Svæðið sem þeir félagar fara
um er mjög víðlent, nær frá Álfta-
firði við Djúp og allt yfír í Arnar-
Qörð og er um mikið fjalllendi að
fara. Þeir eru báðir þrautreyndar
refaskyttur og einkum gjörkunnir
refaslóðum í Arnarfírði og Dýra-
firði. Tíðarfarið í vor hefur verið
afleitt. Mörg þekkt greni voru
undir fönn og þess vegna hefur
tófan gert sér mörg ný að þessu
sinni. Samt voru þeir félagar
komnir með yfir áttatíu unnin dýr
um síðustu helgi.
Það bar til tíðinda um daginn,
að þeir félagar unnu rófuiausa
tófu í Svalvogum við utanverðan
Arnarfjörð. Maður sem er ófróð-
ur um tófuveiðar lét sér detta í
hug, að einhver hefði skorið
skottið af til að fá premíuna og
vonast til að annað yxi í staðinn
og þannig mætti fá fleiri en eina
„uppskeru" af sömu tófunni. Val-
ur telur slíkt af og frá. ,Ég hef
aldrei séð svona áður. Hún hefur
greinilega fæðst rófulaus. Það
var ekki að sjá neitt ör eða neinn
stubb. Þessi tófa hafði sýnilega
verið mjög öflug í kollunni. Eg sá
hana fyrst á löngu færi og hélt
fyrst að þarna væri lamb að
koma skokkandi. Mér fannst
lambið að vísu með óvenjulega
stóran haus og þegar ég gætti
betur að sá ég að þetta var tófa
með kollu í kjaftinum."
Það er svo spurningin hvort
Valur fær borgað fyrir skott af
skottlausri tófu.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
SJÓSTANGVEIÐIMENN bera saman aflann eftir
veiðidag á Onundarfírði.
Flateyri - í Holti í Önundarfírði
verða í fyrsta skipti sumarbúir fyr-
ir börn á aldrinum 13-16 ára í sum-
ar. Sumarbúir þessar eru öðru vísi
en menn eiga að venjast á Flateyri
að því leyti, að hér er um að ræða
umhverfissumarbúir, en slíkar
sumarbúir hafa verið í Þórsmörk
undanfarin 11 ár með góðum ár-
angri.
Ahugi á að hafa slíkar umhverfis-
sumarbúir á Flateyri kom frá
Rauða krossi Islands, Önfjarðar-
deild á Flateyri, og eru þessar um-
hverfissumarbúir reknar í sam-
vinnu við Rauða kross íslands í
fyrsta skipti á Flateyri, en tilgang-
urinn með slíkum sumarbúðum er
að kynna starfsemi Rauða krossins
og um leið að vekja áhuga bamanna
á sínu nánasta umhverfi. Tilgangur-
inn með umhverfissumarbúðum
Rauða krossins í Þórsmörk var að
sá og gróðursetja á svæðum þar
sem land var illa farið af foki eða
öðrum ágangi.
Á Flateyri verður hins vegar
gróðursett og grætt upp eftir land-
raskið við vamargarðana og nán-
asta umhverfi. Með þessu móti
fræðast krakkamir um gróðursetn-
ingu og umhverfismál almennt, um
náttúruna og í því felst einmitt til-
gangurinn með umhverfissumar-
búðunum í Holti, að uppfræða
krakkana um samfélagið sem þau
búa í og um hvað lífið snýst á Vest-
fjörðum og hvað hægt sé að gera
frekar á Vestfjörðum til uppbygg-
ingar mannlífi og í umhverfismálum
almennt. Um leið læra bömin um
aðalmarkmið Rauða krossins sem
er að hjálpa þeim sem þurfa á því að
halda, án tillits til stöðu og kynþátt-
ar.
í umhverfissumarbúðunum eru
18 börn og era þau frá ísafirði, Ön-
undarfirði og Bolungarvík. I hópn-
um er einnig fatlaður einstakling-
ur ásamt fylgdarmanni og 4 leið-
beinendur. Meðal dagskráratriða
er gróðursetning í varnargörðun-
um, umhverfisfræðsla, kynning á
starfsemi Rauða krossins, skyndi-
hjálparfræðsla, sjóstangaveiði,
bóndaferð, gönguferð og kvöldvök-
ur.
Börnin og leiðbeinendumir gista
öll í Holti, en þrír þeirra era frá
RKÍ að sunnan og sá fjórði frá Flat-
eyri. Einn af þessum þremur sér
síðan um matseldina handa bömun-
um. Aðeins þetta eina námskeið
verður haldið í sumar og er von að-
standenda búðanna að hægt verði
að halda samskonar námskeið ár-
lega ef vel tekst til.
Á hverju ári er eitt þema lagt til
grandvallar og í ár er þemað gegn
ofbeldi. Fjallað verður um ofbeldi,
með verkefnum, og teikningum sem
eiga að vekja börnin til umhugsunar
um þessa vá. Að þessum umhverfis-
sumarbúum standa Rauði kross Is-
lands, Önfjarðardeild, Landgræðsl-
an sem gefur plönturnar og Skjól-
skógar á Vestfjörðum sem sjá um
að fræða bömin um gróðursetningu
og sjá um alla skipulagningu gróð-
ursetningarinnar. Mikill hluti vinn-
unnar er unninn í sjálfboðaliða-
vinnu.
Farið var með bömin í sjóstanga-
veiði í Önundarfirðinum á fjórum
smábátum og var veiðin allgóð mið-
að við veðurfar, en bömin létu það
ekkert á sig fá, því spennan var
bundin við sjóstöngina og aflann
sem fékkst. Lokahnykkurinn verð-
ur síðan gönguferð yfir á Ingjalds-
sand þar sem námskeiðinu lýkur
með grillveislu, ef veður leyfir.
Iðngarðar fyrir-
hugaðir á
Hvammstanga
Hvammstangi - Stofnað hefur ver-
ið félagið Strandbær ehf. á
Hvammstanga. Félagsmenn eru
tíu alls. Markmið félagsins er að
byggja iðnaðarhús, eins konar iðn-
garða, á Hvammstanga. Húsið er
ætlað fyrir starfsemi félaganna og
einnig til útleigu.
Gerður hefur verið kaupsamn-
ingur um húsið, sem byggt verður
úr innlendu límtré og yleiningum.
Húsið verður 66x16 metrar að
staerð, alls 1.070 fermetrar.
Áætlaður byggingarkostnaður
án millilofta er þxjátíu og fimm
milljónir króna og gert er ráð fyrir
að húsið verði tilbúið til notkunar
með haustinu. Byggðastofnun lán-
ar fé til byggingarinnar, en að öðra
leyti er byggingin fjármögnuð með
hlutafé og eigin fé félagsmanna.
Iðnþróunarfélag Norðurlands
vestra hefur aðstoðað eigendur við
skipulag og framkvæmd um stofn-
un félagsins.
Félagar í Strandbæ ehf. era
Skúli Guðbjörnsson, sem er for-
maður félagsins, Vilhelm V. Guð-
bjartsson, Ágúst Sigurðsson,
Gústav Daníelsson, Bílgerði ehf,-
Agnar Jónsson, Pétur Daníelsson,
Græna hjólið-Ragnheiður Eggerts-
dóttir, Áxel Guðni Benediktsson,
Eðalmálmsteypa-Einar H. Esra-
son og Húnaþing vestra.
STJÓRN Strandbæjar ásamt framkvæmdastjóra INVEST. F.v. Vil-
helm V. Guðbjartsson, Baldur Valgeirsson, Skúli Guðbjörnsson og
Ágúst Sigurðsson.
EIGENDUR Strandbæjar ehf. á byggingarstað.
Morgunblaðið/Karl A. Sigurgeirsson
Stretchbuxur
St. 38-50 - Frábært úrval
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
a* Upplýsingamiðstöðin
S - þar sem íslenska er líka töluð
ertu nokkuð að