Morgunblaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
sendingul
r »
Voium aðfanvja
Þvottavél eins og
allir vilja eignast
serstakt krumpuvarnarkerfi
• Tekur 6 kg
• Dvenjustór lúga
• 15 þvotta- og sérkerfi ;S
• 35 mínútna hraðkerfi
• 1000 sn./mín.
• Allar innstilllngar mjög auðveldar
• Glæsileg hönnun
• Vélin er algjorlega rafeindastýrð
• Þvottavirkniflokkur A
• Drkunýtniflokkur A
• Mjög jtýðgeng og hljóðlát þvottavél
-
Fljúgandi snilld!
SIWAMAT XL hefur litio dagsins Ijós eftir þriggja ára þróunarstarf
faerustu hönnuða og verkfræðinga Siemens. Útkoman er ein
alskemmtilegasta og besta þvottavél sem framleidd hefur verið.
Komið og kynnist þessari frábæru þvottavél að eigin raun.
Á
frabæru kynningarverði
SMITH &
NORLAND
kr. stgr.
v Nóatúni 4
W 105 Reykjavík
k Sími 520 3000
www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt.
Austurlensk sælkera-
búð á Suðurlandsbraut
OPNUÐ hefur verið austur-
lensk sælkerabúð á Suður-
landsbraut 6 í Reykjavík.
Verslun þessi er rekin af veit-
ingahúsinu Nings og leggur
aðaláherslu á vörur frá Asíu,
þó þar megi einnig finna sæl-
keravörur frá Italíu, Mexíkó og
Spáni.
I fréttatilkynningu segir að
Sælkerabúð Nings leggi aðalá-
herslu á ferskt grænmeti frá
Asíu sem ekki hafi fengist áður
á Islandi. Megnið af grænmet-
inu sé flutt inn vikulega með
flugi og að meirihluti þeirrar
vöru sem Sælkerabúðin selji sé
eigin innflutningur sem tryggi
lægra vöruverð. Þess má geta
að Sælkerabúðin er bæði með
heildsölu og smásölu.
Til aðstoðar og ráðgjafar um
vörur er Ning de Jesus og veit-
ir hann einnig ráðgjöf um mat-
reiðslu.
Einnig selur Sælkerabúðin
frosið Dim-Sum og ýmiskonar
austurlenskan pinnamat í veisl-
ur.
Sælkerabúðin er opin alla
daga frá kl. 12-19 og eru allir
velkomnir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞYSKI hópurinn í heimsókn hjá Slökkviiiði Reykjavíkur í Skógarhlíð.
Þýskir
slökkvi-
liðsmenn
á Islandi
ÞYSKIR áhugaslökkviliðsmenn
komu í heimsókn til slökkviliðs-
manna í Reykjavík um síðustu
mánaðamót. Eru þeir frá smá-
bæ sem heitir Seelenberg í
Schmitten sem er hérað norðan
Frankfurt.
Samskipti reykvískra slökkvi-
liðsmanna og slökkviliðsmanna
frá Seelenberg hafa staðið frá
árinu 1973. Hingað kom 26
manna hópur með mökum og
gistu þeir á heimilum slökkvi-
liðsmanna í Reykjavík.
Ymislegt var gert meðan á
dvöl þeirra stóð, farið í göngu-
ferðir um Reykjavík, Reykjanes
og farið í fjögurra daga ferða-
lag um Vestfírði í blíðskapar-
veðri.
Þýski sendiherrann bauð
hópnum ásamt reykvískum
slökkviliðsmönnum og mökum
þeirra til móttöku og Reykja-
víkurborg var með móttöku í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Græni herinn á
breyttari og m.a. verður hægt að
senda flóknari upplýsingar í SMS-
skilaboðum en áður, t.d. grafík og
nýja hringitóna íyrir GSM-síma, segir
ennfremur.
LEIÐRÉTT
Varð formaður BSRB 1960
í FRÉTT um andlát Kristjáns Thor-
lacius var ekki rétt farið með hve
lengi Kristján var formaður BSRB.
Hann var kjörinn formaður BSRB á
þingi bandalagsins haustið 1960
(ekki 1973) og lét af formennsku
haustið 1988. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Seyðisfirði, Húsavík
og Ólafsfirði
IBUAR Seyðisfjarðar, Húsavíkur og
Ólafsfjarðar verða kvaddir til að
gegna herþjónustu í Græna hernum
nú um helgina.
I fréttatilkynningu segir m.a.:
„Dagskráin hefst á Seyðisfirði á
fimmtudaginn en þar eiga hermenn
Græna hersins að mæta til starfa í fé-
lagsheimilið klukkan 12 á hádegi. Á
fóstudaginn verður herinn síðan á
Húsavík en þar eiga liðsmennimir að
mæta á þak Hvalamiðstöðvarinnar á
hádegi þar sem þeir þiggja léttar
veitingar áður en átök dagsins hefj-
ast. Á laugardaginn verður Græni
herinn síðan á Olafsfirði og hittist
herinn í félagsheimilinu á hádegi sem
fyrr.“
„Nánari upplýsingar um Græna
herinn er að finna á heimasíðunni
www.graeniherinn.is, en þar er jafn-
framt hægt að skrá sig til leiks sem
og hjá samstarfsaðilum Græna hers-
ins en það eru: íslandsflug, Toyota,
Landssíminn, Samskip, Sparisjóðirn-
ir og 01ís,“ segir þar einnig.
SMS-kerfí Sím-
ans GSM eflist
VERULEGAR endurbætur á SMS-
smáskilaboðakerfi Símans GSM voru
gerðar aðfaranótt 15. júií þar sem
stjómtölva kerfisins var tvöfölduð og
eykur það bæði rekstraröryggi og af-
kastagetu en notkun viðskiptavina
Símans GSM á þjónustu kerfisins hef-
ur vaxið hröðum skrefum undanfarna
mánuði, segir í fréttatilkynningu.
Jafnframt verður tryggt að engin
vandamál komi upp í hugbúnaði kerf-
isins er árið 2000 gengur í garð.
Þjónusta í kerfinu verður nú fjöl-
Sjöunda skóg-
arganga sum-
arsins í kvöld
SJÖUNDA skógarganga sum-
arsins, í röð gangna á vegum
skógræktarfélaganna, í fræðslu-
samstarfí þeima við Búnaðar-
banka íslands, verður í kvöld,
fimmtudaginn 15. júlí kl. 20.30.
Skógargöngumar eru skipu-
lagðar í samvinnu við Ferðafélag
fslands og eru þetta árið helgað-
ar athyglisverðum ræktunar-
svæðum skógræktarfélaganna á
Suðvesturlandi. Þetta eru léttar
göngur, við hæfi allra aldurs-
hópa.
Þessi sjöunda skógarganga
sumarsins er í umsjón Skóg-
ræktarfélags Álftaness. Hún
hefst við Hof á Álftanesi kl.
20.30, þar sem garðurinn þar
verður skoðaður. Frá Hofi verð-
ur farið í rútu að framtíðarskóg-
ræktarsvæði félagsins, Almenn-
ingsskógum undir Lönguhlíðum,
sem eru á milli Breiðdals við
Kleifarvatn og Bláfjalla. Skóg-
ræktarfélag Álftaness og Garða-
bæjar mun hefjast þar handa við
landgræðsluskógarverkefni
næsta vor. Jón Gunnar Gunn-
laugsson; formaður Skógræktar-
félags Álftaness, mun annast
leiðsögn í göngunni. Boðið verð-
ur upp á veitingar í Almennings-
skógum.
Gefinn er kostur á rútuferð á
500 kr. að upphafsstað göngunn-
ar. Farið verður kl. 19.30 frá húsi
Ferðafélags íslands í Mörkinni 6.
FASTEIGNA if
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-17. Netfang: http://habil.is/fmark/
FRAKKASTÍGUR
Vorum að fá í sölu 3ja- 4ra herb. íbúð á 2. hæð og í risi í góðu
timburhúsi við Frakkastíg. fbúðin er öll tekin í gegn, m.a. ný
eldhúsinnrétting, nýtt rafmagn, nýtt hitakerfi og nýir gluggar.
Hvít lökkuð furugólfborð á gólfum. Suðursvalir.
A_______________________________________________Jj
NING de Jesus er til aðstoðar og ráðgjafar í Sælkerabúðinni.
Miðstræti
Sérlega glæsileg efri sérhæð í eldra húsi í Þingholtunum.
Húsið er gert upp í upphaflegum stíl og mikið endurnýjað.
Rúmgóð stofa með mikilli lofthæð og bitum í lofti, 2 svefn-
herbergi. Viðarklætt baðstofuloft. Stórt flísalagt baðherbergi.
Ákv. ca 5,1 m í bygg.sj og húsbr.
Borgarfasteignir,
sími 561 4270